Morgunblaðið - 17.11.1996, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 17.11.1996, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996 13 Reuter HELMUT Schlesinger (t.v), fyrrum bankastjóri þýska seðlabank- ans, á blaðamannafundi með Theo Waigel, fjármálaráðherra Þýskslands. isstofnunarinnar, EMI og fram- kvæmdastjórnar ESB meta í samein- ingu EMU-aðild hvers lands. Pólitísk markmið í fyrirrúmi Sú kynslóð evrópskra leiðtoga, sem nú er að hverfa af sjónarsviði stjórn- og efnahagsmála er mörkuð reynslu seinni heimstyrjaldarinnar og það er sú reynsla, sem er undirstaðan undir hugmyndum um Evrópusamrunann. Sjálfur var Schlesinger hermaður í þýska hemum í tvö ár. í grein sinni nefnir hann að þó hagfræðingar geti fundið ýmis mótrök gegn EMU sé myntsambandið annað og meira en bara hagfræðidæmi. í huga hans kynslóðar er takmark Evrópus- amrunans pólitískt, markað minning- um um að Evrópa hefur um aldir verið blóðugt átakasvæði. Helmut Kohl Þýskalandskanslari minnir stöð- ugt á að takmarkið sé evrópskt Þýskaland. Kynslóð Schlesingers vonar að reynsla stríðsáranna gleym- ist ekki, þó hún geri sér grein fyrir að reynsla erfist ekki. Evrópusamruninn hófst eftir efnahagsleiðum með Kol- og stál- sambandinu 1952, síðan tók við Efnahagsbandalag með sex löndum og smám saman hefur verið bætt við sviðum og löndum. Samhliða hefur svo verið lagt inn á braut hins pólitíska samruna. Hin upphaflega Evrópusýn, sem þýskir, franskir og ítalskir hugsuðir settu fram eftir stríð var sameinuð Evrópa í einhvers konar sambandsríki. Norrænir stjórnmálamenn halda því gjarnan fram að sú sýn hafi dáið drottni sín- um á undanförnum áratug. Vísast liafa hvorki Schlesinger, Kohl né aðrir leiðandi Mið-Evrópubúar í Jiuga stofnun evrópsks sambands- lýðveldis í mynd hins þýska né Bandaríkjanna, en Evrópusýnin er enn sem fyrr grundvölluð að sam- annjörvuðu þjóðabandalagi, sem enn hefur ekki séð dagsins ljós, sem enginn veit hvernig muni líta út, en sem er eina sannfærandi markmið Evrópusamrunans. Núverandi skipulag er skissan að framtíðar- skipulaginu, en henni er enn margt áfátt, meðal annars að leikreglum lýðræðis, sem allir ábyrgir Evr- ópubúar hallast að, sé haldið til streitu. Þeir eru margir, sem reyna að spá í fínteikningu skissunnar og sitt sýn- ist hveijum. Leiðir EMU til pólitísks samruna, eins og Kohl hefur haldið fram, er pólitískur samruni forsenda fyrir EMU eins og Schlesinger sagði í ræðu sinni er hann tók við sem aðalbankastjóri 1991 eða eru hinn pólitíski samruni og EMU tvær óháðar stærðir eins og Kenneth Clarke fjármálaráðherra Breta held- ur fram? Hinn pólitíski samruni hef- ur mjög hægt á sér síðan 1991, meðan EMU flýtir fyrir efnahagsieg- um samruna ef svo heldur fram sem horfir. Meðan tómarúm millibils- ástandsins ríkir dugir skissukennd uppbygging og viljinn, en þegar til lengri tíma er litið getur hagfræð- ingur varla hugsað sér seðlabanka og myntkerfi án öflugs pólitisks kerfis, þó Hans Tietmeyer láti sér nægja að tala um óuppleysanlegt bræðralag. Reynsluna af ERM má túlka á margvíslegan hátt. Sumir segja hana dæmi um að samtenging gjaldmiðla gangi ekki upp, svo EMU stefni lönd- unum í ógöngur. Sjónarmið Bundes- bankamanna er fremur að ERM sýni að meira þurfi til. Það var óþolandi ástand að þýska markið væri þung- amiðja kerfisins, því um leið vakti þýsk peningastjórn sífellda spennu í samskiptunum við hin löndin. Lausnin sé EMU. Mótbárur hagfræðinga Því fer íjarri að allir hagfræðing- ar séu á einu máli um ágæti EMU. í augum bandarískra hagfræðinga eins og Paul Klugmann er EMU leið- in til að festa í sessi verstu einkenni evrópskra hagkerfa eins og ósveigj- anleika þeirra. Alvarlega þenkjandi evrópskir hagfræðingar eins og Schlesinger hafa tilhneigingu til að taka hæfilegt mark á bandarískum háskólahagfræðingum, sem séu oft á tíðum ekki einu sinni læsir á ann- að en hagfræðirit á ensku. Gegn hugmyndum eins og þeim frá Klug- mann benda þeir einnig á að Frakk- land sé gott dæmi um að Evrópu- samstarfið geti einmitt hnikað lönd- um á rétta braut. Franskur áætlun- 'arbúskapur og ríkisafskipti hafi vik- ið fyrir hugmyndum um samkeppni og sveigjanleika. f grein sinni nefnir Schlesinger að margir hafi áhyggjur af að EMU leiði til atvinnuleysis, en tekur ekki á þeim áhyggjum, heldur segir að tekið sé mið af þessu í EMU-áætl- ununum. Sænski hagfræðingurinn Assar Lindbeck hefur áhyggjur af að EMU geti leitt til stórfellds at- vinnuleysis og Eddie George banka- stjóri breska seðlabankans hefur einfaldiega stungið upp á að at- vinnuleysisforsendur verði teknar með í Maastricht. Uppástunga Ge- orges kemur of seint, því viðbætur í Maastricht eru vart framkvæman- legar. Seðlabankamenn benda einn- ig á að baráttan við atvinnuleysi liggi utan þeirra verkahrings og lendi því heldur ekki á verkefnaskrá EMU. Hér verði stjórnmálamenn að grípa til sinna ráða. Áhyggjur Lindbecks eru á góðum rökum reist- ar, því margir sjá fyrir að á EMU- svæðinu geti myndast atvinnuleys- issvæði, en slík svæði eru þegar til í Evrópu og á sumum hefur tekist vel til. Það er ekki langt síðan að írland virtist vonlaust dæmi, en þróunin þar hefur snúist við. Innan ESB eru öflugir uppbyggingar- og svæðasjóðir, sem stjórnmálamenn geta notað til að takast á við at- vinnuleysissvæðin. Langtíma afleiðingar EMU: samruni skatta og gjalda Síðasta setningin í grein Schles- ingers lýtur að langtíma áhrifum EMU. Þar segir hann að myntsam- band steypi löndunum saman í óuppleysanlega heild og muni held- ur ekki láta ósnortin þau stefnu- svið, sem áður hafi verið umráða- svið þjóðríkjanna, án þess að segja hver þau séu. Fyrr í grein sinni talar Schlesinger um að innan myntsambands verði ekki aðeins keppt um verð og gæði, heldur muni sú samræming sem fylgir í kjölfar myntsambands leiða til sam- keppni milli hagkerfa einstakra landa. í framhaldi af því nefnir hann að félagstryggingar á Norður- löndum hafi numið 33 prósentum af þjóðarframleiðslu 1993, 31 pró- senti í Þýskalandi og Frakklandi og 28 prósentum í Bretlandi, en hlut- fallið sé lægra í Suður-Evrópu. Án þess að nefna nein lönd segir hann að erfitt sé fyrir stjórmálamenn að grípa hér inn, sé það nauðsynlegt, í mörgum löndum. Það er því freistandi að álíta að með niðurlagsorðum sínum vísi hann meðal annars til skattlagningar. Áhrif ESB á skattlagningu er til dæmis stórmál í Svíþjóð og þegar Alexander Lamfalussy yfirmaður evrópsku gengisstofnunarinnar, EMI var nýlega á ferð þar sagði hann að skattlagning yrði eftir sem áður einkamál hvers lands. Það má vera að svo verði enn um árabil, en með þá samkeppni í huga, sem Schlesinger nefnir virðist óhjá- kvæmilegt að löndin verði til dæmis að samræma virðisaukaskatt sinn. Og þar sem einstaklingsskattar eru hluti af rekstrarumhverfi fyrirtækja er vísast óhjákvæmilegt að þeir verði fyrir þrýstingi. Með öðrum orðum þá koma þjóðkerfin til að keppa hvert við annað og í slíkri sam- keppni verður skattlagningin ekki stikkfrí. Nýlega kom út kver eftir Otmar Issing aðalhagfræðing Bundes- bank, þar sem hann mótar nánar þær hugmyndir, sem Schlesinger og hann sjálfur hafa sett fram um mikilvægi pólitísks samruna. Þar spyr hann hvort kjarkmikil peninga- stefna og feimnislegt hik á stjórn- málasviðinu fari saman. Svarið hlýtur að vera nei. Kynslóð Schles- inger hafði kjark til að byggja upp rústað Þýskaland eftir stríð og leggja drög að Evrópusamruna til að auka öryggi komandi kynslóða. Spurningin er hvort kjarkurinn er enn til staðar hjá þeim sem yngri eru og þá um leið hugurinn til að halda áfram í þessa átt. BROTHD BLAÐ í LUNDÚNAFERÐUM MEÐ SÉRKJÖRUM HEIMSKLÚBBSINS: Auslurstræti 17,4. hæð 101 Reykjavík, sími 562-0400, fax 562-6564 Vissirðu, að London er mesta heimsborgin, fjölbreyttasta, vin- sælasta og ódýrasta verslunar- borg Evrópu, samkvæmt nýlegri könnun NEWSWEEK? - Hvers vegna að leita þá annað? Hversu vel þekkirðu London? Fjöldi íslendinga fær einhæfa mynd af London og hefur aldrei kynnst borginni fyrir utan hótel í lægri kantinum, nokkrar verslunargötur og krár og gerir sér ekki grein fyrir hve mögnuð borgin er og afbragð annarra borga. Hér bætir Heimsklúbburinn um betur með 4 daga frábærri skemmti-, menningar- og verslunarferð, þar sem búið er á ROYAL GARDEN, einu fallegasta hóteli Lundúna. Dagskráin undir leiðsögn Ingólfs Guðbrandssonar, sem gjörþekkir borgina, er hreint jóla-ævintýri. í/ ölaskapi á ekki sinn lika y -12.-15. des., 12. des. Flug Flugleiða að morgni til Heathrow flugvallar og flutningur til hins glæsilega ROYAL GARDEN við Hyde Park, sem er nýopnað eftir gagngerar breytingar og endurnýjun hólf í gólf. Sumar bestu verslanir Lundúna í næsta nágrenni. Um kvöldið stórtónleikar Phil- harmonia hljómsveitarinnar í Royal Festival Hall með vin- sælustu verkum Tchaikowskys og Rachmaninoffs með stjörnu- píanista undir stjórn frægasta hljómsveitarstjóra Rússa. 13. des. Kynnisferðum London undir leiösögn Ingólfs, sem kynnir þér borgina frá mörgum hliðum, sem þú vissir varla að væru til, frá dögum Rómverja til nútímans, gegnum London Hinriks 8., Shakespeares, Dickens, Churchills og ótal annarra. Um kvöldiö stendur til boða hin vinsæla ópera Puccinis, Turandot í einu besta óperuhúsi heims- ins, COVENT GARDEN. 14. des. Frjáls dagur í London, þar sem jólastemmningin er í algleymingi. Ensk jólaveisla með kalkún og tilheyrandi um kvöldið, einnig söngleikir, leikhús. 15. des. Eitt merkasta listasafn heimsins meö verkum meistaranna, NATIONAL GALLERY á dagskrá kl. 11-13.30. Síðan frábærir jólatón- leikar í BARBICAN meö vinsælustu tónlistinni eftir Bach, Handel o.fl. Heimflug um kvöldið. FA SÆTI LAUS! Pantanir teknar á kynningunni á Hótel Sögu kl. 14 í dag Ferðir Heimsklúbbsins eru ný viðmiðun á ferðalögum á verði sem er annars óþekkt. Til dæmis má nefna að gistiherbergi á Royal Garden í eina nótt á almennu verði kostar næstum eins mikið og öll feröin. FERÐASKRIFSTOFAN H HEIMSKLUBBUR INGOLFS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.