Morgunblaðið - 15.11.1996, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996 43
MIIMIMINGAR
ÁSGEIR HARALDUR
GRÍMSSON
+ Ásgeir Harald-
ur fæddist í
Reykjavík 2. mars
1918. Hann lést 28.
október síðastliðinn
í Kumbaravogi á
Stokkseyri. For-
eldrar hans voru
Bryndís Jónsdóttir,
ættuð úr Borg-
arfirði, f. 15. ágúst
1886, d. 3. nóv.
1973, og Grímur
Ásgrímsson ættað-
ur úr Árnessýslu,
sem stundaði stein-
smið á seinni árum
starfsævi sinnar, f. 13. apríl
1880, d. 29. ágúst 1973. Systkini
Ásgeirs eru: Friðgeir, f. 7. okt.
1909, Jóna Magnea,
f. 3. febr. 1916, d.
19. jan. 1972, og
Halldór Alexander,
f. 24. des. 1919.
Ásgeir kvæntist
Margréti Jónsdótt-
ur 15. febrúar 1940.
Þeirra börn eru:
Kort Sævar, f. 11.
júní 1943, Stefanía
Ósk, f. 30. júlí 1948,
Örn, f. 15. sept. 1950
(lést 6 mánaða gam-
all), Pálína Erna, f.
23. okt. 1953 og
Bryndís Hulda, f.
lO.Júlí 1957.
Útför Ásgeirs hefur farið
fram.
Ásgeir starfaði snemma við ýmis-
konar afgreiðslustörf og þótti ein-
staklega lipur og viðfelldinn af-
greiðslumaður. Oft vann Ásgeir með
föður sínum við steinhöggvarastarf-
ið þegar þannig stóð á. Síðar lærði
hann loftskeytafræði og sigldi um
tíma sem loftskeytamaður. Með því
síðasta sem hann vann við var vagn-
stjórastarf hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur. Um þann tíma var
Ásgeir einnig að koma sér upp hús-
næði fyrir sig og fjölskyldu sína.
Um sama leyti fór sjúkleiki hans
að gera vart við sig, sem ekki varð
komist yfir og fylgdi honum til dán-
ardægurs.
Það olli því að ekki varð hjá því
komist að þau hjónin slitu samvist-
um og börnin misstu um leið alla
föðurlega umhyggju. Margrét eig-
inkona Ásgeirs vann þá heimilinu
tekna svo sem henni var frekast
unnt þar til elstu börnin fóru að
vinna sjálf og festa ráð sitt.
Ásgeir var jafn hugljúfur sem
unglingur og þroskaður maður.
Hann tók jafnan aðfinnslum með
svo mikiili geðspekt að sá, sem að
þeim stóð hjaðnaði og upp hófust
vinsamleg samskipti. Ekki þurfti
ábendingar að jafnaði nema einu
sinni um sama efni því Ásgeir, Halli
eins og við kölluðum hann að jafn-
aði var sérstaklega námfús ungling-
ur og átti mjög gott með að læra
meðan heilsa hans leyfði.
Á þeim tíma, sem hann ólst upp
var ekki svo auðvelt að komast til
náms eins og síðar varð. Hann varð
því eins og svo margir aðrir góðir
námsmenn þá, að láta sér nægja
gagnfræðapróf og þótti gott.
Að vísu varð Halla það nokkur
hindrun til framhaldsnáms að hann
var einstakt lipurmenni við þau störf
sem hann fékkst við og var því
mjög eftirsóttur við þau.
Sumum er gefin sú hamingja að
fá að vera með sínum nánustu heil-
brigður langa ævi, en hennar fór
Halli á mis. Samt bar hann hlut-
skipti sitt og sjúkdóm sem hetja og
kvartaði ekki yfir honum.
Þegar minnst er fyrri tíma og
allt lék í lyndi, komu skyldir og
tengdir oft saman á Bergþórugötu
17, en þar bjuggu foreldrar okkar
í lítilli íbúð í litlu húsi, sem nú er
horfið. Þar bjó einnig systir okkar
með manni sínum Sigurði Guð-
mundssyni og börnum í svipaðri
íbúð, sem síðar var stækkuð. Þar
var ekki mikið svigrúm, en þau eru
mörg danssporin sem þar voru stig-
in þegar Halli var mættur, enda var
hann mjög lipur dansherra. Þar var
sungið, spilað og teflt. Alltaf var
Halli þar velkominn og góður gestur
þegar hann gat komið og eins síðar
með eiginkonu sinni eftir að þau
kynntust. Þar var glaðværð og góð-
ur andi, málefni dagsins rædd á
meðan drukkinn var góður kaffisopi.
Halli stundaði mikið útivist um
tíma. Þær voru margar ferðirnar,
sem hann fór með kunningjum sín-
um til Þingvalla og víðar á reiðhjól-
um í útilegur. Þá voni bæði vegir
og farartæki frumstæðari en nú er
og því ólíkt erfíðara um öll vik.
Þetta skapaði samt dugandi drengj-
um ekki minni gleði en ferðalög í
dag við fullkomnari aðstæður.
Minningin um góðan dreng og
glaðværan, sem háði harða lífsbar-
áttu við þrálátan heilsubrest án þess
að mögla er okkur hvatning til dáða
og drengskapar við hvers konar lífs-
kjör.
Ásgeirs Haraldar minnumst við
vinir og vandamenn með virðingu
og biðjum honum og vandamönnum
hans Guðs blessunar.
Friðgeir Grímsson.
Elsku pabbi, nú er þrautagöngu
þinni í líkamanum lokið. Verkefnið
sem sál þín valdi sér í þessari jarð-
vist var hvorki lítið né léttvægt.
Prófin þín og okkar hinna sem næst
þér stóðu á hveijum tíma voru mörg.
Við skiljum ekki alltaf tilganginn á
meðan við göngum í gegnum erfiðu
kaflana, en þegar þú yfirgafst lík-
ama þinn fyrir fullt og allt, þá opn-
aðist skilningur okkar á hlutverki
þínu í þessari jarðvist. Við þökkum
þér, elsku pabbi, fyrir lífið okkar
SVERRIR KARL
STEFÁNSSON
+ Sverrir Karl Stefánsson
fæddist á ísafirði 16. sept-
ember 1975. Hann lést á heim-
ili sínu á ísafirði 13. október
síðastliðinn og fór útför hans
fram frá ísafjarðarkirkju 18.
október.
Það er erfitt að hugsa til þess,
elsku Sverrir Karl, að þú sért ekki
lengur hér hjá okkur. Okkur grun-
aði ekki að veikindi þín væru svo
alvarleg. Þú varst alltaf svo hress
og mikið fjör í kringum þig. Þú
áttir stóran og tryggan vinahóp og
það er gott að hugsa til þess að
þú varst ekki bara bróðir, heldur
líka vinur.
Er við lítum um öxl
til ljúfustu daga
liðinnar ævi,
þá voru það stundir
í vinahópi
sem veittu okkur
mesta gleði.
(Nico)
Þó að þú hafir aðeins náð 21 árs
aldri þá skildir þú svo mikið eftir,
sem er svo stór hluti af þér, ljóð,
teikningar, málverk, ljósmyndir og
ótal skartgripi. Þessir hlutir og þær
góðu stundir er áttum við saman
munu alltaf minna okkur á þig.
Við söknum þín sárt, elsku Lelli.
Guð veri með þér.
Elsku mamma og pabbi. Guð
gefi okkur styrk til að takast á við
sorgina.
Harpa, Selma, Helgi Dan
og Jón.
sem þú og mamma gáfuð okkur.
Þér fannst þú aldrei geta gert neitt
fyrir okkur, af því að þú værir áhorf-
andi að lífínu, en reynsluna gafstu
okkur og hún hefur meðal annars
gert okkur að þeim persónum sem
við erum í dag. Líf þitt skipti sannar-
lega máli og einnig endurfæðing þín
úr efninu í andann. Þegar þú birtist
okkur nokkrum dögum eftir líkams-
dauðann þá snerti það okkur mjög
djúpt. Að finna gleði þína, frelsi og
eftirvæntingu kom yndislega á
óvænt. Með nálægð þinni eftir lík-
amsdauðann hefur trúin í kærleik-
anum dýpkað. Já, hver sál stefnir
hvert jarðlíf að marki sínu. Lífið á
jörðinni er skólinn og brautimar sem
við veljum em ólíkar. Við biðjum
þig að opna sál þína og taka á
móti allri þeirri hjálp sem þér býðst
í nýjum heimi andans. Haltu göngu
þinni ótrauður áfram með yndisleg-
um léttleika, þeim sem þú varst svo
ríkur af áður en þú veiktist. Megi
orka gleðinnar, frelsisins og kær-
leikans gefa þér byr undir báða
vængi á þeirri þroskabraut sem sál
þín gengur nú. Við verðum í sam-
bandi.
Sæll að sinni.
Dæturnar
Pálína og Bryndís.
Farinn er vinur til fjarlægra stranda
fijáls er þinn hugur frá böli og neyð
farinn í skjóli Guðs heilögu handa
í himneska gleði á kærleikans leið.
Fijáls er nú andinn fegurðar nýtur
fógnuður ríkir í örþreyttri sál
himnanna eilífa ljósið hann lítur
líknandi kærleikans unaðar bál.
Striði er lokið á stórgrýttum vegi
stendur þú alheill á friðarins grund
I ástvina fagnað - Drottins á degi
sem dásemdarhátíð á æskunnar stund.
Nú ert þú laus allra mannlegra meina
mikil er náðin á guðsdýrðar storð
fagnaðarboðskapinn færð þú að reyna
fyrirheit Drottins og Frelsarans orð.
Sigurður Guðmundsson.
féiirvlnir
Alltaf tilbúnir í fjörið!
Vitundarvígsla manns og sólar
Dulfræði fyrir þá sem leita.
Fæst í versl. BETRA LÍF í Kringlunni 4-6
Námskeið og leshringar.
'Ækó Ahuramenn um Þróunarheimspeki
Pósthólf4124 124 Rcykjavík Fax 587 9777 Sími 557 9763
Tannyerndarráð
ráðleggur foreldrum
að gefa börnum sínum
jóladagatöl
án sælgætis
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1989
1. flokki 1990
2. flokki 1990
2. flokki 1991
3. flokki 1992
2. flokki 1993
2. flokki 1994
3. flokki 1994
Innlausnardagur 15. nóvember 1996.
1. flokkur 1989: Nafnverð: Innlausnarverð:
500.000 kr. 967.681 kr.
50.000 kr. 96.768 kr.
5.000 kr. 9.677 kr.
1. flokkur 1990: Nafnverð: Innlausnarverð:
500.000 kr. 854.343 kr.
50.000 kr. 85.434 kr.
5.000 kr. 8.543 kr.
2. flokkur 1990: Nafnverð: Innlausnarverð:
1.000.000 kr. 1.701.450 kr.
100.000 kr. 170.145 kr.
10.000 kr. 17.015 kr.
| 2.flokkur 1991: Nafnverð: Innlausnarverð:
1 1.000.000 kr. 1.581.539 kr.
100.000 kr. 158.154 kr.
10.000 kr. 15.815 kr.
3. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 6.979.363 kr.
1.000.000 kr. 1.395.873 kr.
100.000 kr. 139.587 kr.
10.000 kr. 13.959 kr.
2. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 6.438.961 kr.
1.000.000 kr. 1.287.792 kr.
100.000 kr. 128.779 kr.
10.000 kr. 12.878 kr.
2. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 5.912.012 kr.
1.000.000 kr. 1.182.402 kr.
100.000 kr. 118.240 kr.
10.000 kr. 11.824 kr.
3. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 5.803.935 kr.
1.000.000 kr. 1.160.787 kr.
100.000 kr. 116.079 kr.
10.000 kr. 11.608 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
cSn HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILO • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SÍMI 569 6900