Morgunblaðið - 17.11.1996, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 17.11.1996, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER 1996 23 sem þau dveldu að öðru leyti í allan sólarhringinn. Geymslurými er óneitanlega af skornum skammti fyrir bamaspít- ala Landspítalans. A dagdeildinni,, sem er á neðri hæð húsnæðis bam- aspítalans, er langur gangur. Með- fram veggjum hans era geymd aukarúm og ýmislegt annað sem grípa þarf til ef við liggur og mik- ið annríki skapast. Þröngt er fyrir starfsfólk að athafna sig með allt þetta geymsludót til hvorrar hliðar og ekki síður fyrir þá sem aka matarvögnum og rannsóknartækj- um inn á deildina. Víða þröngt setinn bekkurinn DÝNUR og rúmföt foreldra veikra barna. GEYMSLUAÐSTAÐA er fátækleg hjá barnaspítala Landspítalans. Vökudeild bamaspítalans, sem opnuð var árið 1976, er staðsett á milli skurðstofa á fæðingargangi og fæðingar- stofa. Sú staðsetning er heppileg en hús- næðið sjálft er mjög þröngt fyrir þá mikil- vægu og nákvæmu starfsemi sem þar fer fram. Þegar blaðamann bar að garði þama vora nokkrir öriitlir íslendingar að beijast fyrir tilvera sinni með aðstoð lækna og hjúkranarfólks. Margir hinna örsmáu sjúkl- inga áttu greinilega í miklum öndunarerfið- leikum en öndunarvélar léttu þeim andar- dráttinn. Bömin era flest í glæram kössum og þarf að vera gott rými í kringum þá svo komast megi að til þess að sinna þeim. Rýmið er í reynd bagalega lítið, einnig í litlu stofunni þar sem bömin era rannsök- uð. Þar verður fólk nánast að fara út til að „skipta um skoðun“ eins og stundum er sagt. Það er líka þröngt setinn bekkurinn í þeim herbergjum sem læknar og annað starfsfólk hafa til umráða fyrir þann hluta starfsins sem ekki fer fram á sjúkra- og meðferðarstofum deildarinnar. Oft þurfa læknar að ræða viðkæm mál við skjólstæð- inga sína og aðstandendur þeirra, því er stundum erfitt að kom við vegna þrengsl- anna. ÞRÖNGT er í skólastofunni hjá Kristbjörgu kennara. Leikaðstaða fyrir bömin er líka fátækleg. Ekki skortir þó leikföng, þau hafa ýmsir velunnarar bamaspítalans keypt af myndar- skap. Hringskonur hafa að öðra leyti haft auga á hveijum fingri til þess að fylgjast með hvað unnt er að gera starfsemi barn- aspítala Landspítalans til stuðnings á hveij- um tíma, t.d. keypt mjög mikið af tækjum. Hringskonur hafa hins vegar ekki getað bætt úr því að ekki er unnt að koma sjúkra- rúmum inn á leikstofuna né hafa þær né aðrir getað bætt úr húsnæðisskortinum sem hér hefur verið tíundaður. Það er samdóma álit þeirra sem um hann hafa fjallað að ekki verði úr bætt nema að byggja nýtt hús undir starfsemina. Hringskonur hafa þegar lagt sitt af mörkum til þess að sú bygging rísi. Nú er til í sjóði fé, sem þær hafa safnað, á annað hundrað milljónir króna. Það sem á vantar mun ríkið leggja til, m.a. með því að hlutast til um að land við Vífílsstaði sem Ríkisspítalar eiga verði selt Garðabæ. Gert er ráð fyrir að Vífilsstað- ir verði hjúkranarheimili þegar hinn nýi barnaspítali er risinn og húsnæði það sem spítalinn starfar nú í verði þá tekið undir þá starfsemi sem rekin er á Vífílsstöðum í dag. nuHHHK KOMIÐOG DANSID GL :RÐU LÉTTA DANSSVEIFLU Á TVEIM DÖGUMI læstu námskeið Næstu námskeið um næstu helgi 557 7700 noveml januar Vegna gríðarlegra vinsælda jólahlaðborðs okkar eru flestar helgar að verða uppseldar nú þegar. En við viljum vekja athygli á því að kræsingar Idu Davidsen smakkast jafn vel alla daga og enn er hægt að komast í jólahlaðborðið hennar Idu virka daga. Ida mvm ásamt eiginmannni sínum Adam Sösby koma öllum í sannkallað jólaskap með girnilegum dönskum jólaréttum. Marentza Poulsen mun ganga með gestum í kringum kræsingar og gefa góðar ábendingar. lOFTLEIDIR Borðapantanir í símum 5050 925 & 562 7575, fax 562 7573

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.