Morgunblaðið - 11.02.1997, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1997 17
VIÐSKIPTI
ÚR VERIIMU
Skipasmíðastöð Þorgeir og Ellert hf. Úr reikningum 1996
Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1996 1995 Breyt.
Rekstrartekjur 475,2 253,2 +88%
Rekstrargjöld 445,9 237,7 +88%
Hagnaður fyrir afskriftir og fjárm.liði 29,3 15,5 +89%
Afskriftir 5,4 3,1 +75%
Fjármagnsliðir (1,9) (1,8) +8%
Hagnaður fyrir skatta 22,0 10,6 +108%
Skattar 6,8 3i2 +115%
Hagnaður ársins 15,1 7,4 +104%
Efnahaosreikningur 31, des.: 1996 1995 Breyt.
| Eignir: \ Milliónir króna
Veltufjármunir 81,6 72,8 +12%
Fastafjármunir 100,1 57,8 +73%
Eignir samtals 181,7 130,5 +39%
I Skuldir oo eigið té: \ Milliónir króna
Skammtímaskuldir 69,5 48,9 +42%
Langtímaskuldir 55,4 40,6 +36%
Eigið fé 56,8 41,0 +38%
Skuldir og eigiö fé samtals 181,7 130,5 +39%
Skipasmíðastöð Þorgeir og Ellert á Akranesi
Veltan tvöfald-
aðist milli ára
REKSTUR Skipasmíðastöðvar
Þorgeirs og Ellerts skilaði rúmlega
15 milljón króna hagnaði á síðasta
ári sem er rúmlega tvöfalt meiri
hagnaður en árið áður. Velta fyrir-
tækisins nær tvöfaldaðist einnig á
árinu. Hún var tæpar 250 milljón-
ir króna árið 1995, en óx í rúmar
475 milljónir króna í fyrra eða um
88%.
Eigið fé fyrirtækisins nam í
árslok 56,8 milljónum króna.
Starfsmenn voru að meðaltali 74
á árinu og launagreiðslur voru
samtals 161,3 milljónir króna.
Pjárfest var fyrir 46,6 milljónir
króna á síðasta ári og voru rúmar
25 milljónir þar af fjármagnaðar
með fjármögnunarleigusamning-
um.
Hlutafé félagsins var í árslok
39,1 milljón króna og var aukið á
árinu um 3,6 milljónir. í árslok
voru hluthafar 68 og fækkaði um
tvo á árinu. Þrír hluthafar eiga
meira en 10% í fyrirtækinu, Bif-
reiðastöð Þ.Þ.Þ. hf. 27,1%, IÁ
-hönnun hf. 21,6% og Hörður Páls-
son 15,5%. Stjórn félagsins leggur
til að greiddur verði út 10% arður
vegna síðasta árs og fari greiðsla
arðsins fram með hlutabréfum í
félaginu.
Mjög sáttur
Þorgeir Jósefsson, fram-
kvæmdastjóri skipasmíðastöðvar
Þorgeirs og Ellerts, sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið vera mjög
sáttur við útkomuna á síðasta ári
og einkum það að veltan hefði
orðið mun meiri en áætlanir gerðu
ráð fyrir í upphafí ársins eða 475
milljónir króna í stað 313 milljóna.
Það væri einkum þjónusta við sjáv-
arútveginn og smíði á ryðfríum
vinnslubúnaði sem gerði þetta að
verkum og til marks um það væri
að starfsmönnum hefði fjölgað úr
52 árið 1995 í 74 í fyrra.
Þorgeir sagði að útlitið varðandi
þetta ár væri ágætt. Það væri nóg
af verkefnum næstu vikur og
mánuði og hann yrði ánægður ef
þeir héldu sömu veltu í ár og náðst
hefði í fyrra.
Markaðssetning á námi
í iðnaðartæknifræði
ÞESSA dagana er Tækniskólinn
í samvinnu við Tæknifræðingafé-
lag íslands að senda kynning-
arbækling til forstöðumanna ís-
lenskra iðnfyrirtækja og fyrir-
ækja í sjávarútvegi. Bæklingnum,
sem dreift er í rúmlega 1.300 ein-
tökum, er ætlað að kynna B.Sc.
nám í iðnaðartæknifræði og um
leið gera forstöðumönnum fyrir-
tækja Ijóst hve fjölhæfur starfs-
kraftur iðnaðartæknifræðingur
er, segir í frétt sem Morgunblað-
inu hefur borist.
Nám í iðnaðartækni við Tækni-
skóla íslands var sett á stofn árið
1989 eftir að könnun meðal ís-
lenskra iðnfyrirtækja leiddi í Ijós
þörf á fjölhæfum starfskrafti með
tölvuþekkingu og kunnáttu á svið-
um tækni og rekstrar. Námsefnið
er í sífelldri endurskoðun þar sem
miðað er við að koma til móts við
breyttar áherslur á vinnumarkaði,
segir ennfremur.
Þetta markaðsátak er byijunin
á samstarfi skþlans og Tækni-
fræðingafélags íslands, í þeim til-
gangi að minna á gildi tækni-
menntunar fyrir íslensk fyrirtæki.
Nemendur í iðnaðartæknifræði eru
í dag tæplega 30 talsins og námið
tekur þijú og hálft ár. Inntökuskil-
yrði eru stúdentspróf af eðlis- eða
náttúrusviði, eða raungreinadeild-
arpróf frá Tækniskóla íslands.
*
Fundur Sjávarnytja um hvalveiðar Islendinga
Vísindalegar forsendur
fyrir veiðum fyrir hendi
SJÁVARNYTJAR, félag áhuga-
manna um hvalveiðar við ísland,
stóð fyrir fundi um hvalveiðar á
Grand hótel sl. laugardag. Árni R.
Árnason, formaður starfshóps um
hvalveiðar, sagði á fundinum að vís-
indalegar forsendur fyrir að hefja
hvalveiðar væru allar fyrir hendi.
Árni segir vinnu starfshópsins á
lokastigi og væntanlega verði tillög-
um skilað til ráðherra á næstu dög-
um. „Við teljum að vísindalegar for-
sendur fyrir því að hefja hvalveiðar
séu fyrir hendi. Hinsvegar er ekki
ráðlegt að fara í að grisja stofnana,
í því felst mikill kostnaður. Við telj-
um nauðsynlegt að veiðarnar verði
efnahagslega sjálfbærar og að lífk-
eðjan haldi um leið áfram sjálfbærri
þróun. Við höfum réttu stjórntækin
til að halda okkur við þessar viðmið-
anir, það er vísindin, þekkinguna og
stjórnkerfið."
Margir stofnar ekki í
útrýmingarhættu
Árni segir að hvalveiðibannið sem
sett var á sínum tíma þýði ekki al-
gert veiðibann eins og margar þjóð-
ir innan Alþjóða hvalveiðiráðsins vilji
halda fram. „Það var samþykktur
svokallaður núllkvóti á ákveðnu ára-
bili og í samþykktinni var ennfremur
ákvæði þess efnis að ætlunin var
að endurskoða þennan núllkvóta að
fenginni meiri þekkingu á ástandi
hvalastofna. í ljósi þess átti að gefa
út nýjan kvóta, ekki seinna en árið
1990. Síðan hefur komið í ljós að
ýmsir stofnar eru ekki í útrýmingar-
hættu, það er viðurkennd þekking í
röðum vísindamanna og vísinda-
nefndin lagði á sínum tíma til við
Alþjóða hvalveiðiráðið að það ákvæði
nýjan kvóta og þar með hvalveiðar
að nýju. Alla tíð síðan hafa ríki eins
og Bandaríkin alltaf fundið nýjar
ástæður til að hafna þessum tillög-
um. Ráðið hefur sett sem skilyrði
að mótað verði nýtt veiðistjómunar-
kerfi sem felur í meginatriðum í sér
nokkurskonar nýtingarviðmiðanir
fyrir hvern stofn. En um leið og rík-
in hafa sagt að þessi skilyrði verði
að vera fyrir hendi þá hafa þau ekki
samþykkt að leggja vinnu í að móta
kerfið. Á vegum NAMCO hefur hins-
vegar verið lögð vinna í að móta
stjórnkerfí, nýtingarreglur og eftir-
litsreglur sem við teljum að aðrar
þjóðir geti viðurkennt og litið á sem
skilvirkar,“ segir Árni.
Hefði ekki mikil áhrif á
Bandaríkjamarkaði
Á fundinum flutti Bruce
Galloway, stjórnarformaður banda-
rísku veitingahúsakeðjunnar Arth-
ur’s Treachers, erindi um væntanleg
áhrif hvalveiða íslendinga á Banda-
ríkjamarkaði. í máli hans kom fram
að það skipti ekki meginmáli fyrir
hans fyrirtæki hvort íslendingar
hæfu hvalveiðar á ný. Höfðuðáhersla
væri lögð á að vera með gott hrá-
efni í fískréttum fyrirtækisins, ekki
skipti máli hvaðan það kæmi svo
framarlega sem það stæðist gæðakr-
öfur. Hann taldi það sama eiga við
um flest fyrirtæki innan þessarar
greinar en tók hinsvegar fram að
ef fyrirtækið yrði fyrir þrýstingi
vegna þessa myndi það að öllum lík-
indum láta undan honum.
Hvalveiðar hafa ekki mikil
áhrif í Noregi
Þá ræddi Helge Lund, sérfræðing-
ur hjá Útflutningsráði Noregs, and-
stöðu ýmissa ríkja og samtaka gegn
hvalveiðum Norðmanna og hvaða
áhrif hún hefur haft á efnahag lands-
ins. Hann sagði afleiðingar af aðgerð-
um hafa verið mjög takmarkaðar.
Umhverfíssinnar í Noregi hafi talað
um 450 milljarða tjón á tímabilinu
1992-1994 en úttekt sem gerð var á
vegum norska utanríkisráðuneytisins
sýni að þessi tala nái varla 10 millj-
örðum enda hafí umhverfíssinnamir
aldrei getað lagt fram gögn sem
rökstyðji málflutning þeirra.
Hluthafafundur í Kambi hf. á Flateyri
Einhugur meðal hluthafa
SAMÞYKKT var einróma á hlut-
hafafundi í sjávarútvegsfyrirtækinu
Kambi hf. á Flateyri sl. laugardag
að breyta samþykktum félagsins
þannig að öll meðferð á hlutabréfum
fyrirtækisins verði fijáls. Fulltrúar
allra hluthafa mættu á fundinn og
greiddu þeir allir þessari einu til-
lögu, sem var á dagskrá fundarins,
atkvæði sitt.
Að sögn Einars Odds Kristjáns-
sonar, stjórnarformanns Kambs hf.,
ríkti mikill einhugur á fundinum.
„Þetta er lykillinn að því að við get-
um gengið í það að sameina Kamb
hf. og Básafell hf. Ég á fastlega von
á því að viðræður um sameiningu
muni ganga mjög hratt fyrir sig á
næstunni og jafnvel verða lokið í
þessum mánuði.“ Þorskígildisheim-
ildir Kambs hf. nema á bilinu 2.200-
2.300 tonnum og er meginuppistað-
an þorskur.
Einar Oddur sagði fundinn hafa
verið langan og á honum hafi mönn-
um nákvæmlega verið skýrt frá því
að hveiju yrði stefnt, á hveiju sam-
einingin byggði og hvað hefði komið
fram í viðræðunum hingað til. Að
svo stöddu vildi Einar Oddur ekki
greina frá gangi mála að öðru leyti
en því að hann sagði viðræðurnar
vera í eðlilegum farvegi. „Mér fínnst
alls ekki viðeigandi að skýra frá efni
hugsanlegs samnings að svo komnu.
Við gerum samninginn áður en við
greinum frá efni hans í smáatrið-
um.“
Námskeið í kostnaðarstjórnun
með aðstoð ABC/ABM
Betri aðferðir -
stöðugur árangur
Þetta er fjögurra tíma námskeið þar sem m.a. verður fariö yfir hvaö felst I
ABC - Actívity Based Costing og ABM Activity Based Management,
hvernig ABC/ABM kerfi er notað við kostnaöarstjórnun og ávinningur
fyrirtækja sem taka upp kostnaðarstjórnun með hjálp ABC/ABM kerfa.
Námskeiðsgjaid er 9.900 kr.
Vönduð námskeiðsgögn eru innifalin í verðinu.
Skráning á námskeiðið er hjá Páli R. Páissyni
og Birni S. Guöbrandssyni í síma 569-5100.
Meö hjálp kostnaöarstjórnunar hafa fyrirtæki náö verulegum árangri
í að draga úr kostnaöi, auka framleiðni og þar með hagnaö m.a. meö
því aö leggja af óarðbærar vörur og viðskiptavini.
Námskeiöiö veröur haldiö fimmtudaginn 13 febrúar n.k.
í kennslusal Skýrr hf. á þriðju hæð í Ármúla 1 og hefst kl. 08:30.
Leiðbeinandi verður Páll R. Pálsson ráðgjafi hjá Skýrr hf.