Morgunblaðið - 16.11.1996, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
Um heims-
þíng Biblíu-
félaganna
^ S amskiptabyltingin og fjölmiðlatæknin hef-
ur, segir Hermann Þorsteinsson, skapað
nýja möguleika fyrir útbreiðslu boðskapar
Biblíunnar: með hljóðsnældum, myndbönd-
um og tölvutækninni.
Toronto/Missisauga, Kanada, 26.
september til 3. október sl.
„Hún er mér kær,
sú blessuð bók.“
- Sb. 295/H.H.
/. HEIMSÞING Sameinuðu Biblíu-
félaganna/United Bible Societies
(UBS), kemur saman áttunda
hvert ár. Að þessu sinni var hátíð-
legt haldið 50 ára afmæli UBS.
Nú komu til þingsins 346 þátttak-
endur frá 138 löndum. 135 Biblíu-
félög, er þjóna meira en 200 lönd-
um og landssvæðum
heimsins, áttu þama
fulltrúa.
Hingað barst á sín-
um tíma boð frá UBS
Cíi Hins fsl. Biblíufé-
lags (HÍB) — stofnað
1815 — um að senda
tvo atkvæðisbæra full-
trúa á þetta afmælis-
þing. Stjóm félagsins
ákvað — eins og sjálf-
sagt var — að fram-
kvæmdastjóri félags-
ins, sr. Sigurður Páls-
son, færi til þessa
þings. Ég hvatti for-
seta félagsins, biskup
íslands, eindregið til
fararinnar og að nota þannig alveg
einstakt tækifæri til að kynnast
vel þessum heimssamtökum og í
leiðinni fjölmörgum reyndum og
'^Ehrifamiklum starfandi mönnum í
hinum kristna heimi. — Hinn störf-
um hlaðni biskup okkar og forseti
HÍB - sem er elsta starfandi félag
á íslandi — taldi sig því miður
ekki hafa möguleika á að fara
þessa för, þótt áhugaverð væri.
Þegar ekki urðu aðrar undirtektir
hjá stjóm félagsins við þessu góða
boði, þá bauðst ég til að fara með
framkvæmdastjóranum — félaginu
að kostnaðarlausu. Það varð niður-
staðan að UBS tilkynnti um út-
nefningu okkar. Ymsum mun
kunnugt um að ég gegndi án launa
framkvæmdastjórastarfi HÍB í 25
ár, þar til sr. S.P., góðu heilli,
’íékkst til starfsins fyrir 5 ámm.
Vegna þessarar þjónustu minnar
hjá HÍB hafði ég á þessu tíma-
skeiði kynnst fjölmörgum leiðandi
mönnum Biblíufélaganna, sérstak-
lega annars staðar á Norðurlönd-
um og víðar um Evrópulönd allt
austur til Moskvu, eftir fall Tjalds-
ins og Múrsins. Ég hugði því gott
til fararinnar með góðum vini mín-
um og félaga að fá aftur tækifæri
til að hitta að nýju samverkamenn
á hinum mikilvægu kristnu víg-
stöðvum í henni htjáðu veröld okk-
ar. Á fundi stjórnar HÍB fyrr í
þessum mánuði lagði einn stjórnar-
manna, Ólafur Egilsson sendi-
herra, til að ég byrjaði
á að skrifa í Mbl. um
þetta mikilvæga Bibl-
íu-þing í Kanada, þar
sem aðrir töldu sig þá
í tímaþröng,en koma
væntanlega einnig
fljótt til við þessa frá-
sögn — með vinnslu
úr margvíslegum
gögnum frá þessu
þingi, sem varðar að
mínum dómi alla í
okkar senn 1000 ára
kristna þjóðfélagi.
Til að gera 50 ára
sögu stutta, ætla ég
að tilfæra hér kjam-
góða samantekt, sem
einn af leiðandi mönnum UBS, sr.
Ole Chr. Kvarme, stjórnarformað-
ur Evrópu- og Mið-Austurlanda-
deildar UBS og framkvæmdastjóri
Norska Biblíufélagsins, þar til í
byijun þessa mánaðar, er hann var
útnefndur dómprófastur í Osló.
Hann ritaði skömmu fyrir umrætt
þing: „Sameiginlegt kristniboð —
endumýjuð sýn. Þegar Sameinuðu
Biblíufélögin voru stofnuð 1946
dreymdi fáa um hvílíkur vöxtur
þeirra yrði næstu 50 árin. En
Drottinn kirkjunnar og kristin-
boðsins gjörir oft meira en við
höfum vit á að biðja um. Samtök
13 starfandi Biblíufélaga 1946, eru
nú orðin alþjóðleg fjölskylda Bibl-
íufélaga meira en 120 þjóða. Þessi
þróun er vissulega eitt af undrum
okkar tíma kristniboðssögu, ný
mynd af dæmisögu Jesú um must-
arðskornið (Mt.13.31), „smæst er
Hermann
Þorsteinsson
FULLTRÚAR á þingi UBS í Kanada í sept.-okt. ’96.
það allra sáðkorna, en nær það
vex, er það öllum jurtum meira“.
Vitfi til einingar og kristniboðs
Hver er leyndardómur þess
mikla vaxtar, sem orðinn er? Jú,
fyrst og fremst sá, að allan tímann
hefur það verið kjami málsins, að
Jesús Kristur er hið lifandi Orð og
Ritningin hinn sameiginlegi kristni
arfur. Þetta hefur verið drifkraft-
urinn í vaxandi sam-kristnu sam-
starfi, sem nú nær til allra deilda
kristinnar kirkju.
Því næst er það að þessi „fók-
us“ á Krist og Ritninguna hefur
framkallað vilja til ráðstöfunar á
íjármunum til aukinnar dreifingar
Ritningarinnar, þannig að hún hef-
ur nú náð nýjum þjóðum og þjóð-
flokkum í 180 löndum í öllum álf-
um heimsins.
— Og í þriðja lagi hefur þessi
„brennidepill" (fókus) verið drif-
krafturinn í því starfí að gera Ritn-
inguna aðgengilega á nýjum
tungumálum fyrir nýja þjóðflokka
í þeirri viðleitni að gjöra „allar
þjóðir að lærisveinum". Á umliðn-
um 50 ámm hafa 1.000 þjóðflokk-
ar fengið Ritninguna á sínu máli.
Áframhaldandi útbreiðsla
Ritningarinnar
En, djúpt þakklæti til Guðs fyr-
ir það sem fengið hefur að vaxa í
þessi 50 ár, ætti einnig að leysa
úr læðingi bæði aðmýkt og djörf-
ung, er við horfum til þeirra verk-
efna sem framundan eru. Þegar
Sameinuðu Biblíufélögin fögnuðu
á 50 ára afmælinu á aðalfundi sín-
um í Kanada í lok september 1996,
þá var sjálf útbreiðsla hins ritaða
Guðs Orðs áfram í forgangi. Eftir-
spurnin eftir Biblíum og einstökum
ritum hennar hefur aukist hraðar
Kápa 50 ára afmælisrits UBS,
er út kom nú í september 1996.
en fjárhagur Biblíufélaganna hefur
ráðið við. Um er að ræða lönd, sem
á síðari árum hafa aftur opnast
fyrir Biblíunni, löndin í Austur-
Evrópu og í Asíu, svo og lönd þar
sem kristin kirkja er í örum vexti
í Afríku og Suður-Ameríku. Sam-
tímis hefur fólksfjölgunin í heimin-
um einnig breikkað bilið milli
þeirra sem eiga Biblíuna og hinna
sem ekki hafa aðgang að henni. í
Kína eru nú árlega framleiddar
yfir 2 milljónir Biblíu-bóka (í prent-
verki í Nanking sem vestrænu
Biblíufélögin fengu með leyfi kín-
verskra yfirvalda að gefa þangað
fyrir nokkrum árum) en fólksfjölg-
unin í þessu fjölmennasta ríki ver-
aldar (1200 millj.) er margföld.
Ný staða menningarínnar -
ný viðfangsefni
Biblíufélögin standa nú frammi
fyrir nýju kalli (ögrun), sem mæta
verður með skarpri sýn á sjálfan
Jesú Krist - hinu lifandi Orði - og
hinu ritaða Orði (Ritningunni), sem
sameiginlegum arfi.
Á Vesturlöndum þar sem Biblían
er aðgengileg, hljótum við að spyrja
hvort Guðs Orð hafi þá miðlægu
stöðu í kristinni kirkju og í lífi Vest-
urlandabúa, sem hún ætti að hafa:
Leyfum við Guðs Orði að gegnum-
sýra líf og hina margslungnu menn-
ingu okkar, og hvað getum við gert
saman til að svo megi verða?
Samskiptabyltingin og fjölmiðl-
unartæknin hefur skapað nýja
möguleika fyrir útbreiðslu boðskap-
ar Biblíunnar: með hljóðsnældum,
myndböndum og tölvutækninni.
Þetta er áskorun - hvöt - sem
kallar ekki aðeins eftir fjárfesting-
um, heldur einnig eftir djörfung, ef
það er vilji okkar og löngun að
Guðs Orð nái með mótandi hætti til
komandi kynslóða.
Veruleikinn hjá Sameinuðu Bibl-
íufélögunum reyndist enn meiri en
draumur frumhetjanna fyrir 50
árum. Það vekur vissulega gleði og
þakklæti, en kallar einnig eftir end-
umýjaðri sýn, fyrirbæn og þjónustu
- við þann Guð, sem megnar að
gjöra langt umfram það sem við
kunnum að biðja um.
Hugleiðum þennan boðskap vel
áður en lengra verður haldið með
frásögn af því sem gerðist á þingi
Biblíufélaganna í Kanada í sept./okt.
sl.
Höfundur er einn nf níu
stjórnnrmönnum Hins ísl.
Bihlíufélngs.
.Tölvukjör
1 u n Fjölskyldan á erindi til okkar í dag
heimilanna * * **
Oúndur tilboðsverö!
Canon BJ-30
Pentium 166 MHz
Bleksprautuprentari
Sá nettasti frá Canon á
hreint hlægilega lágu veröi!
Margmiðlunarpakki
14" skjár - Intel Triton VX kuppasett
256 kb Pipeline Burst Cache
16 MB EDO minni - Win 95 lyklaborð
Mús - Windows 95
5 hraða geisladrif -16 bita hljóðkort
15 W hátalarar - Hljóönemi
Leikjapakki
Spennandi tilboö!
Aðeins kr. 9.900
Aðeins kr. 129.900
Aðeins kr. 12.900
MUNIÐ: Fræðsla & fjör í Tölvukjör - öll fimmtudagskvöld til kl. 22:00