Morgunblaðið - 16.11.1996, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996 49
Fyrirlestur
um Indland í
Norræna
húsinu
í FYRIRLESTRARÖÐINNI „Ork-
anens 0je“ í Norræna húsinu verður
haldinn fyrirlestur um Indland
sunnudaginn 17. nóvember kl. 16.
Sendiherra íslands á íslandi, S.K.
Mathur, segir frá Indlandi og nefn-
ir fyrirlesturinn „A Land of Divers-
ity“. Á undan fyrirlestrinum verður
sýnt stutt myndband um Indland
og á eftir fyrirlestrinum gefst
áheyrendum tækifæri til að varpa
fram spurningum.
Shankar Kumar Mathur hefur
gegnt stöðu sendiherra Indlands á
Islandi frá 1993. Hann hefur aðset-
ur í Ósló og er hann einnig sendi-
herra Indlands í Noregi. Aður en
hann tók við sendiherraembættinu
starfaði hann á vegum utanríkis-
ráðuneytisins í Malaví í Mið-Afríku
1990-1993. Þar áður hefur hann
verið stjórnarerindreki í Egypta-
landi, Burma, Sri Lanka, Ástralíu,
Saudi-Arabíu og Afganistan.
Ekki „minni-
háttar“ líkams-
meidsl
í FRÉTT á bls. 2 í Morgunblaðinu
á miðvikudag var frá því skýrt að
tveir drengjanna, sem réðust á pilt-
inn við Bústaðakirkju á mánudags-
kvöld, hafi áður komið við sögu í
„vegna minniháttar líkamsmeið-
inga“. Einn aðstandenda fórnar-
lambsins í tilfellinu, sem rætt er
um, hafði samband við Morgunblað-
ið og óskaði eftir því að fram kæmi,
að að mati aðstandenda drengsins,
sem ráðizt var á, sé hæpið að tala
um að líkamsmeiðingarnar hafi ver-
ið minniháttar.
Sma auglýsmgar
KENNSíA
Ljósblik
Þríhyrningurinn Ljósblik verður
með námskeið fyrir menn og
konur sem hafa áhuga á að vinna
fyrir Ijósið og jörðina og vera
meðvitaö starfsfólk Ijóssins í
daglegu lífi sínu.
Námsefni m.a.: Ljósið í hjartanu,
fyrstu skrefin á vegi Ijóssins,
heilun jarðar og manns og margt
fleira.
Aðalleiðbeinandi: Jytta Eiríks-
son, stofnandi Norræna heilun-
arskólans 1985. Um er að ræða
7 helga námskeið 1x í mánuði.
Kennsla hefst 16. nóv. kl. 19 í
Ingólfsstræti 5, 3. hæð.
Nánari upplýsingar í síma
554 0194.
Landsst. 5996111616 lX
kl. 16.00.
/|*PA
/KEFASX
KRISTIÐ SAMFÉLAG
Dalvegi 24, Kópaúogi
Almenn samkoma i dag kl. 14.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagsferð 17. nóvember
kl. 10.30: Þjóðtrú, skrímsli.
Sögnin um Kleifarvatnsskrímslið
og þær álögur, sem á vatninu
eru taldar hviia. Skoðaður verður
Austur-Engjahver, stærsta leir-
hverasvæði á Suðvesturlandi.
Verð kr. 1.000/1.200.
Netslóð
http://www.centrum.is/utivist
Frá Sálarrannsóknarfélagi
ísiands
Breski hugiæknirinn Joan Reid
er hér á landi um þessar mund-
ir. Joan, sem komið hefur reglu-
lega til íslands síðasta aldar-
fjórðunginn og er mörgum af
góðu kunn, verður áttræð
mánudaginn 18. nóvember.
SRFÍ gengst fyrir afmælishófi i
Akoges-salnum, Sigtúni 3 (Sól-
túni), sunnudaginn 17. nóvem-
ber kl. 14.30-17.30. Þá, sem
langar að hitta Joan í tilefni af-
mælis hennar, eru boðnir vel-
komnir og verða kaffiveitingar
seldar á kr. 600.
SRFÍ.
90 ÁRA þríburablóm í frönskum garði.
ÞRIBURABLOM
(Bougainvillea spp.)
NU HAFA kaldar
krumlur vetrarins
læst sig um landið.
Þau blóm sem hvað
lengst hafa þráast við
og glatt augað, svo
sem anemónur, stjúp-
ur, haustliljan eða
Kínavöndurinn, verða
nú að láta undan síga.
En þegar vetrar eru
inniblómin mikils
virði, gleðigjafí í grá-
manum ef vel er um
þau hugsað.
Einar I. Siggeirs-
son hefur sent Blómi
vikunnar þennan pist-
il um inniblóm, sem
ávallt vekur eftirtekt fyrir glæsi-
leika þegar það stendur í blóma.
Bougainvillea, eða þríburablómið
er tijákenndur og marggreindur
runni af Nyctaginaceae-ættinni.
Hún er ættuð frá Brasilíu, þar sem
hitabeltisloftslag ríkir. Ekki er
hægt að rækta þríburablómið úti
hér á landi en það vex mjög vel í
stofum inni og í gróðurskálum.
Bougainvillea í blóma er mjög
glæsileg þar sem hún skartar í
hvítu, fjólubláu, bleiku eða ljós-
rauðu skrúði. En þetta sem vekur
athyglina er ekki blómið sjálft, það
er lítið og óásjálegt. Það eru efstu
laufblöðin, sem hafa umbreyst og
skarta sterkum litum til að draga
að skordýr til fijóvgunar. Svona
blöð eru kölluð háblöð.
Annað blóm sem
skreytir sig með „láns-
fjöðrum“ ef svo má
segja, nýtur stöðugt
meiri vinsælda sem
stofuprýði á jólum.
Þetta er jólastjarnan,
sem er mjög glæsileg
með sterkrauðum eða
hvítum háblöðum, en
gul smáblómin sitja í
miðjum blaðkransin-
um.
Stöngull þríbura-
blómsins er gráleitur
með mörgum, hár-
beittum, _ brúnum
þyrnum. í öxlinni milli
stönguls og þyrna vaxa laufblöðin
og einnig hliðarsprotar. Laufblöðin
eru oftast egglaga og mjókka fram
í odd. Þau hafa þykkt miðrif og
eru fjaðurstrengjótt og gagnstæð,
vaxkennd viðkomu. Hér á landi
fara þau að falla af plöntunum í
september og fram í október.
Standi plantan í hita byija að
myndast ný laufblöð eftir 4 til 5
vikna hvíld og samtímis þeim
myndast blóm. Blómin, sem standa
þijú saman, vaxa út frá blaðöxlun-
um. Blómblöðin (háblöðin) eru
þijú, pappírskennd og standa mjög
lengi. Blómblöðin eru laus hvert
frá öðru. Þau hafa þykkt miðrif
og eru áberandi breiðust í miðj-
unni en ganga fram í odd. Fræv-
urnar eru þijár, grænleitar, en
frænið venjulega hvítt. Þríbura-
blómið myndar venjulega ekki fræ,
en því má fjölga á vorin með hliðar-
sprotunum. Þeir eru settir í vatn
til að fá rótarmyndun og síðan er
ungplantan gróðursett í pott. Gott
er að bera á þá rótarhormón. Rót-
in er marggreind og vex grunnt.
Eins til tveggja ára gömul planta
þarf pott sem er 20-25 sm í þver-
mál. Neðst í pottbotninn þarf að
setja þykkt lag af vikri eða grófri
möl til að ekki safnist fúlt vatn
fyrir í pottinum og umfram vatn
renni í burtu. Þríburablóm þolir
ekki frost. Sumarlangt getur það
hæglega staðið í köldum gróður-
skála en því þarf að bjarga í hús
áður en frystir. Þríburablómið er
dugleg klifurplanta, en það er líka
oft ræktað sem runni. Þá er það
klippt niður á haustin 10-20 sm
fýrir ofan rótarhálsinn. Vaxa þá
nýir stönglar upp síðari hluta vetr-
ar eða næsta vor. Stönglarnir eru
veikbyggðir og þurfa því stuðning,
annars leggjast þeir út af og vaxa
lárétt í allar áttir. Þegar vorar er
gott að skafa 2-4 sm ofan af
moldinni í pottinum og setja í stað-
inn vikri blandaða laufmold.
Meðan plantan er í hvíld þarf
að stilla vökvun mjög í hóf, en á
sumrin þarf að vökva vel og gefa
þríburablóminu alhliða tilbúinn
áburð. Rósaáburður hefur reynt
mjög vel.
BLOM
VIKUNNAR
325. þáttur
llmsjón Ágústa
B j ö r n s d ó 11 i r
a—K Háskóli Islands Endurmenntunarstofnun
I Markaðs- og útflutningsnám
- eins árs nám með starfí - hefst í febrúar 1997
Þátttaka í náminu:
Nám í markaðs- og útflutningsfræðum er fyrir þá, sem ná vilja betri árangri í starfi við
sölu og markaðssetningu vöru og þjónustu, hvort sem er á heimamarkaði eða
erlendis.
Þeir einir geta tekið þátt í náminu, sem uppfylla öll eftirtalin skilyrði; hafa lokið
stúdentsprófi eða sambærilegu námi, hafatveggja ára starfsreynslu í atvinnulifinu,
geta skilið og lesið ensku og talað hana þokkalega.
Kennarar:
Umsjónarmenn og um leið aðalkennarar námskeiða verða þau Gísli S. Arason, lektor,
Birna Einarsdóttir, forstöðumaður markaðs- og þjónustudeildar íslandsbanka, Eggert
Ág. Sverrisson, forstm. hjá Islandsbanka, Halldór S. Magnússon, forstöðum. hjá
Islandsbanka, Jón Björnsson, frkvstj. hjá Ferskum kjötvörum, Þorgeir Pálsson
deildarstjóri sjávarútvegssviðs Útflutningsráðs íslands, Ágúst Einarsson,
alþingismaður og Ingjaldur Hannibalsson, dósent.
Námsgreinar:
Rekstrarhagfræði (20 klst.) Stjórnun og stefnumörkun (20 klst.)
Markaðsfræði (50 klst.) Markaðsathuganir (30 klst.)
Sölustjórnun og sölutækni (30 klst.) Flutningafræði (20 klst.)
Fjármál milliríkjaviðskipta (40 klst.) Utanríkisverslun, hagræn landafræði og áhrif
menningar á viðskiptavenjur (50 klst.) Valnámskeið fyrir þá er það kjósa í
viðskiptatungumálum: Enska, þýska, franska (50-70 klst.) Kynnisferð.
Stjórn námsins:
Stjórn Endurmenntunarstofnunar hefur skipað eftirtalda einstaklinga í stjórn námsins:
Ingjald Hannibalsson, dósent, Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóra Útflutningsráðs,
Margréti S. Björnsdóttur, endurmenntunarstjóra HÍ, Þórð Sverrisson,
rekstrarhagfræðing og markaðsráðgjafa hjá Forskoti ehf. úr stjórn ÍMARK. og Helga
Gestsson, deildarstjóra ÍTækniskóla íslands.
Kennslutími, kennslufyrirkomulag og verð:
Kennslustundir verða 260 klst. auk tungumálanámskeiðs fyrir þá, sem það
velja. Námið hefst í febrúar 1997, stendur í eitt ár og er kennslutími
kl. 16.00-20.00 einu sinni í viku. Auk þess er kennt, samtals þrisvar í mánuði,
ýmist á föstudögum kl. 14.00-18.00 eða á laugardögum kl. 9.00-13.00.
í lok námsins er fyrirhuguð kynnisferð til Evrópu til að kynnast nýjungum í
markaðssetningu og milliríkjaverslun. Þá ferð greiða nemendur sérstaklega.
Umsóknarfrestur til 27. nóvember 1996.
Nánari upplýsingar um námið, ásamt umsóknareyðublöðum, fást hjá:
Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands,
Tæknígarði, Dunhaga 5,107 Reykjavík.
Sími 525 4923. Bréfsími 525 4080. Netfang: endurm@rhi.hi.is