Morgunblaðið - 29.11.1996, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996 39
AÐSENDAR GREINAR
Sjö röksemdir fyrir
einkavæðingii
UM þessar mundir
er Reykjavíkurborg að
hrinda í framkvæmd
nokkrum verkefnum á
sviði einkavæðingar.
Almennt virðist góð
samstaða um þessar
aðgerðir og kemur það
nokkuð á óvart miðað
við það gerningaveður
sem stundum áður hef-
ur verið magnað upp
vegna mála af þessu
tagi. Um leið og rétt
er að fagna einkavæð-
ingunni hjá Reykjavík-
urborg er rétt að minna
á að af hálfu ríkisstjórn-
arinnar, sem nú situr,
hefur lítið þokast í
einkavæðingarátt frá því hún tók við
völdum vorið 1995. Á því þarf að
verða breyting enda hníga flest rök
að því að einkavæðing sé bæði hag-
kvæm og skynsamleg og til þess
fallin að bæta hag alls almennings.
á
Bættur rekstur
Löng reynsla sýnir fram
hagkvæmni einkarekstrar í
samanburði við opinberan rekstur.
Með einkavæðingu má því yfirleitt
bæta afkomu þess fyrirtækis eða
stofnunar sem um er að ræða, m.a.
þar sem ákvarðanataka verður
skilvirkari og markvissari. Að auki
sýnir reynslan að einkafyrirtæki
fylgjast í mörgum tilvikum betur
með þróun á starfssviði sínu og
leggja frekar út í fjárfestingar og
nýsköpun til þess að bæta sam-
keppnisstöðu sína. Með því kann
taprekstri að vera snúið í hagnað,
eða sá hagnaður að aukast, sem
áður var fyrir hendi.
Aukin samkeppni
Einkavæðing eykur samkeppni í
þjóðfélaginu, bæði þegar opnað er
fyrir samkeppni á sviðum þar sem
einokun ríkti áður og einnig þar sem
opinber fyrirtæki nutu áður sam-
keppnisforskots en sitja eftir einka-
væðingu við sama borð og keppinaut-
arnir. Fyrirtæki, sem áður höfðu rík-
ið að bakhjarli, verða þá að standa
sig í samkeppni á grundvelli eigin
verðleika.
Valddreifing
Einkavæðing getur stuðlað að
dreifingu valds í atvinnulífínu enda
er yfirleitt æskilegt að haga sölu
opinberra fyrirtækja með þeim hætti
að eignaraðild verði dreifð. Með
einkavæðingu er dregið úr áhrifum
stjórnmálamanna á stefnumörkun og
í stað pólitískra fyrir-
greiðslusjónarmiða er
farið að byggja rekstur-
inn á arðsemissjónarm-
iðum. Árangur einka-
væðingar er oftast nær
sá að fjöldi hluthafa
kemur að rekstrar-
ákvörðunum í stað fárra
stjórnmálamanna og
skjólstæðinga þeirra.
Hagur neytenda
og skattborgara
batnar
Hagur neytenda og
skattborgara batnar al-
, Birgir mennt við einkavæð-
Ármannsson ingu. í stað opinberra
fyrirtækja í vernduðu
umhverfí sem jafnvel hafa sjálftöku-
rétt hvað varðar gjöld fyrir þjón-
ustuna, koma einkarekin fyrirtæki
Einkavæðing gæti, að
---------------,-----------
mati Birgis Armanns-
sonar, orðið til þess að
styrkja afkomu ríkis-
sjóðs, létta skattbyrði,
bæta þjónustu og lækka
verð til neytenda og
bæta kjör starfsmanna
fyrirtækjanna.
sem búa við strangt aðhald markað-
arins. Slíkt kemur neytendum til
góða enda skilar aukin samkeppni
sér yfírleitt í lægra verði og betri
þjónustu. Skattborgarar hagnast á
einkavæðingunni vegna þess að hún
leiðir til hagkvæmari rekstrar hjá
hinu opinbera. í stað þess að miklir
fjármunir séu bundnir í rekstri ein-
hverra tiltekinna fyrirtækja, eða
jafnvel notaðir til að niðurgreiða
starfsemina, er hægt að veija þeim
á annan hátt. Hin einkavæddu fyrir-
tæki skila í mörgum tilvikum meiru
til ríkissjóðs en þau gerðu sem opin-
ber fyrirtæki og eykur það að sjálf-
sögðu einnig svigrúm til almennra
skattalækkana.
Starfsmenn bera meira
úr býtum
Ætla má að einkafyrirtæki hafi
meiri möguleika en ríkisfyrirtæki til
að umbuna góðu starfsfólki enda
búa þau fyrrnefndu við mun meiri
sveigjanleika í starfsmanna- og
launamálum. Einkavæðing skapar
einnig möguleika á því að starfs-
menn eignist hlut í fyrirtækjum en
slíkt styrkir fyrirtækin og eflir starf-
sandann. Ýmis dæmi eru um slíkt
hér á landi og virðist reynslan af
því góð.
Efling
hlutbr éfamar kaðar
Einkavæðing getur orðið til þess
að stórefla íslenskan hlutabréfa-
markað en öflugur innlendur mark-
aður er mikilvæg forsenda þess að
fólk leggi sparifé sitt í atvinnurekst-
ur. Ef almenningur treystir sér til
að spara með því að kaupa hlutabréf
aukast möguleikar á uppbyggingu
eigin fjár í atvinnulífínu og getur það
orðið til að auðvelda stofnun nýrra
fyrirtækja. Einkavæðing getur þann-
ig stuðlað að nýsköpun og framfara-
sókn í atvinnulífinu.
Bætt fjárhagsstaða
hins opinbera
Tekjur af sölu opinberra fyrir-
tækja geta orðið til þess að bæta
fjárhagsstöðu ríkisins talsvert. Mik-
ilvægt er hins vegar að sölutekjurnar
séu notaðar til þess að greiða eldri
skuldir en ekki nýttar í rekstur.
Hafa verður í huga að um „ein-
greiðslutekjur“ er að ræða, þ.e. ríkið
fær fjármagn við sölu fyrirtækja en
síðan ekki söguna meir. Því er var-
hugavert að láta sölutekjumar renna
til að standa straum af almennum
útgjöldum enda væri þar með ein-
ungis verið að skjóta útgjaldavand-
anum á frest. Þvert á móti er rétt
að nýta tekjurnar til að bæta skulda-
stöðuna og stuðla þannig að því að
skilyrði skapist til að lækka skatta
til frambúðar.
Niðurstaða
Hér að framan hefur verið gerð
grein fyrir sjö mikilvægum röksemd-
um fyrir einkavæðingu. Af þeirri
upptalningu má sjá að víðtæk einka-
væðing hjá ríkinu gæti orðið til þess
að styrkja afkomu ríkissjóðs, létta
skattbyrði af skattgreiðendum, bæta
þjónustu og lækka verð til neytenda,
og síðast en ekki síst til þess að
bæta kjör starfsmanna þeirra fyrir-
tækja, sem yrðu einkavædd. í ljósi
þess er full ástæða til að hvetja ríkis-
stjórnina til að hraða áformum sínum
í þessum efnum.
Hðfuadur er lögfræðingur
Verslunarráðs Islands.
Fyrn j ökulhlaup
í Markarfljóti
Lúðvík Gizurarson
VARNARGARÐAR
eru nú meðfram Mark-
arfljóti. Ánni er því
nokkuð þröngur stakk-
ur skorinn. Áður átti
hún það til (fyrir 1946)
að renna næstum öll
niður Fljótshlíð um
Þverá. Svo rann áin
áfram þvert yfir Hólsá
gegnum Djúpós (fyrir
1922) alla leið út í
Þjórsá. Þar runnu
þessar tvær stórár
saman til sjávar. Einn-
ig átti Markarfljót það
til að leggjast til aust-
urs. Þá gat fljótið
runnið nokkuð langt austur með
Eyjafjöllum, áður en vatnið fann
útfall. Eins og áður sagði halda
varnargarðar Markarfljóti föstu í
ákveðnum farvegi í dag.
Safamýri
Nokkru fyrir ofan Þykkvabæ
var um 1800 stór en graslítil mýri.
Land var þarna víða óslétt og þýft.
Náttúruhamfarir, segir
Lúðvík Gizurarson,
hafa skapað landið.
Sagt er að mikið vatnshlaup hafi
komið í Markarfljót og þaðan í
Þverá á þessum árum. Þá flæddu
Ytri-Rangá og Þverá vestur yfir
mýrina og út í Þjórsá. Árnar báru
með sér vikur og jökulleir. Þetta
sléttaði mýrina og þúfnamóana.
Áburðurinn úr jökulvatninu varð
til þess að öll þessi risastóra mýri
varð þakin gulstör sem varð 1-2
metrar á hæð. Þessu átti fólk erf-
itt með að trúa nema þeir sem
sáu. Allt er þetta samt rakið skil-
merkilega í bók Árna Óla: „Þúsund
ára sveitaþorp" sem Menningar-
sjóður gaf út 1962 um Þykkvabæ-
inn.
Sagt er að gulstörin í Safamýri
hafi sum árin milli 1800 og 1900
gefið 1000 kýrfóður. Þótti störin
eins gott fóður og besta taða. Ekki
þurfti að bera á enda tilbúinn
áburður ekki kominn. Þessi hey-
skapur bjargaði miklu. Á þessum
tíma (1800-1900) komu ítrekað
köld sumur og þá var slæm gras-
spretta. Einnig lagði sandfok í eyði
á seinustu öld mörg túnin í upp-
sveitum Rangárvallasýslu. Heilu
Fyrirsláttur um veðurspár
í MÁLI umhverfis-
ráðherra á Alþingi þann
20. nóv. sl. kom fram
sú fullyrðing að það
væri vegna skorts á
veðurfræðingum að
Veðurstofan sinnir ekki
því hlutverki að fylgjast
með hvernig veðurspár
rætast. Þetta er vægast
sagt fyrirsláttur. í
fyrsta lagi þurfa þessar
rannsóknir að hafa mik-
inn forgang þó að það
sé rétt að veðurfræð-
ingar þyrftu að vera
fleiri en þeir eru. Til
þess að besti áranguv
náist í spánum verður að kanna
hvernig frammistaðan er, til dæmis
í samanburði við spár í öðrum lönd-
um. Þá þarf að vita hvað spánum
hrakar mikið eftir því sem spáð er
til lengri tíma, hvort spánum fer fram
eða hrakar ár frá ári, hvort þær eru
betri eða verri þegar illviðri geisa,
að sumri eða vetri, í innsveitum eða
á annesjum. Þekking á þessu er ein
af undirstöðum þess að leita að end-
urbótum á spánum. Sem betur fer
Páll
Bergþórsson
er þetta ekki óyfirstíg-
anlegt verkefni. Tveir
yfírmenn í spádeild eru
veðurfræðingar og eru
að mestu blessunarlega
lausir við erilsamar
vaktir. Könnun af þessu
tagi geta þeir því sinnt
og hún er síst þýðing-
arminni en önnur skrif-
stofustörf þeirra.
í öðru lagi er það
ekki endilega flókið mál
að fylgjast með hvemig
veðurspár rætast, með
nútíma tölvutækni. Þó
að ekki sé annað er það
þýðingarmikil vísbend-
ing um gæði spánna að tölvurnar
skrái hvaða fylgni er við spár um
vinda, hita og úrkomu á völdum
veðurstöðvum, í innsveitum og á
annesjum, hvort sem um er að ræða
3ja til 12 klukkustunda aðvaranir í
öryggisskyni eða spár allt að 10 dög-
um. Tölvuforrit til þessara nota eru
fáanleg, meðal annars í Evrópustöð-
inni fyrir meðaldrægar spár í Read-
ing í Englandi. Það er auðvitað dálít-
ið verk að hrinda þessu af stað en
Það er ekki endilega
flókið mál, segir
Páll Bergþórsson,
að fylgjast með hvemig
veðurspár rætast.
síðan gengur það að verulegu leyti
af sjálfu sér. Mannekla er engin af-
sökun í þessu máli.
Seint á tímabili starfs míns sem
veðurstofustjóra fól ég núverandi
faglegum yfirmanni spádeildar að
sækja námskeið í Reading um könn-
un á gæðum veðurpánna. Því miður
báru þau fýrirmæli ekki árangur.
Áhugaleysi á þessu verkefni á sér
því nokkrar rætur og á vafalaust
þátt í því hvert ástand þessara mála
er nú á Veðurstofunni.
Fagleg úttekt
er nauðsynleg
Nú á tímum þurfa fyrirtæki að
geta svarað spurningum um gæði
starfseminnar. Ég tel að vanræksla
Veðurstofunnar í því efni sé svo
alvarleg að full þörf sé á hlutlausri
og faglegri úttekt á því hvernig að
veðurspánum er staðið. Fyrir því eru
reyndar mörg önnur rök sem ekki
verða talin að sinni. Það verður gert
ef þörf krefur. Ég hvatti þáverandi
umhverfisráðherra til að láta gera
slíka úttekt þegar ég var veðurstofu-
stjóri en hann treystist ekki til þess,
líklega vegna harðrar andstöðu
sumra starfsmanna. í staðinn voru
þeir látnir gera úttekt á sjálfum
sér. Vonandi hafa aðstæður breyst
svo að núverandi ráðherra Veður-
stofunnar komi í kring nauðsynleg-
um umbótum á því hvernig staðið
er að veðurspám, láti að minnsta
kosti ekki leggja sér í munn villandi
upplýsingar til að fara með á Al-
þingi.
Það er leitt að þurfa að gera
þessa opinberu athugasemd en ég
sé mér ekki annað fært, samvisku
minnar vegna, svo annt er mér um
lífsnauðsynlega starfsemi Veður-
stofunnar.
Höfundur er fyrrverandi
veðurstofustjóri.
jarðirnar fóru í kaf í
foksandinn. Heyskap-
ur var því sóttur víða
að í Safamýri. Hey var
flutt á hestum í allar
áttir. Svo stór var
mýrin og grasgefin að
nánast aldrei var hún
slegin öll. Árið 1922
var hlaðið fyrir Djúp-
ós. Þá flæddi ekki
lengur yfir Safamýri
eins og áður. Heyskap-
ur í þessari grasgjöf-
ulu mýri lagðist því af
smátt og smátt, enda
vantaði nú áburðinn
sem jökulvatnið bar
með sér í fyrri stórhlaupum.
Náttúruhafmarir
í nútímanum gleymum við oft
þvi að náttúruhamfarir hafa skapað
landið. Safamýri varð til með slík-
um hætti. Sagnir eru um, að gos
í Heklu hafi fyllt farveg Ytri-Rang-
ár, fyrir neðan Hellu með sandi og
vikri. Þá flæddi áin yfir bakka sína
og vestur í Þjórsá yfir Safamýrina.
Vel spratt gulstörin á eftir. Éinnig
eru sagnir af stórhlaupum í Mark-
arfljóti vegna þess að jökullinn
bráðnaði. Það getur hafa verið af
eldgosi, þá hljóp flóðaldan niður
Fljótshlíð og yfír Safamýri og út í
Þjórsá. Gróðursæld Safamýrar
jókst enn við jökulforina sem þessi
hlaup báru með sér.
Varnargarðar
Fyrir stuttu var mér bent á að
Markarfljót hefði lagst meira til
vesturs en oft áður. Þungi á varnar-
garða inn af Múlakoti er því mjög
mikill. Jarðskjálftaárið 1896 hagaði
Markarfljót sér eins (sjá bls. 146 í
„Þúsund ára sveitaþorp“).
Að lokum skal bent á að ekki
er gert ráð fyrir neinum stórhlaup-
um í Markarfljóti við mannvirkja-
gerð. Varnargarðar innan við
Múlakot þola ekki meira álag en í
dag er á þeim og láta undan í jökul-
hlaupi. Sagan segir okkur að þau
komi reglulega. Þannig varð Safa-
mýri til en gulstörin stóð þar 1-2
metrar á hæð í 100 ár þar sem ný
og ný stórflóð báru jökulleir á
mýrina.
Farvegur Þverár er nú lokaður
með lítilli og þröngri brú austan
Hvolsvallar hjá bænum Dufþekju
við þjóðveginn um Suðurland. Ef
Markarfljót brýtur varnargarða og
kemur að hluta þarna niður, þá
flæðir jökulvatnið að hálfu í vestur
fyrir neðan Hvolsvöll, en hinn hlut-
inn fer niður Landeyjar. Svo kemst
varla dropi undir brúna og niður
hinn gamla farveg (frá 1946)
Þverár, þar sem honum hefur ver-
ið lokað með mörgum þvergörðum.
Þeir veita flóði út úr farveginum,
sérstaklega niður Landeyjar. Árið
1904 opnaðist Valalækur úr
austurbakka Þverár. Flæddi þá
hluti Þverár niður Landeyjar o'g
tók flóðið af 10-12 jarðir þar á
meðal Skúmstaði. Flóðið 1904
gegnum Valalæk er aðeins lítið
brotabrot af því, sem myndi ger-
ast í dag, ef varnargarðar brotna
innan við Múlakot t.d. í Suður-
landsskjálfta. Markarfljót fellur
mikið til vesturs í dag og lendir
mikið í Þverá, ef eitthvað gefur
sig. Svo hefur gamla farvegi Þver-
ár frá 1946, þegar hún rann sein-
ast niður Fljótshlíð, verið lokað að
mestu. Allt flóðið rennur þá um
sveitina t.d. niður Landeyjar og'
vestur að Hvolsvelli. Ganga þarf
betur frá varnargörðum, svo minni
líkur séu á þessu. Einnig þarf að
opna aftur gamla Þverárfarveginn
frá 1946 svo jökulhlaupið, ef og
þegar það kemur, geti runnið
óhindrað til sjávar.
Höfunur cr hæstaréttarlögmður.