Morgunblaðið - 16.11.1996, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 16.11.1996, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR16. NÓVEMBER 1996 41 _ HESTAR ANGI er fyrsti stóðhesturinn af Laugarvatnskyni sem hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi en ekki sá síðasti ef að líkum lætur. Hér situr Þorkell Anga við verðlaunaafhendingu á fjórðungsmótinu í sumar með ættgarðinn að baki. Ræktunarmaður ársins ’96 Þorkell og syn- ir með besta árangur ársins Þorkeli Bjamasyni var í gær veitt nafnbótin ræktunarmaður ársins á uppskeruhátíð hestamanna á Hótel Sögu. Var þar verið að verðlauna góðan árangur í ræktun Laug- arvatnshrossanna sem Þorkell hóf fyrir um fjörutíu árum með hryssum, Fjöður frá Tungufelli og Hrefnu frá Snartarstöðum. Frá þeim eru bestu hross ræktunarinnar komin og fjallar Valdimar Krístinsson hér um árangur af starfí Þorkels af þessu tilefni. EN ÞAÐ eru fleiri sem koma við sögu í ræktun Laugarvatnshross- anna því í dag hafa synir Þorkels að mestu tekið yfir ræktunina en þeir eiga allir hryssur út af þessum formæðrum. Þorkeli sjálfum fannst eðlilegt að einn sona hans tæki við viðurkenningunni þar sem þeir hafi borið hitann og þungann af starfinu um langt skeið en vafalítið var hann einn um þá skoðun. Vel fór á því að hann kæmi fram fyrir hönd sona sinna að þessu sinni enda frumkvöð- ullinn að þessu öllu. Afburða undirstöður Laugarvatnsræktunin stendur orð- ið styrkum fótum og það í tvennum skilningi. Fyrst er að nefna að íjórar hryssur, Fjöður, Sjöfn, Sif og Glíma og einn stóðhestur, Angi, hafa hlotið heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Svo er að nefna að Laugarvatnshrossin hafa öðrum hrossum betri fótagerð og óhætt að segja að þau beri þar ægishjálm yfir önnur hross. Tilnefningin í gær byggist á ár- angri Laugarvatnshrossanna á kyn- bótasýningum á árinu. Ber þar hæst heiðursverðlaun Anga og Glímu fyr- ir afkvæmi, á fjórðungsmótinu á Gaddstaðaflötum. Þá komu fram á árinu sex stóðhestar frá Laugarvatni eða af þessum meiði með einkunn yfir átta. Tekið skal fram að sum hrossanna eru kennd við Þórodds- staði þar sem Bjami sonur Þorkels býr nú en jörðin hefur verið lengi í eigu fjölskyldunnar. IJnurnar saman í tveimur hestum Af þessum stóðhestum vakti mesta athygli fjögra vetra hestur í eigu Bjarna, Hamur frá Þórodds- stöðum sem fram kom á héraðssýn- ingu á Gaddstaðaflötum í vor. Hlaut hann í einkunn 8,23 sem er jafn- framt hæsta einkunn sem fjögra vetra hross hlaut á árinu. í þessum hesti blandast línumar frá Hrefnu og Fjöður. Faðir Hams, Galdur frá Laugarvatni er sonur Glímu dóttur Sjafnar sem er undan Slaufu sem var undan Fjöður frá Tungufelli. Móðir Hams er Hlökk dóttir Sifjar sem er aftur undan Heru, dóttur Hrefnu frá Snartarstöðum. Inn í blandast svo stóðhestamir Faxi frá Árnanesi, Hrafn frá Holtsmúla, Dreyri frá Álfsnesi og Stígandi frá Sauðárkróki. Hamur er með 8,26 fyrir byggingu, hæst fær hann 9,2 fyrir hófa og 8,5 fyrir fótagerð. Fyrir hæfileika fær hann 8,21, hæst 8,5 fyrir tölt og fegurð í reið. Þá má geta stóðhestsins Frama frá Ragnheiðarstöðum sem er af Laugarvatnskyni í báðar ættir. Móð- ir hans Krás frá Laugarvatni var seld fylfull en faðir hans Gumi er sonur Glímu og Pás frá Laugar- vatni. Frami stóð sem kunnugt er efstur fimm vetra hesta á fjórðungs- mótinu í sumar með 8,24 í einkunn. Frami er eins og Hamur kominn út af Hrefnu og Fjöður. Þeir Laugarvatnsfeðgar hafa ver- ið áhugasamir um ræktun hrossa sinna í gegnum tíðina enda ætíð verið með hross í fremstu röð. Á þessum tímamótum þegar ræktun þeirra stendur á toppi má ætla að ræktun Laugarvatnshrossanna muni greinast á næstu árum. Synir Þor- kels eru sumir famir að rækta hver á sínum staðnum. Bjami eins og áður sagði á Þóroddsstöðum þar sem nú em aðalbækistöðvar ræktunar- innar og hafa verið. Gömlu hryssum- ar í stofninum em hafðar á Þórodds- stöðum og verða þar til endadæg- urs. Guðmundur Birkir er fluttur til Húsavíkur þar sem hann heldur hross á jörðinni Saltvík skammt frá Húsavík. Þorkell yngri er fluttur að Sóleyjarbakka í Hmnamannahreppi, Gylfi býr á Selfossi og Hreinn flutt- ur að Flúðum í Hmnamannahreppi. Fætur, hófar og prúðleiki Þeir feðgar hafa alltaf gert miklar kröfur til þeirra hrossa sem þeir hafa notað í ræktunarstarfið, sér- staklega á það við um fótgerð, hófa og prúðleika. Hvað hæfíleikum við- kemur þykja Laugarvatnshrossin hafa góðan vilja, mikið rými og vera afar hreingeng. Aðspurður um hvað þyrfti að bæta í hrossunum sagði Bjami á Þóroddsstöðum að Laugar- vatnshrossin mætti létta, mýkja bak og enn væri hægt að bæta fram- bygginguna. Að öðm leyti snerist starfið um að festa góðu eiginleikana i sessi. Útkoma Laugarvatnshross- anna á árinu er mjög góð, talsvert betri en hjá öðmm ræktendum og full ástæða til að óska þeim feðgum til hamingju með árangurinn. mts. bragð .J? féiirvinir Alltaf tilbúnir í fjörið! ■-----------■ SLIM-LINE dömubuxur frá gardeur ÖÓumu tískuverslun mm V/Nesveg, Seltj., s. 561 1680 k TUJBOÐ QjóswyncJaslofa Qunuars úugimaresotiar Suðurveri, sími 553 4852 Tilboð á hreinlætistækjum WC með stút í vegg eða gólf með setu. Verð frá ■. 9.364 Verð fra LEjEES Baðkör upp í 190 cm II RAOCREfÐSLUR Verslið þar sem úrvalið er mest! Verð frá Blöndunartæki í miklu úrvali MitastimtæKi Verð frá Mikið úrval af sturtuklefum, sturtuhornum og hurðum. Athugaðu verðið! Verð f rá Handlaugar, 17 gerðir á vegg og borð Opið 10-16 í dag VATNS VIRKINN HF. Ármúla 21, símar 533 2020 og 533 2021 Grænt númer 800 4020
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.