Morgunblaðið - 22.01.1997, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 37
FRÉTTIR
I
I
I
I
I
I
l
I
(
(
(
(
(
<
(
(
(
(
(
Morgunblaðið/Ásdís
MYNDIN var tekin við afhendinjgn á fyrsta neyðarljósinu í leikskólanum Álfaheiði í Kópavogfi f.v.:
Rut Jónasdóttir, svæðisstjóri VIS í Kópavogi, Sesselja Hauksdóttir, leikskólafuljtrúi í Kópavogi,
Jón Viðar Matthíasson, varaslökkviliðsstjóri, Sigurður Geirdal, bæjarsljóri, og Ólína Geirsdóttir,
leikskólasljóri leikskólans við Álfaheiði.
Evropsk umhverfis-
verðlaun fyrir
upplýsingaefni
EVROPSKA umhverfisstofnunin
(EEA) hefur auglýst eftir um-
sækjendum um Prinsaverðlaunin
fyrir árið 1997 sem veitt eru fyr-
ir gerð kvikmynda og margmiðl-
unarverkefna um málefni um-
hverfisverndar og sjálfbærrar
þróunar. Umsóknir skulu hafa
borist fyrir 1. maí 1997 og verð-
launin verða afhent í Kaupmanna-
höfn á alþjóðlega umhverfisdag-
inn 5. júní.
Prinsaverðlaunin heita eftir
verndurum þeirra, þeim Friðrik
krónprinsi Danmerkur og Filippus
krónprinsi Spánar. í heiðursnefnd
verðlaunanna eru Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrrverandi forseti ís-
lands, Jacques Delors, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Evrópusam-
bandsins, Mikhail Gorbatsjov,
fyrrverandi forseti Sovétríkjanna,
Vaclav Havel, forseti Tékklands
og Mario Soares, fyrrverandi for-
seti Portúgals.
Verðlaun eru veitt fyrir þrjá
flokka upplýsingaefnis; heimilda-
efni (heimildakvikmyndir,
fræðslumyndir fyrir börn og full-
orðna), leikið efni (kvikmyndir,
sjónvarpsmyndir, teiknimyndir)
og margmiðlun (geisladiskar og
heimasíður á alnetinu). Myndin
eða verkefnið á að fjalla um um-
hverfismál í Evrópu, nánar tiltek-
ið um sjálfbæra þróun, annað
hvort almennt um þær hugmynd-
ir sem liggja að baki hugtakinu
eða um sérstakt vandamál eða
verkefni sem liggja að baki hug-
takinu eða um sérstakt vandamál
eða verkefni sem tengist viðleitn-
inni að koma á sjálfbærri þróun.
Frekari upplýsingar fást í um-
hverfisráðuneytinu og á heimas-
íðu EEA: http://www.eea.dk/.
VÍS gefur
leikskólum
neyðarljós
VÁTRYGGINGAFÉLAG íslands
hefur ákveðið að færa öllum leik-
skólum sem tryggðir eru hjá fé-
laginu að gjöf neyðarljós til notk-
unar í eldsvoða.
í fréttatilkynningu frá fyrir-
tækinu segir að aðstæður í leik-
skólum séu sérstakar vegna þess
að börnunum þurfi að hjálpa
hveiju og einu komi til neyðará-
stands. Slíka aðstoð sé ekki hægt
að veita ef skólinn er ljóslaus
vegna straumrofs, sem er algengt
þegar eldur er laus, en neyðarljós-
in munu leysa úr þeim vanda.
Fyrsta (jósið var sett upp í leik-
skólanum við Álfaheiði í Kópavogi
í gær en fulltrúar VÍS munu ferð-
ast um Iandið næstu vikurnar og
setja þau upp í öðrum leikskólum.
-----» ♦ -4---
Ráðgjöf
vegna vímu-
efnaneyslu
SIGRÚN Hv. Magnúsdóttir, félags-
ráðgjafi og fyrrverandi forstöðumað-
ur vímumeðferðar fyrir unglinga að
Tindum á Kjalar-
nesi, hefur opnað
stofu að Laugavegi
59, 3. hæð (Kjör-
garði).
Sigrún mun
verða með ráðgjöf
og stuðning við ein-
staklinga, hjón og
fjölskyldur, sér-
staklega fjölskyldur
þeirra unglinga sem eru eða hafa
verið í áfengis- og/eða fíkniefna-
neyslu. I bígerð er að stofna stuðn-
ingshópa fyrir þessar fjölskyldur.
Sigrún Hv. Magnúsdóttir útskrif-
aðist frá Gautaborgarháskóla í fé-
lagsráðgjöf árið 1981. Hún starfaði
á félagsmálastofnun á árunum
1981-1987, á dagdeild géðdeildar
Borgarspítalans við hópmeðferð í tvö
ár og síðan sem forstöðumaður Tinda
frá 1990 til 1996. Sigrún byggði þar
upp fjölskyldumeðferð, en foreldra-
hópar frá meðferðinni starfa enn.
Þá hefur Sigrún verið með fyrirlestra
fyrir skóla og félagasamtök, meðal
annars um vímuefnaeinkenni á ungl-
ingum og dæmigerð viðbrögð for-
eldra og þjóðfélagsins.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún
Hv. Magnúsdóttir í heimasíma.
Fyrirlestur
um aflfræði-
lega eigin-
leika bergs
ÆGIR Jóhannsson heldur opinber-
an fyrirlestur á morgun, fimmtu-
daginn 23. janúar, sem nefnist:
Aflfræðilegir eiginleikar bergs í
íslenskum berglagastafla -
ákvörðun á tilraunastofu. Fyrir-
lesturinn, sem er lokaáfangi náms
til meistaraprófs við verkfræði-
deild Háskóla íslands, verður hald-
inn í stofu 158 í húsi verkfræði-
og raunvísindadeildar (VR-Il) við
Hjarðarhaga og hefst hann kl.
17.15.
„Ægir Jóhannsson lauk CS-
prófi í byggingaverkfræði frá verk-
fræðideild Háskóla íslands í októ-
ber 1994. Hann hóf meistaranám
við sömu deild haustið 1995. Hluti
af náminu var tekinn við Tæknihá-
skólann í Þrándheimi (NTNU).
Umsjónarefndina skipa þeir dr.
Hreinn Haraldsson, forstöðumaður
rannsókna- og þróunarsviðs Vega-
gerðar ríkisins, Björn A. Harðar-
son ráðgjafarverkfræðingur og
Sigurður Erlingsson, dósent við
verkfræðideild HÍ, sem einnig er
formaður nefndarinnar og aðalleið-
beinandi verkefnisins.
í fyrirlestrinum verður fjailað
um aflfræðilega eiginleika íslensks
bergs. Rúmlega fjörutíu berg-
kjarnar voru teknir úr borholu sem
boruð var í tengslum við gerð jarð-
ganga undir Hvalfjörð. Gerðar
voru á þeim prófanir þar sem feng-
ust upplýsingar um fjaðureigin-
leika, hljóðhraða og brotstyrk.
Einnig voru kannaðir þenslueigin-
leikar leirsýna úr sprungum. Fjall-
að verður um aðferðirnar sem not-
aðar voru við prófanirnar, niður-
stöður þeirra og hvernig þær sam-
ræmast öðrum niðurstöðum sem
gerðar hafa verið á íslensku bergi,"
segir í fréttatilkynningu frá HI.
Fundur um
náttúruvernd
og umhverfis-
mál
FUNDUR verður haldinn í hús-
næði Ferðafélags íslands, Mörk-
inni 6, í kvöld kl. 20 um náttúru-
vernd og umhverfisvernd.
„Tilefnið er náttúruverndarþing
sem haldið verður 31. janúar og
1. febrúar. Meginmál Náttúru-
verndarþings er áhrif orkuiðnaðar
á íslenska náttúru sem leiða af
núverandi orkunýtingarstefnu.
Auk þess að samtökin eigi einn
fulltrúa á þinginu er ástæða til að
ýta við nokkrum málum með álykt-
unum sem lagðar verða fyrir og
ræddar á þinginu.
Þeir sem vilja láta fjalla um ein-
hver málefni á náttúruverndar-
þinginu eru hvattir til að koma
með skriflegar tillögur að ályktun-
um á fundinn, ásamt stuttum
greinargerðum og skila þeim í
upphafi fundar til fundarstjóra. í
umræðum verður ákveðið hvaða
tillögur verða fluttar á náttúru-
verndarþingi í nafni samtakanna,"
segir í fréttatilkynningu frá sam-
tökum almennings um nátúru-
vernd og umhverfismál.
Dagskráin er þannig skipuð:
samtökunum valið nafn, umfjöllun
um tillögur til ályktunar sem lagð-
ar verða fyrir náttúruverndarþing,
valinn fulltrúi samtakanna til setu
á náttúruverndarþingi og önnur
mál.
Veitingahúsið
Skólabrú 5 ára
FIMM ár verða liðin frá opnun
veitingahússins Skólabrúar 25.
janúar. Skólabrú er við samnefnda
götu í einu af fegurstu húsum
Kvosarinnar, segir í fréttatilkynn-
ingu. Húsið var byggt árið 1907
og er því 90 ára um þessar mund-
ir. Skúli Hansen matreiðslumeist-
ari hefur verið yfirkokkur frá upp-
hafi.
í tilefni 5 ára afmælisins verður
sérstakur hátíðarmatseðill í boði
dagana 23. og 25. janúar. Afmæl-
ismatseðillinn er eftirfarandi: For-
drykkur, kampavín. Gæsalifur
„Foie Gras“ á blönduðu skrautkáli
með jarðsveppum. Með henni er
borið fram kampavín. Kampavíns-
soðin fersk smákskata og humar
með saframjóma og með er borið
fram hvítvín. Blábeijakrap. Skóla-
brúarlamb og með því er rauðvín.
Mangó-búðingur með karamellu-
pecansósu og með því borið fram
púrtvín. Kaffi og boðið með því
koníak og líkjör. Verð á þessum
matseðli er 7.500 kr. og eru vín-
föng innifalin í verði.
Fyrirlestur um
hug og heila
HELGE Malmgren, læknir og
heimspekingur, flytur erindi á veg-
um Siðfræðistofnunar Háskóla Is-
lands og Geðlækningafélags ís-
lands fimmtudagskvöldið 23. jan-
úar kl. 20.15. Fyrirlesturinn verður
á ensku og nefnist „Brain and
Mind in Philosophy and Psychi-
atry“ (Heilinn og hugurinn í heim-
speki og geðlæknisfræði).
„Helge Malmgren nam læknis-
fræði og starfaði um skeið við
geðlækningar. Síðar nam hann
heimspeki en aðaláhugamál hans
og rannsóknarefni á því sviði er
heimspeki hugans (philosoph'y of
mind). Hann hefur í mörg ár unn-
ið með Göran Lindquist að flokkun
geðrænna einkenna sem rekja má
til líkamlegra sjúkdómsfyrirbæra
og hafa þeir ritað bók um efnið.
Þá hefur Helge Malmgren í mörg
ár kennt læknisfræðilega siðfræði
og skrifað kennslubók um efnið,“
segir í fréttatilkynningu.
Námskeið í ís-
lensku fyrir út:
lending’a við HÍ
ENDURMENNTUNARSTOFNUN
Háskóla Islands mun í samvinnu
við skor í íslensku fyrir erlenda stúd-
enta, bjóða upp á þijú námskeið í
íslensku fyrir útlendinga. Boðin eru
námskeið á þremur stigum: byij-
endanámskeið, framhald 1 og 2.
í námskeiðunum er lögð megin-
áhersla á talað og ritað mál, en
samhliða kennd grunnatriði ís-
lenskrar málfræði.
Námskeiðin standa yfir frá 27.
janúar til 29. apríl. Kennt er síðdeg-
is, tvisvar sinnum í viku kl. 17.15-
19.45, alls 100 kennslustundir.
Þátttökugjald er 39.000 kr.
Upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu Endurmenntunarstofnunar,
Tæknigarði, Dunhaga 5.
Strandganga á
Seltjarnarnesi
HAFNARGÖNGUHÓPURINN fer
á miðvikudagskvöldið frá Hafnar-
húsinu kl. 20 út með ströndinni
og yfir í Bakkavör á Seltjarnar-
nesi, síðan með ströndinni fyrir
Suðurnes. Val um að ganga til
baka eða fara í SVR. Allir vel-
komnir.
Meistaraprófs-
fyrirlestur á
vegum HÍ
ROBERT Skraban heldur meist-
araprófsfyrirlestur fimmtudaginn
23. janúar kl. 16 að Grensásvegi
12. Fyrirlesturinn nefnist: „Vaxt-
arhindrandi væki í mæði-visnu
veiru.“
í fréttatilkynningu segir: „Mæði-
visnu veirur valda algengum sjúk-
dómi í sauðfé um allan heim. Sjúk-
dómnum var fyrst lýst hérlendis
en honum hefur nú verið útrýmt á
íslandi. í rannsókn þessari var
erfðafræðilegum aðferðum beitt til
að varpa ljósi á ónæmissvar gagn-
vart mæði-visnu veirum. Veiran er
náskyld HlV-veirunni og rannsókn-
ir á henni geta m.a. aukið skilning
okkar á alnæmi."
Verkefnið var unnið á Tilrauna-
stöð Háskólans í meinafræði á
Keldum.
Breytt dagskrá
hjá Nýrri dögun
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Nýrri dögun:
„Vegna óviðráðanlegra orsaka
breytist dagskrá Nýrrar dögunar
fram á vor og verður sem hér segir:
23. janúar: Opið hús, 6. febrúar:
Sorg og sorgarviðbrögð - sr. Irma
Sjöfn Óskarsdóttir, 20. febrúar:
Opið hús, 6. mars: Sjálfsvíg - Sig-
mundur Sigfússon, geðlæknir, 20.
mars: Opið hús, 3. apríl: Vinamiss-
ir - Guðfinna Eyldal, sálfræðing-
ur, 10. apríl: Aðalfundur, 17. apríl:
Opið hús, 15. maí: Barnamissir -
Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur
og 29. maí: Opið hús.
Við minnum á að fyrirlestrar og
opin hús eru haldin í Gerðubergi
kl. 20 og eru allir velkomnir."
Samkirkjuleg
bænavika
Samkoma í
Kristskirkju
NÚ STENDUR yfir samkirkjuleg
bænavika og verður af því tilefni
samkoma í kvöld, miðvikudag 22.
janúar, í Kristskirkju í Landakoti
og hefst hún kl. 20.30.
Biskup kaþólsku kirkjunnar á
íslandi, dr. Johannes Gijsen, flytur
predikun og kór og organisti kirkj-
unnar flytja tónlist. Fulltrúar safn-
aðanna lesa ritningarorð.
Allir velkomnir.
^ Sólarkaffi
ísfirðingafé-
lagsins
NÚ ÞEGAR sól tekur að teygja
geisla sína yfir brúnir fjalla blárra
og verma eyrina við Skutulsfjörð,
eins og segir í fréttatilkynningu,
gengst ísfirðingafélagið í Reykja-
vík að venju fyrir sínu árlega Sólar-
kaffi sem að þessu sinni verður
drukkið laugardagskvöldið 25. jan-
úar nk. á Hótel Islandi.
Hefðbundin dagskrá verður að
venju með ijúkandi kaffi og
ijómapönnukökum. Hátíðarræðu
flytur að þessu sinni Halldór Her-
mannsson skipstjóri. ísfirskir
skemmtikraftar koma fram, söngv-
arar og grínistar og stiginn verður
dans til kl. 3 að nóttu.