Morgunblaðið - 29.11.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.11.1996, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ 18 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996 VIÐSKIPTI Samruni Skandia og Stats- hypoteket enn ílausu lofti Kaupmannahöfn. Morgnnblaðið. Branson snýr sér að plötuútgáfn á ný London. Reuter. STJORN Statshyptoket, sænsku húnæðislánastofnunarinnar, sem hugðist taka boði tryggingafé- lagsins Skandia um samruna, ætlar ekki að segja af sér, þó Erik Ásbrink fjármálaráðherra beri ekki lengur traust til hennar. Óljóst er hvort af samrunanum verður því stjórn Statshypoteket segir fyrirtækið hæstbjóðanda til sölu þó hún álíti enn að samruni við Skandia fullnægi öllum óskum sínum. Sænska ríkið á 34 prósent í Statshypoteket sem veitir hús- næðislán. Lengi hefur verið rætt um að einhver stóru bankanna keypti fyrirtækið þó slíkt myndi óneitanlega breyta öllum sam- keppnishlutföllum á sænskum lánamarkaði þar sem lána- stofnunin hefur 30 prósent hús- næðislánamarkaðarins og hugs- anlega stangast á við samkeppn- islöggjöfina. Með samruna við tryggingafyrirtækið Skandia væri hins vegar sneitt hjá hugsanleg- um árekstrum við samkeppnis- löggjöfina. Að sögn sérfræðinga, sem Svenska Dagbladet ræddi við í gær, þykir andstaða fjármálaráð- herra gegn samrunanum lítt skilj- anleg. Almennt þykja viðbrögð hans óþarflega harkaleg og hafa sænskir fjölmiðlar látið í ljós undrun yfir þeim. Ráðherrann hefur ekki skýrt nákvæmlega hvers vegna hann sé andsnúinn samrunanum, en helst látið á sér skiljast að hann sé mótfallinn hvernig staðið var að verki, en síður samrunanum sjálfur. Samruninn vekur einnig upp vangaveltur um fyrirætlanir Skandia. í breska blaðinu Financ- ial Times var í gær haft eftir breskum sérfræðingi að erfitt væri að skilja hvaða hag Skandia sæi sér í að tengjast Statshypo- teket þar sem umsvif þess lægju bæði utan kjarnasviðs Skandia og utan sviðs þeirra alþjóðlegu umsvifa sem Skandia hefur lagt mesta áherslu á að þróa undan- farið. Erlendir fjárfestar eiga 64 prósent í Skandia. Þar sem Skan- dia hefur undanfarið lagt áherslu á að treysta stöðu sína á sviði fjármála- og tryggingaþjónustu þykir samruninn við Statshypote- ket ekki samræmast þeirri áherslu. Eins og nú horfir virðist Stats- hypoteket því bæði leita betra boðs, en einnig búa sig undir að ná samþykki hluthafa um sam- runann við Skandia hvað sem við- brögðum fjármálaráðherrans líð- ur. Það er því ekki enn útséð um hvort áætlanir Skandia og Stats- hypoteket verða loftbólan ein eða hvort nýr risi á norrænum trygg- ingamarkaði sér dagsins ljós. Handteknir fyrirað hóta Coke Hannover. Reuter. ÞÝZKA lögreglan handtók nýlega tvo menn á fertugsaldri fyrir að reyna að kúga fé af Coca-Cola með því að hóta að eitra gosdrykki frá fyrirtækinu. Nokkrir kassar voru gerðir upp- tækir þegar mennirnir voru hand- teknir í bænum Hildesheim í Norð- ur-Þýzkalandi. Mennirnir höfðu hót- að að menga Coca-Cola, Fanta og Sprite gosdrykki víðs vegar í Þýzka- landi ef fyrirtækið greiddi þeim ekki nokkrar milljónir marka. Að sögn Hannoversche Allge- meine Zeitung telur lögreglan að aðferðir fjárkúgaranna “ekki verið mjög fagmannlegar" og að neyt- endur hafi aldrei verið í verulegri hættu. BREZKI kaupsýslumaðurinn Richard Branson hefur snúið sér aftur að tónlist með því að koma á fót nýju plötuútgáfufyr- irtæki, sem á að keppa við fimm stórar plötuútgáfur er ráða lög- um í þessum geira. Branson varð fyrst frægur fyrir að gefa út plötur og V2 Music Group, hin nýja plötu- útgáfa hans, er fyrsta til- raun hans á þessu sviði síð- an hann seldi Virgin Rec- ords risanum Thorn EMI fyrir 560 milljónir punda fyrir fjórum árum. Branson sagði að salan hefði verið óhjákvæmi- leg, því að hann hefði þurft fjármuni í rekstur flugfélags- ins Virgin Atlantic, en kvaðst hafa séð eftir öllu saman nánast frá byijun. Keppir við fimm risa Fyrirtæki Bran- sons, Virgin Group, spannar vítt svið frá ferðamálum til fjár- málaþjónustu og með stofnun V2 stefnir hann að því að sam- eina kosti óháðra plötuforlaga fyrir óháða listamenn og fjárhagslegt bolmagn risanna í greininni. „Öll góðu, óháðu vörumerkin hafa verið seld... það sem er eftir eru fimm risastórar fyrir- tækjasamsteypur, risafyrirtæki," sagði hann. Heildarsala á tónlistarefni í heiminum nemur 40 milljörðum dollara og risarnir fimm - EMI, Poly- Gram, Sony, Warner og Bert- elsmann - selja fyrir 70% þeirr- ar upphæðar. V2 hefur fengið til liðs við sig tvær óþekktar brezkar hljómsveitir, en líka komizt að samkomu- lagi við nokkur óháð fyrirtæki. Kerfi með aðild eignatengdra fyrirtækja erlendis er einnig í mótun. Virgin Records gerði fyrsta samning sinn á áttunda ára- tugnum við MikeOldfi- eld. A næsta áratug á eftir komu í kjölfarið hljómsveitir eins og Cult- ure Club. Þegar Virgin i var selt gaf fyr- irtækið út efni með skemmti- kröftum eins og Janet Jackson og Rolling Stones. Branson skýrði frá því að hann hefði gert tilboð í bandaríska rokk- sveit, R.E.M., fyrr á þessu ári. R.E.M. samdi nýlega við Warner um um gera fimm albúm fyrir 80 milljónir dollara. „Við viljum sanna okkur með nýjum hljómsveitum,“ sagði Branson, „og ef til vill fáum við nokkr- ar af helztu hljóm- sveitunum í lið með okkurinnan sex mánaða.“ JlúlaMmtur, gjafir úgyföndur Uppskriftir, heimsóknir, jólasiðir, konfektgerð, föndur, pakkar og margt fleira er í 64 stðna blaðauka sem fylgir Morgunblaðinu nk. sunnudag, 1. desember. - kjarni málsins! Pearson kaupir for- lag af MCA London. Reuter. PEARSON fjölmiðlafyrirtækið, eig- andi Penguin bókaútgáfunnar, hefur skýrt frá þeirri fyrirætlun sinni að koma á fót útgáfustórveldi með því að kaupa Putnam Berkley forlagið í Bandaríkjunum fyrir 336 milljónir dollara. Þar með munu vinsælir höfundar eins og Tom Clancy, Patricia Cornw- ell og Kurt Vonnegut bætast við fjöl- marga eldri höfunda og bókatitla, sem Penguin gefur út. Pearson í Bretlandi, sem á meðal annars blaðið Financial Times og framleiðanda áströlsku sápuóper- unnar Neighbours, keypti Putnam Berkley af MCA Inc, skemmtiiðnað- arármi Seagram Co í Kanada. Að sögn Pearsons mun fyrirtækið hagnast á kaupunum þegar á fyrsta ári. Þar með verður Penguin annar mesti útgefandi fagrita á ensku í heiminum og sá þriðji mesti í Banda- ríkjunum U.S. þar sem markaðshiut- deild forlagsins mun tvöfaldast úr 6%. Þar sem Penguin USA og Putnam eru áiíka stór eru miklir möguleikar á sparnaði að sögn tilvonandi for- stjóra Penguin Group, Michaels Lyntons, sem áður ar forstöðumaður Disney-fyrirtækisins Hollywood Pictures.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.