Morgunblaðið - 16.11.1996, Side 54
54 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag Siglufjarðar
Þann 7. október var spilaður tví-
tnenningur í tveimur 10 para riðlum,
þijú efstu pör í hvorum riðli voru sem
hér segir:
A-riðilI:
Jóhann Stefánsson - Stefanía Sigurbjömsdóttir 78
Þorsteinn Jóhannsson - Bjöm Ólafsson 76
Benedikt Siguijónsson - Jón Kort Ólafsson 70
B-riðill:
Jón Tr. Jökulsson - Ólafur Jónsson 90
Björk Jónsdóttir—Jón Sigurbjömsson 73
Birgir Bjömsson - Þorsteinn Jóhannesson 64
Þijú næstu mánudagskvöld voru
spiluð 3 fyrstu kvöldin af 4 í hinu
árlega Sigurðarmóti Bridsfélags
Siglufjarðar í tvímenningi.
■s Staða efstu para eftir þijú kvöld
er þessi:
Björk Jónsdóttir og Jón Sigurbjömsson 135
AntonogBogiSigurbjömssynir 129
ÓlafurJónssonogJónT.Jökulsson 78
ÞorsteinnJóhannssonogJónH.Pálsson 73
Að þremur kvöldum loknum í Sig-
urðarmóti voru efstu og neðstu pörin
dregin saman í tveggja kvölda hrað-
sveitakeppni, en lokastaðan varð þessi:
Sveit Önnu Láru Hertervig:
Anton/Bragi Sigurbjömssynir - Anna Lára Herter-
vig/NíelsFriðbjamarson 815
Sveit Kristínar Bogadóttur:
Kristín Bogadóttir/Guðlaug Márusdóttir - Jóhann
Stefánsson/Stefanía Sigurbjömsdóttir 798
Sveit Benedikts Siguijónssonar:
Ólafur Jónsson/Trygvi Jökulss. - Rafn og Bene-
dikt Siguijónssynir 796
Sveit Birgis Bjömssonar:
Birgir Bjömsson/Þorsteinn Jóhannesson - Haraldur
Amason/Hinrik Aðalsteinsson 788
Spilamenska í féiaginu er grósku-
mikil sem fyrr, 20 pör að meðaltali
sækja spilakvöld félagsins á mánu-
dagskvöldum og féiagar eru duglegir
að sækja mót, bæði í kjördæminu og
utan þess. Spilað er á Hótel Læk.
Bridsdeild Sjálfsbjargar
Mánudaginn 11. nóvember lauk 5
kvölda hraðsveitakeppni, 11 sveitir
tóku þátt í keppninni. Efstu sveitur
urðu:
Sveit stig
Pátl Vermundsson, Þorvaldur Axelsson,
Sigurður R. Steingrimsson og
Halldór Aðalsteinsson 2057
Sævar Hauksson, Helgi Jónsson,
RúnarHaukssonogJóhannBogason 2030
Kristján Albersson, Einar Finnbogason,
Ómar Óskarsson og Skúli Sigurðsson 2007
30 gerdír af sœtum sófum!
Smiðjuvegi 9 • Sími 564 1475
• J K -op,a j„a »9
♦ lo«9a,f
K^/SW- sun""'1"*
Kolaportié
O Súri livalurinn kominn
Kaupir 1 kg. ýsuflök og færð 1 frítt - Hrefnukjötið komið
Fiskbúöin okkar er aftur komin með ýsuflakatilboðið landsfræga um
helgina. Sem dæmi um annað úrval má nefna glænýja Rauðsprettu í raspi
og marinerað Hrefnukjöt. Einnig mikið úrval af tilbúnum fiskiréttum,
fiskbökum og ljúfengum fiskibollum. Líttu við og geróu góð fiskkaup.
O Nýtt og fcrskt hrossakjöt
..og að sjálfsögðu líka feita, salataða hrossakjötið
Benni er um þessa helgi með áskonin til þeirra sem vilja feitt og saltað
hrossakjöt -á meðan birgðir endast. Hann er líka með reykt og söltuð svið,
hangilærin góðu, áleggið ljúfa, ostafylltu lambaframpartana, gómsætu
hangibögglana og nýju Dalakoff áleggspylsuna.
ö
\ LUimuv.ui uLuiiimnmi
■ ■sunnudaa kl. 12-16'
Trúbador meö gítar og munnhörpu
spilar gömlu góðu lögin kl. 12:00-14:00
Tvcer ungar stúlkur úr Sinfónýjuhljómsveit
œskunnar spila á fiðlur kl. 14:00-16:00
BROSHJ
..í
Yfir 200 seljendur
um hverja helgi
tryggja skemmtilegt
og fjölbreytt vöruúrval.
Vöruverðið er ekki vandamál og prúttið
virkar vel. Stemmningin er góð og mannlífíð er líflegt.
qIADU í
KOiAPORTIÐ ^
ÍDAG
Með morgunkaffinu
saman.
Ást er...
aö láta sér liöa vel
ÞÚ gætir þurft að bíða
svolítið, félagi. Eg er
með linsurnar hennar
í vasanum.
Farsi
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á helgar-
skákmótinu á Bfldudal í sum-
ar. Jóhann Hjartarson
(2.565), stórmeistari, hafði
hvítt og átti leik gegn Sæv-
ari Bjamasyni(2.285), al-
þjóðlegum meistara.
22. - Ha8-c8 var síðasti
leikur svarts.
23. Rd5! - Dd8 (Auðvitað
ekki 23. - exd5? 24.
exd5 og svarta drottn-
ingin fellur) 24. Rxe6!
- fxe6 25. Dxe6+ -
Kf8 26. f5 - g5 27.
Dh6+ - Kf7 28. f6 -
Hc5 29. Dg7+ - Ke6
30. d4 - Hxd5 31.
exd5+ - Kxd5 32. f7
- Hf8 33. Hf5+ og
svartur gafst upp.
Skákin er fengin úr
tímaritinu Skák,
glænýju hefti. Gunnar
Finnsson, sem titlar sig
“fyrrverandi skólastjóra
í Trékyllisvík" skrifar
sérlega skemmtilega grein
um helgarmótið. Jóhann
Hjartarson sigraði með yfir-
burðum á Bíldudal.
HVÍTUR leikur og vinnur
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
Tapað/Fundið
Lök fuku
TVÖ teygjulök fundust á
planinu við Dalsel sl.
fimmtudagsmorgun.
Þau hafa líklega fokið
af snúru í rokinu nóttina
áður. Upplýsingar í síma
557-4215.
Hjól tapaðist
GRÁTT og fjólublátt
Weeler 3080 fjallahjól
með dempara, á gráum
dekkjum var tekið fyrir
utan Hvassaleiti 123,
Reykjavík, í síðustu viku.
Þeir sem geta gefið upp-
lýsingar um hjólið eru
vinsamlegast beðnir um
að hafa samband í síma
553-0247. Fundarlaun.
Úr
tapaðist
KARLMANN SÚR af
Milus-gerð með grárri
skífu og svartri leðuról
tapaðist á leiðinni frá
Laugavegi 37 að danska
sendiráðinu við Hverfis-
götu (gengið niður
Klapparstíg) á tímabil-
inu 17.15-17.30 laugar-
daginn 9. nóvember sl.
Skilvís finnandi vinsam-
lega hafi samband í síma
551-5481 eftirkl. 17eða
við Jóhannes í s.
551-7010 á skrifstofu-
tíma og er fundarlaunum
heitið.
BRIDS
Umsjón Guðmundur l’áll
Arnarson
LEIKUR íslands og Brasilíu
í riðlakeppni ÓL var sýndur
á töflu. Dálkahöfundur sat
hjá í þessum leik og fylgdist
með fyrstu spilunum í sýn-
ingarsalnum. Strax í öðru
spili bárust slæm tíðindi úr
lokaða salnum. Jón Baldurs-
son og Sævar Þorbjömsson
höfðu sagt sjö grönd og far-
ið einn niður. „Þetta gæti
orðið 17 stiga sveifla til
Brasilíu," sagði töfluskýr-
andinn Ron Andersen.
Austur gefur; NS á hættu.
Norður ♦ ÁK + ÁK1075 ♦ ÁDG2 ♦ Á9
Vestur Austur
♦ D98642 + G5
V D98 llllll * G2
♦ 4 111111 ♦ 108765
* G106 ♦ 8432 Suður + 1073 V 643 ♦ K93 + KD75
Á sjónvarpsskjánum
blöstu við Brasilíumennimir
Chagas og Branco í NS og
Matthías Þorvaldsson og
Aðalsteinn Jörgensen í AV.
Á meðan Chagas í norður
var enn að telja punktana
sína opnaði Matthías í austur
■óvænt á tveimur laufum!
„Hvað er að gerast?" gali
í Andersen, en félagi hans,
Barry Rigal, hafði skýringar
á reiðum höndum: „Á þess-
um hættum opna íslending-
arnir á tveimur laufum til
að sýna vond spil!“
„Hvað myndi móðir mín
sáluga segja við þessu,“
sagði Andersen og bætti við:
„Þið sem eruð að ganga í
salinn, takið eftir — það er
austur, ekki norður, sem
hefur opnað á tveimur lauf-
um.“
Spekingarnir létu dæluna
ganga nokkra hríð, en þegar
leið að lokum sagna hefði
mátt heyra saumnál detta:
Vestur Norður Austur Suður
Aðalst. Chagas Matthías Branco
- - 2 lauf Pass
Pass Dobl Pass Pass
2 spaðar 3 hjörtu Pass 4 hjörtu
Pass 4 spaðar Pass 5 lauf
Pass 5 tíglar Pass 6 lauf
Pass 6 tíglar Pass 7 hjörtu
Pass Pass Pass
„Það þarf hjartagosann út
til að gefa spilið," sagði
Kaplan.
Matthías spilaði út og á
sjónvarspsskjánum sást
greinilega að það var gosi!
Kliður fór um salinn, en aðeins
örskamma stund, því þetta
reyndist vera spaðagosinn.
Chagas spilaði hratt: Hann fór
inn í borð á tígulkóng til að
spiia hjarta á tíuna og gosa
Matthíasar. Síðan lagði hann
upp, en Aðalsteinn gerði at-
hugasemd, því hann vildi fá
stungu í tígli. Tveir niður og
3 stig til íslands!
Víkveiji skrifar...
ASAMA tíma og rætt er um
að ofbeldi sé vaxandi vanda-
mál í samfélaginu, sérstaklega á
meðal unglinga, hefja íslenzkir
fjölmiðlar til skýjanna hnefaleika-
keppni á milli nytsamra einfeldn-
inga vestur í Bandaríkjunum, sem
berja vitið hver úr öðrum fyrir
peninga framan við sjónvarps-
myndavélarnar. Víkverja finnst
vægast sagt hæpið að klæða þessa
lágkúru; sem er bönnuð með lög-
um á Islandi, í búning íþrótta.
íþróttir eiga að vera göfgandi fyr-
ir andann og hollar fyrir líkam-
ann, en ekki heila-, heilsu- og
mannskemmandi eins og þessi
skipulögðu slagsmál eru augljós-
lega - ekki þarf annað en að horfa
á viðtölin við „meistarana",
bólgna, bláa og tæplega talandi,
í fréttatímum til að sannfærast
um hollustu „íþróttarinnar". Vík-
veiji er sömuleiðis forviða á því að
virðuleg fyrirtæki leggi nafn sitt
við þessa vafasömu iðju með því
að styrkja útsendingar frá „hnefa-
leikaeinvígjum“ í sjónvarpi. Sömu
fyrirtæki ættu sennilega auðveld-
ara með að vinna sig í álit meðal
almennings með því að gefa fé til
stofnana og samtaka, sem hjálpa
ofbeldismönnum að verða nýtir og
friðsamir samfélagsþegnar.
xxx
LÆBRIGÐI tungumáls geta
verið vandasöm í meðförum,
einkum þegar þýtt er af einu máli
á annað. Orð, sem er hárnákvæm-
lega valið í einu tungumáli til að
tjá ákveðna merkingu, getur verið
óþýðanlegt yfir á önnur tungu-
mál. Víkveiji hefur stundum velt
því fyrir sér hversu mikið af upp-
runalegri merkingu komist til
skila, t.d. þegar blaðamenn Morg-
unblaðsins þýða upp úr enskum
fréttaskeytum ummæli, sem höfð
eru eftir rússneskum eða kínversk-
um ráðamönnum og upprunalega
sögð á þeirra tungu. Og skyldu
viðkomandi kannast við ummælin
aftur þegar starfsmenn rússneska
eáa kínverska sendiráðsins hafa
þýtt þau aftur yfir á eigin mál og
sent heim í utanríkisráðuneyti?
VÍKVERJI þekkir nýlegt dæmi
af þessu. Emma Bonino,
sjávarútvegsstjóri Evrópusam-
bandsins, skrifaði grein hér í blað-
ið, þar sem hún tjáði sig meðal
annars um framkomu íslenzkra
skipa á Flæmska hattinum og í
Smugunni. Framkvæmdastjórinn
skrifaði grein sína á ensku og
notaði orðið „robust“ til að lýsa
hegðun Islendinga. í þýðingu
Morgunblaðsins var notað orðið
„óheflaður“, sem mönnum þótti
ná sömu merkingu og er einn af
möguieikunum, sem orðabókin
hefur að geyma. í þýðingu af ís-
lenzku og aftur yfir á ensku, til
dæmis í alnetsfréttum Iceland
Review, var „óheflaður“ hins veg-
ar þýtt sem „uncouth", sem hefur
sterkari og neikvæðari merkingu
í ensku en „robust“, þótt sú þýðing
sé líka samkvæmt orðabókinni.
Þannig þótti útlendingum, sem
lásu ummæli Bonino tvíþýdd, hún
taka furðusterkt til orða.