Morgunblaðið - 11.02.1997, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Morgunblaðið/Ásdís
Saltkjöt
og baunir
ÞÁ er sprengidagur runninn upp og
margir sem ætla að gæða sér á salt-
kjöti og baunum í dag. En hvernig
á að búa til ekta saltkjöt og baunir?
Steinar _ Davíðsson, matreiðslu-
meistari í Óðinsvéum, er með sígilda
uppskrift á reiðum höndum.
„Við bjóðum gestum okkar salt-
kjöt og baunir í dag og okkur þykir
ilmurinn ómissandi í eldhúsinu", seg-
ir hann.
Steinar segir að fólk sé þegar
búið að leggja baunirnar í bleyti
daginn áður. Saltkjötið er soðið í
um það bil fimmtán mínútur. Suðan
er sem sagt látin koma vel upp.
Vatninu er hellt af kjötinu og það
skolað. Það er síðan sett i hreinan
pott ásamt baunum og vatnið látið
fljóta vel yfir. í pottinn fara síðan
sneiddar gulrætur, rófur og kartöfl-
ur sem helst eru soðnar með í hýð-
inu. Þá er beikonbitum bætt út í
svo og bæði rauðum og hvítum
lauk.“ Steinar segir að borgi sig að
láta þetta malla saman í að minnsta
kosti einn og hálfan tíma og baun-
irnar gera það að verkum að þetta
verður þykk súpa. „Það er mjög
hagstætt að laga sérstaklega stóran
skammt því þessi súpa bragðast
best upphituð."
Tilfæringar í
Kringlunni
VERSLUNIN Heimsljós er flutt
úr Kringlunni og Gallerí Borg opn-
ar í því húsnæði á næstu dögum.
Að sögn Erlu Friðriksdóttur fram-
kvæmdastjóra Kringlunnar hættir
Eymundsson í lok mánaðarins í
norðurhúsi Kringlunnar og í stað-
inn verður þar verslunin Skæði.
Óákveðið er hvaða verslun verður
í því húsnæði þar sem Skæði er
núna. Kvenfataverslunin Oasis
opnar í suðurhúsi Kringlunnar 13.
mars næstkomandi og verður í því
húsnæði sem hýsti Gallerí Borg
áður.
Pecanhneturaar
ferskar í Heilsuhúsinu
ÖRN Svavarsson, eigandi Heilsu-
hússins, hafði samband vegna orða
Lárusar Óskarssonar hjá Hagkaup
um gæði þeirra pecanhneta sem
hann flytur inn. Orðrétt var haft
eftir Lárusi: „Auk þess eru þær í
hörðum dósum sem gera það að
verkum að þær brotna ekki.
Geymsluþolið er gjörólíkt á hnetun-
um hjá Heilsuhúsinu og þær eru
einnig af allt öðrum gæðum. Með
því að bera saman hnetumar fer
gæðamunurinn ekkert á milli mála.“
Verslunarstjóri Heilsuhússins upp-
lýsti i umræddri frétt að hnetunum
væri pakkað úr lofttæmdum pakkn-
ingum á viku fresti. Öm vill hinsveg-
ar að komi fram að úr dós sem
keypt var í Hagkaup (lotunr. MD-
029-6) voru 57 g af 113 g brotnar
hnetur og mulningur. „Það segir sig
sjálft að geymsluþol hnetanna ætti
að vera meira í dósinni þó geymslu-
þolið sé ekki tilgreint með best fyrir
dagsetningu. Heilsuhúsið fær send-
ingar af pecanhnetum á sex vikna
fresti og salan er það hröð að við
þurfum ekki að selja gamla vöm.
Slegið er fram af Lárusi fullyrðingu
um að Hagkaupshnetumar séu
miklu betri. Staðhæfíngin er hæpin
í ljósi þess að enginn gerir saman-
burð nema annar vörusalinn. Það
er óviðunandi þegar boðið er upp á
góða vöru á hagstæðu verði að sam-
keppnisaðili geti í blöðum gert vör-
una tortryggilega til að réttlæta
hátt verð sinnar vöru.“
ERLENT
Deilan um forsetaembættið í Ekvador leyst
Bucaram víkur fyr-
ir varaforsetanum
Reuter
ROSALIA Arteaga gengur inn í forsetahöllina í Quito eftir að
hafa verið skipuð forseti Ekvadors á sunnudag.
Forseti þingsins á
síðan að gegna
embættínu fram
yfir kosningar
Quito. Reuter.
ROSALIA Arteaga, varaforseti
Ekvadors, var skipuð forseti landsins
til bráðabirgða á sunnudag og þar
með lauk þriggja daga óvissu um
embættið eftir að þingið vék Abdala
Bucaram frá.
Bucaram, sem hefur verið nefndur
„E1 Loco“, eða „Bijálæðingurinn",
féllst á að láta af embættinu á
sunnudag, aðeins hálfu ári eftir að
hann var kjörinn forseti.
Arteaga er fertug, lögfræðingur
að mennt og fyrrverandi mennta-
málaráðherra, og er fyrsta konan
sem gegnir embætti forseta lands-
ins. Ljóst er þó að hún verður ekki
lengi í embættinu þar sem ráðgert
er að þingið komi saman í dag til
að samþykkja ný lög sem heimili því
að skipa forseta þess, Fabian Alarc-
on, í þjóðhöfðingjaembættið. Arte-
aga verður þá aftur varaforseti.
Alarcon á að gegna embættinu
til 10. ágúst á næsta ári og víkja
fyrir nýjum forseta sem verður kjör-
inn í maí eða júní á næsta ári.
Bucaram boðar framboð
Þingið hafði kosið Alarcon í emb-
ættið á fimmtudag eftir að hafa
vikið Bucaram frá á þeirri forsendu
að hann væri „andlega vanhæfur“
til að gegna embættinu. í stjórnar-
skránni eru engin skýr ákvæði um
hver eigi að taka við embættinu við
slíkar aðstæður og um tíma gerðu
Bucaram, Alarcon og Arteaga öll
tilkall til embættisins. Hershöfð-
ingjar höfðu milligöngu um lausn
deilunnar á sunnudag.
Þingið sakað um valdarán
Bucaram sakaði þingið um „valda-
rán“ með stuðningi hersins og kvaðst
ætla að gefa kost á sér í forsetakosn-
ingunum á næsta ári. Stjómmála-
skýrendur sögðu að Bucaram væri
ekki búinn að vera sem stjómmála-
maður og svo gæti jafnvel farið að
hann yrði aftur kjörinn forseti.
Bucaram naut mikils stuðnings
meðal fátækra landsmanna og sigr-
aði í forsetakosningunum í júlí þrátt
fyrir ýmis furðuleg uppátæki. Vin-
sældir hans snarminnkuðu hins veg-
ar eftir að hann hóf efnahagsaðgerð-
ir til að draga úr ijárlagahallanum í
janúar.
Tillögum Spánverja
um Gíbraltar hafnað
Malaga. Morgunbiaðið.
BRESKA ríkisstjómin hefur hafn-
að tillögu Spánveija um framtíð
Gíbraltar, sem Abel Matutes, ut-
anríkisráðherra Spánar, kynnti á
fundi með starfsbróður sínum frá
Bretlandi, Malcolm Rifkind. Spán-
veijar krefjast þess að Gíbraltar
verði í fyllingu tímans spænskt
landsvæði en Bretar kveðast vera
að gæta hagsmuna íbúa bresku
nýlendunnar.
Tillaga Spánveija var sú að
samið yrði um svonefnt „sameigin-
legt fullveldi“ Gíbraltar og var
hugmyndin sú að ríkin tvö ábyrgð-
ust í sameiningu fullveldi íbúanna
næstu 75 til 100 árin. Eftir þann
tíma yrði Gíbraltar spænskt land-
svæði. Spánveijar gáfu eftir yfir-
ráð sín yfir Gíbraltar árið 1703
við gerð Utrecht-sáttmálans svo-
nefnda sem kvað á um að „Klettur-
inn“ eins og nýlendan er gjarnan
nefnd skyldi heyra undir bresku
krúnuna.
Vi^ja breytta stöðu
Að sögn spænskra dagblaða
hafnaði breski utanríkisráðherr-
ann tillögu Spánveija með þeim
rökum að hún þjónaði ekki hags-
munum íbúa Gíbraltar og þeir
myndu aldrei geta fallist á þessi
ákvæði. Stjómvöld á Gíbraltar
hafa hins vegar krafist þess að
stöðu nýlendunnar gagnvart Bret-
landi verði breytt.
Peter Camana, sem nýlega var
kjörinn forsætisráðherra Gíbralt-
ar, sagði í viðtali við dagblaðið
E1 País á sunnudag að krafa íbú-
anna væri sú að Spánveijar viður-
kenndu sjálfsákvörðunarrétt
þeirra og að bresk stjómvöld féll-
ust á að breyta stöðu Gíbraltar á
þann veg að þetta landsvæði teld-
ist ekki lengur nýlenda.
Viðræðum haldið áfram
Þótt þessari tillögu spænskra
sjómvalda hafi verið hafnað og
deilan setti mark sitt á samskipti
Spánveija og Breta þykir spænsk-
um fréttaskýrendum sýnt að
stjómvöld í Madrid og Lundúnum
séu reiðubúin að halda áfram við-
ræðum um framtíð Gíbraltar. Til-
lagan sjálf hafi ekki verið kynnt
með svo afgerandi hætti að frek-
ari tilslökunum hafí verið hafnað.
Hið sama eigi við orðalag þeirrar
ákvörðunar Breta að vísa henni á
bug.
1937-1997
FLUGLEIDIR jSf
Afmlelis
í tilefni 60 ára flugafmælis bjóða Flugleiðir
6.000 kr. afslátt af verði allra pakkaferða*
í 6 daga til laugardagsins 16. febrnar.
Söluskrifstofur Flugleiða era opnar
laugardaginn 16. febrúar til kl. 16.
FLUGLEIDIR
‘Afslátturinn bætist ekki við afsláttartilboð í ferðabæklingum Flugleiða.
Traustur tslenskur ferðafélagi