Morgunblaðið - 16.11.1996, Qupperneq 8
'u'ctr
8 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
L
FRÉTTIR
Ráðhfirra réttir eiffendum
sumarbústaða hjálparliöna
=M(5tMivajQ ■ *w.
VIÐ höfum þetta bara eins og með Höllustaðabeljurnar, greyin mín . . .
Framkvæmdastjóri YSÍ gagnrýnir breytingar
á lífeyriskerfi ríkisins
Rekstrarábyrgð er
tekin frá sjóðnum
ÞÓRARINN V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, segir enga fram-
för fólgna í breytingum á Lífeyris-
sjóði starfsmanna ríkisins ef breyt-
ingamar feli í sér að útreikningar
tryggingafræðinga eigi að ráða því
hversu hátt iðgjald ríkissjóður borgi
í sjóðinn. Þar með hafi öll rekstrar-
ábyrgð verið tekin af stjóm sjóðsins.
„Við höfðum skilið þessa umræðu
um breytingar á lífeyrismálum op-
inberra starfsmanna þannig að rík-
issjóður ætlaði að færa sig yfir á
sama svið og almenni vinnumarkað-
urinn þannig að það yrði samið um
tiltekið iðgjald, sem svaraði til þess
sem ríkið er að gera í dag, en síðan
væri það verkefni stjómenda sjóðs-
ins að ávaxta sitt pund þannig að
sjóðurinn geti að jafnaði staðið við
réttindin.
Ef það er rétt, sem ráða má af
fréttum, að ríkissjóður ætli að fela
tryggingafræðingi að reikna einu
sinni á ári hvað iðgjald ríkisins
þurfi að vera til þess að endar nái
saman þá er búið að taka alla
rekstrarábyrgð af þessum lífeyris-
sjóði. Það er fullkomlega galið. Þar
með er enginn hvati til þess að
hann leggi sig fram um að ávaxta
sitt pund eða halda niðri kostnaði.
Ég trúi því ekki að ríkisstjórnin
hafi gengist undir þetta. Ef svo er
sé ég enga framför í þessu máli,“
sagði Þórarinn.
LSR opnaður fyrir
einkafyrirtækjum
Fram kom á blaðamannafundi,
þar sem samkomulag um breyting-
ar á lífeyriskerfi opinberra starfs-
manna var kynnt, að til greina
kæmi að fleiri en opinberir aðilar
greiddu í Lífeyrissjóð starfsmanna
ríkisins (LSR). M.a. kæmi þetta til
álita við einkavæðingu ríkisfyrir-
tækja.
Starfsmenn Áburðarverksmiðj-
unnar og Sementsverksmiðjunnar
greiða í LSR þrátt fyrir að fyrir-
tækjunum hafi verið breytt í hluta-
félög. Starfsmenn Pósts og síma
verða einnig áfram í LSR eftir að
stofnuninni hefur verið breytt í
hlutafélag. Búast má við því að
þetta mál valdi vissum átökum í
framtíðinni. Ef Sementsverksmiðj-
an og Áburðarverksmiðjan verða
seldar, eins og rætt er um að gera,
og nýir eigendur kjósa að ganga í
VSÍ skapast sú staða að VSÍ fer
að semja um launakjör verkamanna
í þessum verksmiðjum samhliða
samningum um launakjör verka-
manna í t.d. Dagsbrún. Þessir tveir
hópar verkamanna verða hins vegar
með ólík lífeyrisréttindi og þá vakn-
ar sú spurning hvort þeir geti þeg-
ið laun eftir sömu launatöflunni.
„Ég trúi ekki að neinn launa-
MAÐUR sem saknað hafði verið frá
því á mánudag og lögregla hafði
leitað frá því á þriðjudag fannst
strax eftir að mynd af honum var
birt á sjónvarpsskjánum á fimmtu-
dag. Þá kom í ljós að hann hafði
legið á sjúkrahúsi frá því á mánu-
dag.
Maðurinn hafði veikst þegar
hann var staddur í kirkjugarði í
Reykjavík og komist við illan leik
á slysadeild Borgarspítalans. Þang-
að kom hann síðdegis á mánudag
og næsta morgun var hann fluttur
frá Borgarspítalanum með sjúkra-
bíl á Landspítalann.
Ættingjar mannsins óskuðu eftir
því að lögregla leitaði hans á mánu-
dagskvöld þegar ekki hafði spurst
greiðandi sætti sig við að vita ekki
fyrirfram hvaða lífeyrisreikninga
hann fái í hausinn. Það mun ekkert
einkafyrirtæki gangast undir slíka
skilmála. Menn þurfa að hafa að-
gang að skattheimtuvaldinu til að
geta leyft sér slíkt,“ sagði Þórarinn
þegar hann var spurður um þetta
atriði.
Fjármálaráðherra vonast eftir að
frumvarp um breytingar á lífeyris-
kerfi opinberra starfsmanna verði
afgreitt á Alþingi fyrir áramót.
Hann segir það skipta miklu máli
að samkomulag hafi tekist um
þessa breytingu milli stjórnvalda
og samtaka opinberra starfsmanna.
Alþingi verði að hafa þetta í huga
og leitast við að gera ekki aðrar
breytingar á frumvarpinu en þær
sem samkomulag er um við opin-
bera starfsmenn.
til hans síðan fyrr um daginn. Að
sögn Jónasar Hallssonar, aðstoðar-
yfirlögregluþjóns í Reykjavík, hafði
lögreglan ekki haft samband við
sjúkrahús til að leita að manninum
enda hafi ekkert verið talið benda
til þess að hann væri veikur. Auk
þess hafi maðurinn ekki verið
skráður inn á Bórgarspítalann og
því mundi fyrirspum þangað ekki
hafa komið að gagni. „Þama hafa
einhvers staðar orðið mistök sem
ég kann ekki skýringar á,“ sagði
Jónas.
Hvorki náðist samband við yfír-
lækni slysadeildar Borgarspítalans
vegna þessa í gær né við lækni
kunnan máli mannsins á Landspít-
ala.
Manns leitað þegar
hann lá á sjúkrahúsi
Ný doktorsritgerð í læknisfræði
Hægt er að koma
í veg fyrir blindu
vegna sykursýki
Jóhannes Kári Krist-
insson læknir varði
doktorsritgerð sína
við Háskóla íslands hinn
25. maí síðastliðinn. Rit-
gerðin ber heitið Diabetic
Retinopathy. Screening
and prevention ofblindness
eða Sykursýkisskemmdir í
sjónhimnu. Skimun og for-
varnaraðgerðir gegn
blindu. Leiðbeinandi Jó-
hannesar var Einar Stef-
ánsson, prófessor í augn-
lækningum við HI.
Eins og nafnið bendir
reyndar til fjallar doktors-
ritgerðin um það hvemig
koma megi í veg fyrir sjón-
depru eða blindu vegna
sykursýki. í upphafi rit-
gerðarinnar er sagt frá því
að augnsjúkdómar vegna
sykursýki séu ein algeng-
Jóhannes Kári
Kristinsson
asta orsök blindu á Vesturlöndum
og jafnframt meðal alvarlegustu
fylgikvilla sykursýki. Sjóndepra af
völdum sykursýki sé einkum vegna
sjónhimnusjúkdóms og þær sjón-
himnuskemmdir, sem aðallega
valdi sjónskerðingu, séu myndun
nýæða og bjúgs á svokölluðu ma-
kúlusvæði á sjónhimnunni.
Hver er niðurstaða doktorsrit-
gerðarinnar í stuttu máli?
„Hún er sú að hægt sé að koma
í veg fyrir blindu af völdum sykur-
sýki ef þrír eftirfarandi þættir eru
uppfylltir: í fyrsta lagi að einstakl-
ingur með sykursýki fari reglulega
í almennt sykursýkiseftirlit, þann-
ig að blóðsykrinum sé örugglega
haldið innan eðlilegra marka, því
þá eru minni líkur á skemmdum í
sjónhimnu. í öðru lagi að einstakl-
ingar með sykursýki fari reglulega
í augneftirlit, því sjónhimnu-
skemmdir geta þróast á stuttum
tíma. Og í þriðja lagi að leysimeð-
ferð sé beitt, ef með þarf, á réttum
tíma á þróunarskeiði augnsjúk-
dómsins, en ekki síst þess vegna
er svo mikilvægt að skoða augu
sykursjúkra reglulega.
Hins vegar var komist að þeirri
niðurstöðu að sykursjúk böm und-
ir 12 ára aldri þurfa ekki að fara
í reglubundna augnskimun, því
sykursýkin veldur ekki sjónhimnu-
skemmdun fyrir þennan aldur.
Þá má benda á að þær rann-
sóknir, sem doktorsritgerðin bygg-
ist á, eru með þeim fyrstu til að
sýna fram á nauðsyn þessara
þriggja þátta til að koma í veg
fyrir blindu af völdum sykursýki.
í rannsóknunum kemur fram að
algengi sjónskerðingar vegna syk-
ursýki á Islandi sé með því lægsta
sem gerist í heiminum, en hér á
landi hefur einmitt verið --------
mjög gott eftirlit með
einstaklingum með syk-
ursýki síðustu áratug-
ina. Sérstaklega með
tilkomu göngudeildar
sykursjúkra á Landspít-
alanum árið 1975. Áðrar erlendar
rannsóknir, eins og til dæmis í
Bandaríkjunum og í Danmörku
hafa sýnt fram á mun hærri
blindutíðni á meðal sykursjúkra
sem ekki eru undir eins góðu eftir-
liti, bæði hvað varðar almennt eft-
irlit og augneftirlit."
Hvenær byrjaðir þú í doktors-
náminu og hvers vegna valdir þú
þessa sérgrein?
„Það má segja að ég hafi byijað
í doktorsnáminu eftir fjórða árið í
læknisfræði. En þá fékk ég sum-
arstarf sem deildarlæknir á augn-
deild Landakotsspítala. Þar bauðst
mér að taka þátt í faraldsfræði-
legri rannsókn á augnhag sykur-
sjúkra sem Einar Stefánsson pró-
► Jóhannes Kári Kristinsson,
doktor í læknisfræði, er fæddur
í Reykjavík 4. maí 1967. Hann
varð stúdent frá Menntaskólan-
um í Reykjavík árið 1986 og
byijaði í læknisfræði við Há-
skóla íslands þá um haustið.
Hann útskrifaðist frá lækna-
deild HÍ árið 1992. Hann hóf
rannsóknarvinnu á augndeild
Landakotsspítala árið 1990 og
var í rannsóknastöðu við deild-
ina í tvö ár og deildarlæknir í
eitt ár. Hann byrjaði formlega
í doktorsnáminu við Háskólann
árið 1994 og varði doktorsrit-
gerðina hinn 25. maí síðastlið-
inn. Jóhannes er nú búsettur í
Indianapolis, Indiana í Banda-
ríkjunum og er deildarlæknir á
St. Vincentspítala. Hann er
kvæntur Ragnýju Þóru Guð-
johnsen lögfræðingi og eiga þau
fyö börn, Jón Magnús 4 ára og
Árnýju 1 árs.
Augnsjúk-
dómar algeng-
ir hjá sykur-
sjúkum
fessor í augnlækningum stýrði.
Með tímanum tók ég svo þátt í
fleiri rannsóknum. Tveimur árum
eftir að ég lauk læknisfræðinni við
HÍ eða árið 1994 innritaðist ég í
doktorsnám, þar sem ég fékk
metna þá rannsóknarvinnu sem
ég hafði unnið við til þessa. Sam-
anlagt hafa því þær rannsóknir,
sem doktorsritgerðin byggist á,
tekið um fímm til sex ár.
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga
á augnlækningum og því ákvað
ég snemma að sérhæfa mig í þeim,
jafnvel áður en ég byijaði í læknis-
fræði.“
Er algengt að læknar skrifi
doktorsritgerðir?
„Nei, en ég hef trú á því að það
muni aukast í náinni framtíð. Rann-
sóknarvinna íslenskra
lækna hefur aukist gríð-
arlega undanfarin ár,
bæði hérlendis og er-
lendis. Það á örugglega
eftir að leiða til þess að
sífellt fleiri læknanemar
taki mastersgráðu eða að læknar
fari í doktorsnám."
Þýðir doktorspróf í læknisfræði
að þú munir helga þig frekar rann-
sóknarstörfum en ella?
„Nei, ekki endilega, því þetta
felur ekki í sér neinar skuldbind-
ingar. En svo ég vitni í orð Einars
Stefánssonar prófessors þá má
samt segja að doktorsgráðan sé
eins konar byijun á hjónabandi,
þar sem maður hefur ákveðnum
hjúskaparskyldum að gegna. En
auk þess er hún merki um að
maður hafi mikinn áhuga á rann-
sóknum. Þetta er í raun og veru
eins og hvert annað áhugamál og
ég á örugglega eftir halda því
áfram í framtíðinni."