Morgunblaðið - 29.11.1996, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ekið á 16 ára pilt
Morgunblaðið/Ingvar
SEXTÁN ára piltur varð
fyrir bíl á Breiðholtsbraut um
hálffimmleytið í gærdag.
Hann var talinn axlarbrotinn
og með heilahristing, að sögn
lögreglu, auk þess sem hann
hlaut skurði í andliti.
Bíllinn var á leið upp
Breiðholtsbraut og var keyrt
á piltinn rétt austan við
gatnamótin við Stekkjarbakka
að sögn lögreglu. Ekki var
vitað um tildrög slyssins en
pilturinn var fluttur á
Slysadeild.
Hæstiréttur staðfestir for-
gangsrétt kvenna til starfa
Veður
tafði
innan-
landsflug
NOKKRAR tafir urðu á innan-
landsflugi um Reykjavíkurflugvöll
í gær vegna slæmra veðurskilyrða.
Samkvæmt upplýsingum frá Flug-
leiðum gekk seint og illa að ryðja
flugbrautina í gærmorgun sökum
hvassviðris, hálku og frosts við
jörðu.
Um hádegisbilið þurfti að beina
tveimur vélum Flugleiða frá
Isafirði og Egilsstöðum sem lenda
áttu á Reykjavíkurflugvelli til
Keflavíkur og Islandsflug frestaði
flugi til Egilsstaða, Bíldudals og
Flateyrar um tvo tíma á meðan
verið var að bera sand á flugbraut-
ina.
Hjá Flugleiðum fengust þær
upplýsingar að tafirnar orsökuðust
eingöngu af óhagstæðum veður-
skilyrðum og hefðu ekkert með
ástand flugbrautarinnar sjálfrar
að gera.
HÆSTIRÉTTUR telur að lögin um
jafna stöðu og jafnan rétt karla og
kvenna yrðu þýðingarlítil nema
meginreglur laganna séu skýrðar
svo, við núverandi aðstæður, að
veita skuli konu starf ef hún er að
minnsta kosti jafnt að því komin
að því er varðar menntun og annað
sem máli skiptir og karlmaður sem
við hana keppir, ef á starfssviðinu
eru fáar konur.
Þetta kemur fram í dómi sem
kveðinn var upp í gær þess efnis
að lög um jafna stöðu og jafnan
rétt karla og kvenna hafi verið brot-
in þegar samstarfsráð heilsugæslu-
stöðva i Reykjavíkurlæknishéraði
og stjórn Heilsuverndarstöðvar
Reylqavíkur veittu stöðu starfs-
mannastjóra fýrir stofnanirnar frá
1. febrúar 1991. Með dóminum var
ríkið dæmt til að greiða konu sem
sótti um stöðuna, Jennýju S. Sigfús-
dóttur, 850 þús. kr. í bætur með
vöxtum frá árinu 1991.
Staða starfsmannastjórans var
stofnuð í kjölfar þess að ábyrgð á
rekstri heilsugæslustöðva var flutt
yfir til ríkisins með breyttri verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga.
Átta sóttu um starfið, 6 karlar og
tvær konur. Einum karlanna var
veitt starfið.
Áður hafði skrifstofa Heilsu-
vemdarstöðvarinnar verið rekin
sem stjómsýsluskrifstofa fyrir
heilsugæslustöðvar í Reykjavík.
Jenný var deildarstjóri á þeirri skrif-
stofu. Hún taldi að gengið hefði
verið fram hjá sér við veitingu stöð-
unnar og að sér hefði verið mismun-
að sem starfsmanni vegna þess að
hún hafði í deildarstjórastarfi sínu
gegnt starfi sem var sambærilegt
við starf starfsmannastjórans og
jafnverðmætt því en engu að síður
hafi hún átt að búa við mun lakari
launakjör.
Jafnréttislög annars
þýðingarlítil
Hæstiréttur telur að Jenný og
karlinn sem starfið hlaut hafi bæði
verið hæf til að gegna starfinu og
ekki hafi verið efni til að gera mun
á þeim að því leyti. Hins vegar
hafi borið að ráða Jennýju í starfið
þar sem lög um jafna stöðu og
jafnan rétt karla og kvenna yrðu
þýðingarlítil nema meginreglur
þeirra yrðu skýrðar svo við núver-
andi aðstæður að konu skuli veita
starf, ef hún er að minnsta kosti
jafnt að því komin er varðar mennt-
un og annað, sem máli skiptir, og
karlmaður, sem við hana keppir,
ef á starfssviðinu em fáar konur.
„Ber að leggja þá skýringu hér til
grundvallar,“ segir Hæstiréttur,
sem taldi nægilega í ljós leitt að
borið hefði að ráða Jennýju í stöð-
una og tók til greina þá kröfu henn-
ar að veiting stöðunnar hafi verið
ólögmæt.
Þær meginreglur sem vísað var
til að ofan eru t.d. markmið jafn-
réttislaganna um og koma á jafn-
rétti og jafnri stöðu karla og kvenna
á öllum sviðum; að tryggja körlum
og konum jafna möguleika til at-
vinnu og menntunar; lýsa mismun-
un eftir kynferði óheimila aðra en
tímabundnar aðgerðir til að bæta
stöðu kvenna; og loks að atvinnu-
rekendur skuli vinna markvisst að
því að jafna stöðu kynjanna innan
fyrirtækja og stofnana og stuðla
að því að störf flokkist ekki í sér-
stök kvenna- og karlastörf.
Fram kom í málinu að 14 manns,
4 karlar en 10 konur, hafí starfað
á viðkomandi skrifstofu. í hópi
æðstu starfsmanna, forstjóra,
framkvæmdastjóra, skrifstofu-
stjóra og starfsmannastjora, hafí
skrifstofustjóri verið eina konan en
af því leiðir að þrír fjögurra karla
í starfsliðinu töldust til yfírmanna.
„Stefndi hefur ekki leitt líkur að
því, að skipan stjómunarstarfa inn-
an stofnana á hans vegum, er helst
mætti taka til samanburðar við
stöðu starfsmannastjórans, hafí
verið mjög á annan veg farið, þann-
ig að jafnræðis milli kynja væri þar
betur gætt,“ segir í dómi Hæsta-
réttar.
Jennýju voru einnig dæmdar
skaðabætur, sem miðuðust við þann
mun sem voru á launum hennar og
deildarstjórans, þá fímm mánuði
sem hún starfaði á skrifstofunni og
síðan næstu fimm mánuði eftir að
hún hafði sagt upp störfum. Alls
var þar um að ræða 850 þúsund
krónur sem bera vexti frá árinu
1991.
Tveir fimm dómenda í Hæsta-
rétti skiluðu séráliti og vildu sýkna
ríkið af kröfum Jennýjar.
Pöllum
við kirkju
stolið
ÞJÓFNAÐUR á vinnupöllum
við Langholtskirkju uppgötv-
aðist síðdegis í gær, en talið
er að þeir hafí verið fjarlægð-
ir um liðna helgi.
Endurbætur hafa staðið
yfir á kirkjunni að undanförnu
samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu, en hún hefur verið
í nokkurri niðurníðslu.
Um klukkan 16 í gær upp-
götvaðist að búið var að hafa
á brott vinnupalla á þremur
hæðum sem hafa verið notað-
ir við endurbæturnar, og er
verðmæti þeirra metið á nokk-
ur hundruð þúsund krónur.
Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu er búist við að
RLR fái þjófnaðinn til með-
ferðar.
Gullinbrú
lokuð um
helgina
UMFERÐ yfir Gullinbrú verð-
ur stöðvuð í kvöld klukkan 19
vegna viðgerða við vatnsveitu
og er búist við að brúin verði
lokuð fram til klukkan 20 á
sunnudagskvöld.
Hægt verður að aka eftir
Víkurvegi inn í Grafarvog í
staðinn. Ljóst er að lokunin
mun valda röskun á umferð,
til dæmis strætisvagna, og
munu vagnar sem aka um
Grafarvogshverfi fara eftir
Víkurvegi. Um er að ræða
leiðir 8, 14, 15 og 115 og
munu tímasetningar væntan-
lega raskast við þetta. Boðið
verður upp á aukaferðir en
ekki verður hægt að treysta á
samtengingar, til dæmis við
leiðir 10 og 110.
Leita að
manni í úlpu
RANNSÓKNADEILD lög-
reglunnar í Reykjavík óskar
eftir að ná tali af manni sem
var farþegi í strætisvagni á
Fjallkonuvegi föstudaginn 15.
nóvember sl., rétt fyrir klukk-
an tíu um kvöldið.
Þar er talið að ungir piltar
hafí ógnað strætisvagnastjóra
með hnífí. Lögregla óskar eft-
ir að ná tali af manninum sem
var klæddur í rauða skíðaúlpu
og fór úr vagninum við hjúkr-
unarheimilið Eir við Brekku-
hús.
Meimtaskólinn að Laugarvatni
Tuttugu nemendum
vísað úr skóla á önninni
TUTTUGU nemendum hefur verið
vísað tímabundið úr Menntaskólan-
um að Laugarvatni vegna agabrota
það sem af er þessari önn. Um er
að ræða þijár stúlkur og 17 pilta
úr öllum árgöngum skólans og var
sex nemendum vísað úr skóla í síð-
ustu viku vegna áfengisneyslu.
Nemendur í skólanum eru 210.
Kristinn Kristmundsson skóla-
meistari sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að ölvun hefði sést á
þremur nemendum skólans á tón-
leikum í íþróttahúsi að kvöldi mánu-
dagsins 18. nóvember. Auk þess
hefðu fjórir nemendur verið staðnir
að heimsókn í óleyfí inn á aðra
heimavist aðfaranótt þriðjudags.
Reyndust þrír þeirra einnig undir
áhrifum. Var umræddum nemend-
um því vísað úr skóla fram að próf-
um, sem hefjast 2. desember að
sögn skólameistara.
Agabrot tengjast
vínneyslu
„Við höfum, því miður, á þessari
önn talið okkur þurfa að grípa til
harðra áminninga vegna agabrota,
sem einkum tengjast vínneyslu inn-
an skólans. Ekki hefur verið um
brottvikningu að ræða, heldur hefur
nemendum verið gert að víkja um
stundarsakir," segir Kristinn.
Hann segist ekki kunna skýring-
ar á því hvers vegna agavandamál
séu meira áberandi á þessari önn
og að vínbann hafi ævinlega verið
í gildi við skólann. „Það má ef til
vill segja að þetta hafí gefíð skóla-
stjóm vísbendingu um að þörf væri
á harðari viðurlögum við brotum
af þessu tagi. En það væri rangt
að gera of mikið úr því. Ég held
að þetta sé einungis tímabundið og
að það gangi yfir. Ef fólki fínnst
þetta í harðara lagi, hefur það
áhrif,“ segir hann.