Morgunblaðið - 29.11.1996, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Diescu náðar sex með-
reiðarmenn Ceausescus
Búkarest. Reuter.
ION Iliescu, forseti Rúmeníu, lét
það verða eitt sitt síðasta embættis-
verk að náða sex fyrrverandi valda-
menn úr kommúnistaflokknum. Ili-
escu lætur af embætti í þessari viku
eftir að hafa verið sjö ár við völd.
Forsetinn gagnrýndur
„Tilskipun Iliescus markar lokin
á hinni svokölluðu andkommúnísku
byltingu,“ sagði Ticu Dumitrescu,
forseti samtaka fyrrverandi pólití-
skra fanga, í samtali við Reuters-
fréttastofuna. „Fyrrverandi komm-
únistar á borð við Iliescu, sem
stjórnaði í sjö ár, höfðu í raun enga
ástæðu til að setja fyrrverandi
starfsbræður sína í fangelsi."
Greint var frá því í rúmenska
Sviptur
borsrara-
rétti
Jerúsalem. Daily Telegraph.
ÍSRAELSKUR lyftingakappi,_ Vac-
islav Ivanovsky, sem keppti á Ólymp-
íuleikunum í Atlanta sl. sumar, var
sviptur ríkisfangi í fyrradag og gef-
inn frestur þar til í dag, að koma
sér úr landi.
Ivanovsky er sagður hafa falsað
skjöl varðandi umsókn um ríkisborg-
ararétt. Reyndist hann hafa logið því
til, að hann væri kvæntur ísraelskri
konu. Sú tilgreinda er vændiskona
er situr í fangelsi.
Um 600.000 gyðingar frá Sovét-
ríkjunum fyrrverandi hafa flust til
ísraels á undanförnum árum og kom
Ivanovsky þangað 1995.
Samkvæmt ísraelskum lögum um
heimkomu gyðinga, verða innflytj-
endur frá gömlu Sovétríkjunum að
hafa átt gyðing að afa eða maka til
þess að öðlast sjálfkrafa borgararétt
í ísrael.
Leikur oft vafi á uppruna þeirra
sem þangað sækja og margir innflytj-
endur, einkum rússneskir, hafa gripið
til þess ráðs að falsa skilríki sín.
Það sem af er ári hefur ríkisborg-
araréttur á annað þúsund manns
verið afturkallaður.
ríkissjónvarpinu að ákveðið hefði
verið að náða mennina, sem voru
meðal nánustu aðstoðarmanna Nic-
olais Ceausescus, fyrrverandi leið-
toga Rúmeníu, sem tekinn var af
lífi ásamt konu sinni þegar veldi
kommúnista í Austur-Evrópu
hrundi.
Einn þeirra var Dumitro Popescu,
hugmyndafræðingur Ceausescus,
sem hafði verið sekur fundinn um
fjöldamorð og valdníðslu á tímum
kommúnistastjórnarinnar. Popescu
mótaði stefnu einræðisherrans síð-
ustu ár hans í valdastóli og var
uppnefndur „Guð“ vegna einstreng-
ingslegra sjónarmiða sinna. Hin
voru Lina Ciobanu, Nicolae Const-
antin, Constantin Olteanu, Gheorg-
HÓPUR Tíbeta efndi til aðgerða
í Nýju-Delhí í gær þar sem mót-
mælt var meðferð Kínverja á
þjóð þeirra; pilturinn í munka-
kufli í búri er tákngervingur
he Oprea og Gheorghe Pana, sem
öll sátu í stjórnmálaráði kommún-
istaflokksins.
Frestað að greina frá náðun
Náðunartilskipanirnar voru und-
irritaðar í síðustu viku, en ekki
greint frá þeim fyrr en nú. í ríkis-
sjónvarpinu voru nöfn mannanna
lesin upp án frekari útskýringa.
Fólkið, sem var náðað, hafði allt
verið dæmt fyrir að reyna að bijóta
á bak aftur mótmæli gegn Ceaus-
escu árið 1989. Sexmenningarnir
höfðu verið látnir lausir af heilsu-
farsástæðum á undanförnum fjór-
um árum ásamt tíu öðrum, sem
sæti áttu í stjómmálaráðinu og sátu
inni fyrir svipaðar sakir.
þjóðar í fjötrum Kínveija. Mót-
mælin áttu sér stað nokkrum
stundum áður en Jiang Zemin,
forsætisráðherra Kína, kom í
opinbera heimsókn til Indlands.
Rúmlega þúsund menn voru
drepnir í Rúmeníu fyrir sjö árum.
Ilieseu, sem var aðstoðarmaður Ce-
ausescus, heldur því fram að þessir
atburðir hafí verið raunveruleg bylt-
ing. Þvf hefur hins vegar einnig
verið haldið fram að Iliescu og fylgis-
menn hans hafí staðið að tjaldabaki
og lagt á ráðin að steypa Ceausescu
til að geta sölsað undir sig völdin.
Ýmsar persónur, sem voru ekki
jafnþekktar, voru einnig náðaðar
og sömuleiðis tveir blaðamenn, sem
dæmdir höfðu verið fyrir meiðyrði.
Emil Constantinescu tekur í dag
við embætti af Iliescu, sem hélt sinn
síðasta blaðamannafund í forseta-
stóli á þriðjudag og minntist þá
hvergi á náðanimar.
Fokker
ekki
bjargað
Haag. Reuter.
SVO virðist sem dagar Fokker-flug-
vélaverksmiðjanna í Hollandi séu
endanlega taldir eftir að einn af
helstu birgjum þeirra ákvað að hætta
viðskiptum við þær. Varð það til
þess, að viðræðum um hugsanlega
yfirtöku Samsung-fyrirtækisins í
Suður-Kóreu var hætt.
Mikið tap hefur verið á rekstri
Fokker, sem eru með elstu flugvéla-
verksmiðjum í heimi, og virðist nú
fátt geta komið í veg heldur óvirðu-
leg endalok, að það verði selt sund-
urhlutað tii þeirra, sem best bjóða.
Viðræðunum við Samsung var
hætt þegar Short Brothers í Belfast
tilkynnti, að það væri að smíða vængi
á Fokker-flugvélamar en fyrirtækið
er hluti af Bombardier Incof Canada.
Skipaðir tilsjónarmenn, sem hafa
rekið Fokker síðan það var lýst gjald-
þrota í mars sl., sögðu, að haidið
yrði áfram að framleiða upp í þær
pantanir, sem fyrir lægju, en þær
eru meðal annars fyrir KLM, Viet-
nam Airlines og Ethiopian Airlines.
Daimler Benz Aerospace, DASA,
keypti Fokker 1993 og í gær sögðu
talsmenn þess, að þótt þeir vonuðu,
að fyrirtækinu mætti bjarga, þá
væru þeir reiðubúnir að láta hér stað-
ar numið.
Evrópusambandið
ÉSBherð-
ir afstöð-
una gagn-
vart Kúbu
Brussel. Reuter.
E VRÓPU S AMB ANDIÐ hefur
ákveðið að herða afstöðu sína gagn-
vart mannréttindabrotum kommún-
istastjórnar Fidels Castros á Kúbu
og er fuilyrt að þetta geti aukið enn
deilurnar milli Kúbverja og Spán-
veija. Ný stjórn hægrimanna á
Spáni hefur gagnrýnt mjög stefnu
Castros að undanförnu og hafa
Kúbveijar sagt að um sé að ræða
óviðurkvæmilega íhlutun í innan-
málefni landsins.
Kúbustjórn hefur neitað að sam-
þykkja nýjan sendiherra Spánar í
Havana. Á miðvikudag ítrekuðu
Kúbveijar að þeir myndu aldrei láta
undan hótunum og breyta stefnu
sinni vegna þeirra.
„Evrópusambandið mun leita
leiða, af jafnvel enn meira kappi
en fyrr, til að minna kúbversk
stjórnvöld opinberlaga og með öðr-
um hætti á grundvallaratriði mann-
réttinda og ábyrgð þeirra í þessum
efnum, einkum mál- og funda-
frelsi," segir í nýrri stefnuyfirlýs-
ingu Evrópusambandsins sem gert
er ráð fyrir að taki gildi nk. mánu-
dag. Lögð er áhersla á það í yfirlýs-
ingunni að ekki verði reynt að nota
þvinganir.
Bandaríkjamenn hafa deilt hart
á sambandið fyrir að beita sér ekki
fyrir lýðræði og mannréttindum á
Kúbu. Samkvæmt svonefndum
Helms-Burton lögum í Bandaríkj-
unum má sækja erlend fyrirtæki til
saka fyrir að eiga viðskipti við
Kúbu og hafa Evrópusambandsrík-
in og fleiri ríki gagnrýnt Banda-
ríkjamenn harkalega fyrir þessi lög,
sagt að þau brytu í bága við alþjóða-
samninga um fijáls heimsviðskipti.
„Þetta mun sýna jafnt Kúbveij-
um sem Bandaríkjamönnum að við
ætlum að gera eitthvað í málum
Kúbu,“ sagði stjórnarerindreki eins
af aðildarríkjum sambandsins í gær.
Reuter
Þakkar-
gjörðar-
stemning
HÁTÍÐLEGT var í New York í
gær er 70. þakkargjörðargang-
an, sem kennd er við Macy’s-
verslunarhúsið, var farin um
breiðgötur borgarinnar. Alls
kyns fígúrur settu mikinn svip
á gönguna, m.a. þessi kalkúnn.
Fyrir miðju á vagninum situr
blúsgitaristinn Bo Diddley.
Vona að brátt komi blóð-
prufa í stað leg*vatnsástungu
VÍSINDAMENN í Svíþjóð og
Bandaríkjunum vonast til að
blóðprufa geti innan fárra ára
komið í stað legvatnsástungu til
að kanna heilbrigði fósturs. Leg-
vatnsástungu fylgir ákveðin
hætta á fósturláti og blóðprufa
kæmi því í góðar þarfír.
í dagblaðinu Svenska Dagblad-
et í fyrradag kom fram að vlsinda-
mönnunum hefði tekist að finna
leið til að bera kennsl á litninga-
galla með þessari tækni og bæri
þar helst að nefna Downs-heil-
kennið. í nýjasta tölublaði tímarits-
ins Nature Geneticser einnig greint
frá því að greina megi arfgenga
sjúkdóma með einni blóðprufu.
Sænski vísindamaðurinn og
læknirinn The-Hung Bui, sem
starfar við Karolinska-sjúkrahús-
ið, fer fyrir sænsku vísindamönn-
unum. Hann kveðst vona að þessi
tækni muni á næstu árum koma
í stað legvatnsástungu hjá flestum
konum.
Helsti vandinn er að
greina frumur fósturs
frá frumum móður
ur úr móðurblóði“, en varar við
of mikilli bjartsýni.
Mörg óleyst
vandamál
Svíarnir hafa i samstarfi við
starfsbræður sína í Bayiore-
læknaskólanum í Houston í Texas
greint mörg hundruð blóðsýni
verðandi mæðra. Um leið hafa
konurnar farið í legvatnsástungu
til að kanna hvort samræmi væri
milli niðurstaðna og að sögn Buis
er fylgnin mikil.
„Yfírleitt hefur greiningin
staðist," segir hann.
Helsti vandinn við þessa tækni
er að greina frumur fósturs frá
frumum móður. Með því að
merkja rauðu blóðkornin úr fóstr-
inu í blóði móður hefur þeim tek-
ist að einangra þau.
Hildur Harðardóttir, læknir og
sérfræðingur í fæðingar- og
kvensjúkdómum, segir að það sé
„framtíðarsýnin að fá fósturfrum-
„Fyrir fimm árum sögðu lækn-
ar að þessi tækni væri í sjón-
máli eftir nokkur ár,“ sagði Hild-
ur og bætti við að hún teldi að
mörg ár mundu líða þar til
blóðprufa kæmi í stað legvatns-
ástungu.
Hún sagði að leysa þyrfti ýmis
vandamál. Til dæmis hefði komið
í ijós að hvít blóðkorn frá fyrri
meðgöngum fyndust í blóði móð-
ur. Einnig væri mjög erfitt að
finna fósturfrumurnar i blóði
móður, hlutfallið væri 1 á móti
30.000. Hins vegar væri mjög
þarft að leysa legvatnsástunguna
af hólmi.
Að sögn Hildar er hættan á
fósturláti vegna legvatnsástungu
í Bandaríkjunum 1 á móti 200 til
1 á móti 300.
Reuter
Tíbetar mótmæla
i
I
i
>
í
>
i
)
íi
I
í