Morgunblaðið - 22.01.1997, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Engelhart Björnsson komst í hann
krappan á Skeiðarársandi
„Yfírborðið brotn-
aði undan mér“
Hagfræðingur ASÍ um ólíka launaþróun
Stjórnvöld hafa fylgt
annarri launastefnu
Minna kostnaðaraðhald hjá stjórnendum í opinberum
rekstri, segir framkvæmdastjóri VSI
„YFIRBORÐIÐ brotnaði undan
mér, svo ég fór á bólakaf," segfir
Engelhart Björnsson bifvélavirki
úr Mosfellssveit, sem varð fyrir
því óláni að falla í djúpan pytt í
skoðunarferð á Skeiðarársandi á
laugardag og bijóta fingur.
Engelhart var í átta manna
skoðunarferð á sandinum og seg-
ist hafa verið að ganga um 3-4
metra bil milii tveggja hárra jaka
þegar yfirborðið brotnaði undan
honum. Hann hafi verið búinn að
ganga um víða og allt hafi virst
með felldu. „Alveg við jakann var
yfirborðið hins vegar bara þunn-
ur klaki og pollur undir. Ég gat
ekkert varast það og gekk því
út á ísinn sem brotnaði undan
mér svo ég fór á bólakaf," segir
hann.
Engelhart segist ekki gera sér
grein fyrir því hvað hann hafi
verið lengi í pyttinum, sem var
fullur af vatni og enga fyrirstöðu
að finna nema ís á aðra hönd.
„Hinum megin við mig virtist
vatnið vera eitthvað dýpra en ég
var nú ekkert að athuga það sér-
staklega,“ bætir hann við. Hann
þurfti síðan að bijóta ís ofan af
pyttinum til þess að ná landi þar
sem voru steinar. Þar hafi hann
náð taki og tekist að krafla sig
upp. Aðspurður hvort samferða-
mennirnir hafi ekki undrast
skyndilegt hvarf hans segir Eng-
elhart að þeir hafi verið á gangi
inni á milli jakanna og honum
hafi ekki unnist tími til þess að
gera vart við sig.
Vatnið ansi kalt
„Mér brá auðvitað því vatnið
var ansi kalt, sem eiginlega var
það versta," segir hann jafn-
framt. Engelhart segir að sér
hafi ekki orðið meint af volkinu,
að öðru leyti en því að bijóta
fingur annarrar handar. Þegar
upp úr pyttinum var komið gekk
hann að bíl sínum, hafði fata-
skipti og hélt skoðunarferðinni
áfram.
Morgunblaðið/Ásdís
ENGELHART Björnsson bif-
vélavirki varð fyrir því óláni
á laugardag að detta í pytt á
Skeiðarársandi, bijóta fingur
og fara á bólakaf.
Varúðarskilti sett upp
við sandinn
Lögreglan í Vík í Mýrdal og
Höfn í Hornafirði hefur sett upp
skilti við þjóðveg nr. 1 þar sem
ferðamenn um Skeiðarársand
eru varaðir við hættum sem
kunna að leynast á sandinum
vegna ótryggs íss.
Eins og greint hefur verið frá
féll maður í pytt við ísjak'a sl.
laugardag. Sigurður Gunnars-
son, sýslumaður í Vík, segir að
annað sé ekki hægt að gera í
stöðunni nú, þetta sé víðfeðmt
svæði og ekki hægt að vakta það
sérstaklega. Höfða verði til skyn-
semi ferðalanga í þessum efnum
og treysta á dómgreind þeirra
sem um svæðið fara. Sigurður
telur jafnframt að það hafi kom-
ið rækilega fram í fjölmiðlum að
menn skyldu fara um svæðið með
gát.
GYLFI Arnbjörnsson, hagfræðingur
ASÍ, segir þá staðreynd, að dregið
hafi í sundur milli launa ASÍ-fólks
annars vegar og opinberra starfs-
manna og bankamanna hins vegar,
samkvæmt þróun launavísitölunnar,
sýna að stjórnvöld hafi fylgt annarri
launastefnu en fylgt hafi verið á al-
menna vinnumarkaðinum. Þórarinn
V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri
VSÍ, segir ástæðuna minna kostnað-
araðhald hjá stjórnendum í opinber-
um rekstri.
Gylfí Arnbjörnsson segir áhöld um
það hversu lengi aðilar almenna
vinnumarkaðarins eigi að axla
ábyrgð á ákveðinni launastefnu ef
stjómvöld sjái sig ekki knúin til að
fylgja henni. Hann minnir á að við
endurskoðun kjarasamninganna í
nóvember 1995 hafi munur á launa-
TVEIR drengir léku klifurlistir
sínar á leiksvæði Vesturbæjar-
skóla á föstudag þegar ljósmynd-
þróun á almenna vinnumarkaðnum
annars vegar og hjá opinberum
starfsmönnum og bankamönnum
hins vegar verið tekinn upp í viðræð-
um við viðsemjendur. Þá hafi niður-
staðan orðið sú að brúa hluta mis-
munarins með hækkun desember-
uppbótar. Nú liggi fyrir að þrátt fyr-
ir þetta hafi bilið á milli hópanna
ekkert minnkað.
Bíða og láta fjármálaráðherra
móta launastefnuna
Aðspurður um áhrif þessarar þró-
unar á yfirstandandi kjaraviðræður,
segir Gylfi að þær raddir hafí heyrst
innan raða Alþýðusambandsins hvort
ekki væri skynsamlegast að bíða og
láta fjármálaráðherra um að móta
launastefnuna.
„Þessi munur kemur fram á síðari
ari Morgunblaðsins gægðist
gegnum grindverk með linsu
sinni og smellti af.
hluta ársins 1991,“ segir Gylfi. „Það
er greinilegt að frá þeim tíma er um
uppsafnaðan mun að ræða, sem nem-
ur rúmlega sjö prósentum. Þar af
kemur um það bil helmingurinn fram
á síðasta samningstímabili, þannig
að munurinn hefur heldur aukist. Það
eru hinir almennu kjarasamningar
sem hafa mótað verðlagsþróunina
og því hefur sá hópur, sem hefur
borið minna úr býtum, þurft að axla
ábyrgðina á að viðhalda svokölluðum
stöðugleika. Umframhækkunin hjá
opinberum starfsmönnum og banka-
mönnum er i raun hreinn kaupmátt-
armunur upp á 7,2% á tímabilinu sem
liðið er frá 1991,“ segir Gylfi.
Hann bendir á að þessa dagana
séu uppi hugmyndir um það mark-
mið að kaupmáttur vaxi um 3-5% á
ári því sé ljóst að það tæki tvö ár
að jafna þennan mun á milli almenna
markaðarins og opinberra starfs-
manna að því gefnu að hinir síðar-
nefndu hækkuðu ekkert.
Einkavæðing opinberrar
starfsemi eina ráðið
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands íslands, segir ástæðu ólíkrar
launaþróunar hjá opinberum starfs-
mönnum og bankamönnum og laun-
þegum á almennum markaði fyrst
og fremst þá að ríki, sveitarfélög og
bankar séu hvert að sínu leyti á ein-
okunarmarkaði.
„Kostnaðaraðhald að stjórnendum
í opinberum rekstri er sýnilega minna
en hjá fyrirtækjum í samkeppni á
hörðum markaði. A þetta höfum við
þráfaldlega bent og kallað eftir
breytingum. Við þessu er auðvitað
ekki nema eitt ráð, að einkavæða
eins stóran hluta af opinberri starf-
semi og koma undir aga samkeppn-
innar. Launavísitaian sýnir auðvitað
agaleysi, sem menn geta ekki leyft
sér nema þeir hafi skattheimtuvaldið
sín megin," segir Þórarinn.
Morgunblaðið/Ásdís
Gjugg í borg!
Rafiðnaðarsambandið vili að SR-mjöl segi upp rekstrarstjóra sínum
Krafan sett fram
í krafti hlutafjár
RAFIÐNAÐARSAMBAND íslands
hefur krafíst þess að fulltrúi Lífeyr-
issjóðs rafiðnaðarmanna í stjórn
SR-mjöls leggi fram á næsta stjórn-
arfundi kröfu um að Þórði Jóns-
syni, rekstrarstjóra fyrirtækisins,
verði sagt upp störfum. Guðmundur
Gunnarsson, formaður RÍS, segir
Þórð bera ábyrgð á brotum SR-
mjöls á kjarasamningi rafiðnaðar-
manna við byggingu loðnuverk-
smiðjunnar í Helguvík.
Guðmundur sagði í samtali við
Morgunblaðið að ef SR-mjöl „snúi
sér til betri vegar“ fyrir næsta
stjórnarfund kunni krafan að verða
endurskoðuð.
Meðal
stærri hluthafa
Lífeyrissjóður rafiðnaðarmanna
er í hópi stærri hluthafa í SR-
mjöli, á 5-7% hlut í fyrirtækinu,
og Þorsteinn Húnbogason, fram-
kvæmdastjóri sjóðsins á sæti í
stjórninni. Að sögn Guðmundar
Gunnarssonar, formanns RÍS, er
Þorsteinn starfsmaður félagsmanna
Rafiðnaðarsambandsins og því
sjálfgefið að hann verði við þessari
kröfu þess.
Aðspurður um ástæður kröfunn-
ar sagði Guðmundur að Þórður
Jónsson hefði staðið að því að þver-
brjóta kjarasamning við Rafiðnað-
arsambandið, með því að kreljast
þess að fyrir vinnu við raflagnir í
nýbygginguna í Helguvík yrði greitt
tímakaup en ekki samkvæmt upp-
mælingu. Þórður hafi lýst því yfir
sjálfur að hann hafi brotið gegn
þessum samningi áður og vilji gera
það áfram.
„SR-mjöl er fyrirtæki sem við
höfum aðgang að vegna þess að
við eigum hlut í því og það er full-
komlega óþolandi fyrir okkur að
vera einn af hluthöfum í fyrirtæki
sem gengur fram í því markvisst
að bijóta kjarasamninga á okkar
félagsmönnum," sagði Guðmundur
Gunnarsson. Guðmundur sagði að
Þórður rekstrarstjóri hefði tekið
einhliða ákvörðun um samnings-
brotin samkvæmt sínum skilningi
og þess vegna væri krafist brott-
rekstrar hans en ekki æðstu stjórn-
enda SR-mjöls. Hann sagði að sam-
bandið mundi líka beita þeim áhrif-
um sem hlutafjáreignin veitir til
þess að fá stjórnendur þess til að
koma til móts við skilning á kjara-
samningnum.
Eignaraðild og
starfsmannastefna
„Ef starfsmaður vinnur mark-
visst að því að bijóta kjarasamning,
hljótum við að gera athugasemdir
og af því að við erum eigendur að
viðkomandi fyrirtæki sættum við
okkur ekki við að fyrirtækið hafi í
þjónustu sinni menn sem vinna
markvisst gegn hagsmunum okkar
og bijóta kjarasamninga. Mér fynd-
ist óeðlilegt að við værum að skipta
okkur af starfsmennastefnu fyrir-
tækis, sem við ættum ekkert í, en
þarna er fyrirtæki sem við eigum
hlut í og á þeim forsendum teljum
við okkur geta haft þessa skoðun,“
sagði Guðmundur og sagði að þetta
væri viðtekin venja í bandarískum
fyrirtækjum þar sem lífeyrissjóðir
stéttarfélaganna eiga sífellt vax-
andi hlut í fyrirtækjum.
„Fyrirtækin þar verða að taka
tillit til sjónarmiða eigendanna og
þannig verður það í vaxandi mæli
hér á komandi árum. Þar sem laun-
þegar eiga stóran hlut í fyrirtækjum
munu þeir vitanlega gera kröfu um
starfsmannastefnu þeirra fyrir-
tækja sem þeir eiga sjálfír."
Hann sagði að Rafiðnaðarsam-
bandið fjárfesti ekki markvisst í
fyrirtækjum sem veita félagsmönn-
um atvinnu en hins vegar væri það
stefna sambandsins að fjárfesta í
íslensku atvinnulífi.
Fáránlegt mál
„Mér fínnst þetta alveg fáránlegt
mál,“ sagði Jón Reynir Magnússon,
forstjóri SR-mjöls þegar Morgun-
blaðið leitaði viðbragða hans við
kröfu Rafiðnaðarsambands íslands.
„í fyrsta lagi varðar þessi deila
sem þarna er verið að búa til og
upp er komin I Helguvík okkur ekki
beint; þama er um að ræða deilu
verktaka og rafiðnaðarmanna, sem
eru ekki starfsmenn SR-mjöls. Við
verðum sjálfsagt með rafvirkja þeg-
ar verksmiðjan fer í gang en ekki
núna. Almennt séð tel ég það svo
út í hött að verkalýðsleiðtogar skuli
með einhverri valdbeitingu reyna
að koma mönnum frá störfum í
fyrirtækjum. Svo eru þessir menn
allir búnir að vera að vinna þarna
í fleiri mánuði þegar það kemur
allt í einu upp núna að þeir eigi að
fá greitt í ákvæðisvinnu. Það er
verið að vinna svipuð verkefni um
allt land og ekki fá allir sem þau
vinna greitt samkvæmt ákvæðis-
taxta,“ sagði Jón Reynir. Hann
kvaðst þar vera að vísa til þess að
nýlega hefðu verið reistar loðnu-
verksmiðjur í Neskaupstað, Vopna-
firði, Akranesi og í Reykjavík.
Jón Reynir sagði að næsti stjórn-
arfundur í SR-mjöli hefði þegar
verið ákveðinn í næstu viku vegna
annarra mála.
Ekki náðist í Þórð Jónsson í gær.
Vékúr
starfi vegna
kunnings-
skapar
RANNSÓKNARLÖGREGLUMAÐ-
UR fór í launað frí í síðustu viku,
þar sem kunningi hans er einn hinna
grunuðu í vodkasmyglmálinu, sem
nú er til rannsóknar. Að sögn yfírlög-
regluþjóns RLR tengist rannsóknar-
lögreglumaðurinn málinu ekki á
nokkurn hátt, en þar sem starfsfélag-
ar hans eru að rannsaka meint brot
kunningjans þótti eðlilegt að hann
viki úr starfi á meðan.
Hörður Jóhannesson, yfírlögreglu-
þjónn hjá RLR, sagði að þegar málið
kom upp hefðu menn vitað af kunn-
ingsskap rannsóknarlögreglumanns-
ins og hins grunaða. „Þremur dögum
eftir að rannsókn málsins hófst var
ákveðið að rannsóknarlögreglumað-
urinn færi í orlof. Þar býr ekkert að
baki annað en að slík málsmeðferð
þykir eðlileg og það er ekki flugufót-
ur fyrir einhveijum orðrómi um að
rannsóknarlögreglumaðurinn tengist
meintu smygli á nokkurn hátt.“
Þrír menn sitja enn í gæsluvarð-
haldi vegna málsins, þar af einn toll-
vörður. Gæsluvarðhald þeirra rennur
út um og eftir næstu helgi. Tveimur
mönnum, sem grunaðir voru um
dreifingu smyglvarningsins, hefur
verið sleppt úr haldi.