Morgunblaðið - 22.01.1997, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Sænsk skýrsla um Svía og þýskt nasistagull á stríðsárunum
Vissu hvaðan gullið kom
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
SÆNSKA stjórnin tók við gullgreiðslum frá
Þýskalandi í stríðinu, þótt hún vissi að gullið
kæmi frá herteknum löndum og gyðingum. Þetta
var tilkynnt í Stokkhólmi í gær, er kynnt var
skýrsla um efnið, unnin að tilhlutan Dagens
Nyheter og sænska útvarpsins. Göran Persson
forsætisráðherra lýsti því strax yfir að einskis
yrði látið ófreistað til að komast til botns í mál-
inu og skila gullinu aftur til réttra eigenda, ef
hægt væri. Svíar voru hlutlausir, rétt eins og
Sviss, þar sem miklar fúlgur frá gyðingum eru
álitnar liggja í bönkum. Svissneska stjórnin hef-
ur þótt ærið sein að gefa upplýsingar og í Sví-
þjóð hefur verið bent á viðbrögð hennar sem
víti til varnaðar.
Svíar áttu margs konar viðskipti við Þjóðveija
í stríðinu. Sænska stjórnin leyfði þýskum herjum
meðai annars að fara yfir sænskt land til og frá
Noregi og átti viðskipti við stjórn nasista, sem
meðal annars keypti sænskt járn. Þjóðveijar
greiddu fyrir vörur í gulli. Sá kvittur kom upp
að gullið væri „smitað“, eins og það var kallað
og átt við að það væri illa fengið. Bankastjóri
sænska seðlabankans spurðist þá fyrir um það
bak við tjöldin hjá sænsku stjórninni, hvort bank-
inn ætti samt sem áður að taka við gullinu.
Fékk hann það svar að bankinn skyldi taka við
gullinu eins og áður og hvatti stjórnin bankann
til að spyija ekki nánar út í uppruna gullsins.
Þegar kom fram á 1944 vöruðu Bandamenn
hlutlausar þjóðir við að taka við þýska gullinu,
þar sem það væri illa fengið, en sænska stjórnin
lét sig þá viðvörun engu varða. Um er að ræða
24,5 tonn af gulli og er talið að 20 tonn séu
„smitað“ gull. Sænska stjórnin hefur áður skilað
sjö tonnum til Hollendinga og sex til Belga, svo
eftir eru sjö tonn. Bankinn hefur þó í tímans rás
stundað viðskipti með gullið, svo forðinn er ekki
óskertur. Uppruninn er ekki alltaf ótvíræður, þar
sem vitað er að Þjóðveijar settu falsaða stimpla
frá því fyrir stríð á hluta af illa fengnu gulli sínu.
Sænski seðlabankinn tilkynnti strax í gær að
skipuð yrði nefnd til að kanna uppruna gullsins
og hvert bæri að skila því, sem Þjóðveijar hefðu
tekið hernámi eða frá gyðingum. Það gull sem
ekki er hægt að skila til eigenda verður væntan-
lega látið renna í sjóð. Strax heyrðust þó þær
raddit- að Svíar yrðu að gera eins og Svisslending-
ar og skipa óháða nefnd sérfræðinga og fulltrúa
bandaríska þingsins og breyta lögum svo rann-
sóknin næði einnig til einkabanka og koma í veg
fyrir að skjöl yrðu eyðilögð. Einnig væri brýnt
að sænska stjórnin brygðist betur við en sú sviss-
neska, sem hefur þótt treg í taumi til rannsókna.
RISABREIÐÞOTA
Evrópsku flugvélaverk-
smiðjurnar Airbus kváðust í
gær bjartsýnar á að þörf yrði
fyrir risaþotuna A3XX sem
verið er að hanna og ætlað er
að bera 555 farþega
Boeing-verksmiðjumar tilkynntu í
fyrradag, að þær hefðu hætt við
smfði 550 farþega risaþotunnar
747-X þar sem markaður væri ekki
fyrir hana. I staðinn verða smfðuð
ný afbrigði af 767- og 777-þotunum
sem eru tveggja hreyfla
Stærsta farþegaþotan i notkun er
747-400 sem flutt getur 420 farþega.
Að neðan má sjá stærðarhlutföll
breiðþotnanna
Reuter
Breytingar á
sænsku sljórninni
Norður-írland
Banda-
menn
skæruliða
varaðir við
Belfast. Reuter.
BRESKA stjórnin varaði við því í
gær að fulltrúum tveggja flokka
norður-írskra sambandssinna
kynni að verða vikið úr friðarvið-
ræðunum á Norður-írlandi vegna
tengsla þeirra við skæruliða, sem
grunaðir eru um sprengjutilræði í
vikunni sem leið.
Mikil spenna
Mikil spenna er nú á Norður-
írlandi vegna sprengjutilræða
írska lýðveldishersins (IRA) og
hefndaraðgerða skæruliðahreyf-
inga sambandssinna. Lögreglu-
stjóri Norður-írlands sagði að
grunur léki á að skæruliðarnir
hefðu staðið fyrir tveimur
sprengjuárásum á kaþólikka í vik-
unni sem leið þótt þeir hefðu ekki
lýst því yfir að vopnahléi þeirra
frá_ október 1994 væri lokið.
I yfirlýsingu frá bresku stjórn-
inni sagði að á fundi á mánudag
gæfist tækifæri til að ræða hugs-
anlegar tillögur um að flokkunum
tveimur yrði meinað að taka þátt
í viðræðunum.
GÖRAN Persson, forsætisráðherra
Svíþjóðar tilkynnti í gær um breyt-
ingar á ríkisstjórn sinni. Ráðherra-
skiptin verða 1. febrúar nk.
Thage G. Peterson, sem hefur
gegnt embætti varnarmálaráð-
herra, verður ráðherra í forsætis-
ráðuneytinu. Björn von Sydow tek-
ur við af honum sem varnarmála-
ráðherra en hann var viðskiptaráð-
herra. Við því embætti tekur Leif
Pagrotsky, sem var ráðherra í for-
sætisráðuneytinu. Hann verður eft-
ir sem áður ábyrgur fyrir málum
er varða vopnaútflutning.
Persson sagði Peterson hafa ósk-
að eftir því að láta af embætti varn-
armálaráðherra þegar varnarsamn-
ingurinn hefði verið samþykktur á
þingi. Nú væri orðið við þeirri ósk
en að forsætisráðherra vildi þó ekki
missa Peterson úr ríkisstjórninni,
sökum reynslu hans, og því hefði
hann fallist á að verða ráðherra í
forsætisráðuneytinu, Persson til
aðstoðar.
Spilakassar gerðir
útlægir úr Svíþjóð
Kaupmannahöfn. Morgunblaðid.
Hertar reglur um spilakassa
gengu nýlega í gildi í Svíþjóð. Þar
með hefur endanlega verið tekið
fyrir rekstur spilakassa, sem hægt
er að græða peninga í að sögn
Lars Lundholm yfirlögfræðings hjá
„Ix>tteriinspekt.ionen“ í Svíþjóð.
Ástæðan fyrir banninu er að það
er almenn skoðun stjórnmálamanna
að spilakassamir séu iðulega undir-
rót margvíslegra vandræða, auk
þess sem það þykir siðferðilega
óveijandi að hagnaður af slíkum
rekstri renni í vasa einkaaðila, and-
stætt því sem gerist með rekstri
lottós og sambærilegra spila.
Spilakassar sem hægt er að
græða pening i hafa verið bannað-
ir í Svíþjóð síðan 1978 og náði
bannið þá meðal annars til kassa,
sem gefa vinning ef upp koma
þrjár eins myndir, þegar peningi
er kastað í kassann. A þeim tíma
voru lögin gegn kössunum orðuð
á þann veg að bannað væri að
reka spilakassa, þar sem spilarinn
gæti unnið pening úr kassanum.
Þeir sem bjuggu til kassana létu
þá koma krók á móti bragði og
gerðu kassana þannig úr garði að
peningarnir streymdu ekki lengur
úr kassanum við vinning, heldur
taldi kassinn þá saman og spilarinn
fékk vinninginn borgaðan úr pen-
ingakassa þess sem rak staðinn.
I samtali við Morgunblaðið sagði
Lars Lundholm að þetta bragð
hefði greinilega gengið á móti anda
laganna, en látið var reyna á mál-
ið fyrir dómstólum, sem dæmdi á
þá vegu að kassarnir væru lögleg-
ir. Þá var ekki um annað að ræða
en að stjórnin og þingið beittu sér
fyrir ótvíræðri lagasetningu gegn
spilakössunum, þar sem eindreg-
inn vilji væri gegn rekstri slíkra
kassa. Börn og unglingar spiluðu
bæði sál og fé frá sér og leiddust
iðulega út í glæpi til að fjármagna
spilamennskuna. Einnig spilaði
gamalt fólk iðulega allt af sér í
kössunum.
Að sögn Lundholms er mikill
munur á því að spiia í spilakössum
annars vegar og lottói eða skyld-
um spilum hins vegar. Þeirri spila-
mennsku væri ekki hægt að ánetj-
ast á sama hátt og spilakössunum,
þar sem þúsund krónur íslenskar
gætu fokið á einni til tveimur
mínútum og ákafir spilarar yrðu
auðveldlega helteknir af spilafíkn.
Hagnaður spiiakassana rennur í
vasa einkaðila og það væri ekki
pólitískur vilji fyrir því að ein-
staklingar gætu auðgast á fíkn
annarra. Hagnaði af lottói væri
hins vegar beint í ýmsar áttir, tii
dæmis til líknarmála og íþróttafé-
Iaga og gæti því víða komið til
góða auk þess sem hið opinbera
fylgdist nákvæmlega með þeim
rekstri.
Nú er ólöglegt að hafa hvers
konar tegundir af spilakössum,
sem skila peningavinningum og
gerir lögreglan þá upptæka og
eyðileggur, ef slíkir kassar finnast.
Forsetaskál
FLOKKADRÆTTIR voru lagðir
til hliðar á mánudag þegar Bill
Clinton Bandaríkjaforseti var
settur inn í embætti öðru sinni.
Dansleikir voru haldnir víða um
Washington á mánudagskvöld.
Hér sést Hillary Rodham Clinton
forsetafrú skála við Newt
Gingrich, forseta fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings, í þinghúsinu.
Forsetinn stendur að baki konu
sinni. í gær tók alvara lífsins við
hjá forsetanum og fyrsti dagur
annars kjörtímabils hans.
AIRBUSA3XX-200 77,4 m 79,0 m 550
AIRBUS A340 63,7 m 60,3 m 295
BOEING 747-600X 85,0 m 77,0 m 550
BOEING 747-400 70,7 m 64,4 m 420
Sósíalistar
íhuga kosning-
ar í Belgrad
Ölíklegt að stjórn-
arandstaðan fall-
ist á málamiðlun
Belgrad. Reuter.
SÓSÍALISTAFLOKKURINN í Serb-
íu íhugar nú að freista þess að draga
úr mótmælum stjórnarandstöðunnar
með því að stjórna Belgrad í tvo
mánuði og efna síðan til kosninga,
að sögn heimildarmanna í innsta
hring Slobodans Milosevic forseta.
Þeir lögðu þó áherslu á að þetta
væri aðeins einn af þeim möguleik-
um, sem forystumenn flokksins veltu
fyrir sér, og þeir viðurkenndu að
mjög ólíklegt væri að stjórnarand-
staðan sætti sig við þessa málamiðl-
un.
Fréttaskýrendur sögðu að for-
ystumenn flokksins hefðu hingað til
aðeins reynt að vinna tíma í von um
að mótmæli stjórnarandstöðunnar
koðnuðu niður en sú aðferð gengi
ekki öllu lengur. Til átaka kom milli
lögreglumanna og hóps stjórnarand-
stæðinga í Belgrad í fyrrakvöld og
sá atburður og fréttir um vaxandi
ólgu í Kosovo-héraði benda til þess
að Milosevic geti ekki lengur komið
sér hjá því að leysa deiluna, að sögn
sérfræðinga í stjórnmálum Serbíu.
„Þetta rennir stoðum undir þá
afstöðu okkar að sósíalistar eigi að
hætta að sóa tíma okkar og fallast
á þá lausn sem felst í tillögum eftir-
litsmanna Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu, sem hafa hvatt
til þess að sósíalistar virði sigra
stjórnarandstöðunnar," sagði vest-
rænn stjórnarerindreki í Belgrad.
Zajedno, bandalag serbneskra
stjórnarandstöðuflokka, krefst þess
að serbnesk yfírvöld hnekki ógild-
ingu kosninga í 14 borgum og bæj-
um í nóvember. Kjörstjórnir úrskurð-
uðu fyrir viku að Zajedno hefði sigr-
að i tveimur stærstu borgunum,
Belgrad og Nis. Áfrýjun sósíalista í
Nis var hafnað og Zajedno býr sig
undir að ná völdum í borginni í
næstu viku. Héraðsdómstóll í
Belgrad frestaði því hins vegar að
staðfesta niðurstöðu kjörstjórn-
arinnar í höfuðborginni þar til hæsti-
réttur Serbíu úrskurðar hvaða dóm-
stóll eigi að fjalla um málið.
Zajedno hyggst sniðganga
kosningar
Heimildarmenn úr röðum sósíal-
ista sögðu í gær að forystumenn
flokksins væru að íhuga þann mögu-
leika að fá hæstarétt Serbíu til að
hnekkja niðurstöðu kjörstjórnarinn-
ar í Belgrad, mynda bráðabirgða-
stjórn og efna síðan til kosninga
eftir tvo mánuði. Óljóst var hvort
þessari aðferð kynni að verða beitt
í öðrum borgum sem deilt er um.
Heimildarmennirnir töldu þó ör-
uggt að Zajedno myndi hafna þess-
ari málamiðlun. „Ég er mjög efins
um að átökunum myndi linna þar
sem bráðabirgðastjórn er engin end-
anleg lausn,“ sagði einn þeirra.
Hann taldi að Zajedno myndi ekki
fallast á neina málamiðlun vegna
hins mikla stuðnings sem bandalagið
nýtur heima fyrir og erlendis.
Samkvæmt serbneskum sveitar-
stjórnalögum er hægt að mynda
bráðabirgðastjórn í bæjarfélögunum
ef stjórnir þeirra koma ekki saman
innan tveggja mánaða eftir kosning-
ar. Hins vegar verður að efna til
kosninga tveimur mánuðum síðar.
Zajedno hefur sagt að bandalagið
myndi sniðganga slíkar kosningar
og krefst þess að sósíalistar virði
sigra þess í öllum bæjarfélögunum
14.