Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 14
MÖFÍGUNBLAÐIÐ í4 FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996 AKUREYRI Áhugi fyrir byggingu fleiri íbúða fyrir eldri borgara Tugir manns á biðlista eftir íbúðum aldraðra MIKILL áhugi er meðal eldri borg- ara á Akureyri að kaupa íbúð sem sérstaklega yrði hönnuð með þeirra þarfír í huga. Niðurstöður könnunar á íbúðarþörf fyrir eldri borgara á Akureyri benda ótvírætt í þessa átt, en bæjarstjóm fól starfsfólki Húsnæðisskrifstofunnar á Akureyri að gera könnun meðal íbúa 60 ára og eldri vegna slíkrar byggingar. Rúmlega 130 íbúðir Á árunum fyrir 1990 voru byggð tvö fjölbýlishús með 62 íbúðum við Víðilund og nokkru seinna 70 ibúð- ir í tveimur íjölbýlishúsum við Lindarsíðu. Langur biðlisti er eftir LEIKFÉLAG Akureyrar og Tón- listarskólinn á Akureyri hafa tekið höndum saman við undir- búning hátíðardagskrár sem flutt verður í Samkomuhúsinu kl. 17.15 á laugardag í tilefni af degi íslenskrar tungu. Dagskráin hefur yfírskrifina „Ég bið að heilsa,“ tilvísun í al- kunna sonnettu Jónasar, en efnið sem flutt verður er að megin- hluta til eftir hann, ljóðaperlur og náttúrulýsingar. Leikararnir Amar Jónsson, íbúðum við Víðilund og þá er einn- ig biðlisti eftir íbúðum í Lindarsíðu. Alls vom sendir út spurninga- listar til allra íbúa á Akureyri á aldrinum 60 til 80 ára, samtals 1.300 listar en svör bámst frá um 300 manns. Af þeim sem svöraðu höfðu 90% áhuga á að kaupa íbúð sem sér- staklega yrði byggð fyrir aldraða. Langflestir eða um 66% þeirra sem svömðu vildu helst að íbúðirnar yrðu á Brekkunni, 17% í Glerár- hverfi, 11% á Oddeyri, 4% í Inn- bænum og 2% í miðbænum. Rúmur helmingur þátttakenda kýs að búa í þriggja herbergja íbúð Marta Nordal og Þráinn Karlsson flytja ljóð og laust mál, Trausti Olafsson leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar hefur umsjón með dagskránni og kemur einnig fram. Nýjar útsetningar Guð- mundar Ola Gunnarssonar á lög- um við ljóð Jónasar verða einnig fluttar. Þær eru fyrir strengja- kvartett en félagar úr Sinfóníu- hljómsveit Norðurlands leika, þau Anna Podhajska, Gréta Baldursdóttir, Guðrún Þórarins- dóttir og Stefán Öm Arnarson. og um þriðjungur í tveggja her- bergja íbúð. Lítil eftirspurn er eft- ir einstaklingsíbúðum og stærri íbúðum. Hvað húsagerð varðar vildu 35% þátttakenda að byggð yrðu raðhús, jafnstór hópur nefndi fjölbýlishús og 30% þátttakenda vildu að byggð yrðu lítil sambýli. Ríflega helmingur eða 60% þátt- takenda töldu æskilegt að innan- gengt yrði úr íbúðarbyggingunni í þjónustumiðstöð, en 40% töldu það ekki skipta máli. Þörfin er fyrir hendi Gísli Kristinn Lórenzson, for- maður húsnæðisnefndar, segir nið- urstöður könnuninnar ekki koma á óvart, menn hafi vitað af áhuga eldri borgara á fleiri íbúðum. „Við verðum mjög vör við áhuga fólks á að fleiri íbúðir verði byggðar, það eru tugir manns á biðlista eft- ir íbúðum í Víðilundi og einnig er einhver biðlisti í Lindarsíðu. Við vitum því að þörfin á fleiri íbúðum er fyrir hendi,“ sagði Gísli Krist- inn, en hann benti á að ekki hafi sérstaklega verið spurt um verð- hugmyndir fólks í könnuninni, en ljóst að margir hefðu áhyggjur af þeim þætti. Það þyrfti því að finna hagkvæmar lausnir og byggja ódýrt. Ný Biblíu- þýðing kynnt í TILEFNI af degi íslenskrar tungu efnir Hið íslenska Biblíufélag í samvinnu við Akureyrarkirkju til dagskrár í kirkjunni á sunnudag, 17. nóv- ember. Dagskráin hefst kl. 17 en kynntir verða textar úr nýrri Biblíuþýðingu sem nú er unnið að. Þýðingarstörfin verða kynnt og Eyvindur Erlendsson les valda kafla úr nýju þýðing- unni og eldri þýðingum auk trúarlegra texta frá fyrri tíð. Leirlist í Gallerí AllraHanda KYNNING á leirlist eftir Þóru Sigurþórsdóttir verður í Gall- erí AllraHanda í Grófargili og hefst hún í dag, föstudag. Þóra lauk prófi frá leirlistar- deild Myndlista- og handíða- skóla íslands árið 1990. Hún rekur eigin vinnustofu að Ála- fossi í Mosfellsbæ. Þóra notar jöfnum höndum stein- og post- ulínsleir og vinnur bæði nytja- hluti og skúlptúra. Jólabasar KVENFÉLAGIÐ Baldursbrá heldur basar með handunnum jólamunum til skreytinga og gjafa í Listasafninu á Akur- eyri á morgun laugardaginn 16. nóvember og hefst hann kl. 15. Allur ágóði rennur til líknarmála. Messa LAUFÁSPRESTAKALL: Kyrrðar- og bænastund í Sval- barðskirkju næstkomandi sunnudagskvöld, 17. nóvem- ber kl. 21. Morgunblaðið/Kristján í ÍBÚÐUM fyrir aldraða við Lindarsíðu eru 70 íbúðir, þá eru 62 samskonar íbúðir í fjölbýlishúsum við Víðilund, en nú er svo komið að þörf er fyrir fleiri íbúðir sérstaklega hannaðar með þarfir eldri borgara í huga. Hátíðardagskrá í Samkomuhúsinu Ég bið að heilsa ýöhufff Almennt hlutafjárútboð Útgefandi: Jökull hf., kt. 631068-0149, Aðalbraut, 675 Raufarhöfn. Sölutímabil: 15. nóvember 1996 - 15. maí 1997. Fjárhæð útboðs: Nýtt hlutafé að nafnvirði 20.000.000 króna. Forkaupsréttur: Núverandi hluthafar hafa forkaupsrétt að nýju hlutafé til 29. nóvember 1996 í hlutfalli við hlutafjáreign sína. Eftir þann tíma verða hin nýju hlutabréf boðin almenningi til kaups. Hluthöfum er heimilt að framselja forkaupsrétt sinn að hluta eða öllu leyti. Gengi hlutabréfanna: Gengi hlutabréfanna verður 5,0 á forkaupsréttartímabili og einnig á fyrsta degi eftir að almenn sala hefst. Gengi bréfanna getur breyst verði breytingar á markaðsaðstæðum. Upplýsingar um gengi veitir Kaupþing Norðurlands hf. Söluaðilar: Kaupþing Norðurlands hf. og Kaupþing hf. Skráning: Hlutabréf Jökuls hf. eru skráð á Opna tilboðsmarkaðnum. Sótt verður um skráningu fyrir félagið á Verðbréfaþing íslands þegar hluthafar eru orðnir 200 talsins. Umsjón með útboði: Kaupþing Norðurlands hf. Útboðs- og skráningarlýsing liggur frammi hjá söluaðilum og útgefanda. ééHKAUPÞlNG NÖRÐURÍANDS Hf -Uaggilt verðbréfafyrirtœki- Kaupvangsstrœti 4, óOOAkureyri - Sími 462-4700, fax 461-1235 Meirihluti bæjarráðs samþykkur umferð bíla um göngug’ötuna MEIRIHLUTI bæjarráðs Akur- eyrar lagði til á fundi í gær að gerð verði tilraun með umferð bif- reiða um göngugötuna tímabundið fram til loka aprfl á næsta ári með lágmarks aðgerðum á götunni og kostnaði. Kaupmenn við göngugötuna Hafnarstræti fóra á dögunum fram á það við bæjaryfirvöld að slík til- raun verði gerð. í greinargerð frá skipulagsnefnd bæjarins sem lögð var fram á fundi bæjarráðs í lið- inni viku kemur fram að lágmarks- kostnaður við að hleypa umferð um göngugötuna er um ein og hálf milljón króna. í bókun Sigríðar Stefánsdóttur, Alþýðubandalagi, kemur fram að hún telur að nánari ákvæði vanti í tillöguna til að hægt sé að taka til hennar afstöðu. Það eigi m.a. við um hvernig tilraunin verði metin, hvernig hún verði fjármögn- uð og ekki síst hvenær tilraunin eigi að hefjast en Sigríður getur ekki fallist á að tilraun með um- ferð um göngugötuna hefjist fyrir áramót. Ánægður með niðurstöðuna „Ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu bæjarráðs," segir Flosi Jónsson gullsmiður, einn hvata- manna að því að leyfa umferð bif- reiða um göngugötuna. Hann seg- ir samþykkt bæjarráðs ekki koma á óvart, „ég bjóst alltaf við að þetta yrði niðurstaðan“. Flosi segist vonast til þess að tilraun með umferð bifreiða hefjist um 1. desember og að hún gangi vel fyrir sig svo hægt verði að taka endanlega ákvörðun um framtíð götunnar. „Við viljum sjá meira líf hér í miðbænum og það er ýmislegt á döfinni í þeim efn- um,“ segir Flosi og bætti við að til stæði að stofna miðbæjarsamtök sem myndu m.a. hafa það á stefnu- skrá sinni. Þjálfun stulkna rædd RÁÐSTEFNA um þjálfun stúlkna fer fram í íþróttahöllinni á Akur- eyri á morgun, frá kl. 11 til 14. Anna Valdimarsdóttir, sálfræð- ingur, fjallar um stúlkur og tengir umfjöllunina íþróttum. Þórarinn Sveinsson, lífeðlisfræðingur, fjallar um þrekuppbyggingu stúlkna og tveir reyndir þjálfarar, Vanda Sig- urgeirsdóttir og Logi Olafsson, fjalla um þjálfun stúlkna, svara fyrir- spurnum og taka þátt í umræðum. Ráðstefnan er liður í átaksverk- efni um brottfall stúlkna í íþróttum, á vegum íþróttasambands íslands, í samvinnu við menntamálaráðu- neytið, íþróttabandalag Reykjavík- ur, íþrótta- og tómstundaráð Garða- bæjar og íþróttabandalag Akur- eyrar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.