Morgunblaðið - 15.11.1996, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996 41
AÐSEMPAR GREINAR_
Til móts við nýjan
niðurskurð
í DAG, föstudaginn
15. nóvember, munu
framhaldsskólanemar
ásamt stúdentum, sér-
skólanemum, iðnnem-
um og öllum þeim er
bera menntun fyrir
bijósti standa upp
hvar sem þeir kunna
að vera klukkan tólf á
hádegi. Tilgangurinn
er að lýsa stuðningi
við stefnu stjórnvalda
í menntamálum en
jafnframt undrun á
því hvers vegna þau
standa ekki við hin
stóru orð. Það hefur
margitrekað komið
fram í orðum ráðamanna og álykt-
unum stjórnarflokkanna að „for-
gangsraða" beri í þágu menntunar
við skiptingu ríkisútgjalda. En hvar
eru efndirnar? Ævinlega þegar sú
hugmynd kemur upp að skera nið-
ur í ríkisfjármálum er röðin komin
að menntakerfinu. Auðvitað gera
námsmenn sér grein fyrir því að
einhverstaðar þarf að skera niður,
einhverstaðar verður að draga
strikið til að ná hallalausum fjárlög-
um. En við erum orðin þreytt á því
að strikið sé ævinlega dregið yfir
okkur. Við viljum auðvitað ekki
þurfa að borga skuldir ríkissjóðs í
framtíðinni en við viljum heldur
ekki búa í vanþróuðu ríki þar sem
menntun er álíka mikils metin af
ráðamönnum eins og tannpína.
Menntakerfíð, eins og það er í dag,
jafnast á við Skeiðarársand, sund-
urskorið og tætt. En þó er einn
reginmunur þar á. Ríkisstjórnin var
ekki nema nokkrar mínútur að
veita 500 miljónir í lagfæringar á
Skeiðarársandi, svo þær gætu
gengið sem fljótast fyrir sig. Þetta
er ekki upp á teningnum í mennta-
kerfínu. Það hefur verið fjársvelt
til margra ára og nú á enn og aft-
ur að herða sultarólina. Samkvæmt
ráðamönnum má rekja 20% hag-
vaxtar síðustu ára beint til mennt-
unnar. Menntun er arðbær fjárfest-
ing. Það hefur sýnt sig hjá ríkustu
þjóðum heims. Þær byggja auðlegð
sína á þekkingu og menntun en
ekki á misnotkun auðlinda. Viljum
við dragast enn meira aftur úr í
samkeppni þjóðanna?
Annað mál sem brennur á okkur
námsmönnum á framhaldsskóla-
stigi er nýr skattur. Hinn svokall-
aði „fallskattur" eða endurinnrit-
unargjald mun að öllum líkindum
hellast yfir framhaldsskólanemend-
ur á næstunni. Vissulega mun þessi
skattur að einhveiju leyti koma í
veg fyrir fall vegna leti eins og
markmið hans á að vera samkvæmt
ijárlögum. Á hinn bóg-
inn mun skatturinn
koma niður á þeim
sem minnst mega sín,
sem eiga við námsörð-
ugleika að stríða eða
einfaldlega námsleiða.
Námsleiði er nefnilega
mikið vandamál í
framhaldsskólum á ís-
landi. Þjóðfélagið, for-
eldrar og vinir kreijast
þess að allir hafi stúd-
entspróf, sama hvort
þurrt bóknám hentar
nemanda eða ekki.
Það hefur líka verið
eitt af loforðum ráða-
manna að efla hlut-
deild starfs- og verknáms en það
ferst einhvern veginn alltaf fyrir
þar sem það nám er hlutfallslega
dýrara en bóknám. Fjöldinn allur
af þeim sem nú eru að slæpast í
skólum og ríkið hyggst græða 32
milljónir á er fólk sem er ekki á
réttri hillu í náminu. Það væri nær
að hjálpa þessu fólki til að komast
í nám sem því hentar frekar en að
rukka fyrir að falla í námi sem það
hefur ekki áhuga á. Þjóðfélagið
hefur heldur ekkert að gera við
allt of marga með stúdentspróf,
stúdentspróf sem svo gildir ekki
neitt þegar á reynir. Þegar maður
spyr hvers vegna ekkert sé gert?
Af hveiju er ekki boðið upp á fjöl-
breyttara eða áhugaverðar nám?
Þá fæst alltaf sama svarið: „Það
eru ekki til peningar.“
Það sem háir menntakerfínu eins
og það er núna er peningaleysi.
Það er ekki hægt að kenna leti um
að fall í áföngum sé mikið. Ný og
aukin gjöld á nemendur, ný refsiað-
ferð mun aðeins verða til að auka
vanlíðan nemenda og auka brott-
fall úr skóla, ekki leysa nein vanda-
mái. Ég hef betri hugmynd. Hún
kann að hljóma fáránlega en það
gerir hugmyndin um fallskattinn
einnig. Ég hef heyrt því fleygt að
í uppeldi, í skólum og á vinnustöð-
um þar sem þarf að hvetja fólk
áfram sé það mun vænlegri leið til
árangurs að veita fólki verðlaun
fyrir vel unnin störf heldur en að
refsa því. Það er þekkt dæmi að
lofa iðnaðarmönnum utanlandsferð
ef þeir skili verki fyrir ákveðinn
tíma, það hefur ekki tiðkast að
draga af kaupinu fyrir hvern dag
sem farið er fram yfír. Hvernig
væri að taka frekar upp þess hátt-
ar kerfi í skólunum frekar en refs-
ingakerfi. Borga fólki 2.000 fyrir
hveija 10 sem það fær í einkun,
1.500 fyrir 9 o.s.frv. Svoleiðis kerfí
myndi hvetja nemendur miklu frek-
ar til að standa sig.
Við mótmælum því,
segir Snævar Signrðs-
son, sem ráðamenn
ætla að gera í
menntamálum.
Undirskriftalistar hafa verið
látnir ganga í öllum skólum lands-
ins síðustu daga. Með því að kvitta
undir þessa lista eru námsmenn að
krefjast leiðréttingar á lögum um
Lánasjóð íslenskra námsmanna og
að krefjast þess að ráðamenn
standi við orð sín, „forgangsraði“
í þágu menntunar. Við vonum að
þeir sjái að menntun er arðbær ijár-
festing sem beri að eyða í frekar
en einhveija stundarhagsmuni sem
munu ekki skila neinu í þjþðarbúið
þegar til lengdar lætur. Á hádegi
munu námsmenn á Reykjavíkur-
svæðinu safnast saman á Austur-
velli og afhenda formönnum stjórn-
arflokkanna undirskriftalistana.
Um allt land munu námsmenn
einnig sýna samtöðu með aðgerðir
hver í sínum skóla. Við teljum
menntakerfið vera illa statt. Við
höfum séð linuritin í tölfræðihand-
bók um menntun sem menntamála-
ráðuneytið gaf út í haust, hvemig
þau hafa öll stefnt niður á við síð-
ustu ár. Ráðamenn okkar eru í
hrópandi mótsögn við sjálfan sig.
Þeir segja eitt og gera annað. Við
mótmælum því sem þeir ætla að
gera en við lýsum yfír fullum stuðn-
ingi við þá þegar þeir segjast vilja
hag menntakerfisins sem mestan
og bestan.
Höfundur er formaður Félags
framhaldsskólanema.
Kringlunni 8-12 •Sími 568 9066
- ÞarfcerÖu gjöfina -
Snævar
Sigurðsson
Gæði, þjónusta, hreinlæti
og góð kaup
iimmuinmmm
Kjólar, skokkar, peysur, vesti og skyrtur.
Kápur og úlpur. Flott föt á stelpur og stráka.
15% afsláttur af MP sokkabuxum, ný mynstur.
Opið laugardaga í nóv. til kl. 16.00
Sendura í póstkröfu - sendum
bæklinga út á land ef óskað er.
Nýtt kortatímabil
BARNASTIGUR
BRUM’S 0-14 SfÐAN 1955
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 8 SÍMl 552 1461
1996
★
★
5
LEIKHUSKJALLARJNN
Spenncmdi dagskrð
í nðvember og
desember!
★ Jólagrísahlaðborðið
★ Útgáfutónleikar
★ Bókamenntakvöld
★ Listaklúbbur
★ Stuð mgðStjórninni ofl. ofl.
BRAUTARIIOLn
Hverfísgötu 19 sími 5519636
fax 551 9300
r
Utgcófudngur 16. nóvembei
Lávarður heims
fyrstð stóra sHáldsaga
Úlafs Jolianns ((imm ár
VAKA- HELGAFELL