Morgunblaðið - 17.11.1996, Síða 46

Morgunblaðið - 17.11.1996, Síða 46
46 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ HASKOLABIO SÍMI 552 2140 Háskólabíó HTTP://WWW. THE ARRIVAL.COM KLIKKAÐI PROFESSORINN TTsiteaoa páiía í Tlh® BsOiwifífy [ppisfessoií1 fártoda,, œns/máíisia ®d Q^ir<S>aa §p®rtm9a ★★★ A.I.MBL Mynd sem hfgar uppá tilveruna. H.K. DV SHANGHAI TRIAD SHANGHAI GENGIÐ FRUMSYNING: ALLT I GRÆNUM SJO * - • V. r ★% ★' ★'. ' Á.Þ'. Dágsljos Nýasta mynd meistara Zhang Yimou (Rauði lampinn) Sýnd kl. 7. Sýndkl. 5. ísl.texti. E,,.r52rl \ ) KsjaFffil KlUáuil’' .._J v. . f^T^TÍwniJ Sagt er að hörðustu brimbrettagæjar heims séu i suður-Englandi. Þetta eru brjálaðir Lundúnarbúar sem ferðast suður til að kljúfa stórhættulegar öldur reifa allar nætur og lifa eins hratt og mögulegt er. Blue Juice er kröftug, spennandi og rennandi blaut kvikmynd með Ewan McGregor úr Trainspotting i aðalhlutverki. Heppnir gestir sem kaupa miða á Blue Juice fá gefins Stuzzy bol eða derhúfu frá Xtra á Laugavegi 51. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. B.i. i2ára Harðsviraöur málaliði tekur að sér að uppræta eiturlyfjahring sem hefur aðalbækistöðvar í gagnfræðaskóla i suður Flórída. Aðalhlutverk Tom Berenger (Platoon, The Big Chill), Ernie Hudson (Congo, The Crow), Diane Venora (Heat) Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.15. B. i. 16 ára. BRIMBROT SHEEN ★ ★★ Taka 2 TIIH APRRIMIL Sýnd kl. 3 og 11.15. GUNNLAUGUR Helgason, Hallur Helgason, Kolbrún Ýr Gísla- dóttir og Björn Björnsson. MAGNÚS og Jóhann ásamt Pétri Hjaltested í miðið. Skífan 20 ára SKÍFAN hélt upp á 20 ára afmæl- iðmeð glæsilegri afmælisveislu í Operukjallaranum um síðustu helgi. Starfsmenn fyrirtækisins, velunnarar þess og fjöldi lista- manna mættu í hátíðarskapi, þáðu veitingar og nutu skemmti- atriða. Ljósmyndari Morgun- blaðsins var í veislunni. Morgunblaðið/Halldór SÖNGKONAN Diddú tekur lagið. 'N°7 Notfærðu þér tilboðið og gerðu að vana að nota hreinsi, andlits- vatn og dag/næturkrem. Þú færð ráðleggingar hjá No7 útsölustöðum í betri snyrtivöru- verslunum og apótekum. Unnur Arngrímsdóttir hefur lifað annasömu lífi. Unglegt útlit hennar og falleg húð er sönnun þess að það borgar sig að hugsa ætíð vel um húðina. Það er aldrei of seint að byrja, No7 gefur eingin fölsk loforð um eilífa æsku en vörurnar virka fljótt og vel og innihalda allt það sem húðin þarfnast í 24 tíma á dag alla daga ársins. Umönnun sem tekur aðeins nokkrar mínútur, kostar ekki milljón og dugar fyrir lífstfð. TILBOÐ 2 fyrir 1 í krem- og hreinsilínu Vegvísir til frekari afreka Bjarni Arason TONLIST Gcisladiskur MILLIMÍN OGÞÍN Geisladiskur Bjarna Arasonar. Söng- ur: Bjami Arason, Björgvin Halldórs- son í einu lagi, Sigríður Beinteins- dóttir í einu lagi. Hfjóðfæraleikarar: Jon Kjell Seljeseth hljómborð, hljóm- borðsforritun. Grétar Örvarsson hljómborð, Hantmondorgel. Friðrik Karlsson gítar. Jóhann Ásmundsson bassi. Gunnlaugur Briem trommur. Óskar Guðjónsson saxófónn. Jón EIv- ar Hafsteinsson gítar. Sigrún Eð- valdsdóttir fíðla. Bakraddir: Edda Borg, Jóhann Helgason, Grétar Örv- arsson, Magnús Þór Sigmundsson, Erna Þórarinsdóttir. Yfírumsjón: Grétar Örvarsson. Utsetningar: Jon Kjell Seljeseth og Grétar Örvarsson. Hljóðblöndun: Óskar Páll Sveinsson og Grétar Örvarsson. Upptökumenn: Birgir J. Birgisson. Gunnar Smári Helgason, Nick Catheart-Jones, Ólaf- ur Halldórsson og Óskar Páll Sveins- son. Utgefandi: Bara. Dreifing: Spor. 41:03 mín. 1.999 krónur. ÞEGAR ég heyrði Bjarna Arason syngja í fyrsta skipti, lagið Að slá í gegn í Látúnsbarkakeppni Stuð- manna hér um árið, var ég sann- færður um að þessi ungi piltur myndi sjálfur slá í gegn sem söngv- ari, fyrr eða síðar. Reyndar gerðist það seinna en ég hafði búist við því sannleikurinn er sá að Bjarni lenti í ákveðnum mótbyr fyrstu árin. Kannski var hann sjálfur ekki tilbú- inn í slaginn, enda ungur að árum og hann var að syngja dálítið öðru- vísi tónlist en þá, sem jafnaldrar hans hlustuðu mest á á þeim tíma. í þeirra huga þótti hann dálítið gamaldags og samlíkingin við Elvis háði honum. En Bjarni hefur þrosk- ast og smám saman hefur fólk, á öllum aldri, gert sér ljóst, að hér fer söngvari í sérflokki. Bjarni sló svo sannarlega í gegn á stórsýning- unni Bítlaárin á Hótel íslandi og hljómplatan, sem hann hefur nú sent frá sér, Milli mín og þín, er líkleg til að auka enn á hróður hans. Það er margt sem gerir þessa plötu afar áheyrilega. Það er ekki aðeins að rödd Bjarna njóti sín vel á þessari plötu heldur er öll vinnsla á henni, hljóðfæraleikur, útsetning- ar og upptaka í sérflokki og greini- legt að hér hefur verið vandað vel til verka. Þar eiga þeir Grétar Örv- arsson og Jon Kjell Seljeseth sjálf- sagt mestan heiður, en þeir eru ábyrgir fyrir út- setningum auk þess sem Grétar hafði yf- irumsjón með gerð plötunnar. Það er of al- gengt í íslenskri hljómplötuút- gáfu að menn kasti til höndun- um þegar kemur að frágangi og fullvinnslu efn- isins, en hér hef- ur greinilega verið nostrað við hvert smáatriði. Og útkoman er líka í samræmi við það, stórgóð. A þessari nýju plötu er Bjarni í rólegri kantin- um og eflaust finnst einhveij- um að það mætti vera meira „stuð“ á henni. Bjárna lætur hins vegar ákaflega vel að syngja rólegar, en um leið átakamiklar, ballöður og sá hæfileiki hans kemur vel fram á þessari plötu. Rödd Bjarna er ívið hærri í flestum þess- ara laga en maður á að venjast frá honum og það liggur við að maður sakni dálítið hinnar þróttmiklu, djúpu fyllingar, í anda Elvis, sem Bjarni hefur svo oft brugðið fyrir sig á liðnum árum. Þetta undirstrik- ar hins vegar hversu vítt raddsvið hans er og hann verður ekki lengur sakaður um að „vera fastur" í söngstíl rokkkóngsins sáluga. Milli mín og þín inniheldur 10 lög, þar af þtjú íslensk eftir Grétar Örvarsson, Friðrik Karlsson og Jó- hann Helgason. Lag Jóhanns er reyndar hið gamalkunna lag Karen við texta Björns Björnssonar, sem áður hefur verið gefið út á safn- plötu, en hin eru Tómarúm, eftir Grétar við texta Stefáns Hilmars- sonar, og Hugarflug, eftir Friðrik við texta Ingibjargar Gunnarsdótt- ur. Um Karen þarf ekki að fjöl- yrða, en það hefur verið ein helsta skrautfjöður Bjarna í seinni tíð og þótti álitlegur kostur í Evrópu- söngvakeppninni hér um árið. Lög þeirra Grétars og Friðriks eru hins vegar „melódísk" og grípandi popp- lög, sem í sjálfu sér skilja ekki mikið eftir, en falla þó ágætlega að heildarsvip plötunnar. Bestu lög- in á plötunni eru að mínu mati í örmum þér (In Your Productive Hands) og Allt annað líf (Öppna din dör), sem bæði eru róleg og hugljúf við ágæta texta Ingibjargar Gunnarsdóttur og Friðriks Sturlu- sonar. Eins finnst mér Okkar líf (The Sadness In Your Eyes,) við texta Ingibjargar, ágætt uppbrot á lagavali plötunnar með sínu „reggae-ívafi“ og mögnuðum undir- tóni. Björgvin Halldórsson og Sig- ríður Beinteinsdóttir eru gesta- söngvarar í sitt hvoru laginu og leysa sitt verk vel af hendi eins og við var að búast. Þó finnst mér lag- ið sem Sigríður syngur með Bjarna, Enn koma jól, dálítið á skjön við annað efni á plötunni og hefði lík- lega sómt sér betur á jólasafnplötu. Hljómgæði plötunnar eru áber- andi og afrakstur hinna vönduðu vinnubragða sem áður er getið. Umslag er aðgengilegt með textum og upplýsingum um flytjendur. Eftir að hafa hlustað á þessa plötu hef ég á tilfinningunni að timi Bjarna Arasonar í íslenskri dægurtónlist sé runninn upp. Hann getur allavega verið mjög sáttur með útkomuna því þessi plata er góður vegvísir til frek- ari afreka á tónlistarbrautinni. Sveinn Guðjónsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.