Morgunblaðið - 12.01.1997, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.01.1997, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ > Moltke greifi breytti tugthúsi í konungsgarð Forseti íslands ætlar að bjóða íslendingum í Kaupmannahöfn til kaffídrykkju í höll Moltkes við Breiðgötu á mánudag þar sem hann er staddur vegna afmælis drottningar. Pétur Pétursson kann að rekja flestum —————— — betur tengsl Moltke-ættarinnar við Island og forsetasetrið, en Moltke greifi var stift- amtmaður á íslandi 1819-23. INÝJASTA hefti danska tíma- ritsins Heraldisk Tidskrift er fróðleg grein, sem fjallar um skjaldarmerki aðalsætt- ar, sem rekur kyn sitt til fursta- dæmisins Mecklenburg. Aðalsætt þessi kemur víða við sögu Þýska- lands, Danmerkur og íslands. Hér er um að ræða fjölda nafnkunnra manna, sem kenndu sig við Moltke, en höfðu í skjaldarmerki sínu þijá fugla, af ætt orra. Svo sem fram kemur í grein Pouls Holtstein í tímaritinu sem til er vitnað, hefir Moltekættin tengst ýmsum öðrum aðalsættum og birt- ist með grein höfndar fjöldi til- brigða við upprunalegt skjaldar- merki Moltkeættarinnar. Því hefir lítt verið haldið á loft, að einnig hér á landi hefir skjaldarmerki Moltkeættar lengi gnæft á sögu- frægum stað, án þess að sérstök athygli væri á því vakin. Hér er átt við Bessastaði. Yfir dyrum Bessastaðakirkju er mótað skjald- armerki E.C.L. Moltkes stiftamt- manns. Hann gegndi því embætti um fjögurra ára skeið. Hyggjum nánar að því síðar. Margur ættarlaukur íslendingar hafa átt mikil og margvísleg samskipti við nafn- kunna menn, sem teljast til Moltkeættar. Svo sem geta má nærri er þar margur ættarlaukur, en ekki feta gangvarar þeirra og gæðingar allir sömu braut. Knud Zimsen borgarstjóri, séra Bjarni Jónsson vígslubiskup og séra Frið- rik Friðriksson í KFUM hefðu all- ir nefnt Joachim Moltke, hirð- meistara Friðriks prins síðar kon- ungs, sem öðling á miklum ættar- meiði. Einar Olgeirsson foringi komm- únista hafði kynnst Kai Moltke, forystumanni danska kommún- istaflokksins. Einar segir um hann: „Kai Moltke var af hinni frægu og tignu Moltkeætt og var þess vegna kallaður rauði greifinn. Hann var afkastamikill rithöfund- ur.“ Við þessa lýsingu Einars má bæta því að skv. frásögn Kai Moltkes átti Stefán Pjetursson síð- ar þjóðskjalavörður fótum fjör að launa, er hann leitaði ásjár danska sendiráðsins og óskaði eftir því að vera fluttur heim frá Moskvu. Hann óttaðist ofsóknir réttlínu- manna. Þá deildu menn hart um það hveijir væru höfuðstoð borgara- stéttarinnar. Seinna kom í ljós að þeir voru það allir með tölu. í frásögn Knuds Zimsens borg- ÁÞREIFANLEGT YFIRBURÐA VERÐ! 1997 ATV 28" SJÓNVÖRPIN KOMIN Á FRÁBÆRU VERÐI 28" ATV Á AÐEINS KR. 59.900* *SUPER PLANAR BLACK LINE MYNDLAMPI *ALLAR AÐGERÐIR Á SKJÁ *ÍSLENSKT TEXTAVARP *GÓÐIR HÁTALARAR AÐ FRAMAN *STEREO HEYRNARTÓLATENGI *FULLKOMIN GÓÐ FJÁRSTÝRING *NICAM STEREO MAGNARI *SJÁLFVIRK STÖÐVALEITUN *S-VHS INNGANGUR *2 EURO SCART TENGI KOMIÐ OG TRYGGIÐ YKKUR ÞETTA FRÁBÆRA TÆKI FYRIR JÓLIN. *STAÐGREIÐSLUVERÐ VÍSA/EURO RAÐGREIÐSLUR ÁRMÚLfl 38 SÍM 5531133 YFIR innganginum í höll Moltkes við Breiðgötu er skreyting þar sem sjá má skjaldarmerki Moltke-ættarinnar. Sé myndin borin saman við skjaldarmerkið á Bessastaðakirkju kemur fram líking merkjanna. Nú hafa handverksmenn eignast höllina, svo sem fram kemur þegar horft er á áletrun yfir dyrum. arstjóra kemur fram að Joachim Moltke greiðir götu margra fá- tækra stúdenta og veitir sumum þeirra ijárhagslega aðstoð. „Moltke bjó í stórri höll. Hann hafði gaman af að safna til sín kristilega sinnuðum stúdentum, og einu sinni í mánuði hveijum mætti hjá honum stór hópur slíkra manna. Þegar þangað var komið, var haldin bænasamkoma, en að henni lokinni bauð hann öllum til matar. Moltke var vel menntaður og víðlesinn, og báru viðræðurnar í hinum stóra sal hans greinileg merki þess.“ Frásögn séra Bjarna Jónssonar af heimsókn í höll Moltkes er með sérstæðum blæ. Hún ber öll ein- kenni séra Bjarna, enda kann sá sem hlýðir að hlusta og segja frá. Matthías Johannessen ritstjóri skráir frásögn séra Bjarna: „Ég hef stundum verið spurður, hvað mér hafi komið mest á óvart fyrstu vikurnar í Kaupmanna- höfn. Ég held það hafi verið höll Moltkes greifa í Breiðgötu. Olfert Richard sagði við mig, þegar ég hafði dvalist nokkurn tíma í Kaupmannahöfn: „Nú hef ég boð til greifa Moltke og við fylgjumst þangað að.“ Ég verð auðvitað undrandi, en þó fullur af tilhlökk- un. Og hún breyttist í fögnuð, þegar ég gekk inn, því höll Molt- kes greifa var fínasti staður, sem ég hafði séð á ævi minni, og langt hafm yfir allt annað. Hún var jafnvel ennþá fínni en torfbærinn heima í Mýrarholti. Greifanum kynntist ég síðar mjög vel í KFUM.“ Naumast þarf að vekja athygli á því hve vel séra Bjarna tekst að varpa ljóma á æskuheimili sitt, lágreistan torfbæinn með skin frá steinolíuljósi á horni Vesturgötu og Bakkastígs. Benedikt Gröndal hefir lýst Bessastaðakirkju í bók sinni Dægradvöl: „Upp úr turninum er stöng úr járni og stór málmkúla neðan til á henni og var gyllt, á að giska tvær álnir að þvermæli; þar uppi yfir var gylltur veðurviti með nafni Kristjáns 7. (en tuminn hlaut þó að hafa verið byggður eftir hans daga) en efst önnur kúla minni . . . Hvernig á þessu kon- ungsnafni stendur, veit ég ekki, en ofarlega á turninum framan- verðum var ferhyrnt skjaldarmerki úr steini, með þremur fuglum, og fjaðurbuskur upp úr höfði hvers þeirra, en þetta er einmitt skjald- armerki Moltkes eða einhvers af þeirri ætt, en um þetta leyti var Moltke stiftamtmaður. Annars getur vel verið að turninn hafi verið byggður áður, eins og kirkj- an, og hafi eitthvað verið gert við hann á þessum tíma, og hafi þá GRÍMUR Thomsen var sam- ferða ungum manni af grein Moltke-ættarinnar sem á þetta skjaldarmerki þar sem orrarnir þrír eru i fyrirrúmi, líkt og á Bessastaðakirkju. stiftamtmaðurinn tekið sér bessa- leyfi til að setja þarna ættarmerki sitt (Moltke er nafn á einhveijum fugli, svörtum að lit, og er orðið líklega slafneskt eða vendiskt, því ættin er frá Mecklenburg eða Pommern). Það var í manna minn- um, sem lifðu í mínu ungdæmi, að menn voru teknir frá róðrum í besta veðri (t.a.m. Bjarni í Svið- holti) til að róa með stiftamt- mannsfólkið út um allan sjó til skemmtunar, og hafði þá viljað til, þegar þeir áttu að vaða með frúna út í skipið, að þeir duttu í sjóinn viljandi með hana, svo hætt var við þá sjóferð. Þetta var ein af kvöðunum í þá daga.“ Bjarni í Sviðholti, sá sem Bene- dikt Gröndal nefnir var Halldórs- son. Hann var lögréttumaður. Um eitt skeið var hann ráðsmaður Bessastaðaskóla. Bjarni var vel efnum búinn, talinn með ásjáleg- ustu mönnum, segir Páll Eggert Ólason í æviskrám sínum. Vilji einhver vita deili á úrræðagóðum Álftnesingi, sem hafði ráð undir rifi hveiju og kunni að koma sér undan kvöðum hefðarfólks, þá voru meðal afkomenda hans nafn- kunnir lærdómsmenn og krafta- jötnar. Bjarni Jónsson rektor Lat- ínuskólans (Menntaskólans í Reykjavík) hét nafni afa síns, Bjarna í Sviðsholti. Móðir Bjarna rektors giftist síðar Birni Gunn- laugssyni yfirkennara. Hann var tengdafaðir Jens Sigurðssonar rektors. Og þá fer nú að styttast í Jóhannes og Jón Nordal. Af þessari ættarskrá má sjá að þeir bræður eru komnir af Bjarna í Sviðsholti, lögréttumanni, sem lét ekki kveðja sig frá verki um há- bjargræðistímann til þess að sinna dyntum hefðarfólks. SJÁ SÍÐU 22. I I I > I L I \ í I í L R L í. I t L I í. í L I s I I f I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.