Morgunblaðið - 29.11.1996, Side 28

Morgunblaðið - 29.11.1996, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Skekktar ásjónur MYNDLIST Hafnarborg MANNAMYNDIR Jón Óskar. Opið alla daga frá kl. 12-18, lokað þriðjudaga. Til 9. des- ember. Aðgangur 200 kr. Bók 700 kr. MYNDLISTARMAÐURINN Jón Óskar er iðinn við kolann því vart hefur einni sýningu verið lokað er önnur er í uppsiglingu, og þannig er sýning hans í aðalsölum Hafnar- borgar þriðja sýningin á árinu. Nokkuð mikið í Ijósi þess að þetta er önnur mikils háttar framkvæmd- in, hin var í Listasafni Kópavogs fyrr á árinu, og er nokkur spurn hvað þessi litli markaður þolir. Annað mál er að þessar tvær sýningar kynn gjörólíkar hliðar listamannsins því að á sýningunni í Kópavogi kom Jón Óskar á óvart með eintóna gulum sértækum mál- verkum sem voru alveg nýtt af hans hálfu. Þar var hann trúlega að rífa sig lausan frá frekar einhæfum myndheimi sem fylgt hafði honum frá námsárunum í New York, með sterkum samkynhneigðum vísunum, sem munu hafa verið áhrif frá næsta umhverfi og jafnframt þessari miklu Mekka fijálsra kynlífsathafna, eins og borgin er stundum nefnd. Þótt Jón hafi aldrei sýnt þessar myndir áður munu þær mörgum kunnar af þriðju síðu Alþýðublaðsins, þar sem í eindálki er vitnað í ýmis markverð ummæli úr íj'ölmiðlum. Um er að ræða afmynduð andlit, svolítið í þá áttina og menn sjá sjálfan sig í spe- glasölum skemmtigarða og fjöllista- húsa og er leikurinn stundum ekki ósvipaður máluðum andlitsmyndum Francis Bacon. Þessi ummyndun andlita hefur verið langæ í núlistum frá því að Braque og Picasso komu fram með hana í kúbismanum á í upphafi aldarinnar og sem náði há- marki í list hins síðarnefnda á fjórða áratugnum og var viðvarandi í margri gerð til dauða hans. Svo langt gengur það að margur leggur list og afmyndun að jöfnu, vilja meina að hún hefjist með afmyndun fyrirmyndanna, sem þó er nokkur miskilningur svo sem önnur verk upphafsmannanna sjálfra eru til vitnis um. Kannski á þessi afmyndun í og með að undirstrika forgengileika yfirborðsins en hún markar einnig víðara samhengi, að þrengja sér inn í kjarna persónunnar, magnþrungn- ar ytri aðstæður, innri hræringar og sálarógnir sbr. Guernicu. í annan stað geta andlitin minnt á frumur, verið persónugervingar sáðfrumna í móðurkviði með þá vissu markaða á ásjónunni, að aðeins ein þeirra kemst alla leið, hin hverfi í óminnið. Það eru hundrað jafn stór innrömmuð andlit á sýningu Jóns Óskars, sem er raðað skipulega um alla veggi efra rýmisins og er þetta sterk og hnitmiðuð innsetning. Hvorki frumleg né spennandi í fyrstu, en þó rökrétt og mjög í anda þess sem víða gerist, en hins vegar er ómaksins vert að gefa sér tíma til að rýna í hvert andlit fyrir sig, þá gengur dæmið upp. Þá þrengja sér fram ýmsar þekktar persónur í alveg nýju ljósi og má það undir- strika þau sannindi að ytra byrði upplýsir ekki jafnan það sem inni fyrir býr og sé jafnvel á stundum blekkingin mesta. Þessi margvíslegu sjónrænu áreiti JÓN Óskar: Afmynduð andlit. snertu mun meira við taugakerfi rýnisins en hinir stóru flekar lista- mannsins gerðu áður og líkast til er mun meira til staðar af honum sjálfum í þeim. „Bolavell- ir Almara og indía“ Svcrrissalur MÁLVERK Eggert Magnússon. MÁLARINN Eggert Magnússon hefur lengi verið í fremstu röð ís- lenskra nævista, svo sem menn eru réttilega minntir á í sýningarskrá, jafnframt þeirra hrjúfastur og stór- skornastur í sjón og sem á mynd- fleti. Markaður af striti erfiðis- mannsins og ýmsum ágjöfum á lífs- leiðinni. Eggert hefur haldið nokkrar einkasýningar sem athygli hafa vak- ið og er rýninum minnisstæðust sýn- ing í Listmunahúsinu í Lækjargötu fyrir meira en áratug. Og nú er hann enn og aftur kom- inn, í þetta skipti með nítján birtu- rík málverk í farteskinu sem prýða munu Sverrissal Hafnarborgar næstu vikurnar. „Birturík" er rétta orðið því I annan tíma hefur ekki verið eins mikið af ljósi og innri birtu í dúkum þessa málara og jafnframt eru vinnubrögðin á köflum mun yfir- vegaðri en sést hefur til hans áður. Birtuflæðið er ekki einungis meira fyrir það að listamaðurinn notar mikið af gulum tónum, heldur mun frekar vegna þess að honum tekst að ná fram meira ljósmagni úr lita- heildunum og jafnframt er í þeim meiri skynrænn hrynjandi. Það er þó ekki svo að hann sé að fjarlægj- ast nævismann og taka upp tækni- legri og vitrænni vinnubrögð, heldur hefur hann þróað með sér dýpri sýn á form og liti, sem gerist einnig hjá ýmsum nafnkenndum nævistum úti í heimi er fram sækir Ævintýrin eru allstaðar í nágrenninu í dúkum Eg- gerts, líka í nöfnunum á myndum hans ( sem fyrirsögnin er sótt í ). Þau eru jafnt staðbundin sem fjar- læg og honum munar ekkert um að svissa dulmögnuðum myndsýnum sínum milli heimsálfa. Er jafn mikið niðri fyrir er hann málar fálka í Breiðholti, fund Ameríku, flugskötu- veiðar, og stúlku sem við skoru með hamraveggjum horfir í forundran á undur heimsins, í þessu tilviki út úr myndrammanum á skoðandann. Með þessari sýningu styrkir Egg- ert Magnússon til muna stöðu sína meðal íslenzkra nævista. Vatnslita- myndir Listhús 39 SMÁMYNDIR Jean Posocco. Opin virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá 12-18, sunnudaga 14-18. Til 2. des. Að- gangur ókeypis. JEAN Posocco er franskur að þjóðerni og kom fyrst til íslands árið 1983. Landið heillaði hann frá fyrstu viðkynningu og þar sem hann að eigin sögn meðhöndlar stundum pensla, hefur hann þörf fyrir að deila sýn sinni og hrifningu á land- inu og fyrirbærum þess með öðrum. Allt er þetta mjög góðra gjalda vert og víst fylgir hugur máli í þeim 20 smámyndum, míníatúríum, sem hann hefur hengt upp í hinu litla rými. Það er þó þannig að þegar gerandinn fer sparlegast með efni, og formið er hvað einfaldast, nær hann heillegustum árangri svo sem í myndunum „Akurfjall" (8), „Án titils“ (23) og „Án titils“ 36. Þær eru að auk mun hrifmeiri í út- færslu öllu öðru á sýningunni, en það er hins vegar stórt orð að standa við að vera málari, einkum vatnslitamálari. Bragi Ásgeirsson. ÍÆíéám mmka árval Mkhngt Æ)BIJNAÖARBANKINN KJy HAFNARFIRÐI 4£ y> . \v n i n f ^ Búsáhöld & Gjafavörur - ! ■ X i ' ■ Verslunarmiðstöðin í miðbæ Hafnarfjarðar er tveggja ára. Afmælishátíö veröur alla helgina meö troöfullri dagskrá. Föstudagur Litasamkeppni Leikbæjar/Ritbæjar og Sambíóanna. Pizza X gefur pizzur. Tískusýning frá fataverslunum kl. 17.00. Góögæti frá 10-11. Laugardagur Krakkahópur frá Hress sýnir kl. 14.00. Gunnar Helgason og Felix Bergsson kynna jóladagatal Sjónvarpsins kl. 15.00. Kántrí dansarar og spilarar mæta. Litasamkeppní Leikbæjar/Ritbæjar og Sambíóanna heldur áfram. Sunnudagur Fimleikafélagið Björk meö sýningu kl. 14.00. Hljómsveitin Lúdó og Stefán spila kl. 15.00. Úrslit í litasamkeppninni, vinningar eru Kroppinbaks leikföng og 100 bfómiöar f Sambíóin. Nýtt nafn verslunarmiöstöövarinnar kynnt og verölaun í nafnasamkeppni afhent. Afmælistilboð f öllum verslunum alla helgina. m FILMUR & FRAMKtfLLUN Ewrafmætti Miöbæ - s. 555 2000 H^rrA p H AFM AR FJ D RÐ U R * hArsnyrtistofa C A R T E R DÍSELLA SNYRTIVÖRUVERSLUN KERTA OG GJAFAGALLERÍ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.