Morgunblaðið - 15.11.1996, Page 51

Morgunblaðið - 15.11.1996, Page 51
MÓRGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR FÖSTUDAGUR15: NÓVEÍMBER 1996 51 I I I I ! I i I I 1 I 1 I I i 4 4 « 4 4 4 . % 4 4 4 HELGA JÓNSDÓTTIR + Helga Jónsdóttir fæddist að Görð- um 30. júlí 1905. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 7. nóvem- ber síðastliðinn. For- eldrar Helgu voru Jón Jónsson og Guðný Guðjónsdótt- ir. Systkini Helgu: Guðjón, látinn, Guð- veig og Þorgeir. Helga giftist 4. júní 1924 Pétri Sig- urbjömssyni, hann er látinn, þau áttu sjö börn, Sigurð, Lilju, Sigríði, Guðjón, Jón Pétur, Min- neyju og Kristin. Þá ólu þau upp systurson, Sigurbjörn Trausta. Útför Helgu verður gerð frá Akraneskirkju i dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Elsku amma. Nú þegar leiðir skilja er margs að minnast. Ég veit að þú varst södd lífdaga og þráðir svefninn langa. Nú þegar þú ert horfín á braut skilur maður fyrst hvers virði það var að hafa átt möguleika á að eiga þig að, en samt er samviskan slæm yfír því að hafa ekki ræktað sambandið við þig miklu betur. En nú er það um seinan. Mikið var gott að geta ieitað yfír til þín þegar þurfti að læra undir próf og fá að sitja í stofunni hjá þér. Þar var friðurinn og notalegheitin. Þó komst þú annað veifið og athugaðir hvemig gengi og komst þá með eitt- hvert góðgæti í leiðinni. Notalegt var að koma til þín þegar þú varst komin inn á Dvalarheimilið Höfða og rabba við þig um allt milli himins og jarð- ar. Þú fylgdist vel með og varst haf- sjór af fróðleik um gamla tíma og GUÐNY FRIÐRIKSDÓTTIR + Guðný Friðriks- dóttir fæddist 19. september 1911. Hún lést í Kópavogi 9. nóvember síðast- liðinn. Guðný var dóttir lvjónanna Bjargar Asgríms- dóttur og Friðriks Jóhannssonar. Barnung missti hún föður sinn, en var tekin í fóstur til föðursystur sinnar Guðnýjar Sigur- rósar Jóhannsdótt- ur og eiginmanns hennar Sigurðar Sveinssonar bátasmiðs frá Borgarfirði eystra, þar ólst hún upp í Vina- mynni en það hús er nú horfið. Guðný átti fjögur systkini og er eitt þeirra á lífi, og eina fóstursystur sem hún ólst upp með en hún er iátin. Árið 1940 giftist Guðný Haraldi K. Guðjónssyni bif- reiðastjóra á Hreyfli en hann lést 7.10. 1988. Þau áttu fjögur börn, Sigurð, Helgu, Guðjón og Guðnýju Sigurrós. Barna- börnin eru níu, barnabarnabörn tíu. Útför Guðnýjar fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. í dag verður til moldar borin elskuleg tengdamamma mín. Þegar ég kom fyrst inn í fjöldskylduna tók ég eftir því hvað hún var iðjusöm, henni féll aldrei verk úr hendi, kom- in á fætur kl. 6 alla morgna til að baka flatkökur og kleinur sem voru þær allra bestu í heimi. Þetta seldi hún í búðir og fyrirtæki og allt fór þetta fram í litla eldhúsinu hennar. Þaðan var farið út í garð og hlúð að blómunum eða kálgarðinum eða spjallað við Lilju vinkonu í næsta húsi. Á veturna var setið og saum- að, bætt og stagað. Á vorin var sáð fyrir sumarblómum og hún gætti fræjanna eins og ungbarna. Alltaf var hún heima með nýlagað kaffi og riýbakaðar formkökur. Á hennar yngri árum tók hún sér ýmislegt fyrir hendur, meðal annars rak hún ásamt öðrum kon- um Þvottahúsið Grýtu í nokkur ár. Margir voru kostgangarar hjá henni gegnum árin og margar voru flík- urnar sem hún saumaði fyrir aðra, svo ég tali nú ekki um allt unga fólkið sem átti sér samastað á heim- ilinu. Seinni árin var hennar besta skemmtun að fara á bingó sem varð fastur liður 5 hennar lífí. Þar eignaðist hún vinkonur sem urðu henni kærar. Nú verður ekki hringt lengur í mig um 7-leytið á kvöldin til að spjalla um daginn og veginn, því nú er hún farin þessi kjamorku kona sem margir mættu taka sér til fyrirmyndar. Elsku Guðný mín, ég þakka þér allt sem þú gerðir fyrir mig og mína fjölskyldu, alltaf varst þú til staðar þegar á þurfti að halda. Guð blessi þig og hvíl þú í friði, ég kveð þig með miklum söknuði. Tengdadóttir. GUÐBJÖRG BERG- STEINSDÓTTIR + Guðbjörg Bergsteinsdóttir fæddist á Árgilsstöðum í Hvolhreppi hinn 23. ágúst 1919. Hún lést á Landspítalanum 11. október síðastliðinn og fór út- för hennar fram frá Dómkirkj- unni 21. október. Hún Bagga, réttu nafni Guðbjörg Bergsteinsdóttir, vinkona mín og starfsfélagi minn í tollinum, er horf- in fyrir fullt og allt, úr tilveru okk- ar sem eftir lifum. Hún átti við veikindi að stríða undanfarin ár. Við Bagga störfuðum hvort við sitt skrifborðið í tollinum, á 4. hæð toll- byggingarinnar í áravís, og er ég henni þakklátur fyrir samvem- stundirnar hjá stofnuninni. Ævin- lega var hún hin hressasta, eigin- lega eldhress, í starfi og leik. Það er mikil eftirsjón að slíkri mann- eskju. í áratugavís bjó Bagga með móður sinni, eða allt þar til hún andaðist fyrir nokkrum árum, en þá tók við einmanaleikinn í lífí hennar, enda þótt hún ætti marga vini og kunningja um ævina. Bagga var alla tíð bamlaus og giftist aldr- ei svo ég viti til. Hún bjó lengstum í eigin íbúð í á Baldursgötunni. Ég vil hér með votta eftirlifandi systr- um hennar og öðmm ættingjum samúð mína vegna andláts hennar. Blessuð sé ævinlega minning vin- konu minnar Böggu. Páll Hannesson, fyrrv. tollfulltrúi. sagðir þú mér oft frá gamla tímanum. Elsku amma. Missir þinn var mik- ill þegar afí dó og fannst mér þú aldr- ei söm eftir það. En nú ertu loks komin til hans þar sem þið getið hald- ið áfram að fylgjast með ástvinum ykkar sem ykkur þótti svo vænt um. Síðustu árin vom þér erfið. Þú sagðir mér það sjálf þegar ég heimsótti þig. Líkaminn var þreyttur en hugsun og athygli vora á sínum stað. Elsku amma. Ég veit að þú átt góða heimkomu þar sem vel er tekið á móti þér. Ég vona að þú haldir áfram að fylgjast með mér og mínum og veitir okkur styrk þegar á þarf að halda. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Guð blessi minningu þína og veiti ástvinum styrk. Sævar Guðjónsson. Elsku langamma, ég trúi ekki að þú sért dáin en ég veit það. Mér fínnst mjög erfítt að trúa því. Þú varst svo góð og blíð, það var svo gaman að koma í heimsókn til þín. Ég man að þegar ég var yngri söng ég af ánægju og ég vissi að þú biðir eftir okkur. Þegar við komum, hljóp ég upp stigann í herbergið og kallaði: Amma, amma, ég er komin. Og amma svaraði með blíðu brosi: Ertu komin, Helga mín? En svo liðu árin og amma var orð- in gömul og þurfti á sjúkrahúsdvöl að halda og var í hjólastól. En ég vissi að þú þurftir að deyja, en ekki strax. Á fimmtudaginn fékk ég þær fregnir að amma væri dáin. Ég grét og grét. Þú fórst svo fljótt en ég veit að þér líður vel uppi hjá Guði og það er þér fyrir bestu. Élsku amma mín, ég þakka kær- lega fyrir mig og það sem þú ert búin að gefa mér. Mig langar að hafa litla bæn með. Mér þykir vænt um þig, elsku amma. Hrygga vil ég geta glatt, gef mér þrek að tala satt, gera það sem göfugt er, gæta jafnan vel að mér. Helga Irma Sigurbjöms- dóttir og Jóhanna Juana Cardenas. Nú ertu farin, elsku langamma. Vonandi hefur þú það gott? Ég sakna þín svo mikið og það hryggir mig að þú skulir vera farin en ég veit að þér líður vel hjá langafa Pétri. Minningamar streyma fram í huga mínum. Mér er það sérstaklega minn- isstætt hvað þú áttir alltaf nóg af kökum undir stiganum við hliðina á kartöflunum. Ég man hvað það var spennandi að fá að gista hjá þér og hlusta á allar sögumar sem þú sagð- ir mér alltaf rétt fyrir háttinn. Stund- um áttirðu það til að koma í bæinn og gista. Alltaf fékk ég að sofa við hliðina á þér en áður en ég fór að sofa kenndirðu mér bænir. Þér fannst aldrei neitt mál að hjálpa mér við lærdóminn þótt ég væri ekki í skapi til að læra. Alltaf hafðir þú nóg af þolinmæði fyrir okkur báðar. Ég man hvað ég hlakkaði alltaf til jólanna því að þá komum við og gist- um hjá þér. Það var alltaf svo góður bökunarilmur sem fyllti stofuna þína. Það á eftir að verða einmanalegt að koma til Akraness þegar þú ert ekki lengur þama. Elsku langamma, ávallt mun ég minnast þín. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesú, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (H. Pét.) Claudia P. Sigurbjörnsdóttir. Jólamatur; gjallr og fdikdar Sunnudaginn i. desember nk. kemur út hinn árlegi blaðauki Jólamatur, gjafir ogfondur. Blaðaukinn verður sérprentaður á þykkan pappír og í auknu upplagi þar sem jólablaðaukar fyrri ára hafa selst upp. í blaðaukanum verður fjallað um hvernig menn gera sér dagamun í mat og drykk um jólin og hvernig jólaundirbúningi og jólahaldi er háttað. Birtar verða uppskriftir af hátíða- og jólamat, meðlæti, eftirréttum, smákökum, konfekti og fleira góðgæti, að ógleymdri umfjöllun um jólavín og aðra jóladrykki. Einnig verður fjallað um þýðingu jólanna í huga fólks, rætt um jólasiði, jólagjafir, skreytingar og föndur við fólk víðs vegar um land og þá sem haldið hafa jól á erlendri grund. Starfsfólk auglýsingadeildar veitir allar nánari upplýsingar í síma 569 1111 eða með simbréfi 569 1110 Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12.00 þriðjudaginn 19. nóvember. Jllff0mmMmM«3» - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.