Morgunblaðið - 29.11.1996, Síða 53
FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996 53
FRETTIR
Kvikmynda-
sýning í Nor-
ræna húsinu
KVIKMYNDASÝNINGAR fyrir börn
og unglinga eru í Norræna húsinu
alla sunnudaga kl. 14.
Sunnudaginn 1. desember verður
sýnd norska brúðumyndin „Fláklypa
- Bjergkobing Grand Prix“. í mynd-
inni kynnumst við hjólaviðgerða- og
uppfinningamanninum Teodor Fælg-
en og tveimur vinum hans, Sofusi
(sem alltaf er jákvæður) og Ludvig
(óþolandi neikvæður). Þessir þrír
kumpánar búa saman uppi í fjöllum
í bænum Bjergkobing. Þeir lenda í
ótrúlegum ævintýrum og smíða m.a.
töfrabíl.
Kvikmyndin er með dönsku tali
og er aðgangur ókeypis.
----» » ♦----
Laufabrauðs-
dagur
í Gjábakka
GJÁBAKKI, félags- og þjónustumið-
stöð eldri borgara í Kópavogi, heldur
sinn árlega laufabrauðsdag á morgun,
laugardag, og verður húsið opnað kl.
13.30.
Þá verður hafist handa við að skera
í laufabrauðskökur sem verða tilbúnar
á staðnum. Kökumar verða síðan
steiktar og seldar á kostnaðanrerði.
Þeir sem ætla að skera út þurfa að
taka með sér skurðbretti og áhöld til
að skera út með, t.d. lítinn hníf.
Samkór Kópavogs syngur kl. 14
og kór Kvennaskólans í Reykjavík
kl. 14.20. Að lokum leika nemendur
úr Tónlistarskóla Kópavogs á fiðlu
og píanó. Heitt verður á könnunni
og heimabakað meðlæti. Allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
------» ♦ »------
Tuttugu ára af-
mæli Félags-
miðstöðvar-
innar Bústaða
UM ÞESSAR mundir eru tuttugu ár
liðin frá því að félagsmiðstöðin Bú-
staðir, sem starfrækt er af íþrótta-
og tómstundaráði Reykjavíkur, hóf
starfsemi sína. Af því tilefni verður
haldin afmælisveisla í félagsmiðstöð-
inni á morgun, laugardag, frá kl.
14-17. Allir unglingar í hverfinu
ásamt foreldrum sínum, gamlir ungl-
ingar og aðrir velunnarar eru vel-
komnir. í afmælisveislunni verður
sýndur afrakstur úr smiðjuvinnu
unglinga og hægt verður að skoða
gamlar myndir úr starfinu. Einnig
verður boðið upp á stutta skemmti-
dagskrá og veitingar.
Athugasemd
VEGNA orða sem höfð eru eftir
Tómasi Inga Olrich í Morgunblaðinu
í gær, viljum við undirritaðir taka
fram:
1. Ríkisspítalar og Sjúkrahús
Reykjavíkur hafa ekki „boðið í sér-
fræðinga sem eru fyrir norðan“. Til
þess hafa þau ekki bolmagn, hvorki
fé neð aðstöðu. Ekki er heldur þörf
á því þar sem nánast alltaf eru marg-
ir umsækjendur um hveija auglýsta
stöðu.
2. Af fréttinni um vanda hjarta-
sjúklinga á Norðurlandi má ætla að
fyrst og fremst sé verið að ræða um
sjúklinga sem þurfa að komast til
sérfræðings en eru ekki að bíða
sjúkrahúsvistar. Sjúkrahúsin hér
hafa ekkert bolmagn til að sinna
vanda þeirra sjúklinga og gera ekki
kröfu til þess.
Á höfuðborgarsvæðinu er vandi
þeirra leystur nær eingöngu á stofum
sjálfstætt starfandi lækna, sem er
ódýrari kostur.
3. Hjartadeildir sjúkrahúsanna í
Reykjavík sinna nær eingöngu
vandamálum sjúklinga sem ekki er
hægt að sinna utan sjúkrahúss eða
á minni sjúkrahúsum, enda búin
tækjum til þess og hafa upp á að
bjóða fjölþætta stoðþjónustu sem
þarf að nýta við flóknar aðgerðir.
Sjúkrahúsin sinna sjúklingum hvað-
anæva af landinu, þ.e. þau eru
sjúkrahús allra landsmanna.
4. Það er afleitt þegar fulltrúar
landsbyggðarinnar sjá það helst, sem
lausn á sínum vanda, að vekja ósætti
milli höfuðborgarsvæðisins og lands-
byggðarinnar. Það skaðar báða aðila.
Jóhannes Gunnarsson, lækn-
ingaforstjóri Sjúkrahúss
Reykjavíkur, Þorvaldur Veig-
ar Guðmundsson, lækninga-
forstjóri Ríkisspítala.
euphorbia pulcherrima
Staðsetning: Plantan þarf að njóta góðrar
birtu. Kjörhitastig er um
20°C.
Vökvun: Haldið moldinni rakri.
Áburðargjöf er ekki
nauðsynleg á blómgunar-
tímanum.
Athugið: Plantan er viðkvæm fyrir
dragsúg og kulda, því er
nauðsynlegt að söluaðilar
pakki henni vel inn fyrir
viðskiptavini sína.
Blómaframleiðendur
Innilegt þakklœti votta ég öllum þeim, sem
sendu mér kveðjur og glöddu mig með öðrum
hœtti á sjötugsafmœli mínu.
Sigurjón Björnsson.
tllllllllllllllllllllllllllllllUli^
| Húsbyggjendur-Lóðahafar
i Tœknideild Ó. Joltnson & Kaaber kynnir útveggjakerfi frá Lindab:
! Efni sem hvorki fúnar né grotnar niður vegna alkalískemmda
i Efni sem þolir frost og votviðri og byggingartími því ekki bundinn árstíðum
i Efni sem er fyrirferðarlítið og létt í flutningum sem og í uppsetningu
1 Efni sem býður upp á mikla möguleika í allri útfærslu
Efni sem ekki brennur
i Opið húsað Vesturholti 14, Hafharfirði,
\ 0 laugardaginn 30. nóvember kl. 13-16. Þaö verður heitt á kötuiunni.
8
5
TÆKNIDEILD ÓJ&K
ön
UGGt’i'
Nýtt og spennandi
Laugavegi 28b Sími 551 6513 - 552 3535 - Fax 562 4762
Urval smárétta í Sjanghæ
Hollt og gott í hádeginu
Nú bjóðum við DIM SUM, - holla,
létta og góða kínverska smárétti í
hádeginu.
Það er gömul hefð í Suður-Kína að fá
sér DIM SUM í hádeginu.
DIM SUM er samnefni yfir ýmsa létta
smárétti, sem yfirleitt eru gufusoðnir
í bastkörfum eða bambuspottum.
Venjan er að fá sér sitt lítið af hverju,
marga smárétti saman á disk.
A DIM SUM hádegismatseðlinum
okkar eru fjölbreyttir réttir,
þeirra á meðal:
Svínakjöt Shau Mai
Nautakjöt Shau Mai
Loi mai-kai með svínakjötl og grænmeti
Pao með svínakjöti og grænmeti
Gufusoðnar rækjubollur
(dumpHngs) Har Kow
Gufusoðnar kjötbollur
(dumplings) Shwei Jaudz
Sætar sesambollur
DIM SUM - fyrirtaks hádegisverður!
l/l/lj / KAUPFÉLAG VESTUR-HÚNVETNINGA
l\. W ■■ / Strandgötu 1 • 530 Hvammstanga • Sími 451 - 2370
greiðir í Umhverfissjóð Verslunarinnar
'Sa
UMHVERFISSJOÐUR
VERSLUNARINNAR