Morgunblaðið - 16.11.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996 23
NEYTENDUR
íslenskir dagar á Austurlandi
Fataskáparnir
taka breytingum
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
MIÐAS hf. smíðar og selur inn-
réttingar fyrir eldhús, bað- og
svefnherbergi og fyrir skömmu
var fataskápalínu fyrirtækisins
breytt. Miðás kynnir vörur sínar
á íslenskum dögum á Austurlandi
en þeim lýkur nú um helgina. Rúm
10 ár eru síðan byrjað var að
framleiða Brúnás-innréttingar á
Egilsstöðum en það var árið 1990
sem Miðás hf. tók við rekstrinum.
Sala til einstaklinga fer í gegnum
verslanirnar en auk þess selur
fyrirtækið innréttingar til bygg-
ingarverktaka í allt frá 10 og upp
í 50 íbúða hús.
Þegar Miðás hf. tók við rekstr-
inum hóf fyrirtækið samstarf við
arkitektana Guðrúnu Margréti
Ólafsdóttur og Oddgeir Þórðarson
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
GUÐLAUGUR Erlingsson
framkvæmdasljóri stendur
við nýju línuna í fataskápum.
íslenskir dagar á Austurlandi
KK matvæli með nýja
rúllupylsu í Hagkaup
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
ÞESSA viku standa yfir íslenskir
dagar á Austurlandi. KK matvæli
á Reyðarfirði er eitt af fjölmörgum
fyrirtækjum sem kynna fram-
leiðslu sína á íslenskum dögum.
Það var stofnað fyrir 9 árum af
þeim hjónum Kristbjörgu Kristins-
dóttur og Herði Þórhallssyni og
hefur vaxið fiskur um hrygg á
þessum árum. Kristbjörg segir
reksturinn hafa gengið vonum
framar en í upphafi var farið af
stað með tvær hendur tómar.
Fyrirtækið hefur haft gott starfs-
fólk sem tekið hefur þátt í upp-
byggingunni og nú eru starfsmenn
KK matvæla 6-9 talsins. í síðustu
viku flutti fyrirtækið í eigið hús-
næði, um 240 fermetra stálgrind-
arhús. Framleiðsla KK matvæla
eru fiskibollur, kæfa, kjötbollur,
hrásalat, nokkrar gerðir af brauð-
salati, síld bæði marineruð og
krydduð og tvær tegundir af síld-
arsalati. Einnig er grafínn lax hjá
en þau komu strax með nýjar
hugmyndir inn í áður hefðbundna
framleiðslu.
Stöðug þróun
Innréttingarnar eru í stöðugri
þróun og er nýjasta breytingin í
fataskápalínunni. í fyrra fékk
baðlínan nýtt útlit og næsta ár
verður lögð áhersla á breytingar
í eldhúsinnréttingum.
Guðlaugur Erlingsson, fram-
kvæmdastjóri Miðáss hf., lýsir
ánægju sinni með íslenska daga.
„Það er alltaf gott að vekja at-
hygli á íslenskri hönnun og fram-
leiðslu, kannski sérstaklega til
þess að fólk í það minnsta kynni
sér hvaða möguleikar eru í boði
á íslenskri vöru áður en það kaup-
ir.“
fyrirtækinu og búin til sósa. Fyrir-
tækið kaupir rækju, siginn físk og
ferska ýsu sem pakkað er og selt
undir merkjum KK matvæla.
Markaðssvæði er allt Austurland,
allt frá Þórshöfn til Hornafjarðar.
Einnig fer vara í smáum einingum
til Norðurlands og vestur á land
og til Reykjavíkur en KK vörur,
þ.e. kæfa, kjötbollur og síld, fást
í verslunum Hagkaups. í næstu
viku mun fást ný vörutegund þar
en það er rúllupylsa sem sérstak-
lega er unnin fyrir verslanir Hag-
kaups.
- kjarni málsins!
LO
SPLUNKUNÝR SUZUKi SWIFT
VERÐ: 980.000 kr. 3-dyra , .,
1.020.000 kr.5-dyra PðSQllSQ
Fullvissa og öryg^
hvorn sem þú v(
BUNAÐUR: 1300 c.c., 68 hestafla vél
OX
vo
VO
TAVERK • Aðeins nýtt útlit
á Suzuki Swift, glæsilegra en nokkru sinni
lyrr án þess aS einkennum Swift sé spillt.
f \ / yí r' fl /l I I íf Suzuki Swift er meS tvo öryggisloftpúða sem
I y I 11 IJUÍ liy l III staSalbúnaS - og líttu á verSið!!!
traust,ur örygqisbúnaður
pao sem þér er kærast
þægindi
upphituð framsæti
rafstýrðar rúðuvindur
tvískipt fellanlegt aftursætisbak
samlæsingar
rafstýrðir útispeglar
öryggi
tveir öryggisloftpúðar
hemlaljós í afturglugga
styrktarbitar í hurðum
krumpsvæði framan og aftan
skolsprautur fyrir framljós
þurrka og skolsprauta á afturrúðu
dagljósabúnaður
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17,108 Reykjavík. Stmi 568 51 00.