Morgunblaðið - 22.01.1997, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 23
AÐSENDAR GREIIMAR
Þreifað á púlsi
ferðalaga í Asíu
ÁRLEG ferðakaupstefna Asíuland-
anna sjö, sem eru í viðskiptabanda-
laginu ASEAN, var að þessu sinni
haldin í höfuðborg Malasíu, Kuala
Lumpur, og lauk um síðustu helgi.
Þar kynntu um 500 helstu seljend-
ur ferðaþjónustu í Tælandi, Malas-
íu, Singapore, Brunei Darussalam,
Indónesíu, Filippseyjum, og Víet-
nam margt af því besta sem heim-
urinn hefur að bjóða ferðamönnum
í dag, bæði hvað snertir áhuga-
verða og sérstaka menningu, stór-
stígar nútímaframfarir, mörg bestu
hótel heimsins og þjónustu í gæða-
flokki, sem er óþekkt í öðrum hlut-
um heimsins, að ógleymdu verðlagi
ennþá svo miklu lægra í Suðaustur-
Asíu að 2-3 vikna ferðir þangað
kosta jafnvel minna en jafnlöng
ferð innan Evrópu.
Víetnam bætist í hópinn
Víetnam vekur nú athygli ferða-
heimsins, nýr spennandi áfanga-
staður, sem lengi var lokaður,
framandi og enn lítið spilltur af
vestrænum áhrifum, sem auðvitað
sækja á í Suðaustur-Asíu eins og
Þekkingarleysið, segir
Ingólfur Guðbrands-
son, er versti þröskuld-
urinn í vegi góðra, rétt
skipulagðra ferðalaga.
annars staðar með aukinni velmeg-
un og auknum ferðalögum. Því
hafa margir á orði að ekki sé seinna
vænna að kynnast Asíu eins og
hún upprunalega var, áður en sér-
kennin þurrkuðust út. í Víetnam
er flest enn með einkennum gamla
tímans. Þótt uppbyggingin sé hafin
af krafti og Saigon státi af nýjum
hótelum í heimsklassa, eru þjóð-
hættir og verklag víða með svip
fortíðar. Fólkið er broshýrt, vin-
gjarnlegt og gestrisið svo að að-
dáun vekur. Skugga Víetnams-
stríðsins er að létta af þjóðinni, og
vafalaust á þetta gjöfula land mikla
framtíð sem paradís ferðamanna,
sem leita út fyrir almannaleið hins
venjulega og hversdagslega. Verð-
lag á flestu er ótrúlega lágt, t.d.
mat og fallegum handunnum mun-
um, s.s. útsaumi.
Þekkingarleysi mesta
hindrun ferðalaga
í tengslum við Asíu ferðakaup-
stefnuna voru haldin þing og nám-
FLÍSASKERAR
OG FLÍSASAGIR
+- -t±j irÉl^
k
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sfmi 567 4844
BÓKHALDSHUGBÚNAOUR
fyr/rWINDOWS
Tökum Opus-Allt og
annan hugbúnað uppí
gl KERFISÞRÓUN HF.
““ Fákafeni 11 - Sími 568 8055
skeið þar sem fjallað var um nýj-
ungar og framtíð ferðamála. Alls
staðar kom fram að þekkingarleys-
ið er versti þröskuldurinn í vegi
góðra, rétta skipulagðra ferðalaga.
Almenningur á Vesturlöndum er
enn mjög fáfróður um Austurlönd
og yfirburði þeirra á mörgum svið-
um. Of mörg mistök verða vegna
þess að ferðamenn sniðganga fag-
fólk með sérþekkingu
í ferðaþjónustunni, og
var þessu jafnað við
að sjúklingur vildi
fremur framkvæma á
sjálfum og vinum sín-
um vandasama
Iæknisaðgerð heldur
en að leita til sérfræð-
ings. Afleiðingamar
væru e.t.v. sjaldan
jafnháskalegar, en oft
á tíðum bæði dýrar og
óþægilegar.
Á Asian Tourism
Fomm var ég spurður
sláandi spurningar:
„Hvers konar fólk er
Ingólfur
Guðbrandsson
annað en það ódýrasta
á ferðalögum?“ Þessu
til staðfestingar voru
mér sagðar skondnar
sögur af íslendingum
sem keyptu sér ferðir
út í bláinn og lentu í
slæmum málum. Einn
frægasti hótelhringur
heimsins og marg-
verðlaunaður er
Mandarin Oriental og
einnig Singapore
Mandarin Internati-
onal. En þar sannast
íslenska orðtækið að
ekki er sama Jón og
séra Jón. Fleiri hótel
skylt við hin fyrrnefndu. Gamla
Mandarin-hótelið í Bangkok hefur
þótt fínt fyrir 30 áram, en í dag
stenst það engan samanburð við
nýju glæsihótelin, sem kosta lítið
meira. Stundum verður sparnaður-
inn svo dýr að hann verður hreint
öfugmæli og rænir ferðina öllum
unaði. Sögunni fylgdi að stór hóp-
ur íslenskra sérfræðinga hefði
þannig keypt köttinn í sekknum
nýlega.
Þátttaka í viðburði eins og Asíu-
ferðakaupstefnunni lýkur enn upp
augum manns fyrir einhæfni í
ferðum íslendinga, og tilviljana-
kenndu ferðavali.
Islendingar? Kaupa þeir aldrei kalla sig Mandarin og eiga ekkert Höfundur er ferðamálafrömuður.
„Við borðum Cheerios hringi... á meðan jörðin hringsnýst um möndul sinn...!“
Cheerios
sólarhrinqurinn
Málið er einfalt, í hvert sinn sem þú borðar Cheerios borðar þú
hollan og góðan mat. Cheerios er trefjaríkur matur, svo til laus
við sykur og fitu en hlaðinn steinefnum og vítamínum.
Þess vegna er ráðlegt að borða Cheerios hvenær sem
hungrið segir til sín - á nóttu sem degi.
-einfaldlega hollt
allan sólarhringinn!