Morgunblaðið - 29.11.1996, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996 55
t
3
s
I
J
4
■
i
:
í
<
:
<
<
i
<
i
<
<
i
FRÉTTIR
Mannréttíndi o g
fullveldi
MANNRÉTTINDASKRIFSTOFA
íslands og aðildarfélögin halda op-
inn fund um Evrópusambandið,
mannréttindi og fullveldi á Hóteí
Sögu, Sunnusal, á morgun, laugar-
dag, kl. 14.30. Frummæiandi verð-
ur Allan Rosas, aðalráðgjafi og
framkvæmdastjóri réttarsviðs Evr-
ópusambandsins.
Allan Rosas hóf störf sem aðal-
ráðgjafi og framkvæmdastjóri rétt-
arsviðs Evrópusambandsins árið
1995. Hann hefur verið gestapró-
fessor við Sheffield háskóla í Eng-
landi síðan 1995. Hann var prófess-
or í lpgfræði við háskólann í
Turku/Ábo í Finnlandi 1981-1995,
framkvæmdastjóri Mannréttinda-
stofnunar háskólans 1985-1995,
og fyrsti vararektor þess háskóla
1994-1995. Yfir tvö hundruð
fræðirit og -greinar hafa verið birt-
ar eftir hann, m.a. á sviði þjóðarétt-
ar mannréttinda, mannúðarlaga,
stjórnskipunarréttar, stjórnsýslu-
réttar o.fl.
Jólakaffi Hringsins
HIÐ árlega j ólakaffi Hringsins
verður á Hótel íslandi sunnu-
daginn 1. desember og hefst kl.
13.30.
Hringurinn hefur safnað fé
til styrktar Barnaspítala
Hringsins um áratuga skeið.
Almenningur hefur sýnt félag-
inu mikinn áhuga og tekið þátt
í því að bæta þjónustu við þá
sem þurfa á Barnaspítala að
halda.
Jólakaffið er einn þátturinn
í fjáröflun fyrir Barnaspítalann,
„Þar svigna borð undan kræs-
ingum og happdrættið verður á
sínum stað, en mörg fyrirtæki
og velunnarar Hringsins hafa
gefið góða muni í vinninga,
m.a. tölvu, prentara, sjónvarp
og utanlandsferðir. Auk þess
verður ýmislegt til skemmtun-
ar, s.s. söngur, dans og hljóð-
færaleikur. Allur ágóði rennur
í Barnaspítalasjóð Hringsins,"
segir í fréttatilkynningu frá
Hringnum.
------» 4 4-----
LEIÐRÉTT
Til staðfestingar lögbanni
MÁL fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur, sem getið var í leiðara blaðs-
ins í gær, er höfðað vegna forkaups-
réttar að hlutabréfum Þróunarsjóðs
og þess hvernig skilja beri reglur
um hann. Málið er höfðað til stað-
festingar lögbanni á sölu eignar-
hluts Þróunarsjóðs í Búlandstindi
af heildverzluninni Mata hf og 22
tengdum aðilum, þar sem Þróunar-
sjóður hafði hafnað kröfu þessara
aðila um forkaupsrétt á hlutabréf-
unum. Málið fyrir Héraðsdómi snýst
ekki um það hvort stjórnarmenn
eigi forkaupsrétt. Beðizt er velvirð-
ingar á þessari missögn.
STARFSFÓLK The Dubliner í afmælisskapi.
Basar o g
kaffisala ABC
hjálparstarfs
ABC hjálparstarf verður með bas-
ar og kaffisölu sunnudaginn 1.
desember, frá kl. 14 í Sóltúni 3.
Á basarnum verða seldir hand-
unnir munir. Einnig verður boðið
upp á kaffi, kakó og meðlæti.
Söfnun stendur yfir til að fjár-
magna lóðarkaup, heimili og skóla
fyrir munaðarlaus börn á Indlandi
og fer allur ágóði til að fjármagna
það verkefni.
The Dublin-
er eins árs
ÁR ER liðið á morgun, laugardag,
frá því írska kráin The Dubliner
hóf starfsemi sína að Hafnarstræti
4. í fréttatilkynningu segir að krá-
in hafi þegar tryggt sér sæti á
vinsældalista yfir krár á Islandi
með sérstöku, en The Dubliner er
eina írska kráin hér á landi.
Boðið verður til veizlu á The
Dubliner alla helgina. Frá írlandi
kcmur O’Kane fjölskyldan, átta
manna hljómsveit sem í eru sex
systkini ásamt foreldrum sínum.
O’Kane fjölskyldan mun skemmta
frá kl. 17 í kvöld, föstudag og
annað kvöld, laugardag.
Á laugardag verður bjórinn á
sama verði og í Dublin frá kl. 20
til 23. Ymsar óvæntar uppákomur
verða á laugardagskvöldið, en kl.
24 verður The Dubliner eins árs.
Á sunnudag verður boðið upp á
kaffi og kökur kl. 15-17 og mun
hljómsveitin T-Vertigo spila fyrir
gesti.
Jólakort
Kjarvalsstaða
MYNDIN sýnir málverk eftir ísleif
Konráðsson (1889-1972) ísbirnir og
mörgæsir.
KJ ARV ALSSTAÐIR hafa
gefið út 11 jólakort og sex
gjafakort með myndum af
listaverkum eftir þekkta ís-
lenska listamenn. Verkin
eru eftir Þorvald Skúlason,
Þytur, 1970, Gunnlaug
Scheving, Gamla búðin í
Grindavík, 1961, Ásgrím
Jónsson, Eyjafjallajökull,
1920-22, Kristínu Gunn-
laugsdóttur, Rauður draum-
ur, 1990, Jón Stefánsson,
Hraunteigur við Heklu,
1930, Birgi Snæbjörn Birg-
isson, Stúlka með sítt hár,
1995, Finn Jónsson, Án titils, 1959,
Jóhann Briem, Kýr, Stefán Jónsson,
Burstafells-Blesi, Birgi Andrésson,
Nálægð, 1989 og ísleif Konráðsson,
ísbirnir og mörgæsir. Gjafakortin
prýða myndir eftir Ásgrím Jónsson,
Hrafnabjörg, 1955, Kristfnu Jóns-
dóttur, Uppstilling - blóm, Gunnlaug
Blöndal, Frá höfninni, Eggert Pét-
ursson, Án titils, 1991, Daða Guð-
björnsson, Guiar rósir, 1991 og Guð-
mund Thorsteinsson „Mugg“, Úr
fjölleikahúsi.
Kortin fást í safnaverslun Kjar-
valsstaða sem opin er daglega frá
kl. 10-18.
Seljum í dag
þijú þúsund
2ja kg dósir
HAGKAUP
Þetta verð er næstum
of ótrúlegt tíl að vera satt
- en ekki lýgur Mogginn!
J