Morgunblaðið - 29.11.1996, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 29.11.1996, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Nýjar plötur • SA VANNA tríóið hefur gefíð út geislaplötuna Mættum við fá meira að heyra. Savanna tríóið skipuðu þremenningarnir Þórir Baldursson, Björn G. Björnsson og Troels Bentsen. Þeir fluttu þjóðlög, einsöngslög og frumsamda tónlist með allt öðrum hætti en fólk átti að venjast fram að því. Savanna piltar gripu andblæ bandarískra „folk“ tónlistarmanna á lofti og heimfærðu hann upp á íslenska söngvahefð. Tvær EP plötur komu út 1963 og 1964. Fyrsta breiðskífa þeirra, „Folk songs from Iceland", kom út í nóvember 1964 og inni- hélt 13 íslensk þjóðlög. Nú þegar 35 ár eru liðin frá því að Þórir Baldursson, Bjöm G. Björnsson og Troels Bentsen komu fram í fyrst sinn ásamt fjórum öðr- um félögum sínum á nemendamóti Versló í gamla Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll, koma 25 vinsælustu lög Savanna tríósins út á geislaplötu í endurbættri hljóðvinnslu. Björn G. Bjömsson hefur hannað umbúðir þar sem ljósmyndir úr myndasafni Savanna fylgja ásamt upplýsingum, auk allra söngtexta. Er útgáfan til- einkuð minningu Svavars Gests, fyrmm hljómplötuútgefanda Sav- ann^a tríósins. Útgefandi er Spor hí og annast einnig dreifíngu. Offsetþjónustan sá um fílmuvinnslu, Sony DADB fjöl- faldaði ogannaðist prentun. Leið- beinandi verð er 1.699 kr. • KÖTTURINN sem fer sínar eigin leiðir, geisladiskur og snælda með átján sönglögum eftir Ólaf Hauk Símonar- son við texta eftir hann sjálfan. Sum laganna á Kettinum sem fer sínar eigin leiðir vora á samnefndri hljómplötu er út kom árið 1986 en önnur lög á diskn- um eru ný. Meðal laga á Kettinum sem fer sínar eigin leiðir era Vögguvísa, Hver á fegurst foldu á, Vonarstræti, Súpermann og Fótgöngulag. Nýju lögin era sungin af Agli Olafssyni og heita Kötturinn hennar Millu og Lífíð er stutt. Ýmsir söngvarar koma við sögu á geisladisknum, m.a. Egill Ólafsson, Eiríkur Hauksson, Edda Heiðrún Bachman, Lísa Pálsdóttir og Jóhann Sigurðarson. Hljóðfæra- leikarar era Gunnar Þórðarson, Jón Kjeld Seljeseth og Gunnlaugur Bri- em. Gunnar Þórðarson sá um út- ^-setningar laganna. Útgefandi er ÓHS-hljómplötur. Sporhf. sérum dreifímgu. Geisla- diskurinn kostar 1.499 kr. • SÖNGSVEITIN Leikbræður hefur gefið út geislaplötu með safni laga. Leikbræður var skipuð þeim Gunnari Einarssyni fyrsta tenór, Ástvaldi Magnússyni öðrum tenór, Torfa Magnússyni fyrsta bassa og Friðjóni Þórðarsyni öðram bassa. Lögin Fiskimannaljóð frá Capri og Borgin við sæinn komu út á 78 sn. plötu, en á þeirri plötu nutu þeir undirleiks hljómsveitar Magnúsar Péturssonar. Um líkt leyti hljóðrit- aði Helgi Einarsson vinur þeirra nokkur lög á söngæfíngu og eru - þessar hljóðritanir kjami þess efnis sem nú kemur út á geislaplötu. Ennfremur voru til nokkrar hljóðrit- anir með kvartettinum á lakkplöt- um, sem höfðu geymst mjög illa, en hafa nú verið hreinsaðar og lag- færðar með nútíma hljóðvinnslu- tækni. Á geislaplötunni syngja Leik- bræður flest lögin við píanóundirleik Carls Billich sem sá einnig um að raddsetja lögin. í einu laganna leik- ur Gunnar Sigurgeirsson á píanó og hljómsveit Magnúsar Pétursson- ar leikur undir í tveimur lögum, eins og áður sagði. Lögin sem geislaplat- an geymir eru Litla skáld, lag Gunn- ars Sigurgeirssonar við ljóð Þor- steins Erlingssonar, lagið Óli Lokbrá eftir Carl Billich við ljóð Jakobs Hafstein, sem var einn meðlima MA kvartettsins, lag Gylfa Þ. Gíslasonar við ljóðið Hanna litla eftir borgar- skáldið Tómas Guðmundsson, tvö lög eftir Inga T. Lárusson, Vor, við ljóð Þorsteins Erlingssonar, og Það vorar það vorar, við ljóð Valdimars V. Snævarr, Linditréð eftir Schu- bert, við texta Þórðar Kristleifsson- ar, í Víðihlíð, ljóð Magnúsar Ás- geirssonar við lag eftir H. Kirchner, írska þjóðlagið Nú ertu fjarri, við ljóð Friðjóns Þórðarsonar, sem gerði ennfremur ljóð við erlendu lögin Borgin við sæinn, Við hafið (Haf blikandi haf) og Fiskimannaljóð frá Capri. Að auki eru erlendu lögin Ó, Pepíta, við ljóð Jakobs Jóh. Smára, Bráðum vagga, við ljóð Jóns Jóhannessonar og Draumadísin, við ljóð Jóns Sigurðssonar. Útgefandi erSporehf. ogannast dreifíngu, en einnig er hægt að fá geislaplötur og snældurkeyptar hjá Leikbræðrum sjálfum, Astvaldi Magnússyni, Gunnari Einarssyni og Friðjóni Þórðarsyni. • PÁLL Óskar hefur sent frá sér plötuna Seif, og inniheldur frum- samda melódíska popptónlist með danstakti okkar samtíma. Þetta er fyrsta framsamda plata Páls Óskars síðan diskóplatan Stuð kom út 1993. í millitíðinni hefur ferill Páls þróast og dafnað með plötum eins og Milljón á mann sem unnin var með Milljónamæring- unum og ballöðuplötunni Palli sem kom út í fyrra og var hann kosinn söngvari ársins 1995 fyrir vikið. Einnig hefur hann unnið með popp- sveitinni Unun, leikstýrt tónlistar- myndböndum bæði fyrir sjálfan sig og Risaeðluna, haldið tónleika um allt land og tekið þátt í söngleikjun- um Rocky Horror og Súperstar. Seif var forunnin hér á íslandi, en það var í Jacobs Studios í Lond- on sem Iokavinnslan og upptökur fóru fram, með aðstoð Ken Thom- as. Páll Óskar semur öll lögin í sam- vinnu við ýmsa úr íslenskum tölvu- og tækniheimi. Má þar nefna þá Jóhann Jóhannsson og Pétur Hall- grímsson úr Lhooq, Trausta Har- aldsson úr danshljómsveitinni Fant- asíu, Birki og Bjarka úr Scope og svo Valgeir Sigurðsson úr Birth- mark og Unun. Einnig á Rósa Ing- ólfsdóttir lagið Ræ ég við róður minn á plötunni. Útgefandi erPop, Paul Oscar Productions. Japis sér um dreifímgu. • ÞAÐ er svo undarlegt með unga menn er safnplata með Rún- ari Gunnarssyni. Hann hóf störf með nýstofnaðri bítlahljómsveit, Dátum frá Reykjavík, árið 1965,17 ára unglingur. Vorið 1966 kom útfyrri 4 laga EP plata Dáta, sem innihélt þrjú lög eftir Þóri Baldursson, Alveg ær, Leyndarmál og Kling klang, en eitt lagið, Cadillac, var banda- rískt rokklag. Ári síðar kom út seinni 4 laga plata Dáta og nú brá svo við að öll lögin voru eftir Rún- ar Gunnarsson. Frægast þessara laga er Gvendur á eyrinni. Á þess- ari plötu voru einnig lögin Fyrir þig, Hvers vegna og Konur. Nokkru síðar gekk Rúnar í Sextett Ólafs Gauks og með þeirri hljómsveit söng hann lög sín Undarlegt með unga menn, Kóngur í Kína og Fáð’ ér sykurmola. Ennfremur samdi hann á þessum tíma lagið Pening- ar, sem Hljómar fluttu á fyrri breið- skífu sinni og Gluggann, sem Flow- ers gerðu vinsælt á einu EP glötu sinni sem kom út 1968. Ennfremur söng Rúnar nokkur lög eftir Odd- geir Kristjánsson á einni vinsælustu breiðskífu sjöunda áratugarins sem Sextett Ólafs Gauks gerði árið 1968. Síðustu plötu sína gerði Rún- ar árið 1972 aðeins nokkrum mán- uðum áður en hann lést, rúmlega 24 ára gamall. Öll þessi lög eru á plötunni og að auki lag sem Bubbi Morthens og Rúnar Júlíusson sömdu við ljóð sem Berglind Gunn- arsdóttir orti til minningar um bróður sinn og kom út á plötunni GCD árið 1991. Útgefandi er Spor ehf. og sér einnig um dreifíngu. Sjöundi himinn hannaði umbúðir, Sony DADC sá um fjölföldun ogprentun. Leiðbein- andiverð 1.699 kr. • DEAD Sea Apple er nafnið á þriggja ára gamaili hljómsveit úr Kópavogi sem gefur nú út sína fyrstu geislaplötu, Crash. Á þeim þrem árum sem hljómsveitin hefur verið starfandi hefur liðskipan hald- ist óbreytt, þ.e. Steinarr Logi Nes- heim söngvari, Haraldur Vignir Sveinbjömsson gitar-, hljómborðs- leikari og lagasmiður, Arnþór Þórð- arson bassaleikari, Hannes Heimir Friðbjamarson trommari og Carl Johan Carlsson gítarleikari. Margir hafa komið að Crush ásamt þeim félögum, en sennilega er þáttur Nick Cathcart-Jones upptökustjóra þar einna mestur. í árslok 1995 tókust samningar milli hljómsveitarinnar og enska upptökustjórans Nick Cathcart- Jones um að hann stýrði gerð fyrstu plötu Dead Sea Apple í fullri lengd og hófust þeir þegar handa við að velja lög og móta þau fyrir væntan- legt upptökuferli. Á vordögum ’96 var hafíst handa og var platan tek- in upp víðsvegar um höfuðborgar- svæðið í hljóðverunum Hljóðhamri, Stefi, Gijótnámunni, Hljóðsmiðjunni og Sýrlandi. Lauk vinnsluferlinu á ' hljóðblöndun síðasta lagsins í sept- ember og vinnslu umslags í október 1996. Haukur Már Hauksson og Sjö- undi himinn hönnuðu umbúðir geislaplötunnar Crush. Útgefandi er Spor ehf. og sér ennfremur um dreifíngu. Leiðbein- andi verð er 1.999 kr. Um fílmu- vinnslu sá Offsetþjónustan ogSony DADC annaðist framleiðslu. • RAGNAR Karl Ingason heitir tónlistarmaður frá Blönduósi sem starfað hefur sem trúbador undan- farin ár, auk þess sem hann hefur spilað með ýmsum hljómsveitum í gegnum tíðina. Fyrr á þessu ári stofnaði hann Dúettinn Tromp ásamt sextán ára gamalli söngkonu frá Hvammstanga, Hörpu Þorvalds- dóttur. Geislaplatan Myndirer fyrsta plata þeirra. Lögin á plötunni era 10 talsins og níu þeirra era eft- ir Ragnar Karl en eitt lag er eftir Geir Karlsson og Skúla Þórðarson. Ragnar Karl spilar á kassagítar, mandólín og munnhörpu og helstu aðstoðarmenn eru Jens Hansson, sem stjómaði upptökum og spilaði jafnframt á hljómborð og saxófón, o g Björgvin Gíslason, sem spilar á rafgítar og hljómborð, auk þess sem hann aðstoðaði Jens og Ragnar Karl við útsetningar og hljóðblönd- un. Aðrir sem leika á plötunni eru Hjörtur Howser, Haraldur Þor- steinsson og Ásgeir Óskarsson, allt þjóðkunnir tónlistarmenn. Upptökur fóru fram í Hljóð- hamri, Fljúgandi diskum og Stúdíó Stef. Útgefandi er Dúettinn Tromp. Spor sér um dreifingu. Uppsetning, myndir og hönnun umslags varí höndum fyrirtækisins Hinir sömu sf. frá Sauðárkróki. • UNGIR menn á uppleið er nýj- asta afurð R/ó-manna, þeirra Ólafs Þórðarsonar, Ágústs Atlasonar og Helga Péturssonar. Til viðbótar þeim þremur era textahöfundirinn Jónas Friðrik og tónsmiður þeirra og hljómrænn stjórnandi Gunnar Þórðarson. Fyrir skömmu fóru þeir félagar saman til Irlands þar sem þeir hljóð- rituðu tíu ný lög eftir Gunnar við textaJónasarFriðriks. Gunnar stjórnaði hljóðversvinnunni, en Tómas Tómasson annaðist hljóð- blöndun. Útgefandi er Spor ehf. og sér ennfremur um dreifíngu. Olafur Þórðarson hannaði umbúðirnar. ísa- fold sá um filmuvinnslu ogfram- leiðsla fór fram hjá Sony DADC í Austurríki. • HLJÓMSVEITIN Q4U hefur sent frá sér geisladisk, Q2. Á honum er efni frá árunum 1980-1983. Hún var stofnuð af Steinþóri Stefánssyni þáverandi bassaleikara Fræbb- blanna, Gunnþóri Sigurðssyni, sem var hljóðmaður Utangarðsmanna, Helga trommara og Ellý söngkonu. Þannig skipuð starfaði hljómsveitin 1980-1981 og eitthvað fram á árið 1982. Ýmsar mannabreytingar urðu, m.a. varð Kormákur Geir- harðsson trommari í stað Helga og önnur söngkona, Linda, bættist við. Þannig skipuð lék hljómsveitin í kvikmyndinni Rokk í Reykjavík, og tók að lokum upp öll 30 lög hljóm- sveitarinnar. Af þeim eru 18 á geisladiskinum. Eftir að þessi útgáfa Q4U leyst- ist upp hóf Ellý samstarf við Áma Daníel í hljómsveitinni Handan graf- ar, sem var synthesizersveit. Aðrir meðlimir þeirrar sveitar voru m.a. söngkonan Birna og myndskreytir- inn Oskar Jónasson. Fljótlega fór Gunnþór að vinna með Ellý og Árna Daníel, og nafnið Q4U var tekið upp á ný. Sumarið 1982 bættist gítar- leikarinn Óðinn Guðbrandsson úr Taugadeildinni við, og þannig skip- uð tók hljómsveitin upp átta lög í æfingahúsnæði hljómsveitarinnar á Rauðavatni með trommuheila. Fjög- ur þeirra eru á þessum disk. Haustið 1982 hætti Óðinn og Danny Pollock gekk til liðs við Q4U. Hann hafði áður verið gítarleikari í Utangarðsmönnum og Bodies. Með þessari liðsskipan og TR 808 trommuheila var platan Q1 hljóðrit- uð og Grammið gaf út. Öll sex lög þeirrar plötu eru á geisladiskinum. Vorið 1983 gekk Kormákur trommari að nýju til liðs við Q4U. Hljómsveitin hætti sumrið eftir en hljóðritaði fyrst fjögur lög í Stúdíó Glóra, sem hér era gefín út í fyrsta sinn. Það era fjögur fyrstu lögin á geisladiskinum, Sigurinn, Drauga- saga, Barbie og Miracle man. Á síðastliðnu ári hófu Ellý og Gunnþór starfsemi undir nafninu Q4U áný, ogí sumargekk Árni Daníel til liðs við þau, en hann var þá að ljúka námi í Danmörku. Lengi hafði staðið til að gefa Glórutökurn- ar út. Þegar til átti að taka fundust einnig upptökur með elstu útgáfu hljómsveitarinnar - þær tökur sem gengið hafa undir nafninu Skaf í dag - og tökur frá sumrinu 1982, hinar svokölluðu Rauðavatnstökur. Ákveðið var að hljóðblanda þetta efni upp á nýtt, og gerði Ríkharður Friðriksson í Tölvutónveri Tónlistar- skóla Kópavogs það. Að auki eru á diskinum eitt lag sitt með hvorri hljómsveit, T42 og Þetta er bara kraftaverk, sem skipaðar voru mörgum þeim sömu og störfuðu í Q4U og voru að spá í svipaða hluti í tónlist. Öll hljóðvinnsla fyrir geisla- diskinn fór einnig fram í TTK. Geisladiskurinn ergefinn út í samvinnu viðJapis. • „ÞAR SEM mörg laga Jet Black Joe hafa eingöngu komið út á safnplötum eða aðeins birst á útgáfum þeim sem hafa verið til sölu á erlendum mörkuðum, þótti við hæfi að safnaþessum lögum saman á eina geislaplötu," segir í fréttatilkynningu frá Spori ehf. Einnig hefur vinsælustu lögunum þeirra hér á landi verið bætt við útgáfuna, en samtals eru lögin 20 og spanna 73.13 mínútur í spilun. Meðal þeirra laga sem einvörð- ungu hafa komið út á safnplötum eða á plötum þeirra erlendis eru I Know, I You We, Freedom, This Side Up, Never Mind og Suicide Joe. Meðal laganna sem komið hafa út á plötum Jet Black Joe hér á landi til þessa eru Higher and Hig- her, Freak Out, Rain, Wasn’t For You, Starlight, Falling, Summer Is Gone og You Can Have It All. Umslagshönnun var í höndum Sjöunda himins, Sony DADC í Austurríki sá um framleiðslu. Spor ehf. gefur útog annast dreifingu. Verð hvers eintaks er 1.899 krónur. • SKÍFAN hefur gefið út geisla- plötuna Sígildar sögur, sem hefur að geyma 19 vinsælustu lög hljóm- sveitarinnar Brimklóar en í ár eru 20 ár liðin frá stofnun hljóm- sveitarinnar. Á plötunni er auk þess eitt nýtt lag, sem heitir Ef rót- ararnir kjafta nú frá. Plötunni fylg- ir ágrip af sögu Brimklóar, eftir Jónatan Garðars- son. Sígildar sögur koma einnig út á snældu (kasettu). Á plötunni eru lögin Sagan af Nínu og Geira, Síðan eru liðin mörg ár, í mínu rökkurhjarta, Skólaball, Verðbólgan, Eg mun aldrei gleyma þér, Upp í sveit, Þjóð- vegurinn, Þorskbæn, Mannelska Maja, Ég las það í Samúel, Bak við lokuð gluggatjöld, „Dreifbýlis- búgí“, Herbergið mitt, Síðastasjó- ferðin, Stjúpi, Kaupakonan sem brást, Færeyjar, Rock’n’rokk öll mín bestu ár og Ef rótararnir kjafta nú frá. __ • SKÍFAN hefur gef ið út plötu með tónlistinni úr Djöflaeyjunni en uppistaða tónlistarinnar eru rokklög frá 6. áratugnum. Þá er svokölluð „surf-músík“ áberandi á lagalistanum. Lögin eru síðan tengd með setningum og samræð- um úr kvikmyndinni sjálfri. Björg- vin Halldórsson Björgvin sá um lagaval og útgáfuna, en hann samdi einnig titillag myndarinnar, Þig dreymir kannski engil, sem er að finna á disknum. Lögin á plötunni eru Harlem Nocture, Diamond Head, Rumble, Pipeline, Fiberglass Jungle, All Shook Up, Red River Rock, Hound Dog, Keep On Knockin’, Trouble, It’s Beginning To Look a Lot Like Christmas, Sleep Walk, That’s Al- right Mama, Smoke Gets In Your Eyes, Let It Be Me, Whole Lotta Shakin’ Going On, Rawhide, Great Balls of Fire, He’ll Have To Go, Þig dreymir kannski engil. Auk Björgvins (söngur og gítar) koma við sögu tónlistarflutningsins þau Þórir Baldursson (hljómborð, bassi og bakraddir), Vilhjálmur Guðjónsson (gítar), Einar Scheving (trommur), Rúnar Georgsson (saxófónn), Kristinn Svavarsson (saxófónn), Árni Scheving (víbra- fónn) og Guðrún Gunnarsdóttir (söngur). Upptökumenn voru Gunnar Smári Helgason (hljóð- blöndun), Ari Dan, Arnþór Orlygs- son og Nick Cathcart. Skífan hf. gefur útog dreifir. • FARÍSEARNIR senda frá sér sína fyrstu geislaplötu nú fyrir jólin og ber hún nafn hljómsveitarinnar. Farísearnir leika hrátt og melódískt gítarrokk. Aðal laga- og textahöf- undur hljómsveit- arinnar er Davíð Þór Jónsson, en hann hefur til þessa verið þekkt- ari sem skemmti- kraftur en tónlist- armaður. Aðrir meðlimir Faríse- anna eru: Einar S. Guðmundsson gítarleikari, Jón Gestur Sörtveit trommuleikari, Ragnar Örn Emils- son sólógítarleikari og Sævar Örn Sævarsson bassaleikari. DÞJ gefur plötuna út ogJapis sér um dreifingu. • NÝ GEISLAPLA TA, íslands- tónar, er komin út með ellefu ís- lenskum lögum frá ýmsum tímum, t.d. Hvert örstutt spor, Þú eina hjartans yndið mitt, Systkinin og í draumi sérhvers manns. Lögin eru í útsetningum fyrir panflautu, flautu og gítar. Hljóðfæraleikarar eru Martial Nardeau á flautu, Tryggvi Húbner á gítar og Þórir Ulfarsson á hljómborð, sem sér einnig um forritun og útsetningar fyrir panflautu. Útgefandi er Torfi Ólafsson tón- listarmaður og lagasmiður, um dreifingu sér Sporhf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.