Morgunblaðið - 16.11.1996, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996 31
AÐSEIMDAR GREINAR
Sannleikurmn
og málefni fatlaðra
PÁLL Pétursson fé-
lagsmálaráðherra ger-
ir enn tilraun með
grein í Morgunblaðinu
12. nóvember sl. til að
gera Landssamtökin
Þroskahjálp ótrúverð-
ug og sakar undirrit-
aðan um rangfærslur
og svikabrigsl. Það er
leitt að ráherrann skuli
ekki getað fjallað um
málefni fatlaðra á mál-
efnanlegri hátt en raun
ber vitni og ítrekaðar
dylgjur hans í garð
Landssamtakanna
Þroskahjálpar eru ekki
sæmandi félagsmála-
ráðherra íslenska lýðveldisins. Rétt
er að taka fram að hagsmunasam-
tök fatlaðra á íslandi, Landssam-
tökin Þroskahjálp og Öryrkjabanda-
lag íslands, hafa bæði ályktað á
sama hátt um Framkvæmdasjóð
fatlaðra á fundum sínum í haust.
Helzt lítur út fyrír,
segir Guðmundur
Ragnarsson, að félags-
málaráðherra trúi ekki
sínum eigin tölum.
Félagsmálaráðherra sýnir þó
hvergi í skrifum sínum að farið
hafi verið með rangt mál heldur
staðfestir að gagnrýni á niðurskurð
framlaga til Framkvæmdasjóðs
fatlaðra er rétt og skal það útskýrt
nánar.
Lög um málefni fatlaðra
og fjárlagafrumvarp
Landssamtökin Þroskahjálp hafa
bent á að samkvæmt lögum um
málefni fatlaðra skuli óskertar tekj-
ur Erfðafjársjóðs renna í Fram-
kvæmdasjóð fatlaðra. Samkvæmt
frumvarpi til fjárlaga fyrir árið
1997 verða tekjur af erfðafjárskatti
420 milljónir en framlag í Fram-
kvæmdasjóð fatlaðra er áætlað 165
milljónir króna sem ætlað er að
mestu leyti til fjárfestinga. Mismun-
urinn á fyrirheitum í lögum um
málefni fatlaðra og fjárlagafrum-
varpinu er 255 milljónir. Þetta stað-
festir ráðherra í grein sinni en kýs
að kalla niðurskurðinn „að ijúfa
tengslin milli erfðafjárskatts og
Framkvæmdasjóðs“. Þarna er um
stefnubreytingu að ræða frá gild-
andi lögum og væri skynsamlegra
að kalla hlutina sínum réttu nöfn-
um.
Samanburður milli ára
1996 og 1997
frumvarpi næsta árs
hækka um þessa tölu
borið saman við fjárlög
1996 en þar með er
ekki öll sagan sögð.
Samanburðurinn er
ekki réttur fýrr en búið
er að taka tillit til
þeirra breytinga sem
verða á fjárlagatölu
ársins. I grein félags-
málaráðherra kemur
fram að þar er um að
ræða 80 milljónir
vegna sölu Sólborgar
auk þess sem frumvarp
til fjáraukalaga gerir
ráð fýrir 98 milljónum
til viðbótar. Þetta eru
samtals 178 milljónir sem draga
þarf frá 190 milljóna aukningunni
til að gera samanburðinn raunhæf-
an. Til viðbótar má geta þess að
87 milljónir af þessum 190 eru
hækkanir vegna áhrifa launa- og
verðlagsbreytinga og ekki er það
aukning á þjónustu við fatlaða.
Heildarframlög til málefna fatlaðra
munu því ekki hækka í raun á
næsta ári eins og gefið er í skyn.
Málefni Kópavogshælis
í grein undirritaðs í Morgunblað-
inu 7. nóvember sl. var félagsmála-
ráðherra ekki kallaður svikari held-
ur var bent á að íbúar Kópavogs-
hælis sem áformað væri að flyttu
brott væru sviknir. Staðreynd máls-
ins er sú að stjómamefnd ríkisspít-
alanna samþykkti að leggja Kópa-
vogshæli niður og opna í húsnæði
þess nýja deild sem ber heitið End-
urhæfingardeild Landspítalans,
Kópavogi, og var það gert í sam-
ráði við hlutaðeigandi ráðuneyti.
Jafnframt var gerð áætlun um
brottflutning íbúa stofnunarinnar
en félagsmálaráðherra sagði í sjón-
varpsviðtali 23. október sl. að frek-
ari útskriftum af Kópavogshæli yrði
frestað til þess að unnt yrði að
minnka biðlista annarra eftir hús-
næði. Ég veit að margir íbúa Kópa-
vogshælis og aðstandendur þeirra
telja sig svikna í þessu máli.
Félagsmálaráðuneytið lét nýlega
gera úttekt á málefnum fatlaðra í
Reykjavík og vonandi hafa þar
safnast gagnlegar upplýsingar sem
nýtast við að skipuleggja og bæta
þjónustu við fatlaða. Það er skyn-
samleg leið til að fá upplýsingar
um hvar þörfin er brýnust og
Landssamtökin Þroskahjálp vilja
gjarnan taka upp viðræður og sam-
vinnu við ráðuneytið um framtíðar-
uppbyggingu í málaflokknum. Við
treystum því að félagsmálaráðherra
vilji vinna vel að málefnum fatlaðra
en við munum hér eftir sem hingað
til gæta hagsmuna þeirra eins og
við teljum best.
Guðmundur
Ragnarsson
Samkvæmt fjárlögum 1996 fær
Framkvæmdasjóðurinn 257 milljón-
ir og auk þess 80 milljónir vegna
sölu Sólborgar á Akureyri og sam-
kvæmt frumvarpi til fjáraukalaga
sem nú liggur fyrir Alþingi er farið
fram á 88 milljónir til viðbótar.
Þetta eru samtals 425 milljónir en
af þeirri fjárhæð fara um 130 millj-
ónir í rekstrarliði á árinu og þá
standa eftir um 295 milljónir sem
fara til framkvæmda. 257 + 80 +
88 - 130 = 295. Niðurskurður á
framkvæmdafé frá árinu 1996 er
því fyrirhugaður um 130 milljónir
og er ítrekað að allar þessar tölur
eru úr fjárlögum og fjárlagafrum-
varpi ríkisstjórnarinnar enda eru
þær allar staðfestar í grein ráðherr-
ans. Það er því með öllu óskiljan-
legt hvað undirritaður hefur farið
rangt með en helst lítur út fyrir að
ráðherrann trúi ekki sínum eigin
tölum.
Því er haldið fram í frumvarpi
til fjárlaga að framlög til málefna
fatlaðra aukist um 190 milljónir á
næsta ári en ástæða er til að skoða
þá staðhæfingu nánar. Það er rétt
að framlög samkvæmt fjárlaga-
Höfundur er formaður
Landssamtakannn Þroskahjálpar.
Veisluscilir
Q * Wcltlogohú/lð
IB GflPi-i nn
sími 555 4477
HEWLETT'
PAQKARD
PRENTARAR OG SKANNAR
Geriö
verösamanburö
Tölvu-Pósturinn
Hrímnrksgæði Lrígmnrksvcrð
GLÆSIBÆ, ÁLFHEIMUM,
SÍMI 533 4600, FAX: 533 4601
S 8 Ú H
i Oefta-
í teaupbstí
FÁÐU ÞÉR MIÐA FYRIR KL. 20.15