Morgunblaðið - 16.11.1996, Side 12
12 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Umræður á Alþingi um skattalagabreytingar ríkisstjórnarinnar
Lýst eftir jaðarskattstillögum
ÞINGMENN stjórnarandstöðunnar
lýstu eftir tillögum ríkisstjórnarinn-
ar um aðgerðir til að draga úr jaðar-
áhrifum tekjuskatts í umræðum á
Alþingi á fimmtudag, er Friðrik
Sophusson fjármálaráðherra mælti
fyrir röð stjórnarfrumvarpa um
breytingar á skattalögum.
Frumvörpín miða að því meðal
annars að fylgja eftir stefnu ríkis-
stjórnarinnar í ríkisfjármálum eins
og hún birtist í fjárlagafrumvarpinu
fyrir árið 1997. Efnislega ganga
þau m.a. út á breytingar á gjald-
heimtu ríkissjóðs af fyrirtækjum og
einstaklingum, lækkun vörugjalda
og breytingum á tryggingagjaldi.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
gerðu skattastefnu ríkisstjórnarinn-
ar að umtalsefni í ræðum sínum.
Ágúst Einarsson, þingflokki jafnað-
armanna, sagði að fyrirhugaðar
breytingar, einkum á tekju- og
eignasköttum, væru eins og pantað-
ar af Vinnuveitendasambandinu.
Jón Baldvin Hannibalsson sagði
umræðuna um þennan skattalaga-
pakka ríkisstjórnarinnar vera lítils
virði nú, þar sem aðgerðir gegn
jaðarsköttunum ættu að njóta for-
gangs; þær breytingar sem fyrir-
hugaðar væru með fyrirliggjandi
frumvörpum væru aukaatriði svo
lengi sem ekki væri tekið á jaðar-
sköttunum.
Samræming trygginga-
gjalda umdeild
Fjármálaráðherra upplýsti, að
vinnu hinnar stjómskipuðu nefndar,
sem ynni að tillögum til lausnar
jaðarskattavandans og í eiga sæti
fulltrúar ráðuneyta og aðila vinnu-
markaðarins, miðaði vel áfram og
myndi hún standa við gefna tíma-
áætlun. í stjómarsáttmála ríkis-
stjórnarflokkanna er kveðið á um,
að umrædd nefnd skili tillögum fyr-
ir árslok 1996.
Samræming tryggingagjalda at-
vinnuveganna var eitt umdeildra
atriða í frumvörpunum, sem nokkr-
ir þingmenn stjórnarflokkanna sáu
ástæðu til að lýsa óánægju sinni
með, þar á meðal Egill Jónsson,
Sturla Böðvarsson og Ólafur Þ.
Þórðarson.
Ágúst Einarsson lýsti furðu sinni
á því, að stjórnarþingmenn skyldu
lýsa sig mótfallna svo mikilvægu
atriði í fýrirhuguðum skattalaga-
breytingum. Fjármálaráðherra
ítrekaði, að pólitísk ákvörðun hefði
verið tekin um að tryggingagjaldið
yrði samræmt milli atvinnugreina;
á henni byggðist frumvarpið, sem
borið væri fram eins og hvert annað
stjórnarfrumvarp, sem nyti eðlilegs
meirihlutastuðnings.
Samkvæmt tillögum frumvarps-
ins mun samræming trygginga-
gjaldsins gerast í þrepum til ársins
2000, þannig að þá muni öll íslenzk
fyrirtæki, sama í hvaða atvinnu-
grein þau starfa, greiða sama hlut-
fall, 5,5%, af veltu sinni í trygginga-
gjald. Fyrirtæki í landbúnaði og
sjávarútvegi eru nú í lægra gjald-
þrepi, sem er 3,55%. Árlega mun
sjávarútvegur og fiskvinnsla þurfa
að greiða um 180 millj. króna hærra
gjald og samtals á aðlögunartíma-
bilinu um 700 millj. króna.
Fjármálaráðherra tók í þessu
sambandi fram, að fyrirhuguð leng-
ing þess tímabils, sem fýrirtæki
geta fært rekstrartap á milli ára
til tekjuskattsfrádráttar, úr fímm
árum í átta muni fyrst og fremst
koma sjávarútvegsfyrirtækjum,
sem söfnuðu miklum skuldum á
árunum 1988-1990, til góða.
Framsóknarflokkur
Flokksþing
aðra helgi
Framsóknarflokkurinn
heldur 24. flokksþingið á Hót-
el Sögu 22.-24. nóvember.
Stofnunar flokksins árið 1916
minnst en yfirskrift þingsins
er Framsókn í 80 ár.
Þingið verður sett klukkan
10 föstudaginn 22. nóvember
og syngja félagar úr Karla-
kórnum Fóstbræðrum áð því
loknu. Klukkan 11 verður skip-
að í málefnahópa og þá flytur
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, yfirlits-
ræðu eftir hádegishlé.
Opin afmælisdagskrá hefst
í Háskólabíói klukkan 13.45 á
laugardag og um kvöldið er
kvöldverðarhóf í Súlnasal.
Kosning til stjórnar flokksins
verður gerð 13.20 á sunnu-
dag.
Fiat sýning
hjá nýju
umboði
UMBOÐ fyrir Fiat bíla á nýjum
stað verður formlega opnað um
helgina en það er fyrirtækið
ístraktor í Garðabæ sem tekið
hefur við innflutningi Fiat en það
hefur lengi haft umboð fyrir t.d.
bíla frá Iveco. Hjá ístraktor
verða sýndar um helgina hinar
ýmsu gerðir Fiat bíla, Bravo,
Brava, Punto og smábíliinn
Cinquecento. Síðar er von á nýj-
ustu gerðinni, Marea og Istrakt-
or býður einnig Alfa Romeo og
Lancia Kappa.
Forráðamenn Istraktors skrif-
uðu fyrir rúmum mánuði undir
samning við Fiat og í framhaldi
af því var ráðist í að stækka
húsnæði fyrirtækisins við Smiðs-
búð í Garðabæ um 400 fermetra.
Verður sýningarsalur á jarðhæð
og varahlutabirgðir og verslun á
efri hæð hins nýja húsnæðis.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
BRAVO og Brava eru nýjustu Fiat bílarnir sem sýndir verða
hjá nýju Fiat umboði um helgina.
Komið hefur verið á beinu tölvu-
sambandi við aðalstöðvar Fiat á
ítaliu og segir Páll Gíslason
framkvæmdasljóri það flýtja
mjög fyrir pöntunum, ekki síst á
varahlutum.
Páll Gíslason segir að kapp-
kostað hafi verið að fá alla bílana
sem best búna, m.a. með heml-
alæsivörn og líknarbelgjum og
muni kaupendur njóta afsláttar
á tryggingaiðgjöldum sjá Sjóvá-
Almennum og Ábyrgð vegna
þessa. Verð á Brava og Bravo
gerðunum, sem komu á markað
snemma á árinu, er kringum
1.300 þúsund krónur, Cinquec-
ento kostar 890 þúsund krónur
og Punto kostar milli 1.100 og
rúmlega 1.200 þús. kr. Marea
sem væntanlegur er um áramótin
kostar um 1.500 þúsund kr. Opið
hús verður hjá Istraktor milli kl.
10 og 17 laugardag og sunnudag.
Útflutningur á tölvum
til veðurfræðirannsókna
HALO, haf- og lofthjúpsfræðistof-
an, hefur selt kerfi til að reka tölvu-
reiknaðar veðurspár hjá alþjóðlegri
stofnun og viðræður standa yfir við
fleiri stofnanir um sölu á tölvum
og hugbúnaði til veðurfræðirann-
sókna.
Halo, haf- og lofthjúpsfræðistof-
an í Reykjavík, helgar starfsemi
sína rannsóknum og þróun á sviði
haf- og lofthjúpsfræða. í starfi fyr-
irtækisins er ennfremur lögð
áhersla á að beita fullkomnustu
upplýsingatækni til að vinna úr og
miðla niðurstöðum rannsóknanna
sem leitast er við að setja í sam-
hengi við atburði líðandi stundar,
að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu fyrirtækisins. í starfínu
hefur sérstaklega verið unnið að
hafísrannsóknum á norðurslóðum,
rannsóknum á eyðingu ósóns í heið-
hvolfi og dreifmgu rykagna um loft-
hjúpinn. Forstöðumaður Halo er
Bjöm Erlingsson, hafeðlisfræðing-
ur.
Hugbúnaðarkerfi og
hermilíkan
„Á Halo hefur verið komið upp
fullkomnu hugbúnaðarkerfi og
hermilíkani til útreikninga á eðlis-
ástandi og ferlum í lofthjúpnum.
Hermilíkan fyrir veður hefur verið
aðlagað íslenskum aðstæðum og í
undirbúningi er frágangur og upp-
setning þess til þess að nota til
útreikninga á geislunarferlum,
dreifingu gosösku og efnamengun
frá stóriðjuverum. Sérstakt áherslu-
atriði í rannsóknum og þróun á
Halo er að tengja saman rannsókn-
ir af mismunandi tagi og fást með
þeim hætti við samspil lofthjúps og
hafs í veðrahvolfi annars vegar, og
hins vegar við samspil veðrahvolfs
og heiðhvolfs um veðrahvörfin,"
segir í fréttinni frá Halo.
í síðarnefnda tilfellinu hefur Halo
beint sjónum sínum að áhrifum
gosefna sem berast um lofthjúpinn
á eyðingu ósóns í heiðhvolfi. Veg
og vanda af þessu starfí hafa þeir
Dr. Guðmundur G. Bjarnason, há-
loftaeðlisfræðingur og Sigurður
Jónsson, veðurfræðingur.
Vekur athygli erlendis
Fram kemur í fréttinni, að tækni-
legar útfærslur og lausnir á upplýs-
ingatæknilegri hlið veðurfræði-
rannsókna á Halo hafa vakið at-
hygli erlendra samstarfsaðila og
annarra -stofnana með hliðstæða
starfsemi og Halo. Snemma í haust
óskuðu nokkrir aðilar eftir því að
fá tilboð í búnað, uppsetningu, frá-
gang og þjónustu á sambærilegum
búnaði og komið hefur verið upp á
Halo.
„Nú er svo komið að lokið hefur
verið við uppsetningu á kerfi til að
reka tölvureiknaðar veðurspár og
veðurfræðirannsóknir hjá alþjóð-
legri stofnun, -„World Laboratory,
Mediterranean Research Center".
Stofnunin vinnur að ýmsum verk-
efnum á sviði vísinda og mannúðar-
mála víðsvegar um heiminn, svo
sem í Kína og Miðausturlöndum.
Stofnunin starfrækir einnig útibú
fyrir Miðjarðarhafssvæðið á Sikiley
á Ítalíu.
Háskólinn á Möltu hefur tekið
tilboði Halo í uppsetningu kerfís
fyrir rannsóknastofnun fyrir haf-
og veðurfræði og verður búnaður-
inn og kerfið sett upp á næstu vik-
um. Beðið hefur verið um tilboð í
uppsetningu hliðstæðra kerfa í
Egyptalandi og á Sjálfstjórnar-
svæðum Araba. Háskólinn á Kýpur
hefur hafið könnunarviðræður við
Halo um sölu á kerfinu, en úttekt
og samanburði á valkostum er enn
ekki lokið. Fleiri aðilar hafa einnig
sýnt kerfinu áhuga,“ segir í tilkynn-
ingu Halo.
Veg og vanda af þróun, hönnun
og uppsetningu kerfísins hefur
Björn R. Björnsson, reikni- og tölv-
unarfræðingur.
Enda ástæða til!
FIAT bifreiðar eru með ABS bremsukerfi,
öryggispúða (Airbag), bílbeltastrekkjara
og þjófavöm sem staðalbúnað.
FIAT ER
FIAT BRAVA 1,4 SX
1.298.000.-
Meðal afljorgun pr.m.32.300,-
Miðað við 25% útborgun og
36 mánaða bílalán.*
Hjá Fiat gera menn gott
betur en að uppfylla
staðalkröfur um
öryggi. Þess vegna
stenst Fiat nú þegar
þær kröfur sem
Evrópusambandið
kemur til með að gera
um árekstrarvarnir í nýjum bílum árið 1998.
Nú um helgina kynnum við fjóra nýja bíla
sem allir hafa hlotið einróma viðurkenningar.
BRAVO og BRAVA voru valdir bílar
ársins í Evrópu 1996. PUNTO
fékk sömu viðurkenningu 1995
og smábíllinn CINQUECENTO var
valin hagkvæmasti bíllinn í
Danmörku. Reynsluakstur segir
meira en mörg orð. Við hvetjum þig því til að
heimsækja okkur í Garðabæ um helgina.
Opið í dag laugardag frá kl 10-17
og sunnudag frá kl 10-17.
FIAT HEFUR ÖRUGGLEGA
RÉTTA BÍLINN FYRIR ÞIG.
BÍLASÝNlNö
laugardaö‘
SUNNUDAG
Istraktor
SMIÐSBÚÐ 2 GARÐABÆ SÍMI: 565 6580