Morgunblaðið - 22.01.1997, Page 48
48 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Alger plága
(The Cable Guy) k k
Á vaktlnnl
(Dog Watch) k
Hattadeildin
(Mulholland Falls) k k'/i
Flipper
(Flipper) k
Fargo
(Fargo) •k'k'k
Tungllöggan
(Lunar Cop) 'h.
LENDIR 31. JANUAR
DU PONT bflalakk notað af
fagmönnum um land allt.
Er bfllinn þinn
grjótbarinn eða
rispaður ?
DU PONT lakk
á úðabrúsa er
meðfærilegt og
endingargott.
Faxafeni 12. Sími 553 8000
Biddu um Banana Boat
ef þú vilt spara 40-60%
Þegar þú kaupir Aloe Vera gel.
o Hvers vegna að borga 1200 kr. fyrir kvartlítra af Aloe geli
þegar þú getur fengið sama magn af Aloe Vera geli frá
Banana Boat á um 700 kr eða tvöfalt meira magn af Banana
Boat Aloe Vera geli á 10OOkr.
0 Hvers vegna að bera á sig 2% af rotvamarefnum þegar jtú
getur fertgið 99,7% (100%) hreint Banana Boat Aloe Vera gel?
□ Banana Boat næringarkremið Brún-án-sólar i úðabnisa eða
meðsólvöml8.
o Stýrðu sðlbrúnkutóninum með t.d. hraðvirka Banana Boat
dökksólbrúnkuolíunni eða -kreminu eða Banana Boat
Golden olíunni sem framkallar gyllta brúnkutóninn.
o Hefur þú prófað Naturica húðkremin sem alír eru að rala um,
uppskrift Birgittu Klemo, eins virtasta húðsérfæðíngs
Norðurlanda? Naturica Ört-krám og Naturica Hud-krám.
Banana Boat og Naturica fást i sólbaðsstofum, apótekum,
snyrtiv. verslunum og öllum heiisubúðum utan Reykjavikur.
Banana Boat E-gelið fæst lika hjá Samtökum psoriasis-og
exemsiúkTmqa.______________________________________
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
Leyndarmál og lygar og annað góðgæti
ENGU BLÓÐI
VAR ÚTHELLT
Fátt er líklegra til að vekja forvitni landans
en Leyndarmál og lygar. Einkum þegar um
er að ræða óvenjulega kvíkmynd með safa-
ríkum leyndarmálum. Þóroddur Bjarna-
son og Pétur Blöndal gæddu sér á þessu
augnakonfekti og veltu fyrir sér hvað gerir
bíóferðir svona spennandi.
BÍÓFERÐIR eru félagsleg
athöfn og þykir jafnvel
dálítið „púkó“ að fara
einn með sjálfum sér.
Samt er ekki að sjá að sérstök
þörf sé á félagsskap í bíóferðum.
Það er helst í lokin að einhver
missi upp úr sér: „Vá, rosalega
góð mynd, maður!“ Má þá einu
gilda hvort söguhetjan bjargaði
eða murkaði lífið úr tugum auka-
leikara.
Á slíkum spennutryllum er al-
gengast að stráka- og stelpuhópar
sitji stjarfir í litlum klösum á víð
og dreif um salinn. Ef kvikmynd
er aftur á móti rómantísk má
bóka að kærustupör sitja hvert í
sínu horni í skjóli myrkurs og
haldast feimnislega í hendur.
Loks ef um er að ræða langa
verðlaunamynd, hvorki með blóð-
baði eða svæsnum ástaratriðum,
má búast við eldri áhorfendahóp,
virðulegri og öllu fámennari.
Það gladdi þess vegna blaða-
menn þegar þeir fóru á kvikmynd-
ina Leyndarmál og lygar síðastlið-
ið sunnudagskvöld að fólk virtist
ekki láta sig neinu skipta að eng-
ir frægir leikarar færu með aðal-
hlutverk, að myndin væri í lengri
kantinum og að engu blóði væri
úthellt. Salur 2 í Háskólabíói var
fullur af fólki á öllum aldri sem
virtist skemmta sér hið besta.
Að sýna sig og sjá aðra
Að mörgu leyti er sniðugt að
mæta snemma á bíósýningar,
forðast röð og kasta kveðju á þá
sem maður þekkir. Fyrir suma er
þetta jú fyrst og fremst spurning
um að sýna sig og sjá aðra. Einn-
ig er úrslitaatriði að hafa ráðrúm
til að kaupa popp og drykkjarföng
áður en sýningin hefst. Maður
getur þá glatt sig við eitthvað ef
myndin reynist afspyrnuléleg.
Ekki reynist það vera tilfellið
að þessu sinni. Kvikmyndin
Leyndarmál og lygar, sem leik-
stýrt er af Mike Leigh, er þvert
á móti sannkallað augnakonfekt
sem blaðamenn kjammsa á af
áfergju. „Þetta er að verða ein-
hver besta mynd sem ég hef séð,“
segir annar þeirra, fljótlega eftir
hlé, og hinn tekur undir.
Heill hafsjór af trega
Myndin hefst á jarðarför -
undirstrikar þannig að endalok
marka einnig upphaf. Fljótlega
verður auðsætt að Leigh færir
áhorfendur nær sögupersónunum
með angurværri tónlist og tökum
í nærmynd. Hann dregur dár að
bresku samfélagi, persónusköpun
er litrík og orðin kökkur í hálsi
áhorfenda. Sumir leikstjórar bæta
dropa af trega út í myndir sínar,
en í þessari er heill hafsjór af
trega.
Þótt sögupersónurnar eigi við
ýmsa erfiðleika að etja eiga þær
erfitt með að deila raunum sínum
og snúast samræðurnar gjarnan
um veðrið - ekki ólíkt íslending-
um. Stundum gægist þó hin hljóða
þjáning upp á yfirborðið og læðist
niður kinnarnar eða rekur upp
stríðsöskur og ber sér á bijóst.
Hvort tveggja skýtur rótum í
huga blaðamanna og dafnar vel
löngu eftir að myndin er búin.
Risaeðlur láta á sér kræla
Fátt fer meira í taugarnar á
sumum bíógestum en hlé. Þess
vegna er synd að ekki sé lengur
hægt að sleppa við hléin með því
að fara á sjösýningu, eins og áður
tíðkaðist. Aðrir bíógestir eru
hléinu fegnir og taka strikið út
úr bíóinu svo þeir nái að hamra
einn nagla í líkkistuna. Blaða-
menn eru hins vegar dæmdir til
að ráfa um sali og skoða bíóaug-
lýsingar.
Athygli vekur hve mikið er far-
ið að leggja upp úr alls kyns
pappamyndum, hálfgerðum leik-
myndum, til að auglýsa væntan-
legar myndir. Sem dæmi má
nefna risastóran risaeðlukassa
sem stendur við innganginn í bíó-
ið. Ljós blikka og þeir sem leggja
við hlustir heyra jafnvel högg og
læti að innan. Þarna er verið að
auglýsa framhald Júragarðsins
sem væntanlegt er í sumar.
Bros og grettur á áhorfendum
Frekar en að gera ekki neitt
kaupa blaðamenn sér svo meira
sælgæti, að þessu sinni falla þeir
fyrir tilboði sem felur í sér popp,
kók og súkkulaðistykki. Þótt boð-
ið sé ef til vill hagstætt, aðeins
300 krónur, er bíóferðin þar með
komin yfir þúsundkallinn. Það
getur verið dýrt spaug að eyða
kvöldstund í kvikmyndahúsi.
Hlaðnir gosi og sælgæti safnast
áhorfendur svo aftur í bíósalinn
og myndin getur hafist að nýju.
Leikararnir halda áfram að
fara á kostum og draga í senn
fram bros og grettur á áhorfend-
um. Enn kemur í ljós hversu fé-
lagslegt það er að fara í bíó. Einn
hlær hátt, annar undarlega og
þeim þriðja stekkur ekki bros á
vör. Sem betur fer eru ekki allir
þögulir - hver kannast ekki við
að smitandi hlátur geti bjargað
annars dræmri mynd?
Skrifar Sein-
feld undir?
SJÓNVARPSSTÖÐIN NBC
er alveg við það að ná samn-
ingum við Jerry Seinfeld um
að leika eitt
tímabil í við-
bót í gaman-
þáttunum
vinsælu,
Seinfeld.
Hann vill þó
ekki skrifa
undir nema
það sé gull-
tryggt að þeir þrír leikarar
sem deilt hafa sviðsljósinu
með honum haldi einnig
áfram. Þrátt fyrir efasemdir
ýmissa kvikmyndaspekúl-
anta þar að lútandi hefur
Seinfeld engar áhyggjur:
„Ég hef komist að því í
gegnum tíðina að þegar allir
samningsaðilar vilja semja,
ná endar yfirleitt saman."
Hagman á
mótorfák
LARRY Hagman lék nýlega
í þáttaröðinni Orleans og er
það í fyrsta skipti sem hann
leikur í sjónvarpsþáttum síð-
an hætt var að framleiða
Dallas fyrir fimm árum.
Hagman er ennþá i skyrtu
með bindi, en hefur skipt
út jakkafötunum fyrir leður-
jakka og hjálm og í stað
þess að vera ekið um á glæsi-
bifreið fer hann allra sinna
ferða á Harley Davidson-
mótorfák.
í þáttunum fer Hagman
með hlutverk fjölskyldu-
föðurins og dómarans Lut-
her Charbonet, sem er harð-
ur i horn að taka, en góður
inn við beinið. Hefur per-
sónu hans verið líkt við
Jimmy Carter, fyrrverandi
forseta Bandaríkjanna, og
hafa þættirnir fengið ágæta
dóma vestan hafs.
Tarantino
leikstýrir
SÍÐAN leikstjórinn Quentin
Tarantino stal senunni með
Reyfara eða „Pulp Fiction"
fyrir þremur
árum hefur
hann aðeins
leikstýrt
tvisvar sinn-
um. Hann
leikstýrði
fjórðungi
myndarinn-
ar Fjögur
herbergi og ER-þætti sem
sumum þótti ansi furðu-
legur.
Það ætti því að vera
áhangendum Tarantinos
gleðiefni að næsta afspreng-
is hans er ekki langt að bíða.
Um þessar mundir er hann
að skrifa kvikmyndahandrit
upp úr bókinni „Rum
Punch“, sem er glæpasaga
í gamansömum dúr eftir
Elmore Leonard. Áætlað er
að hann leikstýri myndinni
í febrúar eða mars fyrir
Miramax.
Heilsuval - Barónsstíg 20 u 562 6275