Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
J-
Mörg ríki reiðubúin að senda
herlið til hjálparstarfs í Zaire
Bíða aðeíns
samþykkis SÞ
London. Reuter.
BÚIST er við, að öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna samþykki á hverri
stundu að senda ijölþjóðlegt herlið
til aðstoðar flóttafólki í Austur-
Zaire. Er nú verið að skipuleggja
hvar á svæðinu herflokkamir skuli
vera en herliðið verður allt undir
stjóm Kanadamanna. Franska
stjómin kvaðst í gær vona, að
fyrstu sveitimar fæm til Zaire um
helgina. Hér á eftir segir frá fram-
lagi einstakra ríkja til þessara
aðgerða:
Kanadamenn segja, að fyrstu
sveitirnar verði komnar til Zaire
innan tveggja sólarhringa frá því
SÞ gefur þeim grænt ljós og verð-
ur þar meðal annars um að ræða
350 manna kanadíska neyðar-
hjálparsveit. Frakkar, sem hafa
beitt sér manna mest fyrir aðstoð-
inni, bjóðast til að senda 1.500
menn og þar af 600 innan sólar-
hrings frá því samþykkt SÞ liggur
fyrir.
Bandaríkjamenn
varkárir
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, hefur með nokkmm semingi
fallist á þátttöku bandarískra her-
manna í aðgerðunum en talið er,
að þær muni standa í nokkra
mánuði. Yrði um að ræða 1.000
hermenn, sem gætu þó reitt sig á
stuðning nokkurra þúsunda ann-
arra hermanna. Bandaríkjastjórn,
sem er minnug ófaranna í Sómal-
íu, hefur krafist nákvæmrar útlist-
unar á hlutverki ijölþjóðaliðsins
og hefur auk þess nú þegar sent
flokk manna á vettvang til að
kanna aðstæður.
Belgar, sem áður réðu ríkjum í
Zaire, hafa boðist til að þjálfa
þarlenda hermenn til friðargæslu
en munu ekki taka annan þátt í
aðgerðunum. Bretar em reiðubún-
ir að leggja sitt af mörkum en
John Major forsætisráðherra seg-
ir, að áður verði öll skipulagning
aðgerðanna að liggja fyrir. I
breskum fjölmiðlum er talað um,
að allt að 3.000 hermenn verði
sendir og Major leggur áherslu á,
að allt verði gert til að tryggja
öryggi þeirra.
Þýskt fé,
ekki hermenn
Þjóðveijar hafa boðist til að
leggja fram fé, ekki hermenn, en
Nelson Mandela, forseti Suður-Afr-
íku, býðst til að senda nokkum liðs-
afla. Spánveijar hyggjast senda
350 til 450 hermenn strax og fleiri
síðar og þetta mál átti að ræða á
hollenska þinginu í gær. Hollenska
vamarmálaráðuneytið tilkynnti í
gær, að hafin væri bólusetning á
270 hermönnum.
írar segjast munu taka því vel,
verði þeir beðnir að leggja sitt lóð
á vogarskálarnar, og er búist við,
að þeir sendi á vettvang nokkum
hóp verkfræðinga og skipuleggj-
enda. Finnar munu ekki senda
hermenn en em að skoða með
hvaða hætti þeir geta komið að
gagni.
Reuter
SLÖKKVILIÐSMAÐUR í St. Petersburg í Flórída dælir vatni á eld að loknum óeirðum í bænum.
Óeirðir blossa upp í St. Petersburg í Flórída
Táragasi beitt gegn
reiðum blökkumönnum
St. Petersburg. Reuter.
LÖGREGLAN í St. Petersburg í
Flórída beitti í gær táragasi til að
dreifa reiðum ungmennum sem
hleyptu af byssum og köstuðu gijóti
á götum borgarinnar til að mót-
mæla þeirri ákvörðun sextán manna
kviðdóms að hafna ákæm á hendur
hvítum lögreglumanni sem skaut
blökkumann til bana í október.
Að minnsta kosti fimm menn,
þar af tveir lögreglumenn, særðust
í átökunum sem blossuðu upp ná-
lægt höfuðstöðvum Uhuru-hreyf-
ingar blökkumanna sem vilja beita
ofbeldi til að stofna aðskilið samfé-
lag blökkumanna í Bandaríkjun-
um. „Uhum“ merkir „frelsi“ á
Swahili og hreyfingin hvatti nýlega
til þess að lögreglustjóri St. Peters-
burg og borgarstjórinn yrðu „tekn-
ir af lífi“ eftir að hafa haldið eigin
réttarhöld.
„Við höfum fengið hótanir síð-
ustu tvær vikur um að verði kvið-
dómurinn ekki við kröfu þeirra skuli
borgin brenna," sagði lögreglustjór-
inn, Darrel Stephens.
Borgaryfírvöld sögðu að fátt
benti til þess að hægt yrði að semja
við Uhuru-hreyfinguna, sem þrífst
á óánægju margra blökkumanna
vegna meints harðræðis lögregl-
unnar og mikils atvinnuleysis.
Skaut í skjálfsvörn
Óeirðir blossuðu einnig upp þegar
lögreglumaðurinn skaut blökku-
manninn til bana fyrir þremur vik-
Delors gagnrýnir
óbilgimi Þióðveria
París. Reuter. ^ *^ *^
JACQUES Delors, fyrrverandi for-
seti framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins, hefur alvarlegar efa-
semdir um ofuráherzlu Þýzkalands
á „stöðugleikasáttmála", sem
tryggja á strangan
aga í ríkisfjármál-
um væntanlegra
aðildarríkja Efna-
hags- og mynt-
bandalags Evrópu
(EMU). Á blaða-
mannafundi í Paris
í gær sagði Delors
að ekki mætti ein-
angra umræður
um EMU við sameiginlega mynt og
aga í ríkisfjármálum; slíkt myndi
leiða til þess að almenningur sneri
baki við framtakinu.
„Eins og Jacques Santer [núver-
andi forseti framkvæmdastjómar-
innar] er ég hlynntur sáttmála um
hagvöxt og samstöðu, fremur en
[stöðugleikasáttmála],“ sagði Delors
á blaðamannafundi, þar sem hann
kynnti nýja bók sína um Evrópumál.
Forsetinn fyrrverandi sagði að
hætta væri á að Þýzkaland reitti
samstarfsríki sín til reiði, að minnsta
kosti sum hver, með óbilgimi í EMU-
málum. „Við verðum að losna út úr
þeirri hugmynd að því harðar, sem
við tökum á aðildarskilyrðunum,
þeim mun betur gangi okkur að róa
Þjóðveijana, sem hafa áhyggjur af
að þurfa að leggja niður markið.
Þetta hlýtur að leiða til átaka," sagði
Delors. „Ef einhver er að reyna að
þröngva upp á okkur efnahags- og
myntbandalagi, þar sem orðið „efna-
hags“ er strikað út og „myntbanda-
lag“ einangrað við sameiginlega
mynt og aga í ríkisfjármálum, þá
segi ég nei. Þetta er ekki það, sem
við samþykktum með Maastricht-
samningnum."
Ummæli Delors eru í andstöðu
við stefnu stjórnar íhaldsmanna í
Frakklandi, sem hefur stutt Þjóð-
veija í viðleitni þeirra til að tryggja
stöðugleika evrósins. Jean Arthuis
fjármálaráðherra sagði í gær að
stöðugleikasáttmálinn myndi
tryggja að aðildarríki myntbanda-
lagsins myndu ekki fylgja rfkisfjár-
málastefnu, sem ylli hækkun vaxta
eða stefndi stöðugleika evrósins í
voða.
Opinberar umræður
flækja málið
Delors sagði að menn hefðu legið
yfír ákvæðum Maastricht-sáttmál-
ans árið 1992 til að skapa nægilegt
svigrúm fyrir pólitíska ákvörðun um
það, hvaða ESB-ríki ættu að fá að-
ild að EMU. Umræðan nú um stund-
ir spillti aðeins fyrir. „Opinberar
umræður um það hveijir verði með
[í fyrsta hópi aðildarríkja EMU]
flækja aðeins málið og auka á efa-
semdir í Þýzkalandi og Hollandi,"
sagði hann og bætti við að stjórn-
málaleiðtogar í Evrópu ættu að hafa
hægt um sig og leyfa ríkjum á borð
við Ítalíu, Spán og Portúgal að tak-
ast á við það verkefni að uppfylla
inntökuskilyrði EMU.
um. Að minnsta kpsti ellefu manns
særðust í átökunum og eldur var
lagður í hartnær 30 verslanir, skrif-
stofur og íbúðarhús áður en lögregl-
unni tókst að koma á lögum og
reglu á götunum.
Kviðdómurinn komst að þeirri
niðurstöðu að ekki bæri að sak-
sækja lögreglumanninn þar sem
hann hefði skotið í sjálfsvörn eftir
að hafa stöðvað bíl blökkumanns-
ins, sem ók á ólöglegum hraða.
Ökumaðurinn er talinn hafa reynt
að aka á lögreglumanninn.
Þrátt fyrir niðurstöðu kviðdóms-
ins ákváðu lögregluyfirvöld að vikja
lögreglumanninum frá í tvo mánuði
án launa fyrir að bijóta reglur lög-
reglunnar um notkun skotvopna.
Þing Spánar
Aukin áhrif
ÍNATO
Madrid. Reuter.
SPÆNSKA þingið samþykkti
í gær að Spánveijar tækju full-
an þátt í hemaðarsamstarfi
Atlantshafsbandlagsins,
NATO, eftir að hafa átt aðild
að bandalaginu frá árinu 1982.
José María Aznar forsætis-
ráðherra hafði hvatt þingið til
að samþykkja ályktun þessa
efnis og sagt að viðhorfín i
varnarmálum hefðu gjörbreyst
á síðustu árum eftir lok kalda
stríðsins og breytingar á upp-
byggingu NATO.
Spánveijar gengu í Atlants-
hafsbandalagið á valdatíma
Sósíalistaflokks Felipe Gonz-
ález árið 1992 en stjórnin frest-
aði þátttöku Spánveija í hem-
aðarsamstarfinu meðan beðið
var þjóðaratkvæðagreiðslu um
aðildina að NATO. Gengið var
til atkvæða 1986 og aðildin
samþykkt með 52% atkvæða
en González lofaði að Spán-
veijar tækju ekki þátt í hem-
aðarsamstarfinu. Hann hét því
einnig að engin kjamavopn
yrðu á Spáni og það skilyrði
var sett í þingsályktunina sem
samþykkt var í gær með 293
atkvæðum gegn 23.
Ályktunin veitir stjóm Azn-
ars, sem komst til valda í maí
eftir 13 ára valdatíma sósíal-
ista, umboð til að semja um
skilmála aðildar að hemaðar-
samstarfinu. „Spánveijar ótt-
ast að þeir heltist úr lestinni
innan NATO,“ sagði stjómar-
erindreki í Madrid. „Þeir vilja
ekki dragast aftur úr Póllandi,
Ungveijalandi og Tékklandi."
>
\
>
í
l
\
I
L
E
I
í
í
I
■
I
L
t
í
t
r