Morgunblaðið - 22.01.1997, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Gaman að leika
við rottuna
k
f
>
I
>
)
I
I
„MIG langar til að verða kvikmynda-
stjarna," segir Alex D. Linz, 8 ára,
arftaki Macaulays Culkins í Home
Alone myndunum en
tökur standa nú yfir á
mynd númer þrjú í ser-
íunni, í Chicago.
Drengurinn áttar sig
kannski ekki á hvers
hann er að óska sér því
frægðin getur verið
fallvölt eins og Culkin
hefur mátt reyna. Eftir
mikla velgengni sem
bamastjama, sem gaf
mikla peninga í aðra
hönd, lenti hann í miðri
rimmu foreldra sinna
sem em skilin en deildu
um hvort þeirra ætti
að hafa yfirráð yfir ferli
Culkins sem nú er orð-
inn 16 ára gamall og hlutverk í kvik-
myndum em orðin sjaldséð á hans
borði.
Alex er einkabarn frá Los Angel-
es. Hann fékk áhuga á leiklist þegar
hann var fimm ára og sá Hot Whe-
els auglýsingu í sjónvarpinu og
sagði: „Mig langar að gera svona
og leika mér að dótinu líka.“ For-
eldrar hans, Deborah Baltaxe, 35
ára lögfræðingur, og
Dan Linz, 41 árs, sál-
fræðiprófessor við há-
skólann í Kalifomíu,
fóru með strák til um-
boðsmanns að því
mæltu og fljótlega fékk
hann vinnu við að leika
í auglýsingum, þar á
meðal í McDonald’s
auglýsingu. Hann hefur
einnig leikið í einni bíó-
mynd, en hann lék á
móti Michelle Pfeiffer
og George Clooney í
myndinni „One Fine
Day“ sem nýlega var
frumsýnd. „Hann er
gæddur óvenjumiklum
hæfileikum," segir leikstjóri mynd-
arinnar, Michael Hoffman, um Alex.
„Það skemmtilegasta við að leika í
Home Alone 3 er það að fá að leika
áhættuatriði sjálfur og fá að leika
á móti Doris, rottunni minni,“ sagði
Alex D. Linz.
Whitney Houston
missti fóstur
SÖNGKONAN
Whitney Houston.
i
I
J
[
I
► SÖNGKONAN
geðþekka Whitney
Houston átti ekki
sjö dagana sæla
yfir hátíðamar.
Hún missti fóstur
19. desember þeg-
ar hún var komin
tíu vikur á leið.
Þetta er í þriðja
skipti sem hún
missir fóstur. Hún á
þriggja ára dóttur, Bibbi
Kristina,
með
eigin-
manni
sínum,
söngv-
aranum
Bobby
Brown.
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 43
SAMBtOm SAMBfMM .SMV/BIOiM =
txnixnmxrxixrmmjiTiiJuiimJxrr. nuiiiiiiuiiiiixxxiiTxxmixixiixrrrx:*^-* tiiiiixiimixiiiiixiiixxiiiTiirmxm:»-j^-#
rfTt 1111111 ii i ii 11111 rirriTiM n ...
Kringlunni 4-6 sími 588 0800 - NETFANG: http://www.sambioin.com/
Sýndkl. 2.30,4.40,6.50,9 og 11.15. B.1.16
Hringjarinn í
ROBIN
WRIGHT
MORGAN
FREEMAN
STOCKARD
iCHANNINt
FRUMSÝND Á FÖSTUDAG
LAUSNARGJALDIÐ
SPENNUMYND ÁRSINS ER KOMIN!!!
ÞESSARI MÁTTU ALLS EKKI MISSA AF!!
ÍIIXIDIGITAL
Alec Baldwin (The Getaway, The Juror) er fyrrverandi lögreglumaður
að rannsaka undarleg flugslys, morð og svik í undirheimum
Louisiana. Eftir metsölubók James Lee Burke. Hin gullfallega Teri
Hatcher (Louis og Clark), Kelly Lynch (Three of Hearts), Eric Roberts
(Runaway Train) og Mary Stuart Masterson
(Fried Green Tomatoes) fara á kostum.
MÖGNUÐ SPENNUMYND!!
FRUMSYND A FOSTUDAG
Þau héldu að fjölskyldan sín væri sú eina
sem væri i lagi...þangað til foreldrarnir
upplýstu þau um skilnaðinn. Krakkarnir
ætla að gera sitt besta til þess að halda
foreldrunum saman og framundan er
sprenghlægileg skemmtun fyrir foreldra
jafnt sem börn .Jamie Lee Curtis (A Fish
Called Wanda) og Kevin Pollak (Usual
Suspects) leika foreldrana sem hafa ekki
hugmynd um hvað er að gerast!
C
I
4
4
4
:
4
4
4
4
d
HELGA Thoroddsen forseti bæjarstjórnar, Gunnar Steinþórsson,
Guðmar Þ. Pétursson og Rafn Árnason.
Gunnar kjörinn
íþróttamaður ársins
GUNNAR Steinþórsson, sundmaður í Aftureldingu, var kjörinn íþróttamað-
ur ársins 1996 í Mosfellsbæ um síðustu helgi en þetta var í fímmta sinn
sem kjörið fer fram. í öðru sæti varð Rafn Árnason, ftjálsíþróttamaður í
Aftureldingu, og í því þriðja, Guðmar Þór Pétursson, hestamaður úr hesta-
mannafélaginu Herði.
Gunnar Steinþórsson varð aldursflokkameistari í öllum greinum á aldurs-
flokkameistaramóti íslands í sundi á síðasta ári og var kjörinn íþróttamað-
ur Aftureldingar 1996.
Aldrei vinsælli
„ÉG HEF aldrei verið vinsælli," seg-
ir Jack Lemmon í nýlegu viðtali og
ekki er neinn bilbug á honum að
finna, þrátt fyrir að hann sé orðinn
71 árs.
„Ég hef ekki
hugmynd um af
hveiju þessar
vinsældir stafa
segir leikarinn
sfungi. „Áður
fyrr leið ár á milli
hlutverka, en
núna leik ég í
þremur til íjórum
kvikmyndum á
ári.“
Lemmon fer
með stór hlut-
verk í tveimur
kvikmyndum
sem sýndar eru í
kvikmyndahús-
um vestra um
þessar mundir,
annarsvegar í „My Fellow Americ-
ans“ og hinsvegar í kvikmynd Ken-
neths Branagh eftir leikriti Sha-
kespeares, Hamlet.
Að sögn Lemmons var hlutverk
Marcellusar í Hamlet sérlega krefj-
andi. „Ég hafði aldrei áður leikið í
verki eftir Shakespeare," segir hann.
„Ég átti þess
vegna í mestum
erfíðleikum með
að skilja hvað
Marcellus var að
fara. Sumum
setningum botn-
aði ég hreinlega
ekkert í.“
Næsta kvik-
mynd með
Lemmon sem
fyllir breiðtjaldið
verður „Out to
Sea“. Énn ein
myndin með
honum og Walt-
er Matthau. Og
Lemmon er
hvergi banginn.
„Faðir minn
taldi að það væri tákn velgengni að
setjast í helgan stein um sextugt.
Ég verð meira ósammála honum með
hveiju árinu sem líður.“
JACK Lemmoner síungur.
Pitt og Palt-
row trúlofuð
ÞAÐ TELST til tíðinda í
Hollywood þegar tvö af ung-
stirnum hvíta tjaklsins tíl-
kynna trúlofun sína. Það
gerðu Brad Pitt og Gwyneth
Paltrow gerðu á dögunum.
Orðrómur um að fréttir þess
efnis væru væntanleg hirfði
gengið fjöllunum hærra í
marga mánuði, en það var
ekki fyrr en á aðfangadag
að þær fengust staðfestar.
Ekki hefur verið ákveðið
hvenær brúðkaupið fer
fram.