Morgunblaðið - 17.11.1996, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996 15
Nánast öll verkin á sýningunni
séldust og það kom listamanninum
mjög á óvart.
Árið 1988 heldur Guðrún svo
aðra einksýningu, að þessu sinni i
Nýhöfn, og síðan hefur hún tekið
þátt í ýmsum samsýningum auk
þess sem hún hefur haldið tíu
einkasýningar á þessum árum,
bæði hér heima og erlendis. í Nor-
ræna húsinu árið 1992 sýnir hún
fyrst lágmyndir sínar. Guðbjörg
Lind spyr Guðrúnu hvernig hún
hafi unnið verkin og hvort hafi
verið einhverjir sérstakir áhrifa-
valdar að þeim?
„Ég hafði verið að vinna þessi
láréttu málverk, allt upp í sex
metra löng málverk. Mig langaði
að losa formið frá striganum. Leyfa
fjöllunum að vera frjálsari, línum
að lifa einum. Þetta var tilraun til
þess. Áhrifin eru vafalaust naum-
hyggjan sem þarna hefur verið
sterk um alllangt skeið og ég
hreifst af.“
„Málarðu með orð eða hugtök
að leiðarljósi? Ertu meðvitað að
reyna að ná fram einhverri hug-
mynd eða hugtaki, spyr Eyjólfur
Kjalar.
„Nei, það geri ég ekki,“ segir
Guðrún.
„Ertu viss,“ spyr Eyjólfur og er
ýMnn.
;[#Það eru fleiri áhrif sem koma
tií.og þau eru mun víðtækari og
hafa vissa skírskotun til tilfinning-
anna,“ segir Guðrún.
„Myndirnar þínar eru mjög klín-
ískar, hefur það eitthvað með hjúkr-
unarfræðinginn að gera og stund-
um virka þær jafnvel kuldalega,“
segir Hannes.
„Ég er ekki sammála þessu,“
segir Eyjólfur Kjalar. „Guðrún not-
ar mikið náttúruliti og í mörgum
mýndunum koma fram sterkar til-
fipningar þó að naumt sé skammt-
að. Þar er heldur aldrei að finna
væmni.“
„Þetta eru afar áþreifanlegar
myndir sem hafa sterka skírskotun
til landslagsins," segir Hannes.
Það kemur fram í máli Guðrúnar
aðr þegar hún vinnur myndir sínar
tekur hún gjarnan ljósmyndir, legg-
ur þær á gólfið á vinnustofunni og
vinnur eftir þeim formum sem hún
sér þar. Einnig hefur hún tekið
videómyndir sem hún nýtir í sama
tilgangi.
Tilheyrir engxi sérstöku gengi
„Hvernig var að koma fram með
náttúrumyndir á sínum tíma?“
Guðrún svarar þessu ekki beint en
segist ekki hafa tilheyrt neinu sér-
stöku gengi þegar hún var að byija
sinn feril.
Guðbjörg Lind skýtur hér inn í:
„Þó að Guðrún hefði farið þessa
hefðbundu leið í námi efast ég samt
um að hún hefði farið út í hugmynd-
alist því hún er mjög hrifin af
strangflatarmálverki og óhlut-
stæðri list eins og myndum eftir
Nínu Tryggvadóttur.“
„Þegar ég kynntist krökkum í
Myndlista- og handíðskólanum á
áttunda áratugnum þá fannst mér
eins og allir ættu sér þann draum
að mála landslagsmyndir og þegar
leyfi kom frá útlöndum upp úr 1990
ruku allir til og fóru að mála lands-
lagsmyndir," segir Eyjólfur Kjalar.
Guðrún er spurð um ýmsa aðra
áhrifavalda, eins og aðra málara.
Hún segir að aðrir listamenn hafi
haft tiltölulega lítil áhrif á sig.
„Ég er ekki ein af þeim sem
skoða söguna og vinn út frá því,“
segir hún. „Mér finnst þó ég eigi
að vissu leyti andlega samleið með
listamönnum sem voru að vinna á
sjötta áratugnum.“
Spyrlunum verður tíðrætt um þá
leið sem Guðrún hefur fetað milli
raunsæis og abstraktlistar.
„Guðrún hefur alla tíð sveiflast
milli andstæðra póla, milli raunsæis
og abstrakts, milli einhvers konar
rannsókna og persónulegrar tján-
ingar,“ segir Hannes.
„Ertu nokkurð haldin þrá-
hyggju," spyr Eyjólfur' Kjalar og
kímir.
„Eru ekki allir listamenn haldnir
þráhyggju," svarar Guðrún.
„Áttar þú þig á hvað þú ert að
þráast við?“
„Ef ég vissi það væri ég búin að
afgreiða þetta og væri farin að lesa
í bók. Meðan ég veit ekki út á hvað
þráhyggjan gengur þá held ég
áfram þessu prívat stríði,“ segir
Guðrún. „Pabbi sagði eitt sinn við
mig að ég væri eins og lítill bátur
með allt of stóran mótor.“ Hún
brosir.
SIEMENS
S4-P0WER
Góður farsími—enn betri!
S4-P0WER er ný og betri
útgáfa hins vinsæla farsíma
S4 frá Siemens. Hann hefur
m.a. nýja rafhlöðu með
70 klst. viðbragðstíma og
alltað lOklst. taltíma.
Við bjóðum þennan
farsíma á mjög hagstæðu
verði ásamt ýmsum
öðrum símabúnaði.
Njótið faglegrar ráðgjafar
og þjónustu hjá okkur.
hafiu iiiiirii! SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 511 3000
LISTIR
Leyndardómur
fiðlunnar leystur?
SKOSKUR fiðlusmiður fullyrðir að
hann hafi komist að því í hveiju
leyndardómurinn að baki hljómi
Stradivarius-fiðlunnar liggur. Álan
Bewitt fullyrðir í samtali við Scotland
on Sunday að hann hafi þróað tækni
sem líki eftir þeim breytingum sem
verða á viðinum í fiðlunni eftir því
sem aldimar líða, og að það taki
aðeins nokkra daga. Sérfræðingar
era ekki á því að málið sé svo ein-
falt, þó þeir vísi fullyrðingum Bew-
itts ekki algerlega á bug.
Bewitt kallar uppgötvun sína
„rakaferli“ og segir hana hafa orðið
fýrir algera tilviljun. Hann komst að
því að breytingar urðu á fiðlum á
verkstæði hans, þrátt fyrir að lítið
sem ekkert væri leikið á þær, en al-
mennt er talið að tónn fiðlu breytist
eftir þvi sem spilað er meira á hana.
Bewitt beindi fljótlega sjónum sínum
að áhrifum raka á hljóðfærin og
komst að því að þau vora umtals-
verð. Hefur hann þróað tækni sem
byggist á því að gufu af kalíumklór-
íði er úðað inn í nýsmíðaða fiðlu. Þá
er fiðlan geymd í miklum raka í fimm
daga og að því búnu í miklum þurrki
í aðra fimm daga. Þetta ferli er end-
urtekið sex sinnum og segir Bewitt
það gera fiðlumar hljómmeiri.
ALAN Bewitt fiðlusmiður tel-
ur að rakabreytingar séu lyk-
illinn að leyndardómi bestu
fíðla heims.
890.000.-
Meðal afborgun pr.m. kr 22.600.-
Miðað við 25% útborgun og
36 mánaða bílalán.<<
FIAT CINQUECENTO
1.1 SPORTING
FIAT HEFUR
ÖRUGGLEGA
RÉTTA BÍLINN
bílasýning
í dag sunnudag
FRÁ KL 10 -17
FLAT bifreiðar eru með ABS bremsukerfi,
öryggispúða (Airbag), bílbeltastrekkjara
og þjófavöm sem staðalbúnað.
Reynsluakstur segir meira en mörg orð.
Við hvetjum þig því til að heimsækja
okkur í Garðabæ um helgina.
1.298.000.-
Meðal afborgun pr.m.32.300.-
Miðað við 25% útborgun og
36 mánaða bílalán."
FIAT PUNTO
SMIÐSBÚÐ 2 GARÐABÆ SÍMI: 565 6580
> 1.366.000.-
Meðal afborgun pr.m.34.500.-
Miðað við 25% útborgun og
36 mánaða bílalán."'
FIAT BRAVO 1,4 SX
ístraktor
1.072.000.-
Meðal afltorgun pr.m. kr 27.000,-
Miðað við 25% útborgun og
36 mánaða bflalán."
Einkaumboð fyrir Siemens á Islandi