Morgunblaðið - 17.11.1996, Page 8

Morgunblaðið - 17.11.1996, Page 8
8 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR TT Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra á aðalfundi LILI Ekki er hægt að líta framhjá misskiptingu ÉG er alveg farinn að sjá þetta Hvati minn, en ég held að það sé borin von með hann Kristján, með lepp fyrir öðru og hitt blint af tárum . . . Hermami Jónasson hótaði fyr- irvaralausri órsögn úr NATO HERMANN Jónasson hótaði því skömmu eftir myndun vinstri stjórnarinnar undir forsæti hans árið 1956, að íslendingar segðu sig úr Atlantshafsbandalaginu (NATO) „á einni klukkustund“, ef stjórnvöld fengju ekki aðgang að trúnaðarupplýsingum banda- lagsins. Ismay lávarður, framkvæmda- stjóri NATO, hafði hætt við að senda slíkar upplýsingar til íslands vegna þess, að Sósíalistaflokkur- inn átti aðild að vinstri stjórninni. Þetta kemur fram í nýrri bók Vals Ingimundarsonar sagnfræð- ings, „I eldlínu kalda stríðsins", sem fjallar um samskipti íslands og Bandaríkjanna á fimmta og sjötta áratugnum og kemur út hjá Vöku-Helgafelli. Andstaða Bandaríkjamanna Bandaríkjamenn voru einkum mótfallnir því að stjómin fengi aðgang að hernaðarskjölum aðild- am'kja bandalagsins meðan Sós- íalistaflokkurinn hefði áhrif á stjómarstefnuna. Þeir vildu ekki eiga á hættu, að sósíalistar fengju upplýsingar um hemaðaráætlanir NATO. Ráðherrar Framsóknar- flokks og Alþýðuflokks neituðu að sætta sig við þessa mismunun og gerðu þá kröfu, að íslensk stjórn- völd fengju aðgang að öllum skjöl- um bandalagsins. Hins vegar kom Hans G. Andersen, fastafulltrúi íslands hjá NATO, þeim skilaboðum áleiðis til framkvæmdastjóra bandalagsins, að hann gæti treyst því, að trúnaðarupplýsingum bandalagsins yrði haldið frá al- þýðubandalagsráðherrunum tveimur, Lúðvík Jósepssyni og Hannibal Valdimarssyni. Bandaríkjamenn beygðu sig ekki í málinu fyrr en það náði suðupunkti. Ottuðust aðrar NATO-þjóðir, að íslensk stjómvöld mundu frekar segja sig úr banda- laginu en una því að verða útilok- uð frá hemaðarsamstarfi þess. Það var ekki að ófyrirsynju, því að Hermann Jónasson hótaði í samtali við Andrew Gilchrist, sendiherra Breta á íslandi, að ís- lensk stjórnvöld segðu sig úr bandalaginu. Deila um keisarans skegg? Þótt deila þessi hafi verið komin á mjög alvarlegt stig, heldur Valur því fram í bók sinni, að hún hafi í raun verið um keisarans skegg. íslendingar hefðu fengið að sitja áfram við sama borð og aðrar bandalagsþjóðir NATO, en þeir hafi látið sig öryggismál þeirra litlu varða. Viðkvæðið hafi verið það, að varnir íslands væru byggð- ar á vamarsamningnum við Bandaríkjamenn fremur en sam- eiginlegum skuldbindingum NATO. Eftir að Bandaríkjamenn féllust á að aflétta takmörkunum á upplýsingaflæði bandalagsins til íslands, tjáðu íslensk stjórnvöld framkvæmdastjóra NATO, að þau mundu ekki taka virkari þátt í NATO en áður. Þannig hafi ís- lensk stjórnvöld gert kröfu um að njóta sömu réttinda og aðrar NATO-þjóðir án þess að hafa áhuga á því að nýta sér þau rétt- indi. Guðbergur kjörinn aksturs- íþróttamaður ársins REYKVÍKINGURINN Guðbergur Guðbergssonn var kjörinn akst- ursíþróttamaður ársins á lokahófi Landsambands íslenskra aksturs- íþróttamanna á föstudagskvöld. Hann var valin úr hópi níu manna sem höfðu verið tilnefndir. Á lokahófinu voru 32 meistaratitlar afhentir, þ.á m. eignarbikar til handa feðgunum Rúnari Jónssyni og Jóni Ragnarssyni sem urðu meistarar í rallakstri þriðja árið í röð. Þá voru fyrstu heimsbikartitl- arnir í torfæru afhentir þeim Gunnari Pálma Péturssyni frá Hornafirði og Haraldi Péturssyni úr Ölfusi. Akstursíþróttamaður ársins, Guðbergur Guðbergsson, hefur lengi keppt í akstursíþróttum, byijaði í motokross, en hefur síð- an m.a. keppt í rallakstri, á vél- sleðum, í torfæru og bílkrossi. Hann varð íslandsmeistari í bíl- krossi þriðja árið í röð í ár á Porsche og hefur auk þess staðið að rekstri keppnisbrautar við Hafnarfjörð. I hófinu fékk hann farandbikar sem gefinn var fyrir nokkrum árum til minningar um rallökumanninn Jón S. Halldórs- son sem var besti vinur Guð- bergs. Hann lést í umferðarslysi. Kona Guðbergs, Kristín Birna Garðarsdóttir, hefur einnig keppt í bílkrossi og varð meistari 1993. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Guðbergnr Guðbergsson. Syngur 20 lög á geisladiski íslensku söng- lögin eru mikill fjársjóður KOMIN er út geisla- plata með 20 ís- lenskum sönglög- um sem Elísabet F. Eiríks- dóttir sópransöngkona syngur og gefur út sjálf. Undirleikari hennar á píanó er Elín Guðmunds- dóttir. Upptökur fóru fram í Fella- og Hólakirkju í haust og stjómaði þeim Sigurður Rúnar Jónsson. Þær Elísabet og Elín ætla að flytja öll lögin á diskin- um á tónleikum í Norræna húsinu í Reykjavík næst- komandi þriðjudagskvöld, 19. nóvember, kl. 20.30. En hvað kom til að ráðist var í þessa útgáfu? „Þetta þróaðist nú bara smám saman en hugmynd- in kviknaði í umræðum milli manns míns og móður Elín- ar fyrir rúmlega ári. Okkur fannst við nánari skoðun að þetta gæti verið raunhæft og hófum undirbúning, völdum lög og réð- umst í upptökurnar." Var val á sönglögum erfitt? „Já, íslensku sönglögin em hreinn fjársjóður og þar á ég bæði við lög og texta og þar er vissulega um auðugan garð að gresja. Þótt sönglagahefð okkar sé ekki nema 100 ára gömul eru til um þijú þúsund lög svo það var erfitt að velja aðeins 20. Ég hefði getað sungið miklu fleiri lög! Ég ráðfærði mig náttúrlega við Elínu og við reyndum að finna blöndu af þekktum og óþekktum lögum eftir núlifandi og gengin tónskáld en það er auðvitað ekki til nein ákveðin uppskrift í þess- um efnum. Þarna eru til dæmis tvö lög eftir Jón Ásgeirsson, sem ég frumflutti á afmæli Kennara- háskólans á sínum tíma, lag eftir Loft Guðmundsson sem er lítið þekkt og sömuleiðis lag eftir Emil Thoroddsen. Mörg þessara laga hafa ekki komið út á diski eða plötu áður. Af öðrum tón- skáldum má nefna Jórunni Viðar, Þórarin Guðmundsson og Bjama Þorsteinsson og textar eru meðal annars eftir Halldór Laxness, Stephan G. Stephansson og Dav- íð Stefánsson." Elísabet F. Eiríksdóttir segist hafa sungið frá barnæsku, m.a. í skólakórum og síðar Pólýfón- kórnum og að þar hafi kviknað áhugi á frekara námi í söng: „Eg fór aðallega í Söngskólann til að verða betur hæf sem kórfé- lagi og ég vildi gjarnan læra meira í músík en ég ___________ hafði lært dálítið á gít- ar sem barn. Ég fór fyrst fyrir forvitni sak- ir því Rut Magnússon, sem var raddþjálfari okkar í Pólý- fónkórnum, kenndi líka við Söng- skólann og ég fór svo í söngkenn- aranámið af fullri alvöru. Rut kenndi mér fyrstu tvö árin en síðan Þuríður Pálsdóttir. Eftir að ég lauk prófinu tók ég að mér kennslu við Söngskólann og hefur það verið aðalstarfið fyrir utan að koma fram á tónleikum og í óperusýningum.“ Fyrsta stóra hlutverk Elísabet- ar í óperu var í Grímudansleik í Þjóðleikhúsinu þar sem hún söng eitt aðalhlutverkið á móti Kristj- áni Jóhannssyni. „Ég fór í prufu- söng þrátt fyrir að vera komin nokkra mánuði á leið með yngsta bamið því ég gerði hreint ekki Morgunblaðið/Kristinn Elísabet F. Eiríksdóttir ► Elísabet F. Eiríksdóttir er fædd í Reykjavík 16. júní 1946. Eftir stúdentspróf og kennara- próf kenndi hún við Melaskól- ann í Reykjavík og hóf nám í Söngskólanum í Reykjavík. Lauk hún söngkennaraprófi þaðan 1980 og hefur síðan kennt við Söngskólann. Jafn- framt hefur hún haldið ein- söngstónleika, komið fram sem einsöngvari með kórum og í óperuhlutverkum í Þjóðleik- húsinu og íslensku óperunni. Maður hennar er Þórleifur Jónsson og eiga þau þrjú börn. ráð fyrir að fá hlutverkið. Eftir prufusönginn var hringt úr Þjóð- leikhúsinu áður en ég var komin heim og mér boðið þetta hlut- verk. Mér varð svo mikið um að ég bað um sérstakt viðtal við Gísla Alfreðsson sem þá var þjóð- leikhússtjóri og hitti hann nokkr- um dögum seinna og hafði ég af þessu öllu miklar áhyggjur. En það var óþarfi því hann var ekk- ert nema elskulegheitin og við fundum út að ég gat verið með á nokkrum æfingum þarna um vorið og byijað síðan á fullu að haustinu en dóttirin fæddist í júní. Þetta lánaðist allt mjög vel og mætti ég miklum skilningi og hjálp bæði í leikhúsinu og fjöl- skyldunni." Ertu ánægð með árangurinn á geisladiskinum? „Ég er sjálfsagt aldrei ánægð og geri reyndar lítið að þvi að hlusta á eigin upptökur. En ég hafði góðan tónlistarráðunaut, Unni Jensdóttur, og treysti mati ________ hennar og Sigurðar Rúnars. Það er hins vegar allt annað að syngja fyrir upptökur en fólk í tónleikasal - manni finnst vanta eitthvert líf og einhver viðbrögð - en við erum ánægðar með útkomuna." Nafn disksins er Um undra- geim, hvaðan kemur það? „Það er úr kvæði Benedikts Sv. Gröndal, Gaman og alvara, en Sigfús Einarsson notaði hluta þess í lag sem hann samdi. Mér fannst þetta viðeigandi heiti - við erum á ferð um undrageim tónlistar og ljóðlistar, sagði Elísa- bet að lokum og má bæta því við að allir textar fylgja diskinum ásamt enskri þýðingu Rutar Magnúsdóttur. Þær Elísabet og Elín hafa þeg- ar haldið útgáfutónleika á Ólafs- firði og Akureyri. ÁnægAar með útkomuna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.