Morgunblaðið - 16.03.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.03.1997, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ „ FRÉTTIR 96 ára ásviði Hveragerði. Morgfunblaðið. ÞRÁTT fyrir að hafa haldið 96 ára afmæli sitt hátíðlegt í vik- unni lætur Stefán Sigurðsson engan bilbug á sér finna og tek- ur þátt í uppfærslu Leikfélags Hveragerðis á Sölku Völku af fullum krafti. Stefán fer þar með hlutverk læknisins og þykir ekki gefa þeim sem yngri eru neitt eftir. En í þessari uppfærslu Leikfé- lagsins er óvenju mikil breidd í aldri leikaranna því yngstu leik- ararnir eru rétt 5 ára en Stefán hefur 91 ár umfram þá. Stefán segist vera orðinn léleg- ur að læra og gleyminn en hlut- verk læknisins henti sér ágæt- lega. „Ég lék heilmikið hér á mínum yngri árum. Ég er ætt- aður úr Lóni í Austur-Skaftafells- sýslu og þar tók ég þátt í leik- starfsemi og síðar í Biskupstung- unum meðan ég bjó þar.“ Um áframhaldandi þátttöku í leiklistarlífinu segir Stefán: „Ef mér býðst hlutverk sem ég tel mig ráða við á leiksviði þá myndi ég ekki slá hendinni á móti því að taka þátt í annarri sýningu því þetta er svo skemmtilegt og samstarfið er svo ágætt við unga fólkið í sýningunni.“ Verkfall á bensínstöðvum yfirvofandi á miðnætti í kvöld „Sjálfsalarnir í Dagsbrún“ FÁTT benti til annars í gær en að ótímabundið verkfall félagsmanna Dagsbrúnar og Hlífar á olíustöðvum og við bensínafgreiðslu á höfuðborg- arsvæðinu muni hefjast á miðnætti í kvöld. Á fjórða hundrað Dagsbrún- armenn við olíudreifingu og bensín- afgreiðslu leggja þá niður störf og einnig munu bensínafgreiðslumenn í Hlíf í Hafnarfírði hefja verkfall frá sama tíma á félagssvæði sínu hafí samningar ekki tekist eða verkfall- inu verið frestað. Við vinnustöðvunina leggst öll dreifing á eldsneyti og bensínaf- greiðsla niður á svæði sem nær yfir Hafnarfjörð, Kópavog, Reykavík, Seltjamarnes, Mosfellsbæ og allt inn að Hvalfjarðarbotni. Sjálfsalar myndu tæmast á fáum dögum Sjálfsalar em á öllum bensín- stöðvum og samkvæmt upplýsing- um sem fengust hjá olíufélögunum verða þeir opnir en hins vegar tæki aðeins fáeina daga að tæma sjálfsal- ana og þá verða tankarnir ekki fyllt- ir fyrr en verkfallinu lýkur. „Sjálf- salarnir era allir í Dagsbrún," segir Sigurður Bessason hjá Dagsbrún. Ekki er þó ljóst hvort verkalýðsfé- lögin munu strax gera tilraun til að koma í veg fyrir notkun sjálfsala á bensínstöðvunum. Sigurður kvaðst vonast til að farið yrði eins að og í síðasta bensínverkfalli 1993 en þá hafi náðst samkomulag um að loka sjálfsölum á nokkram bens- ínstöðvum og í öðrum tilfellum hafi félagið sett lása á sjálfsalana. Geir Magnússon, forstjóri Olíufé- lagsins, segir að sjálfsalamir verði opnir en það ráðist hins vegar af viðbrögðum Dagsbrúnar hvort konv ið verði í veg fyrir notkun þeirra. í seinasta bensínverkfalli hafi verk- fallsmenn sett lás á sjálfsalana og Geir sagði að Olíufélagið ætlaði ekki að æsa leikinn með því að standa í stríði við verkfallsmenn. „Það kemur okkur á óvart að þeir skuli vera að fara í verkfall því við teljum að við höfum verið búnir að mæta sérkröfum þeirra það mikið,“ segir Geir. Raskar ekki innanlandsflugi Verkfallið nær ekki til afgreiðslu eldsneytis á flugvélar á Reykjavík- urflugvelli og mun því ekki raska innanlandsflugi, a.m.k. fyrst í stað, skv. upplýsingum sem fengust hjá Flugleiðum. Samningamenn olíustarfsmanna og vinnuveitenda hittust hjá sátta- semjara í gær en þungt var fyrir fæti í viðræðunum að sögn deiluað- ila. Reiknað var með að sáttatilraun- um yrði haldið áfram alla helgina. # Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir STEFÁN Sigurðsson, 96 ára, umkringdur börnunum í sýning- unni, en yngstu stúlkurnar eru einungis 5 ára. Nóttin full af fegurð Ólafsvík. Morgunblaðið. NÚ er komið gott veður eftir langa ótíð. í heiðríkjunni er konungurinn Snæfellsjökull einkar glæsilegur í skrúða sínum skósíðum. Með nóttu birtist svo halastjarn- an nýja og hefur hárið fagurlega slegið. Hún og konungurinn horf- ast i augu en rebbi skýst í fjöru. Þar kló sá er kunni. Hann veit að loðnan er hrygnd og að læðurnar fara að verða blíðlyndar. Félagsheimilið á Klifi er fullt af fólki. Það bíður úrslita í feg- urðarsamkeppni og er með „sumar í hjörtunum ungu.“ Nóttin er sem- sagt full af fegurð, tunglið vax- andi og svo höfum við þetta ör- ugga fyrirheit um dögun. Hood minnst á Grænlandssundi HÁLFRI öld eftir að breska her- skipinu Hood var sökkt af þýska herskipinu Bismarck í sjóorustu á Grænlandssundi vestur af íslandi var efnt til helgistundar á sama stað vestur undir ísjaðrinum til að minnast þeirra 1.440 manna sem þar fórust, svo og mesta glæsiskips og stolts Breta, sem sökk á 6 mínútum. Aðeins þrír komust af. Einn þeirra er formaður Hood félagsins, sem í hálfa öld hefur minnst þessa sorgaratburðar. í því eru menn af skipinu sem ekki voru í þessari ferð og aðstandendur. í ferðinni voru fjögur þeirra, varaforsetinn Johanna Warrant, en faðir hennar var yfirmaður og fórst með Hood, Dick Tumer og Don Fimden, sem vora famir af skipinu fyrir síðustu siglinguna og presturinn Ronald Petterson, sem hafði verið á Hood og stjómaði helgistundinni. ITN sjónvarpsstöðin í Bretlandi er að gera heimildarmynd um þennan atburð fyrir Discovery sjónvarpsstöðina. Voru þrír sjón- varpsmenn um borð og leiðangur- inn m.a. af því tilefni. Hátíðleg athöfn Atburðurinn lengst norður í hafi, þar sem sjóorustan var háð, var mjög hátíðlegur og tilfinninga- þrunginn. Blómakrönsum var varpað í hafið frá Hood Association til minningar um mennina, einnig frá Bismarck Association, enda var Bismarck skotinn niður eftir æsi- legan eltingaleik fáum dögum síð- ar. Frá Ganges Association til minningar um ungu drengina um borð sem týndu lífi, frá Konung- lega danska flotanum og áhöfn á Triton, frá breska sendiráðinu í Reykjavík, frá Johanna Warrant til minningar um föður sinn og loks var varpað fyrir borð ösku Annie Hurst, sem hafði, er hún lést nýlega 104 ára, átt þá ósk að aska hennar fengi vota gröf á sama stað og maður hennar, yfirlæknir- inn á Hood, fórst. Samningur Færeyinga og íslendinga um samstarf á svíði ferðamála framlengdur Ferðum fjölgað og fargjöld lækkuð SAMGÖNGURÁÐHERRAR Færeyja og íslands, Sámal Petur í Grand og Halldór Blöndal, end- umýjuðu í gærmorgun samning um samstarf á sviði ferðamála. Samningurinn var upphaflega gerður fyrir tveimur áram og hefur nú verið framlengdur um þijú ár til viðbótar. Halldór sagði markmiðið vera að færa þjóðirn- ar saman á sem flestum sviðum og auka ferða- lög þeirra á milli. Þar yrði ekki síst lögð áhersla á sameiginlega norræna sögu. Að sögn Halldórs hefur farþegum sem ferð- ast milli Færeyja og íslands fjölgað um 35-40% frá því að samstarfið hófst fyrir tveimur áram. Það sýni svo ekki verði um villst að rétt sé að halda vinnunni áfram. Hvort land um sig leggur um þijár og hálfa milljón króna á ári til verkefn- isins. Mikilvægt að ungir Færeyingar kynnist Islandi Sámal Petur í Grand sagði aukið samstarf á sviði ferðamála einnig hafa áhrif út í atvinnulíf- ið. Hann kvaðst telja það mikilvægt að unga Morgunblaðið/Árni Sæberg HALLDÓR Blöndal og Sámal Petur í Grund undirrita samstarfssamning um ferðamál. kynslóðin í Færeyjum kynntist íslandi og tapaði ekki niður þeim góðu tengslum sem verið hafa landanna á milli. Sem dæmi um mikil tengsl nefndi hann fjölda færeyskra sjómanna sem rera hér við land á sjötta áratugnum, sem margir hveijir töluðu íslensku. Halldór minnti á að á vori komanda væri von á tíu færeyskum sjómönnum í leiðangur hingað og þar væri einmitt fremstur í flokki faðir Sám- als Peturs en hann var lengi á Eskifirði. „Hann þekkir ennþá hvern einasta bát og hvern einasta skipstjóra á Austurlandi frá þessum tíma,“ sagði sonurinn - á ágætri íslensku. Stóð af sér vantrauststillögn Síðastliðinn föstudag var í fyrsta sinn borin fram vantrauststillaga í færeysku landsstjóm- inni. Jafnaðarmenn báru fram vantraust á sam- gönguráðherrann, m.a. vegna umdeildra ákvarð- ana hans um feijusamgöngur milli Færeyja og Skotlands. Atkvæði féllu þannig að níu greiddu atkvæði með vantrauststillögunni, þrír sátu hjá og átján voru á móti. Sámal Petur kvaðst ánægð- ur með þá niðurstöðu og benti á að það gæti ekki talist slæmt að hafa einu atkvæði meira en meirihlutinn í landsstjórninni, sem era sautj- án þingmenn. Kýlaveikin dauð eða... ►Landbúnaðarráðuneytið hefur. gefið fyrsta leyfið til flutninga á iifandi hafbeitarlaxi í laxlausa veiðiá síðan bann var lagt á slíka flutninga eftir að hin skæða kýla- veiki gaus upp í Elliðaánum og Kollafirði sumarið 1995. Leyfi- sveitingin er þó umdeild. /10 Lífið er mér gott núna ►Krabbamein er ekki lengur sá óbugandi andstæðingur sem áður var, fjölmargt fólk fær krabbamein og kemst yfír það. Heiðrún Guð- mundsdóttir er ein úr þeim hópi. /18 Á breyttum jeppum á Suðurskautslandið ►Tveir íslenskir ökumenn eru að undirbúa för með tvo breytta Toy- ota-jeppa frá Arctic Trucks á Suð- urskautslandið. /20 Nýjar áherslur hjá Aco ► í Viðskiptum/Atvinnulífi á sunnudegi er rætt við feðgana Áka Jónsson og Bjarna Ákason. /24 B ► l-32 Óveður, ófærð, óbyggðir ►Mörgum þótti það stappa nær bijálæði, þegar fréttist að 120 jeppar, með um 270 manns, ætluðu í jeppaferð á vegum 4X4 ferða- klúbbsins yfir Sprengisand í af- takaveðri. /1 og 16-17 Stundum tapar maður ►í pistlinum Hugsað upphátt velt- ir Ellert B. Schram fyrir sér biðröð- umfyrrognú./13 Ljóshaf á borpalli ► Á nýjum borpalli í noðrusjó hefur verið komið fyrir stórri vatnslitamynd eftir Kristínu Þor- kelsdóttur myndlistarmann, og boðskort gestanna 200 voru frum- myndireftir hana. /18 ÍP FERÐALÖG ► 1-4 Slóvenía ►Stórbrotin náttúra og saga heill- ar ferðamanninn. /2 íslendlngahótel í seglbrettabæ ►Bærinn Cabarete á norðurströnd Dóminíska lýðveldisins er kallaður „seglbrettahöfuðborg heimsins". Þar reka Kristín Petersen og sviss- neskur eiginmaður hennar, stærsta hótelið. /3 E BÍLAR_________________ ► l-4 ' " GPStæki að góðum notum ►GPS staðarákvörðunartæki eru orðin talsvert útbreidd og ferð 4x4 klúbbsins yfir Sprengisand var gott dæmi um notagildi þeirra. /1 Reynsluakstur ►Hraðbrautabrun á sportlegum Fiat. /4 FASTIR PÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Leiðari 28 Helgispjall 28 Reykjavikurbréf 28 Skoðun 30&B30 Minningar 32 Myndasögur 40 Bréf til blaðsins 40 Idag 42 Brids 42 Stjörnuspá 42 Skák 42 Fólk i fréttum 44 Bíó/dans 46 Útvarp/sjónvarp 50 Dagbók/veóur 55 Maturogvín 2b Gárur 6b Mannlífsstr. 4b Dægurtónl. 14b INNLENDAR FRÉTTIR- 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR- 1&6 -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.