Morgunblaðið - 15.11.1996, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VILTU líka láta skrifa eitt stykki varðskip handa mér hjá Stjána greifa.
Framkvæmdastjóri Landsbréfa um afnám
skattafrádráttar vegna hlutabréfakaupa
Gæti dregið úr áhuga
og fækkað kaupendum
GUNNAR Helgi Hálfdanarson, fram-
kvæmdastjóri Landsbréfa, telur að
tillaga fjármálaráðherra um að af-
nema skattaafslátt vegna hlutabréfa-
kaupa einstaklinga um næstu áramót
muni leiða tii þess að kaupendum
hlutabréfa fækki. Breytingin sé
þannig fallin til að hafa áhrif á verð
hlutabréfa. Hann hvetur til þess að
skattafrádrátturinn verði afnuminn í
áföngum fremur en í einu lagi.
„Eg tel varhugavert að gera þetta
í einu vetfangi. Hlutabréfamarkað-
urinn hefur vissulega tekið stórstíg-
um framförum og þessi skattahvati
hefur átt sinn þátt í að örva þátt-
töku almennings í hlutabréfamark-
aðinum. Ég óttast að ef þetta verður
gert í einu iagi geti dregið verulega
úr þessum áhuga einstaklinga og
það geti haft slæm áhrif á verð
hlutabréfa. Ég mæli því eindregið
með því að menn geri þetta í áföng-
um á nokkrum árum,“ sagði Gunnar
Helgi Hálfdanarson.
Gunnar Helgi sagði líklegt að
kaupendum hlutabréfa muni fækka
við þessa breytingu. Það eitt og sér
leiddi til minni eftirspurnar eftir
hlutabréfum og þar með lækkunar
á verði. Aðrir þættir svo sem stór-
bætt afkoma fyrirtækja kynnu að
vega þar á móti.
Fallið til að draga úr sparnaði
Sigurður Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupþings, sagði að
sér litist illa á þessa tillögu fjármála-
ráðherra. „Ég tel óskynsamlegt að
gera breytingu sem hugsanlega
dregur úr almennum sparnaði lands-
manna. Hann er of lítill og langmest
af honum er í gegnum skyldusparn-
að í lífeyrissjóðakerfinu. Ftjáls
sparnaður er lítill og gagnrýnisvert
að stuðla að lækkun hans með laga-
breytingu.“
Sigurður sagði að búið væri að
breyta lögum um þennan hlutabréfa-
afslátt oft á liðnum árum og æski-
legt hefði verið að einstaklingar og
markaðurinn hefðu fengið að búa
við meiri stöðugleika í lagasetningu
af hálfu Alþingis. Hann sagði líklegt
að þessi breyting leiddi til þess að
kaupendum hlutabréfa fækkaði frá
því sem nú væri. Erfitt væri að segja
fyrir um hvaða áhrif það hefði á
verð hlutabréfa.
Gildandi lög gera ráð fyrir að ein-
staklingar geti keypt hlutabréf og
nýtt sér afslátt vegna þeirra fimm
ár fram í tímann. Sigurður sagði að
margir hefðu nýtt sér þetta ákvæði
á liðnum árum og hann sagðist ef-
ast um að Alþingi væri stætt á því
að afnema heimildina afturvirkt fyr-
ir þessa einstaklinga. í sjálfu sér
mætti færa rök fyrir því að kaupend-
ur ættu rétt á að nýta sér hlutabréfa-
afslátt samkvæmt núgildandi lögum
út þetta ár og þar með að kaupa
hlutabréf til að nýta afslátt fimm
ár fram í tímann.
Gildir jafnt fyrir alla
Sigurður B. Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri VÍB, sagðist vera
sömu skoðunar um þetta atriði. Það
væri tæplega hægt að gera lögin
afturvirk að þessu leyti. Sigurður
vildi ekki tjá sig um breytinguna að
öðru leyti þar sem hann hefði ekki
kynnt sér alla þætti málsins.
Steingrímur Ari Arason, aðstoð-
armaður fjármálaráðherra, sagði
frumvarpið gera ráð fyrir að afslátt-
urinn yrði afnuminn um næstu ára-
mót og gilti það jafnt fyrir þá sem
keyptu hlutabréf eingöngu til að
nýta sér hlutabréfaafsláttinn í ár og
hinna sem keyptu meira magn til
að nýta skattaafsláttinn í fleiri ár.
Stjóm Hóseigendafélags stefnt
HÚSNÆÐISMÁLASTJÓRN hefur
ákveðið að stefna Sigurði Helga
Guðjónssyni og stjómarmönnum
Húseigendafélagsins fyrir ærumeið-
andi ummæli og aðdróttanir um
stjóm, starfsemi og starfsmenn
Húsnæðisstofnunar ríkisins í fjöl-
miðlum. Sigurður E. Guðmundsson
framkvæmdastjóri Húsnæðisstofn-
unar segir að málið verði þingfest
næstu daga.
Húsnæðismálastjóm samþykkti
ennfremur bókun á fundi sínum á
mánudag þar sem lýst er yfir fullu
trausti á starfsmenn lögfræðideildar
Húsnæðisstofnunar ríkisins og aðra
starfsmenn hennar. „Húsnæðis-
málastjórn lýsir furðu sinni á því að
stjórn Húseigendafélagsins hefur
ekki séð ástæðu til að biðjast opin-
berlega afsökunar á ummælum
framkvæmdastjóra síns heldur gert
þau að sínum á stjórnarfundi félags-
ins þann 9. nóvember síðastliðinn."
Þá bendir stjómin á að tvær ná-
kvæmar rannsóknir hafi farið fram
á lögfræðingadeildinni, þ.e. árið
1995 í tilefni af málum tveggja lög-
fræðinga, sem báðir eru hættir störf-
um og hafi endurskoðun verið gerð
á störfum allra lögfræðinga deildar-
innar. „Seinni rannsóknin er stjóm-
sýsluendurskoðun Ríkisendurskoð-
unar en skýrsla hennar var birt í
október síðastliðnum. Hvorug þess-
ara rannsókna hefur gefíð neitt til-
efni til frekari rannsókna á starfsemi
deildarinnar," segir loks í bókun
húsnæðismálastjómar.
Landssamband sjúkraflutningamanna
Betur staðið
að sjúkra-
flutningum
TÍU ár eru í dag liðin
frá því Landssam-
band sjúkraflutn-
ingamanna var stofnað.
Af því tilefni er á morgun
haldin námstefna þar sem
sjúkraflutningamenn fá
fræðslu um það sem nýjast
er í faginu. Björn Gíslason,
formaður landsambands-
ins, telur að með bættri
menntun sjúkraflutninga-
manna á síðustu áram sé
betur staðið að flutningi
sjúkra og slasaðra en áður
var.
Landssamband sjúkra-
flutningamanna var stofn-
að 15. nóvember 1986 af
sjúkraflutningamönnum
víða af landinu. „Þetta er
fagfélag sem hefur þann
tilgang að gæta hagsmuna
sjúkraflutningamanna og miðla til
þeirra nýjungum í greininni,“ seg-
ir Björn í samtali við Morgunblað-
ið. „í félaginu era nú liðlega 200
menn en alls hafa 400 menn lög-
gildingu heilbrigðisráðuneytisins
til að annast sjúkraflutninga, að-
allega slökkviliðs- og lögreglu-
menn og einnig nokkrir björgun-
arsveitarmenn."
Hvernig hefur félagið haft
áhrif?
„Landssambandið á fulltrúa í
sjúkraflutningaráði landlæknis-
embættisins. Ráðið fjallar um allt
sem varðar sjúkraflutninga í land-
inu og er því mjög mikilvægt fyr-
ir okkur að eiga aðild að því. Þá
hefur félagið gefið út fréttabréf
hin síðari ár. Þar er reynt að birta
greinar um fagleg málefni til að
styrkja félagsmenn í starfi og
fréttir af starfinu. Bréfíð er sent
til félagsmanna, heilsugæslu-
stöðva, sjúkrahúsa og fleiri aðila.
Og í tengslum við tíu ára afmælið
eram við að reyna að lífga upp á
starfið."
Hvernig verður tímamótanna
minnst?
„Við verðum með námstefnu á
Hótel Lind í Reykjavík á morgun,
laugardaginn 16. nóvember. Þar
flytja læknar á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur, sjúkraflutninga-
menn og fleiri sérfróðir menn
fyrirlestra um nýjungar á ýmsum
sviðum starfsins. Meðal fyrirles-
ara era Gestur Þorgeirsson
hjartalæknir sem segir frá nýj-
ungum í endurlífgun, Garðar Sig-
urðsson umsjónarlæknir neyðar-
bíls Slökkviliðs Reykjavíkur segir
frá nýjungum í flutningi slasaðra
og Hanna Dís Margeirsdóttir
deildarlæknir á barnadeild fjallar
um bráðatilfelli barna. Þá fáum
við norskan mann,
Tore Larsen fram-
kvæmdastjóra, til að
segja frá undirbúningi
Evrópustaðla um
sjúkraflutninga en
hann á sæti í staðlar-
áðinu.“
Hvernig munu nýir staðlar á
þessu sviði snerta starf ykkar?
„Tilgangurinn með setningu
þeirra er að samræma búnað og
tæki til sjúkraflutninga og sjúkra-
búnað um borð í skipum og flug-
vélum. Það er af hinu góða. Mér
skilst að undirbúningur staðlanna
sé vel á veg kominn og þeir taki
gildi eftir um það bil ár. Hitt er
svo annað mál hvaða áhrif staðl-
amir hafa á vinnu okkar sjúkra-
flutningamanna að öðru leyti. Eg
bendi á að ekki er hægt að staðla
► Björn Gíslason varðstjóri í
Slökkviliði Reykjavíkur er 41
árs, fæddur í Hafnarfirði 5.
apríl 1955. Hann lærði hús-
gagnasmíði, er með meistara-
réttindi í iðninni og hefur rekið
Trésmiðjuna Lund ehf. undan-
farin átta ár. Björn hóf störf í
Slökkviliði Reykjavíkur árið
1981. Þar hefur hann sótt fjöl-
breytt námskeið, meðal annars
yfirmannanámskeið fyrir
slökkvilið i Sandö í Svíþjóð.
Hann hefur neyðarflutnings-
réttindi. Björn hefur verið for-
maður Landssambands sjúkra-
flutningamanna í þrjú ár og á
sæti í sjúkraflutningaráði Land-
læknis og stjóm Sjúkraflutn-
ingaskólans. Eiginkona Björas
er Karólína Gumiarsdóttir ritari
og eiga þau þrjú börn.
alit enda aðstæður mjög mismun-
andi í Evrópu."
Hvernig standa þessi mál hér á
landi?
„Gæði sjúkraflutningaþjón-
ustunnar hafa aukist mjög á síð-
ustu árum vegna bættrar mennt-
unar sjúkraflutningamanna, sér-
staklega á þéttbýlli svæðum
landsins. Ég tel að rekja megi
upphaf þessarar þróunar til þess
að fyrsta neyðarbifreiðin var tekin
í notkun hjá Slökkviliði Reykjavík-
ur. Eftir það hafa verið gerðar
strangari kröfur um menntun
þeirra manna sem vinna við neyð-
arflutninga.
Slökkviliðsmenn á höfuðborg-
arsvæðinu hafa fram til þessa far-
ið á 500 klukkustunda námskeið
til að öðlast neyðarflutningsrétt-
indi. Nú hefur Sjúkraflutninga-
skólinn tekið til starfa og er öll
fræðslan komin inn í hann, bæði
grannnám og fram-
haldsnám. Að skólan-
um standa Landssam-
band sjúkraflutninga-
manna, Rauði Kross
íslands, Sjúkrahús
Reykjavfkur og
Slökkvilið Reykjavíkur. Það er von
okkar að með starfi skólans verði
meiri festa og unnið að markviss-
ari hátt en áður að menntun
sjúkraflutningamanna. Sem dæmi
um nýjungar með starfí skólans
geti ég nefnt að neyðarflutnings-
námskeiðin hafa verið haldin á
vegum Slökkviliðs Reykjavíkur og
samstarfsaðila þess en Sjúkra-
flutningaskólinn mun fara með
þau út um landið. Fyrsta nám-
skeiðið stendur einmitt yfír í
Keflavík þessa dagana," segir
Björn Gíslason.
Öli fræðslan
komin í
Sjúkraflutn-
ingaskólann