Morgunblaðið - 29.11.1996, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996 51
I
|
I
>
>
>
>
>
>
;
;
I
i
i
T
P
:■
j
0
4-
MINNINGAR
GUÐMUNDUR
ARNLA UGSSON
+ Guðmundur
Arnlaugsson
fæddist í Reykjavík
1. september 1913.
Hann lést á Land-
spítalanum 9. nóv-
ember síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Dómkirkj-
unni 15. nóvember.
Þegar ég kynntist
Guðmundi Arnlaugs-
syni hafði ég ekki hug-
mynd um að hann
væri skákmeistari eða
annálaður stærðfræð-
ingur, hann var einfaldlega faðir
vina minna og ieiksystkina á Öldu-
götu 25 og stóð í háu gengi sem
slíkur, bæði í því húsi og nærliggj-
andi götum. Ég man eftir barnaaf-
mæli þar sem hann beitti grammó-
fóninum til að útlista fyrir okkur
eitthvert lögmál, hann tók leik-
fangabíl og setti á plötuspilarann
og við fylgdumst með því hvernig
hraðinn jókst uns bíllinn skutlaðist
af - þetta hefur sennilega verið
miðflóttaaflið.
En þótt maður hefði kannski
ekkert ofboðslegan áhuga á stærð-
fræði og eðlisfræði bjó Guðmundur
yfir þeim galdri að maður drakk í
sig allt sem hann sagði — þar vó
áreiðanlega þyngst röddin — hóf-
stillt, en líka ofið í hana einhvetjum
seið og tempraðri ástríðu sem lét
annað þagna. Ég man eftir að hafa
staðið í yfirfullum strætisvagni á
háannatíma og í útvarpinu hljómaði
rödd Guðmundar Arnlaugssonar í
skákþætti og allur vagninn hlustaði
bergnuminn!
Faðir Guðmundar, Arnlaugur, er
mér minnisstæður, að upplagi bóndi
úr Flóanum og rak lengi bú þar sem
síðar reis Kólaverksmiðjan við Haga
og Sundlaug Vesturbæjar, fallegur
maður og karlmannlegur með silf-
urhærur og bjó líka yfir þessum
hæga krafti. Fjölskyldur okkar
tengdust vináttuböndum þegar
hann í félagi við afa minn, Þorgeir,
réðist í byggingu stórhýsis við Öldu-
götu. Þar bjó Guðmundur um skeið
á miðhæð með konu sinni, Hall-
dóru, og börnum þremur. Með móð-
ur minni og Halldóru tókst ævivin-
átta og ég held að ekki sé hallað á
neina af fjölmörgum vinkonum
móður minnar þótt ég segi að Hall-
dóra hafi átt fáa jafningja í per-
sónutöfrum og skemmtilegheitum.
Þótt seinna skildu leiðir eins og
gengur þegar fólk flytur í fjarlæg
hverfi, var alltaf stutt á milli í and-
anum og í hvert skipti sem maður
hitti Guðmund var eins og við hefð-
um verið í barnaafmæli síðast í
gær. Fyrir nokkrum árum fékk ég
hann til liðs við mig í
þætti sem þau misseri
var á dagskrá sjón-
varps: Ljóðið mitt. Guð-
mundur valdi sitt Ijóð
og kynnti með öllum
sínum töfrum, en eins
og jafnan í sjónvarpi
klúðraðist upptakan og
þurfti að endurtaka og
ég man hvað mig tók
það sárt, því nú myndi
galdurinn fara forgörð-
um í endurtekningunni.
En það var öðru nær,
fjórum sinnum klikkaði
„tæknin" og alltaf var
Guðmundur jafn yfirvegaður og
alltaf voru töfrarnir jafn eðlilega á
sínum stað.
Þótt Guðmundur léti af störfum
skólameistara og árin færðust yfir
var lítið lát á forvitni hans og
áhuga. Frækileg er þýðing hans á
Sögu tímans eftir Hawkins sem
Bókmenntafélagið gaf út árið 1990,
aðeins tveimur árum eftir frumbirt-
ingu, einhver alskemmtilegasta bók
sem út hefur komið á öldinni og
viðfangsefnið hvorki meira né
minna en alheimsgátan. Tiibúin í
handriti mun vera önnur þýðing
Guðmundar á hliðstæðu verki: „The
First Three Minutes" (Ár var alda)
eftir Steven Weinberg.
En af öllum verkum Guðmundar
(í Þjóðarbókhlöðu eru yfir fjörutíu
færslur á hans nafni) er mér efst
í huga Hvers vegna vegna þess sem
út kom í tveimur bindum árin
1956-57 og byijar svona:
„Þú situr inni í herberginu þínu
kyrrlátt vetrarkvöld og lest í bók.
Allt er kyrrt og hljótt umhverfis
þig, þögnin umlykur allt, kyrrðin
hvílir á öllu, engin óró, engin hreyf-
ing. Kyrrlátt ljós lampans lýsir upp
blað bókarinnar, loftið er notalega
hlýtt og kyrrt. En eru kyrrðin og
hreyfingarleysið jafn alger og þér
virðist? Er óhætt að treysta þvi að
hlutirnir séu í raun og veru eins
og þeir koma okkur fyrir sjónir án
frekari athugunar? Hvað er ljós og
hvað er loft?“
Og síðan var alheimurinn útlist-
aður allt frá dyrabjöllu upp í kjarn-
orkusprengju með viðkomu í eilífð-
arvél. Og búningurinn var þessi
undursamlega rödd - ógleymanleg
öllum sem heyrðu.
Pétur Gunnarsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN AÐALHEIÐUR
JÓHANNSDÓTTIR,
Bjarkarbraut 15,
Dalvik,
sem andaðist í Dalbæ á Dalvík fimmtu-
daginn 21. nóvember, verður jarðsung-
in frá Dalvíkurkirkju laugardaginn
30. nóvember kl. 13.30.
Þeir, sem'vilja minnast hinnar látnu,
eru beðnir að láta Slysavarnafélag íslands njóta þess.
Rannveig Hjaltadóttir, Karl Geirmundsson,
Anna Bára Hjaltadóttir, Trausti Þorsteinsson,
Kristrún Hjaltadóttir, Óskar S. Einarsson
og barnabörn.
t
Við sendum innilegar þakkir fyrir
auðsýnda virðngu, samúð og vinarhug
vegna andláts
GUÐMUNDAR
ARNLAUGSSONAR
fyrrverandi rektors.
Alda Snæhólm,
Ólafur Guðmundsson, Liz Guðmundsson,
Arnlaugur Guðmundsson, Anna Kristjánsdóttir,
Guðrún Guðmundsdóttir, Björgvin Viglundsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HELGA ÁGÚSTSDÓTTIR, Hamragerði 12, Akureyri, lést fimmtudaginn 28. nóvember. Ágúst Steinsson, Baldur Ágústsson, Anna María Hallsdóttir, Vilhelm Agústsson, Edda Vilhjálmsdóttir, Birgir Ágústsson, Inga Þóra Baldvins, Skúli Ágústsson, Fjóla Stefánsdóttir, Eyjólfur Ágústsson, Sigríður Sigþórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LAUFEY ÁRNADÓTTIR, Neðstaleiti 5, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 24. nóvember sl., verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 2. desember kl. 15.00. Ingveldur Eyjólfsdóttir, Helena Eyjólfsdóttir, Eygló Eyjólfsdóttir, Guðmun Eyjólfur B. Gíslason, Mary Jan Bjargey G. Gisladóttir, Einar H. barnabörn og barnabarn dur Guðbjörnsson, e Rupert, Sigurðsson, abörn.
t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og lang- afa, ÓLAFS E. EINARSSONAR stórkaupmanns frá Garðhúsum í Grindavik, siðasttil heimilis á Hrafnistu í Reykjavik. Einar G. Ólafsson, Sigríðui Steinunn Ólafsdóttir, Ólafur F Ólafur E. Ólafsson, Þorbjör barnabörn og barnaba Þóra Bjarnadóttir, lallgrimsson, g Jónsdóttir, rnabörn.
+ Innilegar þakkir færum við þeim fjöl- mörgu, sem sýndu okkur samúð og vin- arhug við andlát og útför ástkærrar eig- inkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu, systur og mágkonu, JÓNU SIGRÚNAR SIMONARDÓTTUR, Hrauntúni 61, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir færum við séra Bjarna Karlssyni og félögum í Oddfellowstúkunni F Eðvarð Þór Jónsson Símon Þór Eðvarðsson, Elfn Sigr Sigurjón Eðvarðsson, Elísa Kri Aron Máni Símonarso Birgir Símonarson, Klara Ber ■■Miiii V • l erjólfi. 'ður Björnsdóttir, stmannsdóttir, n. gsdóttir.
RA0AUGÍ YSINGAR
NAUÐUNGARSAiA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Aðalgötu 7, Stykkis-
hólmi, þriðjudaginn 3. desember 1996, kl. 10.00 á eftirfarandi eignum:
Austurgata 6, Stykkishólmi, þingl. eig. Bergsveinn Gestsson, gerðar-
beiðandi innheimtumaður ríkissjóðs.
Fiskimjölsverksmiðja, (Hausthús), ásamt tilh. vélum, tækjum og
áhöldum, Snæfellsbæ, þingl. eig. Otgerðarfélagið Óðinn ehf., gerðar-
beiðendur Fiskveiðasjóður íslands og Landsbanki Islands.
Fiskimjölsverksmiðja, mjölgeymsla og lifrarbræðsla, ásamt tilh. vél-
um, tækjum og áhöldum, Snæfellsbæ, þingl. eig. Útgerðarfélagið
Óðinn ehf., gerðarbeiðendur Fiskveiðasjóður Islands og Landsbanki
Islands.
Skólabraut 4, Snæfellsbæ, þingl. eig. Aðalheiður Másdóttir og Sölvi
Guðmundsson, gerðarbeiðendur innheimtumaður rikissjóðs og Vá-
tryggingafélag fslands hf.
Sundabakki 10, Stykkishólmi, þingl. eig. Eggert Sigurðsson, gerðar-
beiðandi innheimtumaður ríkissjóðs.
Sýslumaðurinn ÍStykkishólmi,
28. nóvember 1996.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hörðuvöilum 1,
Selfossi, þriðjudaginn 3. desember kl. 10.00 á eftirfarandi eignum:
Breiðamörk 25, Hveragerði, þingl. eig. Hrefna Halldórsdóttir, gerðar-
beiðendur Búnaðarbanki Islands 303, Byggðastofnun, Ferðamála-
sjóður, Húsasmiðjan hf., Kaupfélag Árnesinga, Landsbanki fslands
0101 og S.G. Einingahús hf.
Grundartjörn 11, Selfossi, þingl. eig. Björn H. Eiriksson og Arnheið-
ur H. Bjarnadóttir, gerðarbeiðandi Karl Ó. Hjaltason.
Heiðarbrún 57, Hveragerði, þingl. eig. Sigursteinn Tómasson, gerðar-
beiðendur Byggðasel hf., Byggingarsjóður ríkisins, Hveragerðisbær
og Vátryggingafélag fslands hf.
Hrísholt, Laugarvatni, þingl. eig. Sigurður Sigurðsson, gerðarþeið-
endur Byggingarsjóður ríkisins, Heilþrigðiseftirlit Suðurlands, Lífeyr-
issjóður verkalýðsfélaga á Suðurlandi og sýslumaðurinn á Selfossi.
Lindarskógar 6-8, Laugarvatni (eignarhl. gþ.), þingl. eig. Sigurður
Sigurðsson og Ásvélar hf., gerðarbeiðendur Fjölhönnun hf., Laugar-
dalshreppur, Ríkissjóður og sýslumaðurinn á Selfossi.
Mánavegur 6, Selfossi, þingl. eig. Selma Egilsdóttir og Valdimar
Karlsson, gerðarbeiðendur Landsbanki fslands 0152, S.G. Eininga-
hús hf. og Vátryggingafélag Islands hf.
Sýslumaöurinn á Selfossi,
28. nóvember 1996.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 1,
ísafirði, þriðjudaginn 3. desember 1996 kl. 14.00 á eftirfarandi
eignum:
Fjarðargata 30, 0101, Þingeyri, þingl. eig. Húsnæðisnefnd ísafjarðar-
bæjar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Fjarðargata 30, 0201, Þingeyri, þingl. eig. Húsnæðisnefnd ísafjarðar-
bæjar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Fjarðargata 30,0203, Þingeyri, þingl. eig. Húsnæðisnefnd (safjarðar-
bæjar, geröarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Fjarðargata 30, 0205, Þingeyri, þingl. eig. Húsnæðisnefnd Isafjarðar-
bæjar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Mjallargata 6, 0101, Isafirði, þingl. eig. Kamilla Thorarensen, Rós-
mundur Skarphéðinsson og Lífeyrissjóður Vestfirðinga, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður ríkisins.
Sætún 12, 0202, Suðureyri, þingl. eig. Húsnæðisnefnd Isafjarðarbæj-
ar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Túngata 27, n.h., Suðureyri, þingl. eig. Hjördís M. Guðmundsdóttir,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Sýslumaðurinn á Isafirði,
28. nóvember 1996.