Morgunblaðið - 22.01.1997, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 13
AKUREYRI
Fjölmörg- mál til kasta
lögreglu á liðnu ári
Um 100 óku
ölvaðir og
númer klippt
af 645 bílum
LÖGREGLAN á Akureyri hafði af-
skipti af 2.272 málum á síðasta ári.
Arekstrum fækkaði milli áranna
1995-1996, þeir voru 199 á liðnu
ári en 231 árið á undan. í 320 tilvik-
um fór lögregla á vettvang eftir
árekstur og aðstoðaði við gerð
tjónaskýrslu, en í 108 skipti árið á
undan.
Alls voru 106 manns teknir á
síðasta ári vegna ölvunaraksturs
en þeir voru heldur færri árið á
undan, eða 88.
Þá fjölgaði þeim einnig sem óku
gegn rauðu ljósi, úr 15 í 23 milli
ára, en færri óku án ökuleyfa eða
13 í fyrra á móti 31 árið á undan.
Þá má nefna að 16 voru teknir fyr-
ir að aka gegn einstefnu á nýliðnu
ári en 11 árið á undan. Stöðvunar-
skylda var brotin af 24 ökumönnum
í fyrra en 5 gerðu sig seka um slíkt
broti árið á undan.
Ökumönnum sem brutu þunga-
takmarkanir fækkað milli ára, voru
81 árið 1995 en 44 í fyrra.
Mun fleiri óku án öryggisbelta á
liðnu ári borið saman við fyrra ár,
eða 229 á móti 56.
Númer voru klippt af 400 bílum
vegna vanrækslu á skoðun í fyrra
en þeir voru 277 árið á undan. Þá
voru númer klippt af 184 bílum
vegna ógreiddra bifreiðagjalda á
móti 75 árið á undan og númer fuku
af 61 bíl í fyrra þar sem trygging
var fallin úr gildi, en bílar sem hlutu
sömu meðferð ári áður voru 78.
Fimmtán töfðu umferð
Lögregla kærði 15 ökumenn á
síðasta ári fyrir að tefja umferð,
einkum við Ráðhústorg, en tveir
voru kærðir af sama tilefni árið
áður. Á síðasta ári hafði lögregla
afskipti af 31 ökumanni sem ekki
notaði stefnuljós.
Ölvun á almannafæri var skráð
í bækur lögreglu í 174 skipti á liðnu
ári en í 134 skipti árið á undan.
Þá kemur fram í skýrslu lögreglu
að 306 gistu fangageymslur lög-
reglu á síðasta ári.
Fjárhagsáætlun Dalvíkurbæjar til síðari umræðu í bæjarstjórn
Skatttekjur áætlaðar um
218 milljónir króna
Dalvík. Morgunblaðið.
FJÁRHAGSÁÆTLUN Dalvíkur-
Bræla við
Grímsey
Grímsey. Morgunblaðið.
GRÍMSEYJARBÁTAR komust
í nokkra róðra eftir jólahátíð-
ina og komu með ágætan afla
að landi. Það fiskerí stóð hins
vegar stutt, því frá 12. janúar
hefur verið stanslaus bræla,
hríð og norðlægar áttir.
Á laugardag og sunnudag
komust netabátarnir út og
gátu vitjað um net sín. Þó gátu
þeir ekki dregið allar trossurn-
ar og því er eitthvað orðið tíu
nátta hjá þeim.
Línubátar hafa ekki róið frá
11. janúar og á veðurspá er
ekki að heyra miklar breyting-
ar til batnaðar.
Nú ríkir Vetur konungur því
í Grímsey og hann virðist ekki
ætla að lina tök sín í bráð.
Menn mega sín lítils þegar
hann er í þessum ham, verða
að lúta ægivaldi hans og á
meðan eru bátar allir í höfn.
Sjómenn horfa til himins oft á
dag og bíða.
bæjar fyrir árið 1997 var til síðari
umræðu á fyrsta fundi bæjar-
stjórnar á nýbyrjuðu ári í gær.
Samhliða flutningi alls reksturs
til sveitarfélaga verða talsverðar
breytingar á áætluninni frá síðasta
ári og gerir það allan samanburð
við fyrri áætlanir flóknari en ella.
Umtalsverð tekjuaukning frá
síðasta ári verður hjá bæjarsjóði
vegna þessara breytinga en jafn-
framt munu fræðslumál verða
langstærsti málaflokkurinn í
rekstri bæjarfélagsins og taka til
sín 31,4% skatttekna bæjarsjóðs.
í desember s.l. samþykkti bæjar-
stjórn að nýta hámarksálagningu
útsvars, 11,99%, og þá var ákveð-
ið að leggja 0,375% fasteigna-
skatt á íbúðarhúsnæði og 1,4% á
atvinnuhúsnæði. Út frá þessum
forsendum eru skatttekjur bæjar-
31,4% skatttekna
bæjarsjóðs renna
til fræðslumála
ins áætlaðar 218 milljónir króna.
Ráðgert er að til rekstrar renni
78,7% skatttekna sem er nokkru
lægra hlutfall en að er stefnt í
þriggja ára áætlun bæjarfélags-
ins.
Áhersla lögð á
að greiða niður lán
í fjárhagsáætluninni er ekki
gert ráð fyrir miklum framkvæmd-
um á vegum Dalvíkurbæjar á
þessu ári en þess í stað áhersla
lögð á að greiða niður lán. Til eign-
færðrar fjárfestingar eru áætlaðar
7,9 milljónir króna en stærsti hluti
þeirrar fjárfestingar er á vegum
Hitaveitu Dalvíkur. Til gjaldfærðr-
ar fjárfestingar eru áætlaðar 32,6
milljónir króna þar sem 16 milljón-
um króna verður varið til gatna-
gerðar og fráveitu og 6,3 milljón-
um króna í styrki til íþróttafélag-
anna á Dalvík til uppbyggingar
og viðhalds íþróttamannvirkja.
Þá verður á fundi bæjarstjórnar
lögð fram til fyrri umræðu endur-
skoðun á þriggja ára áætlun
bæjarfélagsins þar sem tekið er
tillit til þeirra breytinga sem flutn-
ingur grunnskóla til sveitarfélaga
hefur í för með sér. í tillögunum
sem fyrir liggja er ekki gert ráð
fyrir verulegum breytingum á
rekstri bæjarfélagsins næstu þrjú
árin og þá er gert ráð fyrir að
framkvæmdir við skólabyggingu
hefjist vorið 1998. í gildandi áætl-
un var ráðgert að hefja skólabygg-
ingu í vor.
Morgunblaðið/Hólmfríður
Sveitarfélög við
utanverðan Eyjafjörð
Kosið verði
í haust
Á FUNDI samstarfsnefndar
sveitarfélaga við utanverðan
Eyjafjörð sem haldinn var nýlega
var samþykkt að vinna áfram að
sameiningu sveitarfélaga á þessu
svæði, frá Árskógshreppi til
Siglufjarðar. Stefnt er að því að
á tímabilinu maí til júní næstkom-
andi liggi fyrir tilhögun og fyrir-
komulag að nýju sveitarfélagi og
að kosið verði um sameiningu
hins nýja sveitarfélags í október
eða nóbvember á þessu ári.
Ákveðið var að efna til fundar
um sameiningarmálin í næstu
viku en á þeim fundi á að liggja
fyrir hvaða sveitarfélög munu
halda áfram vinnu við sameining-
una.
íþróttafélagið Þór
Jóhann íþróttamaður ársins
Morgunbtaðið/Kristján
RAGNAR Sverrisson, kaupmaður í JMJ, t.v., sem gefur öll verð-
laun í kjöri íþróttamanna Þórs, Atli Már Rúnarsson, Páll Gísia-
son, Jóhann Þórhallsson, íþróttamaður Þórs, Konráð Oskarsson
og Guðmundur Sigurbjörnsson, formaður Þórs.
JÓHANN Þórhallsson, skíða- og
knattspyrnumaður, var útnefndur
íþróttamaður Þórs 1996 en kjörinu
var lýst í hófi í Hamri um síðustu
helgi. Við sama tækifæri var Jóhann
jafnframt útnefndur skíðamaður árs-
ins, þriðja árið í röð. Páll Gíslason
var valinn knattspyrnumaður ársins,
Atli Már Rúnarsson handknattleiks-
maður ársins og Konráð Óskarsson
körfuknattleiksmaður ársins.
Jóhann Þórhallsson, sem varð 17
ára fyrr í þessum mánuði, hefur ver-
ið einn fremsti skíðamaður landsins
í sínum aldursflokki ti! fjölda ára.
Hann varð íslandsmeistari í svigi og
alpatvíkeppni í flokki 15-16 ára á
síðasta ári. Þá varð hann í þriðja
sæti í stórsvigi og risasvigi á sama
móti. Jóhann varð Akureyrarmeistari
í svigi og sigraði í stórsvigi á Þórs-
móti. Hann var auk þess valinn í
unglingalandsliðið á skíðum.
Jóhann er ekki aðeins liðtækur á
skíðum, hann var lykilmaður í 3.
flokks liði Þórs í knattspyrnu, sem
sigraði á Islandsmótinu bæði innan-
og utanhúss. Hann var valinn í dren-
gjalandsliðið í knattspyrnu og lék
með liðinu á æfingamótum í Svíþjóð
og Portúgal á síðasta ári. Jóhann
varð Akureyrarmeistari í knatt-
spyrnu bæði með 3. og 2. flokki og
fékk einnig að spreyta sig með meist-
araflokki félagsins.
Hættur keppni á skíðum
í samtali við Morgunblaðið sagðist
Jóhann hafa tekið ákvörðun um að
hætta keppni á skíðum og einbeita
sér þess í stað að knattspyrnunni.
„Eg hef nóg með að einbeita mér
að skólanum og fótboltanum, auk
þess sem það er mjög dýrt að stunda
skíðaíþróttina." Jóhann er genginn
upp í 2. flokk í knattspyrnunni en
hefur auk þess fullan hug á komast
í meistaraflokkslið félagsins sem
fyrst.
Páll Gíslason, knattspyrnumaður
ársins, hefur einnig verið einn af
lykilmönnum meistaraflokks í hand-
bolta. Sama má segja um Atla Má
Rúnarsson, handknattleiksmann árs-
ins, sem varði mark meistaraflokks
Þórs í knattspyrnu sl. sumar. Konráð
Óskarsson, körfuknattleiksmaður
ársins, hefur verið lykilmaður félags-
ins til fjölda ára í þeirri grein.
Eigendur Blómabúðar
Akureyrar kaupa París
HJÓNIN Sigmundur Einarsson
og Guðbjörg Inga Jósefsdóttir og
fjölskylda hafa keypt húsið
Hafnarstræti 96, París.
Sigvaldi E.S. Þorsteinsson
kaupmaður byggði húsið árið
1913 og rak þar verslunina París.
í bók Steindórs Steindórssonar,
Akureyri, höfðuðborg hins bjarta
norðurs, segir að þessi verslun
hafi verið sú fyrsta í bænum sem
skipt var upp í tvær deildir, en
vaninn var sá að öllu ægði sam-
an, matvöru, vefnaðarvöru, búsá-
höldum og öðru sem höndlað var
með. Bræðurnir Sigvaldi og Jó-
hannes voru einna umsvifamestu
kaupmenn á Akureyri á öðrum
áratug aldarinnar og Sigvaldi
fram yfir 1930 en þá flutti hann
alfarinn til Danmerkur.
Ymsir hafa átt húsið frá þeim
tíma, en síðustu fjóra áratugi
hefur það verið í eigu systkinanna
Guðrúnar, Geirfinns og Arnórs
Karlsbarna. Þar hafa þau stundað
verslunarrekstur ásamt fjölskyld-
um, Klæðaverslun Sigurðar Guð-
mundssonar, Blómabúðina Lauf-
ás og leikfangaverslun. Prent-
smiðja Björns Jónssonar starfaði
í bakhúsi í nokkur ár og þar var
einnig húsgagnaverkstæði Kristj-
áns Aðalsteinssonar. Þorsteinn
M. Jónsson, skólastjóri og bókaút-
gefandi, bjó lengi í húsinu áður
en hann flutti til Reykjavíkur og
þar bjó einnig Helgi Valtýsson,
kennari og rithöfundur.
Færtí
upprunalegt horf
Sigmundur sagði að fyrst yrði
hafist handa við að lagfæra húsið
og endurbæta, en færa á það í
upprunalegt horf. Þau hjónin reka
Blómabúð Akureyrar í Hafnar-
stræti 88 en hyggjast flytja hana
yfir í Parísarhúsið. „Þetta er mun
stærra rými en við höfum nú og
við sjáum margvíslega möguleika
fólgna í því að flytja starfsem-
ina,“ sagði Sigmundur. „Þetta er
hús með sögu og sál.“
Húsið er á þremur hæðum auk
kjallara. Á þeirri efstu er íbúð sem
gerð verður upp. Ekki er að sögn
Sigmundar útilokað að í tengslum
við blómaverslunina verði sett upp
verslunarminjasýning í samvinnu
við aðra, „lifandi sýning í máli
og myndum sem tengist verslun
á Akureyri,“ sagði Sigmundur og
bætti við að lítið kaffihús ætti
einnig heima með þessari starf-
semi.