Morgunblaðið - 15.11.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996 11
_________FRETTIR______
Milljarður fari til
skólabygginga á ári
BYGGINGARÞÖRF skólahúsnæðis
grunnskóla Reykjavíkur vegna ein-
setningar er á við umfang sex ráð-
húsa, að sögn Sigrúnar Magnús-
dóttur formanns fræðsluráðs
Reykjavíkur. Vill hún með þessari
samlíkingu leggja áherslu á hversu
gríðarlega stórt verkefnið er. Segir
hún að nauðsynlegt sé að fara vel
með það fé sem áætlað er til þess-
ara framkvæmda og gæta hagræð-
ingar.
Fræðsluráð og borgarráð
Reykjavíkur hafa sent Jöfnunar-
sjóði sveitarfélaga markmiðaáætl-
un til fimm ára, sem meðal annars
felur í sér byggingaráætlanir skóla-
húsnæðis vegna einsetningar. Er
áætlað að setja um milljarð króna
í skólabyggingar á hverju ári með-
an á einsetningarátaki stendur.
„Bæði meirihluti og minnihluti í
fræðsluráði hefur orðið sammála
um að í framkvæmdaáætlun fyrir
árið 1997 séu þrjú stærstu verkefn-
in þau að ídára Engjaskóla,
Grandaskóla og Rimaskóla auk
framkvæmda við Borgarholts-
skóla,“ sagði Sigrún.
Erfitt í vesturbænum
Hún sagði að síðan væri gert ráð
fyrir að hefja hönnun á húsnæði
Æfingadeildar KHl, Melaskóla og
Vesturbæjarskóla. Einnig verði
byrjað að skoða hönnun fleiri skóla.
Einna verst segir hún að ástandið
sé í vesturbænum með tilliti til við-
bótarhúsnæðis, því þar sé ekkert
svigrúm. Lóðirnar séu þröngar, auk
þess sem Melaskóli er friðaður og
því ekki hægt að breyta húsinu.
Hins vegar kemur fram í rýmisáætl-
uninni að ástand skólahúsnæðis sé
einna verst í Æfíngadeild KHÍ.
„Einnig er skólalóðin afskaplega illa
búin leiktækjum. Þess vegna til-
kynntum við á fundi með foreldrum
þar fyrir skömmu að það væri nán-
ast búið að ákveða að farið yrði í
hönnun á næsta ári,“ sagði Sigrún.
Tilboðsdagar
vegna StðörTÍ
Allir íþr óttaskór á
Breytingar á lögum
um listamannalaun
Starfs-
launaþeg-
ar ekki
launþegar
MEÐAL breytinga, sem lagðar eru
til að gerðar verði á lögum um lista-
mannalaun og kveðið er á um í nýju
stjómarfrumvarpi, sem menntamála-
ráðherra mælti fýrir á Alþingi á
þriðjudag, er að tekinn verði af allur
vafi um að listamönnum séu veitt
starfslaun sem verktökum en ekki
launþegum' í almennum skilningi.
Breytingin er í samræmi við þá
reynslu sem fengizt hefur af veitingu
listamannalauna frá því lög þar að
lútandi vora sett árið 1991, en þá var
gert ráð fyrir að þau yrðu endurskoð-
uð að fimm áram liðnum. Endurskoð-
un laganna fór fram að höfðu sam-
ráði við samtök og félög listamanna
hinna ýmsu listgreina.
Samkvæmt endurskoðunartillög-
unum miðast starfslaun listamanna
eins og hingað til við launataxta lekt-
ors, en við það bætist 6% álag, sem
samsvarar lífeyrissjóðsgreiðslu af
venjulegum launum, en þetta fyr-
irkomulag samsvarar því sem haft
er á greiðslum til verktaka.
Samanlögð starfslaun, sem lagt er
til að verði til úthlutunar hveiju sinni,
miðast samkvæmt framvarpinu við
1.200 mánaðarlaun eða 100 árslaun.
Þriðjungur Listasjóðs
til leikhópa
Listasjóði er m.a. ætlað að sinna
sérstaklega umsóknum um starfslaun
listamanna sem fást við verkefni sem
ekki falla undir verksvið annarra
sjóða. í núgildandi lögum er „að
minnsta kosti helmingur" fjárveitinga
úr Listasjóði bundinn starfslauna:
greiðslum til leikhússlistamanna. í
breytingarfrumvarpinu er gert ráð
fyrir að frá þvi verði horfið að binda
helming úthlutunarfjárins við einn
hóp án tillits til þess hve margir sækja
um.
Eftir sem áður skal þó leikhúslist
vera sérstakur gaumur gefinn við
úthlutun starfslauna; lagt er til að
allt að þriðjungur fjáiveitinga Lista-
sjóðs verði varið til að styrkja ein-
staka leikhúslistamenn vegna þátt-
töku í uppfærslu leiksýninga á vegum
leikhópa.
Kjarvalsstaðir
Bækur, kort, plaggöt, gjafavörur.
Opiö daglega frá kl. 10-18.
CLÆSILEC OPNUN
ERE5 STÚRVERSLUN
KRINCLUNNI
Hb' fum opnað nýja herra- og dbmuverslun
með sportlegum fatnaði frá
Levi’s - Diesel - Everlast - Nike^
Convers - Adidas - Fila - Cat -
Sparkz - Sister Point o-fl- o-fl..-.
Stórverslun eins
ær eerast
í New York