Morgunblaðið - 15.11.1996, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996 27
___________LISTIR_________
Þrjár sýningar í Lista-
safni Kópavogs
Listasafn Kópavogs
ÞRJÁR sýningar verða
opnaðar i Listasafni
Kópavogs, Gerðarsafni,
á morgun, laugardag.
Þetta eru sýningar
breska listamannsins
Alistair Maclntyre, af-
mælissýning_ Ljósmynd-
arafélags íslands og
skúlptúrsýning Guð-
bjargar Pálsdóttur.
Sýning Alistair Mac-
Intyre ber heitið „Til
jarðar" og urðu verkin á
sýningunni til þegar
hann dvaldi á íslandi um
þriggja mánaða skeið,
veturinn 1995, í boði
Listasafns Reykjavíkur -
Kjarvallsstaða. í kynn-
ingu segir m.a.: „Dagleg kynni af
náttúrunni höfðu bein áhrif á sköpun
verkanna. Með því að þekja ísinn og
snjóinn með fíngerðum jarðvegsefn-
um og láta hann bráðna á pappír
myndaðist ákveðið landform eða
landakort. Föst efni fletjast út á yfír-
borðið en efni sem falla út við bráðn-
unina verða eftir sem jarðvegsleifar
eða steingervingar og endurspegla
greinilega ísiklætt landið sem í senn
gefur frá sér allt efni og sýnir.“
Að lýsa flöt
í Austursal Listasafns Kópavogs
verður afmælissýning Ljósmyndara-
félags íslands. Sýningin er tvíþætt.
Annars vegar eru á henni myndir
eftir ljósmyndara sem störfuðu á
fyrstu árum og áratugum félagsins
og hins vegar verk eftir
starfandi ljósmyndara
sem valin voru sérstak-
lega á sýninguna af dóm-
nefnd.
í tengslum við sýning-
una verður efnt til mál-
þings sem ber yfirskrift-
ina: Hafa íslensk söfn
stefnu varðandi ljósmynd-
ir? Þingið, sem verður
miðvikudaginn 27. nóv-
ember kl. 20, er öllum
opið.
Skúlptúr úr
krossvið og járni
Guðbjörg Pálsdóttir
opnar sýningu á sjö
skúlptúrverkum og birki-
krossvið og jámi á neðri hæð safns-
ins. Form verkanna á sýningunni eru
ávöl, en krossviðinn kýs listakonan
vegna fínleikans sem hann býr yfír
og leitast síðan við að laga hand-
bragð sitt að efniskennd hans.
Þetta er önnur einkasýning Guð-
bjargar sem útskrifaðist úr skúlpt-
úrdeild Myndlista- og handíðaskóla
íslands árið 1990.
Hátíðartónleikar
í Dómkirkjunni
í TILEFNI af 200 ára afmæli Dóm-
kirkjunnar heldur Dómkórinn sér-
staka hátíðartónleika laugardaginn
16. nóvember kl. 17.
Á efnisskrá verður innlend og
erlend kórtónlist. Flutt verður kant-
atan „Leyfíð börnunum að koma til
mín“ eftir Jón Ásgeirsson, sem sam-
in er fyrir blandaðan kór, bariton-
solo og barnakór. Einsöngvari er
Loftur Erlingsson en auk Dómkórs-
ins syngur bamakór Vesturbæjar-
skóla undir stjórn Kristínar Vals-
dóttur. Undirleikari á orgel er Pa-
vel Manásek.
Einnig syngur Dómkórinn „Alda-
söng“ eftir Jón Nordal og kórverk
frá 16. öld eftir J. Handel. Loka-
verkið á tónleikunum er „The wall
is down“ eftir norska tónskáldið
Nystedt sem er íslendingum af
góðu kunnur. Verkið samdi Nysted
er 50 ár voru liðin frá lokum síðari
heimsstyijaldarinnar. Einsöngvari
er Marta Guðrún Halldórsdóttir
sópransöngkona en stjómandi
Dómkórsins er Marteinn H. Frið-
riksson.
Aðgangur að tónleikunum er 800
kr. og verður seldur við innganginn.
HÁTÍÐARTÓNLEIKAR verða
í Dómkirkjunni á laugardag.
ENDIR, upphaf eftir Gunnar
Örn. Ólía á striga.
• •
Gunnar Orn
í Norræna
húsinu
GUNNAR Öm opnar sýningu í
Norræna húsinu á laugardag kl.
14. Gunnar hélt sína fyrstu einka-
sýningu 1970 og hefur síðan hald-
ið 33 einkasýningar. Þar af 28 á
íslandi, tvær í Kaupmannahöfn og
tvær í New York. Hann var full-
trúi íslands á tvíæringnum í Fen-
eyjum 1988.
Sýningin er opin alla daga frá
kl. 14-19 og lýkur 1. desember.
<*JÓ*'-*FIÍSAR
L ií=I i
V: ll! m ::
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
ut i zyju
Ef&rt Fiús á ísíandi er Setur tiípessfaCCið að sfapa
mdrúmsCoft friðar op fiátíðkifa en ‘Vioajjarstofa.
SigCing með íMaríusúð út í ‘Viðey tefur aðeins 5 mín.
Verð: 2.980 fr.
gíýlegar móttöfur á Cn/yyjunm!
VIÐEYJARSTOFA
Upplýsingar og borðapantanir
hjá Hótel Óðinsvéum í síma 552 8470 og 552 5090
HLJÚMTÆK JA gkápar
[ 13.900 /Q
standar
-| 9.900 /Q