Morgunblaðið - 29.11.1996, Blaðsíða 68
HEIMILISLÍNAN
- Heildarlausri ájjármálum
einslakliriga
0 BÚNAÐARBANKI (SLANDS
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(S>CENTRUM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1
FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Haukur Snorrason
Jakinn klifinn
BJÖRGUNARSVEITARMENN
voru fyrir skömmu við æfingar í
ísklifri á ísjökum í farvegi Gígju
á Skeiðarársandi. Var myndin tek-
in við það tækifæri en ekki við
egypska píramíta eins og ætla
mætti við fyrstu sýn. Búist er við
miklum straumi ferðamanna á
sandinn nú þegar vegurinn yfir
hann hefur verið opnaður og er
rétt að brýna fyrir ferðafólki að
fara varlega.
Geimferð Bjarna Tryggvasonar
ákveðin 17. júlí 1997
„Eykur á
eftirvænt-
inguna að
geimnum“
„ÞAÐ eykur á eftirvæntinguna að
braut geimferjunnar liggur yfir
Kanada og ég ætti að geta séð
ísland út við sjóndeildarhring, og
það er víst að þangað mun ég
mæna og reyna að sjá gömlu ætt-
jörðina, sem ég hef ekki séð frá
því ég fluttist til Kanada sjö ára
gamall,“ segir Bjarni Tryggvason,
geimfari.
Akveðið hefur verið, að Bjarni
taki þátt í leiðangri bandarísku
geimfeijunnar Discovery, sem
skotið verður á loft 17. júlí á næsta
ári. Sex menn verða í áhöfn og
farafjórirþeirra, þ. á m. Bjarni,
í sína fyrstu ferð. „Við verðum
11 daga í geimnum og förum 176
ferðir umhverfis jörðina. I mörg-
um þeirra ættiað vera mögulegt
að sjá heim til Islands og það tæki-
færi læt ég ekki ónotað," sagði
Bjarni í samtali við Morgunblaðið.
Hann verður fyrsti maðurinn,
sem fæddur er á Norðurlöndum,
til að fara út í geiminn og á vegum
bandarísku geimferðastofnunar-
innar (NASA) hefur mönnum frá
einungis 16 löndum verið skotið á
loft.
„Ég er auðvitað í sjöunda himni
BJARNI Tryggvason geimfari.
yfir að ferðin skuli hafa verið
ákveðin og nú hefst tilhlökkunin.
Að vísu hef ég unnið í nokkur ár
að hönnun tækjabúnaðar og til-
raunum sem miðuðu við geimferð
um þetta leyti. En nú sér fyrir
endann á margra ára undirbún-
ingi og ferðin er ekki lengur tak-
mark, heldur að verða að veru-
leika,“ sagði Bjarni.
í ferðinni mun Bjarni Tryggva-
son gera tilraunir með sérstakt
tæki sem hann hefur þróað og
notað verður í stórri alþjóðlegri
geimstöð, sem byijað verður að
smíða í geimnum í nóvember á
næsta ári.
Bjarni fæddistí Reykjavík 1945
en flutti á áttunda ári til Nova
Scotia í Kanada og síðar Vancou-
ver með foreldrum sínum, Svavari
Tryggvasyni skipstjóra ættuðum
úr Svarfaðardal og Sveinbjörgu
Haraldsdóttur kennara frá
ísafirði.
í gær var Bjarni staddur í
Moskvu vegna tilrauna, sem nú
eru gerðar um borð í rússnesku
geimstöðinni Mír, með búnað sem
hann hefur hannað og þróað.
Síðustu læknisað-
gerðirnar á Landa-
koti gerðar í dag
I DAG verða gerðar þijár augn-
skurðaðgerðir á Landakotsspítala,
þær síðustu í 94 ára sögu augn-
lækninga þar á bæ, en í næstu
viku flyst öll starfsemi augndeild-
arinnar yfir á Landspítalann.
Með flutningi augndeildarinnar
leggjast af eiginlegar læknisað-
gerðir á Landakoti og spítalinn
verður framvegis öldrunarspítali.
St. Jósefssystur reistu spítalann
og hófu starfrækslu sjúkrahúss
árið 1902.
„Björn Ólafsson, fyrsti íslenski
augnlæknirinn, gerði fyrstu augn-
aðgerðirnar á Landakotsspítala
' ~ árið 1902 og segja má að hér
hafi alla tíð síðan verið höfuð-
stöðvar augnskurðaðgerða á ís-
landi,“ sagði Friðbert Jónasson,
yfirlæknir á augndeild Landakots
í gær.
Sjálfur hefur Friðbert starfað á
deildinni í átján ár. Hann segir að
því fylgi nokkuð blendnar tilfinn-
ingar að flytja frá Landakoti. „Hér
hefur verið unnið farsælt starf en
við erum iíka bjartsýn á að þetta
gangi vel á Landspítalanum."
Gert er ráð fyrir að starfsemi
augndeildarinnar á Landspítalan-
um verði komin í eðlilegt horf eft-
ir flutningana aðra vikuna í des-
ember.
Fimm sjávarútvegsfyrirtæki á Vestfjörðum
Rætt um samstarf
eða sameiningu
FIMM sjávarútvegsfyrirtæki á
Vestfjörðum, með samtals um 15
til 16 þúsund tonna kvóta í þorskí-
gildum talið, hafa að undanförnu
átt í óformlegum viðræðum um
möguleika á samstarfi eða samein-
ingu, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins.
Fyrirtækin eru Frosti í Súðavík,
Hraðfrystihúsið í Hnífsdal, Bakka-
fyrirtækin í Hnífsdal og Bolungar-
vík og Kambu- á Flateyri.
Frumathugun á
möguleikunum
Fram hefur farið frumathugun
á möguleikum á aukinni hagræð-
ingu í rekstri fyrirtækjanna, m.a.
með tilliti til nýtingar bættra sam-
gangna á Vestfjörðum með til-
komu Vestfjarðaganga. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins tóku Gunnvör á Isafirði
og íshúsfélag ísfirðinga einnig
þátt í gerð frumathugunarinnar.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins hafa fyrirtækin hvert um sig
haft niðurstöður frumathugunar-
innar til skoðunar og forsvarsmenn
þeirra rætt saman sín á milli, en
ekki hefur verið tekin ákvörðun
um næsta skref. Líklegt er talið
að frekari athugun verði látin fara
fram áður en endanlega verður
ákveðið hvaða stefna verður tekin
í viðræðunum.
Lögfræðiálit til Þróunarsjóðs um stöðu stjórnarmanna
Eiga ekki forkaupsrétt
STJÓRNARMENN í fyrirtækjum
sem Þróunarsjóður sjávarútvegsins
á eignarhlut í teljast ekki til starfs-
manna fyrirtækjanna og eiga þar
af leiðandi ekki forkaupsrétt að
eignarhlut í félögunum.
Þetta er niðurstaða lögfræðiálits
sem sjóðurinn óskaði eftir. Þremur
stjórnarmönnum í Búlandstindi á
Djúpavogi og einum stjórnarmanni
í Meitlinum í Þorlákshöfn, sem
sendu inn kauptilboð í fyrirtækin
eftir að þeim hafði verið boðinn
forkaupsréttur, verður skýrt frá
því að þeim standi þessi forkaups-
réttur ekki til boða.
Hinrik Greipsson, framkvæmda-
stjóri Þróunarsjóðs, sagði að niður-
staða lögfræðiálitsins væri sú að
stjórnarmenn teldust ekki til
starfsmanna í skilningi laga um
Þróunarsjóð og ættu þar af leið-
andi ekki forkaupsrétt að eignar-
hlut í félögunum, eins og starfs-
menn og hluthafar eiga eftir að
stjórn sjóðsins hefur samþykkt til-
boð í eignarhluti sjóðsins í fyrir-
tækjum.
■ Stjórnarmenn eiga ekki/16