Morgunblaðið - 22.01.1997, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
KRAKKARNIR í Skjöldúlfsstaðaskóla við Stóra-Svart á leið heim úr skóla.
Verk-
legur
skólabíll
Vaðbrekku, Jökuldal - Þegar
ófærð hamlar umferð um vegi er
gott að vera vel búinn til vetrar-
aksturs og á farartækjum er hæfa
færðinni. Benedikt Arnórsson
skólabílstjóri á Jökuldal er alla-
vega þannig sinnaður.
Þegar ófærð gerði í óveðurskafl-
anum á Jökulal á dögunum fór
Benedikt í skólaaksturinn á sex
hjóla torfærubíl og komst allra
sinna ferða klakklaust þó aðrir
lentu í nokkrum erfiðleikum. Auk
þess að vera búinn þremur öxlum
með tilheyrandi driflæsingum eru
á þeim sex fjörutíu og fjögurra
tommu dekk. Þess vegna stendur
ófærð í snjó ekki fyrir þessum bíl,
og þegar búið er að hleypa lofti
úr dekkjunum á honum er hann
nánast eins og skriðdreki. Einnig
fínnst krökkunum afar spennandi
að ferðast í þessu torfærutrölli.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
ÞÓRÐUR Tómasson, Sunnlendingur ársins, og Orn Grétars-
son, ritsljóri Dagskrárinnar.
Þórður í Skógum valinn
Sunnlendingur ársins
Selfossi - Þórður Tómasson var
valinn Sunnlendingur ársins af
iesendum Dagskrárinnar á Sel-
fossi en þetta er í fjórða sinn
sem Dagskráin stendur fyrir
slíku vali. Örn Grétarsson,
framkvæmdastjóri Prent-
smiðju Suðurlands og ritstjóri
Dagskrárinnar, sagði við af-
hendingu viðurkenningar til
Þórðar að hann hefði unnið
gagnmerk björgunarstörf frá
fermingu og bjargað menning-
arverðmætum genginna kyn-
slóða. „Safnið á Skógum væri
ekki sá menningarauður sem
það er hefði Þórðar ekki notið
við,“ sagði Örn.
„Þakkarefnin eru mörg en
hæst rís það að fá að lifa þá
breytingatíma sem liðið hafa,“
sagði Þórður Tómasson. Hann
vitnaði til eldri búskaparhátta
sem hann kynntist sem barn á
heimili síni'.
„Þetta er minn ávinningur
núna,“ sagði Þórður. „Þetta er
menningarviðburður, að velja
Þórð Tómasson Sunnlending
ársins," sagði Jón R. Hjálmars-
son í samsæti prentsmiðjunnar
Þórði til heiðurs.
Morgunblaðið/Silli
JÓN Sævar Baldvinsson, for-
stöðumaður Bókasafns Suður-
Þingeyinga, en hann tók við
rekstri safnsins árið 1995.
Mikill áhugi
á lestri
góðra bóka
Húsavík - Að lestur bóka sé á und-
anhaldi í samkeppni við hina ýmsu
íjölmiðla er ekki sjáanlegt sam-
kvæmt tölum um útlán frá Bóka-
safni Suður-Þingeyinga á Húsavík.
Samkvæmt skýrslu forstöðu-
manns safnsins, Jóns Sævars Bald-
vinssonar, voru á síðasta ári lánaðar
út 30.740 bækur en árið áður 20.200
sem sýnir meira en 50% aukningu.
Flestar voru skáldsögurnar eða rúm-
lega 14.000, fræðibækur um 6.500,
barnabækur 6.000 og tímarit 2.520.
Auk prentaðs máls lánar safnið út
hljóðbækur og myndbönd.
Lánþegar voru 574 á árinu og
voru því útlán á íbúa á Húsavík
12,23 bækur, en það eru svo til ein-
göngu Húsvíkingar sem nota safnið.
Hver lánþegi fékk því samkvæmt
framanskráðu rúmlega 53 bækur
lánaðar.
Árleg dægurlagakeppni
hafin á Sauðárkróki
Sauðárkróki - Dægurlagakeppni
Kvenfélags Sauðárkróks árið
1997 er nú hafin. Fyrir allnokkru
var auglýst eftir lögum í keppnina
en henni mun ljúka með úrslita-
kvöldi í Sæluviku Skagfirðinga
föstudaginn 2. maí nk. Hljóm-
sveitarstjóri og umsjónarmaður
með útsetningum er Eiríkur Hil-
misson en framkvæmdastjóri
keppninnar er Guðmundur Ragn-
arsson
Þetta er í Ijórða sinn sem
keppnin er haldin í því formi sem
nú er og nýtur hún sífellt meiri
vinsælda svo sem þátttaka ber
með sér. Öllum laga- og textahöf-
undum landsins er heimil þátttaka
en aðeins verða tekin í keppnina
verk sem ekki hafa verið gefin
út eða flutt opinberlega áður. Eins
og í svipuðum keppnum skulu
menn skila inn verkum sínum
merktu dulnefni en láta síðan hið
rétta fylgja í merktu, lokuðu um-
slagi.
Tíu lög flutt á úrslitakvöldi
Eftir að skilafrestur er útrunn-
inn hinn 1. febrúar nk. og verkin
öll hafa verið send í pósthólf 93
á Sauðárkróki merkt Dægurlaga-
keppni Kvenfélagsins mun dóm-
nefnd velja tíu Iög til keppninnar
sem síðan verða útsett í samráði
við höfunda, tekin upp í fullkomn-
ustu hljóðveri með þeim söngvur-
um sem höfundar leggja til en
lögin verða síðan gefin út bæði á
geisladiski og hljómsnældu. Áskil-
ur Kvenfélagið sér allan rétt á
útgáfu á lögunum ásamt því að
heimila útvarps- og sjónvarps-
sendingar frá keppninni.
Á úrslitakvöldi keppninnar föstu-
daginn 2. maí verða lögin tíu flutt
opinberlega fyrir áhorfendur og
dómnefnd. Á þeim tónleikum mun
hljómsveit sem stofnuð er í tilefni
keppninnar flytja lögin ásamt
söngvurum er voru við upptökumar
og þar verða bestu lögin valin og
úrslit kynnt. Vegleg verðlaun verða
veitt fyrir þijú efstu sætin en að
lokinni keppni mun verða dansað
fram eftir nóttu. Dægurlagakeppni
Kvenfélags Sauðárkróks er árlegur
viðburður í Sæluviku Skagfirðinga
en hefur einnig áunnið sér fastan
sess í þjóðlífinu sem helsti vettvang-
ur fjölmargra tón- og textahöfunda
sem koma vilja verkum sínum á
framfæri.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
STARFSFÓLK veitingasölu á Egilsstaðaflugvelli, Ingveldur Pálsdóttir, Sigríður Þráinsdóttir, Sigur-
björg Alfreðsdóttir og Þráinn Jónsson.
Egilsstaðaflugvöllur
Veitingaaðstaða stækkar
Egilsstöðum - Veitingaaðstaða á
Egilsstaðaflugvelli hefur verið flutt
í nýtt húsnæði á annarri hæð nýju
flugstöðvarbyggingarinnar á Egils-
stöðum.
Þráinn Jónsson, sem hefur ásamt
konu sinni, Ingveldi Pálsdóttur, rek-
ið veitingasölu á flugvellinum í 33
ár, segir þetta mikla breytingu. í
nýja rýminu eru sæti fyrir 48 manns
við borð og setustofa sem rúmar 35
manns í sæti. „Hér er gott pláss,
hlýtt og fer vel um alla,“ segir Þrá-
inn, „enda skiptir miklu máli að fólki
líði vel á stöðum þar sem það hefur
viðkomu og getur lent í því að bíða.“
í salarkynnum veitingaaðstöð-
unnar er hægt að vera með myndlist-
arsýningar og er fyrsti listamaðurinn
sem þar sýnir Vilhjálmur Einarsson.
Því rými sem veitingaaðstaðan var
í á fyrstu hæð verður nú lokað en
endurbætur hefjast þar fljótlega.
Gert er ráð fyrir að þar verði farang-
ursrými en framkvæmdum þar verð-
ur lokið fyrir sumarið að sögn Ing-
ólfs Arnarssonar flugvallarstjóra.