Morgunblaðið - 29.11.1996, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
GEitnnD
★ ★★ A.L MBL
J ■ I | | \ ■ \
Mynd sem lífgar
uppá tilveruná. |
HASKOLABIO
SÍMI552 2140
Háskólabíó
Gott Bíó
GEIMTRUKKARNIR
DEnnis
5TEPHEfl
HDPPE-R DDRF%;
DEBI DHflRLEE
SflZRrP- DflnCE
KLIKKAÐI
PRÓFESSORINN
ID28 (Innrásardagurinn 28. nóv. er runninn upp). Jarðarbúar eru búnir
að hertaka himinngeiminn að fuilu og geimtrukkarnir flytja
geimbúum lífsnauðsynjar. Heimsfriðnum er ógnað af vélmennum
sem eru forrituð til að eyða öllu því sem á vegi þeirra verða. Spenna
og tæknibrellur. Aðalhlutverk Dennis Hopper (Apocalypse Now,
Waterworld) Stephen Dorff (Backbeat, Judgement Night).
Sýnd kl 5, 7, 9 og 11 B.i. 12.
NUTTY
PROFESSOR
Fljótt, fljótt,
sjóiö klikkaóa
prófessorinn grennast
ó innan við sekúndu
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
eniiiMim
einm
hiliiM
verndarenglarnir er spennu- og gamanmynd í anda Les Visiteurs enda
gerð af sama leikstjóra og handritshöfundi, Jean-Marie Poire. Þeir
Gerard Depardieu og Christian Clavier (Les Visiteurs) eru aerslafullir i
þessari mynd sem kitlar hláturtaugarnar verulega og léttir lund í
skammdeginu.
Sýndkl. 6.50, 9 og 11.15. B.i. 12.
ALLT í GRÆNUM SJÓ
Sagt er að hörðustu brimbrettagæjar heims séu i suður-Englandi.
Þetta eru brjálaðir Lundúnarbúar sem ferðast suður til að kljúfa
stórhættulegar öldur reifa allar nætur og lifa eins hratt og mögulegt
er. Blue Juice er kröftug, spennandi og rennandi blaut kvikmynd með
Ewan McGregor úr Trainspotting í aðalhlutverki.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 . B.i. 12 ára
STAÐGENGILLINN
Harðsviraður málaliði tekur að
sér að uppræta eiturlyfjahring
sem hefur aðalbækistöðvar í
gagnfræðaskóla i suður Flórída.
Aðalhlutverk: Tom Berenger
(Platoon, The Big Chill), Ernie
Hudson (Congo, The Crow),
Diane Venora (Heat)
Sýnd kl. 9 og 11.15.
B. i. 16 ára.
Ekki missa af þessari
frábæru kvikmynd.
Sýningum fer fækkandi!!
BRIMBROT
★ ★ ★ AÞ Dagsljós
„Brimbrot er ómissandi"
★ ★ ★1/? GB DV
„Heldur manni nugföngnum
★ ★ ★ 1 /2 SV MBL
Sýnd kl. 6.
HELGARMYIXIDIR KVIKMYNDAHUSANNA
Við viljum
amerískar
stunur, takk!
EIN - ég endurtek: Ein bíómynd á
dagskrá íslensku sjónvarpsstöðvanna
þessa helgina er ekki amerísk. Hún
er ensk. Að auki er ein sjónvarpsmynd
sem ekki er amerísk. Hún er ensk.
Af rúmlega tuttugu kvikmyndum í
úrvali helgarinnar eru rúmlega tutt-
ugu merð ensku tali. Ja, guðsélof, að
norræn mál, rússneska, kínverska og
önnur hrognamál eru ekki að rugla
okkur og bömin okkar í ríminu. En
fyrirgefið - sjálfur hef ég ruglast
aðeins í engilsaxneska ríminu: Ein
mynd - ég endurtek: Ein mynd er
frönsk. Hún er ljósbláa laugardags-
myndin á Sýn. Hvers vegna í ósköpun-
um er okkur boðið upp á stunur á
frönsku? Er það forsvaranlegt?
Föstudagur
SJÓNVARPIÐ ►22.15 Margir eru
hrifnir af syrpunni um stríðskempuna
Riehard Sharpe, foringja í liði Well-
' ingtons lávarðs (Hugh Fraser) í Napól-
eonstríðinu. Sjálfur hef ég fengið nóg
en syrpan er alls 12 myndir svo nú
hlýtur hún að fara að tæmast. Sean
Bean er vörpulegur sem Sharpe og
ekkert er út á verkið að setja nema
syrpan er of !öng. í Herkví Sharpes
(Sharpe’s Siege, 1995) gengurhann
í hjónaband en herkvíin er vonandi
annars staðar. Leikstjóri Tom Clegg.
STÖÐ2 ►13.00 og 0.25 Framhaldið
var sýnt nýverið og nú sjáum við frum-
myndina: Á vaktinni (Stakeout, 1987)
er hin skemmtilegasta grínspennu-
, mynd með Richard Dreyfuss og Em-
ilio Estevez sem óstýrilátt löggupar á
vakt fyrir utan heimili hinnar föngu-
legu Madeleine Stowe. John Badham
leikstjóri er með þeim flinkari í hasarn-
um. ★ ★ ★
STÖÐ2 ►21.00 Amerískar frum-
raunir utan Hollywood-veldisins eru
oft áhugaverðar og það gildir einnig
um Þannig vil ég hafa það (ILike
' ItLike That, 1994), kímilega frásögn
af hremmingum efnalítiila en athafna-
samra Puerto Ricana í New York, með
unga húsmóður í sjónarmiðju sem nær
að brjótast úr viðjum sínum. Nokkuð
brokkgeng en ævinlega frískleg og
lífleg mynd frá Damell Martin, ungri
konu sem vonir má binda við. ★ ★ ★
STÖÐ 2 ►22.50 Framtíðarmyndin
VélmenniS (The Android Aífair,
1995) er mér ókunn en Martin og
Potter segja þessa sögu af lækni sem
verður ástfanginn af vélmenni hæga
og heldur daufa þótt persónurnar séu
áhugaverðar. Þau gefa ★ ★ 'h (af
fimm mögulegum). Meðal leikara í
þessari kapalmynd eru Harley Jane
Kozak, Ossie Davis, Saul Rubinek og
Griffm Dunne (sem einnig leikur í
myndinni á undan). Leikstjóri Richard
Kletter.
STÖÐ 3 ►21.05 Engar umsagnir
liggja fyrir um dramatisku myndina
Ást án skilyrða (Untamed Love), um
samskipti sérkennslukonu (Kathy Lee
Crosby) og erfiðs nemanda.
STÖÐ 3 ►22.35 Hin unga og efni-
iega Alicia Silverstone (Clueless) leik-
ur menntskæling sem fylgir áhuga
sínum á sönnum sakamálum of langt
eftir í Sakamál (True Crime, 1995).
Hnýsni hennar í slóð fjöldamorðingja
leiðir hana í lífshættu. Martin og Pott-
er gefa ★ ★ ★. Leikstjóri Pat
Verducci.
STÖÐ 3 ►0.05 Gamanleikkonan
Roseanne Barr hefur að mínu áliti
hæfíleika sem eru í öfugu hlutfalli við
líkamsþyngd. Hennar eigið lífshlaup
ku hafa verið þyrnum stráð og um
það fjallar sjónvarpsmyndin Rose-
anne (Roseanne: An Unauthorized
Biography, 1994). Maríin ogPotter
segja hana ómerkilegt rusl oggefa
0. Leikstjóri Paul Schneider.
SÝN ►20.00 Sjónvarpssyrpan
Tímaflakkarar (Sliders) er af ætt vís-
indaskáldskapar og fjallar um um það
sem felst í titlinum. Hefst hún með
Hurl á Hurt ofan
INNHVERF, tilfmninganæm,
nánast smásæ leiktúlkun, vörpu-
legt fasið, myndarlegt andlitið -
allt benti þetta til að ný stjama
væri fram komin þegar bandaríski
leikarinn William Hurt steig sín
fyrstu skref á hvíta tjaldinu fyrir
rúmum fimmtán árum.ög svo
reyndist vera - a.m.k. fyrst um
sinn. í seinni tíð hefur hins vegar
þessi hæfileikaríki maður orðið
hvimleiður; hann hefur staðnað í
daufum natúralískum leikstíl og
ásjóna, sem í öndverðu virtist
hæfilega svipbrigðaknöpp til að
geta aðlagast hvaða hlutverki sem
vera skyldi, er orðin tómleg og
stjörf. Vonandi lagast það. Svo
skemmtilega vill til að tvær af
fyrstu myndum Williams Hurt era
á boðstólum sjónvarpsstöðvanna
hvor á eftir annarri á laugardags-
kvöldið - Staðinn að verki (Eyew-
itness, öðru nafni The Janitor,
1981, Sýn ^21.00) og Blóðhiti
(Body Heat, 1981, Sjónvarp-
ið ►22.50). Sú fyrri er fjölskrúð-
ug, á köflum ótrúverðug en allan
tímann grípandi spennumynd Pet-
er Yates um afskiptalítinn hús-
vörð sem flækist í morðgátu í New
York en sú síðari er fyrsta fiokks
Hitnar undir lögfræðingi -
William Hurt í Blóðhita.
og trúlega sígild sakamálamynd
Lawrence Kasdan um veikgeðja
lögfræðing sem dularfull kyn-
þokkadís (Kathleen Turner) tælir
til að myrða eiginmann sinn í
heitu mistri á Flórída. Blóðhiti er
vel samið afbrigði af „film noir“,
þrungið munúð og spennu. Ég gef
Staðinn að verki ★ ★ 'h og Blóð-
hita ★ ★ ★ 'h
hafa það að deila aðstöðu með tveim-
ur karlkynsnemendum, hinum hlé-
dræga Josh Charles og folanum Steph-
en Baldwin. Þessi þríhyrningur er
ósköp notalegur félagsskapur en
hnyttni myndar Andrews Fleming
leyfír honum að sleppa billega frá
undirliggjandi kynferðisflækjum.
★ ★ 1/2
STÖÐ 2 ►22.50 Sá flinki írski leik-
stjóri Neil Jordan (The Crying Game)
fer heldur flatt á Viðtali við vampír-
una (Interview With The Vampire,
1995), eftir vinsælum bókum Anns
Rice. Stórmyndarstíllinn afhjúpar
tómahljóðið í þessari rómantíseringu
á hlutskipti vampírunnar gegnum tíð-
ina og Jordan hittir ekki á réttar nót-
ur. Heimslið kyntrölla - Tom Cruise,
Brad Pitt, Antonio Banderas, Christ-
ian Slater - er bara hvimleitt. Tölu-
vert sjónarspil engu að síður. ★ ★
STÖÐ 2 ► 1.00 Taugastríð skúrks
sem hyggst endurheimta ránsfeng
sinn og fangelsisstjórans sem gætir
hans - og var raunar löggan sem
handtók hann á sínum tíma - er elds-
neyti kaldhæðins vestra, Hrappurinn
(There WasA Crooked Man, 1970),
sem Joseph L. Macnkiewicz leikstýrir
eftir handriti Roberts Benton og
Davids Newman. Kirk Douglas og
Henry Fonda svíkja engan og það
gerir þessi frekar óvenjulega mynd
ekki heldur. ★ ★ ★
samnefndri mynd í fullri lengd. Um-
sagnir liggja ekki fyrir en í aðalhlut-
verkum eru Jerry O’Connell, Sabrina
iloyd og John Rhys-Davis.
SYN ►22.30 Sakamálamyndin Grín-
istinn (TheJoker, öðru nafniLethal
Obsession, 198 i) fær falleinkunn hjá
Martin og Potter en ★ ★ hjá Block-
buster Video. Hún segir frá tveimur
löggutöffurum upp að hálsi í líkum á
eiturlyijaslóðum. Aðalhlutverk Elliott
Gould, Tahnee Welch, Michael York
og mega bæði Gould og York muna
sinn fífil fegri. Leikstjóri Peter
Patzack.
Laugardagur
SJÓNVARPIÐ ►21.15 Ekkihefég
séð fjölskyldumyndina Leyndarmálið
(From The Mixed-up Files OfMrs.
Basil E. Frankweiler, 1995) en hún
þykir jafn góð og ameríski titillinn er
langur. Tveir knáir krakkar stijúka
að heiman og fela sig í Metropolitan-
safninu. Þar heillast þau af dularfullri
styttu og kynnast eiganda hennar,
frúnni í titlinum, sem leikin er af Laur-
en Bacall. Bráðskemmtileg mynd,
segja Martin og Potter og gefa.
★ ★ ★ ★ Marcus Cole leikstýrir þess-
ari endurgerð myndar frá 1973, þar
sem Ingrid Bergman fór með sama
hlutverk og Bacall.
SJÓNVARPIÐ ►22.50 Sjáumfjöllun
í ramma.
STÖÐ2 ►lö.OOHiðfallegaog
áhrifamikla geimveruævintýri Stevens
Spielberg E.T. (E.T., TheExtra- Terr-
estrial, 1982) er orðið sígilt. Spielberg
hefur löngum látið sér annt um barns-
hugann í bíómyndum sínum, sakleysið
andspænis hugarfarsmengun fullorð-
insheimsins og hér nær hann miklum
árangri. Tæknibrellurnar eru afbragð
án þess að bera söguna ofurliði.
★ ★ ★ ★
STÖÐ2 ^21 .15 Gaman og alvara í
ástum ungra menntaskólanema er við-
fangsefni myndarinnar Þrjú í sömu
sæng (Threesome, 1994), þar sem
Lara Flynn Boyle þarf að láta sig
STÖÐ3 ^20 .50 Nokkrir æskuvinir
á fertugsaldri á þröskuldi fuilorðins-
ábyrgðar er kunnuglegt efni Lífstrés-
ins (Shaking The Tree, 1992). Og
kunnuglegt efnið fær tæplega miðl-
ungsafgreiðslu í þessari mynd leik-
stjórans Duanes Clark. Aðalhlutverk
Arye Gross, Doug Savant og Courten-
ey Cox. ★ 'h
STÖÐ 3 ►22.30 Furðu sætir að
Garry Marshall (Pretty Woman) skuli
vera leikstjóri hinnar mislukkuðu
„djörfu” gamanmyndar Skúrkar í
paradfs (Exit ToEden, 1994) um
forpokaðar löggur í embættiserindum
í suðrænni kynlífsparadís. Púha.
Þokkalegum grínleikurum á borð við
Rosie O’Donnell, Dan Aykroyd, Dana
Delaney og Hector Elizondo er vor-
kunn. ★
STÖÐ3 ►24.00 Engar umsagnir
liggja fyrir um spennumyndina Grím-
an fellur (Green Dolphin Beat) um
tvær löggur í morðingjaleit. Óþekktir
leikarar, þekkt söguefni.
SÝN ►21.00 Sjá umfjöllun í ramma.