Morgunblaðið - 22.01.1997, Side 1
72 SÍÐUR B/C/D/E
17. TBL. 85. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Stjórnvöld í Suður-Kóreu snúa við blaðinu
Umdeild vinnulög-
gjöf endurskoðuð
Seoul. Reuter.
KIM Young-sam, forseti Suður-
Kóreu, féllst í gær á að taka aftur
upp á þingi nýja vinnulöggjöf sem
umdeild hefur orðið. Kom ákvörðun
hans öllum á óvart en hann kvaðst
harma það tjón, sem verkföllin
hefðu valdið, og viðurkenndi, að
ekki hefði tekist að ná því mark-
miði laganna að örva efnahagslífið.
Talsmenn ýmissa verkalýðsfélaga
sögðu í gær, að verkföllum yrði
haldið áfram þar til lögin hefðu
verið afnumin.
Á fundi, sem Kim átti með leið-
togum stjórnarandstöðunnar, til-
kynnti hann einnig, að lög um auk-
in völd til handa hinni fyrrum ill-
ræmdu leynilögreglu yrðu endur-
skoðuð og auk þess sagði hann, að
dregnar yrðu til baka skipanir um
handtöku leiðtoga verkfallsmanna
en sjö þeirra hafast við í Myong-
dong-dómkirkjunni í Seoul. Þá er
hann sagður hafa gefið í skyn, að
fellt yrði úr gildi bann við starfsemi
einna verkalýðssamtakanna.
Hóta verkföllum áfram
Kim Dae-jung, leiðtogi helsta
stjórnarandstöðuflokksins, fagnaði
eftirgjöf Kims forseta en Yoon Yo-
ung-mo, talsmaður herskárra
verkalýðssamtaka, sagði að verk-
föllum yrði haldið áfram þar til rík-
isstjórnin lýsti því yfir, að nýja
vinnulöggjöfin yrði numin úr gildi.
Kim forseti leggur þó áherslu á,
að aðeins verði um að ræða endur-
skoðun laganna.
Vinnulöggjöfin og lögin um leyni-
þjónustuna voru samþykkt á sex
mínútum snemma morguns 26. des-
ember og án þess að stjórnarand-
staðan væri látin vita af fundinum.
Var fyrrnefndu lögunum ætlað að
bæta samkeppnisstöðu s-kóreskra
fyrirtækja en þau urðu til að hrinda
af stað víðtækum verkföllum. Þau
síðarnefndu víkka á ný valdsvið
leyniþjónustunnar en fyrr á árum
var henni óspart beint gegn
menntamönnum og verkalýðsfélög-
unum.
Álitshnekkir fyrir Kim
Fréttaskýrendur í S-Kóreu segja,
að frammistaða Kims forseta í þess-
um málum valdi því, að hann sé
öllu trausti rúinn. I fyrsta lagi hafí
honum orðið á mikil mistök með
setningu laganna og síðan reyni
hann að hörfa þegar allt sé komið
í óefni.
Reuter
Sáttayfirlýsing í Prag
HELMUT Kohl, kanslari Þýska-
Iands, og Vaclav Klaus, forsætis-
ráðherra Tékklands, undirrituðu í
Prag í gær sáttayfirlýsingu þjóð-
anna sem þeir segja mikilvægt
skref í samrunaferlinu í Evrópu.
„Við Þjóðverjar viljum vera. ykkur
góðir grannar . . . Við viljum
fyrirgefningu og við viljum fyrir-
gefa,“ sagði Kohl. Sáttayfirlýsing-
in er afrakstur tveggja ára samn-
ingaviðræðna og er henni ætlað
að græða þau sár úr fortíðinni sem
ekki eru enn gróin. Lýsa Þjóðveij-
ar yfir hryggð sinni vegna hersetu
nasista i Tékkóslóvakíu 1938-1945
og Tékkar vegna þeirra 2,5 millj-
óna Þjóðveija sem voru reknar úr
landi eftir heimsstyijöldina síðari.
Þjóðveijar lýsa ennfremur yfir
stuðningi sínum við aðild Tékka
að Evrópusambandinu og Atlants-
hafsbandalaginu. Vonast Tékkar
til þess að þessi skjalfesti stuðning-
ur Þjóðveija muni koma sér til
góða í aðildarviðræðum.
Bankastjóri
gísl eigin
starfsmanna
„VIÐ viljum lifa“ stendur á kröfu-
spjaldi starfsmanna í höfuðstöðv-
um franska ríkisbankans Crédit
Foncier í París, sem ríkisstjórnin
áformar að leggja niður. Starfs-
mennirnir brugðu á það ráð fyrir
helgina að mótmæla áformunum
með því að fara hvergi frá vinnu-
staðnum og halda bankastjóran-
um í gíslingu. Ríkisstjórnin hefur
skipað sérstakan sáttasemjara til
að leita lausnar á málinu, en í
gær sátu hundruð starfsmanna
enn sem fastast á gólfum bank-
ans.
Hann var stofnaður fyrir 145
árum og hefur í gegnum tíðina
gegnt mikilvægu hlutverki með
því að gefa tekjulágum frönskum
fjölskyldum kost á hagstæðum
húsnæðislánum, en er nú skuld-
um vafinn.
Clinton vill bann
við j arðsprengj um
Genf. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
hvatti í gær til þess að gengið yrði
til samningaviðræðna um bann við
jarðsprengjum og bann við fram-
leiðslu hluta í kjarnorkusprengjur.
Ráðstefna um afvopnunarmál hófst
í Genf í gær og sagði í ávarpi sem
Clinton sendi ráðstefnunni að bann
við framleiðslu og sölu á kjarna-
kleyfum efnum væri stórt skref í
átt að eyðingu allra kjarnavopna.
Clinton hvatti fulltrúa á ráðstefn-
unni til þess að hefja samninga uin
alþjóðlegt bann við jarðsprengjum
sem beint er gegn fólki; hvað varð-
ar framleiðslu, notkun, flutning og
geymslu. Hins vegar nefndi hann
engin tímamörk.
Kanadamenn og ítalir hafa enn-
fremur hvatt til banns við jarð-
sprengjum innan tveggja ára.
Frakkar og Bretar hafa lýst stuðn-
ingi við að gengið verði til samn-
ingaviðræðna um slíkt bann en
Rússar, Kínverjar og Indvetjar, sem
notast við jarðsprengjur í hernaði,
hafa lagst gegn banni við þeim.
Um 100 milljónum jarðsprengna
hefur verið komið fyrir um heim
allan og árlega deyja eða örkuml-
ast um 25.000 manns af völdum
þeirra.
Kamskí hættir skákkeppni
Sakar Kasparov og
Karpov um einokun
Moskvu. Reuter.
SKÁKMEISTARINN Gata Kamskí
hefur ákveðið að hætta keppni að-
eins 22 ára gamall. Skýrði rúss-
neska fréttastofan Itar-Tass frá
því í gær og hafði eftir honum,
að ljóst væri, að þeir Anatolí
Karpov og Garrí Kasparov einok-
uðu heimsmeistaratitilinn í skák
og hygðust ekki hleypa neinum
öðrum að.
Kamskí er fæddur í Rússlandi
en hefur búið með föður sínum í
Bandaríkjunum frá 15 ára aldri.
Hann var aðeins 12 ára þegar hann
varð Sovétmeistari í flokki 20 ára
og yngri og Bandaríkjameistari
varð hann 16 ára gamall. í júlí sl.
keppti hann við Karpov um réttinn
til að tefla um heimsmeistaratitil-
inn en beið lægri hlut.
„Það hefur verið ljóst í nokkum
tíma, að þeir Karpov og Kasparov
munu gera allt til að halda öðrum
í hæfílegri fjarlægð frá heims-
meistaratitlinum," sagði Kamskí
en hann ætlar nú að taka aftur til
við nám og segist hafa mestan
áhuga á læknis- eða efnafræði.
Gingrich
áminntur
og sektaður
Washington. Reuter.
FULLTRÚADEILD Bandaríkja-
þings samþykkti í gær að áminna
forseta deildarinnar, Newt
Gingrich, auk þess sem honum
verður gert að greiða um 300.000
dala sekt, um 20 milljónir ísl.
kr., fyrir að bijóta siðaregiur
þingsins.
Gingrich var fundinn sekur um
að hafa sagt siðanefnd þingsins
ósatt um hvaðan fé, sem hann
notaði til námskeiðahalds, var
komið og að hafa notað framlög,
sem mnnu til háskóla og góð-
gerðastofnana, í pólitískum til-
gangi. Komst siðanefndin að þeirri
niðurstöðu að með þessu hefði
hann kastað rýrð á þingið. Er nið-
urstaða siðanefndarinnar og
þingsins mikið áfall fyrir Gingrich.
-----» ♦ ♦...
Tvær bíl-
sprengjur
í Alsír
París. Reuter.
SJÖ MANNS létu lífið og 54 særð-
ust í tveimur öflugum bílsprenging-
um í Algeirsborg í gær. Ónnur
sprengjan sprakk um miðjan dag
en hin í gærkvöldi.
Sex manns létust í fyrri spreng-
ingunni en einn maður i þeirri síð-
ari. Á mánudag sprakk bílsprengja
skammt frá stúlknaskóla í Álgeirs-
borg en enginn slasaðist.
Heittrúarmenn hafa hótað því að
auka árásir á almenning í ramadan-
mánuðinum. Hafa 157 menn verið
myrtir sl. ellefu daga.