Morgunblaðið - 15.11.1996, Qupperneq 18
: ti'Ácl Xí'Á / OM . r'Uj! í l ; c( > i
18 FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996
VIÐSKIPTI
Fiskmarkaður Breiðafjarðar hf.
Býður út 15
milljóna hlutafé
ÚTBOÐ stendur yfir á nýju hluta-
fé í Fiskmarkaði Breiðafjarðar
hf., en ætlunin er að auka hluta-
féð úr 30 milljónum í 45 milljónir
króna. Hlutabréfin eru í upphafi
sölutímabils boðin ágenginu 1,30,
en gengið getur breyst á sölu-
tímabilinu, sem nær til 21. febr-
úar á næsta ári. Umsjón með út-
boðinu hefur Fjárvangur hf., sem
áður var Fjárfestingarfélagið
Skandia hf.
í útboðslýsingu kemur fram að
með aukningu hlutafjár sé ætlunin
að fjármagna nýbyggingu Fisk-
markaðs Breiðafjarðar hf. í Ólafs-
vík. Markaðurinn var stofnaður í
nóvember 1991 og hófst eiginleg
starfsemi með fyrsta uppboði fé:
lagsins þann 8. janúar 1992. í
fyrstu starfrækti félagið fiskmót-
töku í Ólafsvík, Grundarfirði og
Stykkishólmi, en í apríl 1992 hófst
mótttaka á fiski í Rifi og í maí
sama ár bættist Arnarstapi við,
að því er fram kemur í útboðslýs-
ingu. Frá því félagið hóf starfsemi
hefur verið aukning á seldu magni
í tonnum og söluverðmæti ár frá
ári. Strax á öðru starfsári varð
félagið næst stærsti fiskmarkaður
landsins.
Hagnaður áætlaður
6,3 milljónir
Rekstrartekjur fiskmarkaðarins
námu alls tæplega 103 miiljónum
króna á sl. ári og hagnaður var
um 3,5 milljónir. Fyrstu sex mán-
uði ársins voru tekjurnar tæpar
58 milljónir og hagnaður um 5,5
milljónir. Eigið fé í lok júní nam
um 35 milljónum. Rekstraráætlun
gerir ráð fyrir 18 þúsund tonna
sölu á þessu ári og hagnaði að
fjárhæð 6,3 milljónir.
Komur erlendra
ferðamanna til
landsins frá 1986
86 87 86 89 90 91 92 93 94 95 96
Erlendir ferðamenn í janúar - október 1996 fw « XtS
1. Þýskaland 32.984 17,9 ■4,3%
2. Bandaríkin 26.444 14,3 +7,6%
3. Danmörk 19.883 10,8 ■2,3%
4. Bretland 19.721 10,7 +36,8%
5.Svíþjóð .17,348 9,4 ■0,2%
6. Noregur 13 347 7,2 +5,7%
7. Frakkland 10.599 5,7 +19,0%
8. Holland 7.001 3,8 +21,3%
9. Sviss 4.954 2,7 ■20,6%
10. Finnland 3.731 2,0 ■5,0%
Önnur 28.581 15,5 +20,6%
1 Samtals 184.593 100,0 +7,í>
Erlendir ferðamenn sem hingað komu fyrstu tíu mánuði ársins voru
184.593 talsins eða um 7,1% fleiri en á sama tímabili í fyrra,
samkvæmt upplýsingum frá Útlendingaeftirlitinu. Eins áður hefur
komið fram á árinu hefur þróunin orðið sú að samdráttur er á fjölda
ferðamanna frá nokkrum af stærstu markaðssvæðunum í Evrópu.
Þannig hefur ferðamönnum frá Þýskalandi, Danmörku, Svíþjóð og
Finnlandi fækkað, en þar á móti kemur veruleg aukning frá
Bretlandi, Hollandi og Frakklandi.
Sunbeam
fækkar
starfsfólki
Opin kerfi hf. sýna hlutabréfum í Nýherja hf. áhuga
Efasemdir um
tengslin innan Nýheija
um helming
Fort Lauderdale, Florida.
SUNBEAM, hinn kunni bandaríski
eldhústækjaframleiðandi, hyggst
fækka störfum um 6.000 og þar
með segja upp helmingnum af
starfsfólkinu.
Framleiðslusviðum verður fækk-
að og 39 af 53 verksmiðjum lokað
samkvæmt endurskipulagningu Al-
berts Dunlaps stjómarformanns,
sem kallaður er „Chainsaw Al“ í
bandaríska viðskiptaheiminum og
líkt við keðjusög.
Með endurskipulagningunni er
ætlunin að gera verulegt átak til
að sækja inn á erlenda markaði og
auka arðsemi fyrirtækisins.
Verð bréfa í Sunbeam lækkuðu
um 50 sent í 23,375 í New York,
OPIN kerfi hf., umboðsfyrirtæki
Hewlett Packard á íslandi, hafa
sýnt áhuga kaupum á hlut í Ný-
heija, sem er umboðsfyrirtæki IBM
hér á landi. Stjórnarformaður Ný-
heija segist hafa efasemdir um að
rétt sé að fyrirtækin tengist nánum
böndum þar sem þau séu stærstu
fyrirtækin á stórtölvusviðinu á ís-
landi. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins líta sumir hluthaf-
ar Nýheija svo á að Opin kerfi séu
að reyna að ná undirtökum í fyrir-
tækinu með óvinveittri yfirtöku.
í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Frosti Bergsson, fram-
kvæmdastjóri Opinna kerfa að fyr-
komið í málið af hálfu seljenda
hlutabréfanna, þegar uppvíst varð
um áhuga Opinna kerfa á þessum
bréfum.
Benedikt Jóhannesson stjórnar-
formaður Nýheija staðfesti í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að hlut-
hafar í Opnum kerfum hefðu haft
áhuga á að eignast hlut í Nýheija.
Hann sagði þó rangt að Opin kerfí
hefðu gert tilboð í 51% hlutafjár
Nýheija, honum væri a.m.k. ekki
kunnugt um neitt slíkt tilboð.
Stærstu fyrirtækin
á sínu sviði
Benedikt sagðist hafa efasemdir
um að heppilegt væri að Nýheiji
tengdist Opnum kerfum nánum
böndum. „Það er ánægjulegt að
þeir hjá Opnum kerfum skuli hafa
áhuga og trú á Nýheija en það er
ekki þar með sagt að rétt sé að
blanda rekstri fyrirtækjanna
tveggja of náið saman. Bæði fyrir-
tækin eru ágæt og þau eru stærstu
aðilarnir á stórtölvusviðinu á íslandi
en ég held að samruni eða náið
samstarf verði hvorki til góðs fyrir
þessi fyrirtæki eða atvinnulífið í
heild. Þá er þeirri spurningu ósvar-
að hvort erlendir umbjóðendur fyr-
irtækjanna, Hewlett Packard og
IBM, sættu sig við að vera með
sömu eða nátengd umboðsfyrir-
tæki,“ sagði Benedikt.
en þau hafa hækkað í verði síðan
Dunlap varð stjórnarformaður í júlí
þegar þau seldust á 12,25 dollara.
Stefnt er að því að tvöfalda sölu
fyrirtækisins í tvo milljarða dollara
á ári fyrir 1999. Stórum hluta þess-
arar aukningar á að ná utan Norð-
ur-Ameríku og beinist athyglin að
Asíu, Rómönsku Ameríku og Evr-
ópu. Lögð er áherzla á aðgang að
Kína, Thailandi, Malajsíu, Indónes-
íu, Filippseyjum, Taiwan, Brasilíu
og Ástralíu.
irtækið ætti hlutabréf í ýmsum fyr-
irtækjum eins og t.d. Flugleiðum
og hefði nýlega sýnt því áhuga að
kaupa hlutabréf í Nýheija. Sá áhugi
ætti þó ekkert skylt við tilraun til
óvinveittrar yfirtöku.
Bakslag af hálfu
seljenda
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er á þessari stundu alls
óljóst hver framvindan verður, þar
sem eitthvert bakslag mun hafa
Þýzka ríkið
hyggst selja hlut
sinn í Lufthansa
Frankfurt. Reuter.
ÞÝZKA stjómin hefur ítrekað þann
ásetning sinn að selja hlut þann sem
hún á enn í Lufthansa AG eftir að
hafa komizt að samkomulagi við
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins um að útlendingar megi
kaupa hlut í félaginu, en ekki ná
yfirráðum yfir því.
Þýzka fjármálaráðuneytið segir
að engin ákvörðun hafí enn verið
tekin um sölu 36% hluts ríkisins
að verðmæti 135 milljarðar króna
eftir undirritun samningsins við
yfirvöld í Brussel, þar sem því er
heitið að erlendum hluthöfum verði
ekki gert lægra undir höfði.
Verð hlutabréf í Lufthansa lækk-
aði um 55 pfenninga í 20.00 mörk
eftir tilkynninguna.
Digital á íslandi
Vatnagarðar 14-104 Reykjavík
Sími 533-5050 - Fax 533-5060
Umþóttunartími
Samgöngumálastjóri ESB, Neil
Kinnock, hefur sent þýzka sam-
gönguráðherranum, Matthias Wiss-
mann, bréf þar sem hann samþykk-
ir tillögu Wissmanns um að þýzka
stjórnin fái umþóttunartíma til að
selja félagið.
ESB vildi fá vissu fyrir því að
Lufthansa yrði áfram í eigu Þjóð-
veija. Salan hefur dregizt vegna
ákvæða í alþjóðlegum samningum
um að ríkisflugfélög verði að sýna
fram á að innlendir hluthafar eigi
meirihluta í þeim til að halda rétt-
indum sínum.
Margir um 200 tvíhliða loftferða-
samninga Þjóðveija og annarra
þjóða kveða á um að Lufthansa
verði að vera undir stjóm þýzkra
fjárfesta, en erfitt er að fullnægja
því skilyrði ef viðskipti með hluta-
bréf eiga að vera fijáls.
Tillaga Wissmanns á að gera
þýzku stjóminni kleift að kaupa
aftur hlutabréf ef meirihluti Þjóð-
veija í Lufthansa kemst í hættu að
sögn ráðuneytisstarfsmanns.
Þýzka fjármálaráðuneytið hefur
sagt að það vilji ljúka einkavæðingu
Lufthansa fyrir árslok 1997, einu
ári síðar en áður hefur verið ráð-
gert. Seinkunin stafar af útboði
hlutabréfa í Deutsche Telekom í
næstu viku.
MORGUNBLAÐIÐ
Daewoo-
herferð
í Frakk-
landi
París. Reuter.
DAEWOO rafeindarisinn í
Suður-Kóreu, hefur hleypt af
stað auglýsingaherferð í blöð-
um til að mæta harðri gagn-
rýni á þá fyrirætlun að kaupa
hið bágstadda franska ríkis-
fyrirtæki Thomson Multi-
media.
Undir fyrirsögninni „Þekk-
ið þið dverginn Daewoo?“, 34.
stærsta fyrirtæki heims, reyn-
ir fyrirtækið að vega á móti
vaxandi gremju í Frakklandi
vegna þess að „smáfyrirtæki"
í Suður Kóreu skuli kaupa
franskt fyrirtæki „í fremstu
röð“ fyrir einn franka til
málamynda.
Einkavæðingarnefnd
Frakklands tekur afstöðu til
þéss í desemberbyijun hvort
hún sættir sig við þá fyrirætl-
un ríkisstjórnarinnar að selja
hergagna- og rafeindavöru-
fyrirtækið Thomson fyrir-
tækjahópnum Lagardere fyrir
einn franka eftir 11 milljarða
franka (2 milljarða dollara)
endurfj ármögnun.
Lagardere mun selja Da-
ewo Thomson Multimedia,
sem framleiðir sjónvarps- og
myndbandstæki og stendur
framarlega á sviði stafrænnar
myndbandstækni.
Olíuverð
dregur úr
hagnaði BA
London. Reuter.
BRITISH AIRWAYS hefur
skýrt frá því að hagnaður
fyrir skatta fyrri hluta árs
hafi aukizt um 9,3% í 470
milljónir punda, en segir að
hagnaðurinn hefði orðið meiri
ef ekki hefði komið til mikillar
hækkunar á verði eldsneytis
í ár.
Flugfélagið sagði að þar
sem farþegum hefði haldið
áfram að fjölga að mun og
framleiðni hefði aukizt hefði
rekstrarhagnaðurinn aukizt
um 10,5% ef ekki hefði komið
til 51 milljónar punda auka-
kostnaðar vegna hækkunar á
verði eldsneytis og hættu á
verkfalli flugmanna í júlí.
„Efnahagshorfur í helztu
löndum sem við störfum í eru
yfirleitt uppörvandi sem fyrr
og er því spáð að framboð og
eftirspum muni halda áfram
að aukast,“ sagði Sir Colin
Marshall stjórnarformaður í
yfirlýsingu.
Verð hlutabréfa í BA var
óbreytt, 549 1/2 pens. Sér-
fræðingar sögðu að niður-
staðan væri í aðalatriðum eins
og búizt hefði verið við.
Westing-
house skipt í
2 fyrirtæki
Pittsburgh. Reuter.
WESTINGHOU SE Electric
Corp., áður einum mesta mátt-
arstólpa bandarísks iðnaðar,
verður bráðlega skipt í tvö
aðskilin fyrirtæki samkvæmt
heimildum í Wall Street.
Annað fyrirtækið mun
grundvallast á iðnðnaðar-
framleiðsludeildum gamla
fyrirtækisins og hitt á fjöl-
miðlasviðum þess.