Morgunblaðið - 29.11.1996, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996 57
BREF TIL BLAÐSIIMS
Auðlindir og
auðlindaskattar
Frá Júlíusi Ingibergssyni:
Auðlindaskattur
ÞAÐ hefur mikið verið talað og
skrifað um að útgerðir ættu að
greiða skatt fyrir að fá að veiða
fiskinn. Það hefur verið talað um
700 til 800 milljónir króna. Ég vil
fara aðra leið.
Stóru togskipin eiga ekki að fiska
á nærmiðum, þar sem minni bátar
eru: Landróðrabátar sem eru á línu,
færabátar, netabátar, bátar 100
tonn að stærð sem eru á trolli og
snurvoðarbátar.
Þessir minni bátar eiga að hafa
50 sjómílna svæðið fyrir sig. Þetta
vil ég sjá en ekki auðlindaskatt.
Það er síðan margt sem þarf að
laga í sambandi við kvótakerfið.
Það er stýritæki á veiðarnar, en það
hefur ábyggilega ekki verið mein-
ingin að það ætti að leigja eða selja
óveiddan fisk. Þetta verður að laga.
Síld og loðna eru uppsjávarfisk-
ar. Skip sem þessar tegundir veiða
eiga að fá að vera hvar sem er að
veiðum.
Sjávarauðlindir
Hvernig er umgengnin við auð-
lindir hafsins? Það er mikið talað
um að fiski sé hent í sjóinn. Ef
þetta er satt verður „auðlindabank-
inn“ senn gjaldþrota (það viljum við
ekki). -
Frystitogararnir, þar sem allur
fiskur er unninn um borð, eru orðn-
ir margir í eigu íslendinga. Það er
gott að vissu marki. Þessi skip hafa
vélar sem flaka fiskinn og skila
góðri vöru, en þetta verklag bitnar
á fiskimiðunum. Skýring: Það er
öllu hent í sjóinn af fiskinum, flök-
in ein hirt, það er 25% til 30% af
fiskinum. Þetta er slæm nýting.
Hausin, lyfrin, hrognin, beinagarð-
urinn — þetta er dýr vara. Nú og
meira fer í sjóinn, smáfiskurinn.
Hvað verður um stóra fiskinn sem
ekki passar í vélarnar?
Af hveiju eru skipin stóru ekki
útbúin til að nýta allan aflann?
Þetta er mál sem verður að athuga
og laga, ef ekki á illa að fara.
JÚLÍUS INGIBERGSSON,
Glaðheimum 12, Rvk.
Vistaskipti og nám
Frá Ragnheiði Magnúsdóttur:
ÉG undirrituð fór út til Englands
á vegum Vistaskipta og náms
(Þórsgötu) á seinasta ári. Ég hafði
ráðið mig í sex mánaða vinnu á
hóteli í Bournemouth, eins og
margir aðrir íslendingar hafa gert.
Ég get bara ekki setið á mér
lengur um að vara fólk við þess-
ari skrifstofu sem er lítið annað
en peningaplokkari. Ég fátækur
námsmaðurinn borgaði rúmar
80.000 ísl. kr. fyrir utan farseðil-
inn til þess að láta þræla mér út
á hóteli. Ég tek fram að ég var
ekki ein um það, margir íslensku
krakkanna sem voru með mér í
Bournemouth, á þessum tíma eru
á sömu skoðun.
Flest öll fengum við vistarverur
í líkingu við skápa. En það var
ekki það versta. Peningarnir fóru
til umræddrar skrifstofu og ensku-
skóla sem ég var skráð í tvisvar í
viku, oftast gat ég bara mætt einu
sinni í viku því að ég var látin vinna
u.þ.b. 50 tíma á viku (í samningn-
um stóð að 40 tímar væru hámark-
ið) sem gengilbeina.
Aldrei á ævinni hef ég upplifað
eins mikla vinnu og þarna ... þó
hef ég ýmislegt reynt. Launin voru
4.000 ísl. krónur á viku ... já, þið
lásuð rétt. 4.000 ísl. kr.
Við vorum tvær íslenskar stelp-
ur á hótelinu og þegar vinkona
mín var rekin eftir að hafa brotið
einn bolla, fylltist mælirinn og ég
sagði upp störfum eftir 3 mánuði.
Við leituðum á náðir Vistaskipta
og náms, en þar voru allar dyr
lokaðar. Viðbrögðin voru: „Því
gátuð þið ekki bara haldið þetta
út.“ Við vorum s.s. á götunni en
redduðum okkur með því að fá
okkur „mannsæmandi" vinnu!
Ég vildi koma þessari reynslu-
sögu á framfæri til fólks til að
vara það við að kaupa köttinn í
sekknum, sem víti til varnaðar, og
hvetja aðra, sem lentu í svipuðu,
til að láta í sér heyra!
RAGNHEIÐUR M AGNÚ SDÓTTIR,
Njarðarholti 8, Mosfellsbæ.
í VESTMANNAEYJUM lagði lögreglan áherslu á að ökumenn
og farþegar í bílum notuðu bílbeltin. Þeim sem ekki voru með
beltin spennt var boðið að fara í veltu í veltibíl BFÖ og Umferð-
arráðs.
Eru ungir ökumenn
með „rétt“ viðhorf
til umferðarinnar?
Frá Einari Guðmundssyni:
UNGIR ökumenn sem sóttu nám-
skeið á vegum Sjóvá-Almennra
trygginga h.f. í Vestmannaeyjum
og í Reykjavík í október tóku sam-
an nokkra punkta um hvað þeir
hafa lært af því fara á námskeið
hjá Sjóvá-Almennum.
Ekið aftan á
Mörg okkar lentu í að aka aftan
á bíl því það er ein algengasta
orsök árekstra í okkar aldurshópi.
Við teljum að með því að aka á
skikkanlegum hraða, hafa nóg bil
milli bíla og hafa hugann við
aksturinn, getum við forðast að
lenda í slíku. Þá hjálpar það til að
fylgjast með bílunum framar í röð-
inni og að forðast það að aka
þreyttur. Við verðum einnig að
forðast að gera eitthvað annað
meðan við keyrum en að aka. Ef
við höfum bílbeltin spennt og höf-
uðpúðana rétt stillta drögum við
úr hættu á slysi við aftanákeyrslur.
Bakkaðá
Mörg okkar voru óheppin þegar
þau voru að bakka. Slík óhöpp eru
næstalgengasta tjónsorsökin hjá
17-20 ára. Við viljum benda ykkur
á nokkur atriði sem geta hjálpað
ykkur við að bakka á öruggan hátt.
Hafið spegla rétt stillta, notið
þá og lítið vel í kringum bílinn
áður en þið bakkið. Ekki sakar að
líta tvisvar í kring um sig. Bakkið
hægt en örugglega. Þannig sýnið
þið varkárni og öryggi. Munið að
hafa rúður alltaf hreinar. Ef okkur
grunar að aðrir ökumenn hafi ekki
séð til okkar gæti verið gott að
nota flautuna. Gefum öðrum tæki-
færi til að bakka - kannski verður
okkur þá líka sýnd tillitssemi.
Forgangur - Útafakstur
Nokkur okkar lentu í að keyra
útaf eða í árekstri á gatnamótum.
Við viljum benda ykkur á eftirfar-
andi atriði: Stillið hraðanum í hóf.
Fylgist vel með umferðinni í kring-
um ykkur og ekki síst umferðar-
merkjunum. Og munið að fara eft-
ir þeim líka. Til þess eru þau.
Akið alltaf í samræmi við aðstæð-
ur. Munið að hafa dekkin í lagi
og verið vakandi í umferðinni. Við
fórum flatt á því að aka of hratt
í hálku. Varið ykkur sérstaklega
við slíkar aðstæður. Bíllinn þarf
lengri vegalengd til að stöðvast og
erfiðara er að beygja honum.
Til Vestmanneyinga
Að lokum viljum við sem vorum
í Vestmannaeyjum vekja athygli á
lítilli notkun stefnuljósa í Vest-
mannaeyjum og hvetja ökumenn
til að nota þau, til öryggis fyrir
sjálfa sig og aðra vegfarendur. Þá
viljum við biðja ökumenn um að
nota ekki götur bæjarins til fundar-
halda. Þar er átt við að menn stoppi
ekki bíla á götum úti til að spjalla
saman. Þá þurfa menn að gæta
sín betur á gatnamótum og sýna
gangandi vegfarendum tillitssemi.
Hópurinn í Reykjavík vill hvetja
ykkur til að hafa rétt viðhorf til
annarra vegfarenda í umferðinni.
Munum að við erum „hinir“ í aug-
um þeirra. Sýnum því hinum tillits-
semi við aksturinn.
Kveðja frá hópi 21 í Vestmanna-
eyjum og hópi 22 í Reykjavík
SJÓVÁ - ALMENNAR,
EINAR GUÐMUNDSSON,
fræðslustjóri
Tannverndarráð
ráðleggur foreldrum
að gefa börnum sínum
jóladagatöl
án sælgætis
Kínverskt veitingahús
Nýbýlavegi 20, Kópavogi,
Sími 554 5022, fax 554 2333
Takið með heim:
5 rétta máltíð kr. 1.100
2ja rétta máltíð kr. 790
Borðað á staðnum:
5 rétta máltíð kr. 1.250
Veisluþjónusta
Frí heimsending
JRKKRFÚT SEIY1
TEKIÐ ER EFTIR!
jnhKnroTJRKK
nrOT-jnKKHFOT
JHKKnFOT-JRKK
nFÖT-JHKKnFÖT
JHKKHFOT-JHKK
RFOT-JRKKnFOT
JHKKHFÖT-JHKK
RFÖT-JHKKnFQT
JHKKRFOT-JHKK
RFOT-JHKKHFOT
JHKKHFOT-JHKK
RFOT * JHKKHFOT
JHKKHFOT-JRKK
^emantaMúóið
Handsmíðuð
14kt hálsmen
með perlum
'fnihært oerð.
Kringlunni 4-12, sími 588 9944
EX'CELL 2 m
sokkabuxurnar komnar,
nýjasta undrið
gegn appelsínuhúð.
20% afsláttur
af öllum OROBLU sokkab
östud. 29. nóv. og lau£ai®0. nóv.
kl. 13:00 .17:1
Lyfja
Lágmúla 5 ■ Sími 533 23 00