Morgunblaðið - 16.03.1997, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 16.03.1997, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Pétur Valgeirsson Sesselja K. Karlsdóttir *Byrjendanámskeið: Grunnstöður Kripalujóga, öndunaræfingar, hugleiðsla og slökunaraðferðir. 24. mars-16. apríl á mán. og mið. kl. 17.30-19. Leiðbeinandi Pétur Valgeirsson. 2.-21. apríl á mán. og mið. kl. 20-22. Leiðbeinandi Elín Jónasdóttir. *Jóga fyrir betra bak og meiri orku. Jógastöður sem styrkja bakið og opna fyrir orkuflæði hryggjarins. 2. -23. apríl á mán. og mið. kl. 14-16. Leiðbeinandi Sesselja K. Karlsdóttir jógakennari og hjúkrunarfræðingur *Vellíðunarnámskeið. Lærðu að lesa úr skilaboðum líkamans. Skoðaðu streituvaldana í lífi þínu og lærðu að skilja þá. Kynnstu einföldum aðferðum til að hlúa að líkamanum. Öðlastu aukna meðvitund um samskipti þín við sjálfan þig og aðra. 3. -15. apríl á þri. og fím. kl. 19.45-21.45. Leiðbeinandi Áslaug Höskuldsdóttir. TOM GILETTE: Einstakur jógakennari sem þekktur er víða um Bandaríkin kennir í stöðinni 17.-24. apríl. ENLIGHTENMENT INTENSIVE námskeið með OSHA READER frá Bandaríkjunum 7.-11. maí. Komið og fáið bækling. Morgun-, hádegis-, eftirmiðdags og kvöldtímar í jóga. Áslaug Höskuldsdóttir Morgun- og kvöldtímar í Qi Gong. ÓGA Nánari uppl. og skráning í síma 588 4200 á milli kl. 13 og 19. Jógastöðin Heimsljós, Armúla 15. JÓGASTÖÐI^ HEIMSLJOS Örugg og hagkvœm póstdreif iþjónusta =« DÓstdreifiWónus,a ° - örugga 09 hagkv0B bÝðutuppaoru99 _ngató dteWingu tV"' a"a' hvort heldut bðtuðbotga^® ’ „ ftu svasðinu - A<swað effit dteifingu Póstdreifing fer fram miövikudaga og fimmtudaga. POSTDREIFIÞJONUSTA Funahöfða 17a, 112 Reykjavík símar 587 5250/ 898 8848. fax 587 5530 ...blaðið - kjarni málsins! I DAG VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Netfang: elly@mbl.is Öþarfa hávaðamengun VELVAKANDA hefur borist eftirfarandi bréf: „Ég sem er nýflutt í Hrísmóa í Garðabæ verð að lýsa furðu minni á því hversu mikið og lengi kirkjuklukkum er hringt á sunnudagsmorgnum. Ég hef í sjálfu sér ekkert á móti því að það sé hringt inn til messu en öllu má ofgera. Þessar hringingar byija um klukkan 10.30 og eru allt að því stanslausar til klukkan 11. Ég spyr: Er ekki hægt að takmarka þessar hringingar eitthvað? Og annað, þegar hvasst er þá heyrist í klukkunum af og til, jafnvel alla nóttina." Helga, Hrísmóum. Tapað/fundið Gleraugu fundust LÍTIL kringlótt gleraugu í brúnu hulstri fundust um síðustu helgi við Laufásveg. Upplýsingar í sima 551-8528. Dýrahald Óska eftir lítilli læðu ÓSKA eftir lítilli læðu, helst ekki eldri en 8 vikna. Upplýsingar í síma 588-9928. SKÁK Umsjðn Margeir Pctursson STAÐAN kom upp á opnu móti í Feldbach í Aust- urríki fyrr á þessu ári. Sextugi ung- verski stórmeistar- inn Laszlo Barczay (2.385) hafði hvítt og átti leik, en Manfred Freitag (2.365) var með svart. 41. Hh3! og svartur gafst upp. Hann verður mát ef hann þiggur hróksfórn- ina: 41. — Dxh3 42. Dg7+ - Ke8 43. Dg8 mát og 41. — Dg8 42. Dh6+ - Ke8 43. Dg7 er litlu betra. Hraðskákmót Kópavogs fer fram í dag, sunnudaginn 16. mars, kl. 14. Tefldar verða 5 mínútna skákir og eru góð verðlaun í boði. Teflt er í húsnæði T.K. að Hamraborg 5, 3.hæð. Hrað- skákmeistari Kópavogs 1997 verður krýndur! Hið vinsæla Páskaeggja- mót Hellis fýrir börn og unglinga fer fram í Þöngla- bakka 1 í Mjódd kl. 17, mánudaginn 17. mars. Atkvöld Hellis mánudags- kvöld, 17. mars kl. 20 á sama stað. Fyrst eru tefldar þrjár hraðskákir, en síðan þijár atskákir. Með morgunkaffinu MÉR finnst fint að þú skulir vijja kenna hundin- um alls kyns brögð, en er ekki rétt að byrja á ein- hverju einföldu? VIÐ erum að nálgast menningarsvæði, vatnið er mengað. SVONA, svona. Þið hafið nægan tíma til að rífast þegar þið eruð komin í hjónaband. ÞÚ ættir kannski að fara að huga að æfingum fyrir eitthvað annað en upp- handleggsvöðva. HVAR sagðistu hafa lært? Víkverji skrifar... VIÐSJÁRVERÐIR menn eru stundum kallaðir refír. Nafnið er sótt til rándýrstegundar af hundaætt, sem hér hefur haft land- vist umtalsvert lengur en mannfólk- ið. Refír eru dýrbítar og eiga það til að virða ekki eignarétt bænda á fénaði, sem fer um fjöll og fírn- indi. Bændur hafa því á öllum tím- um lagt kapp á að halda dýrbíts- stofninum í skefjum, enda fagnar fár því að láta „skjóta sér ref fyrir rass“ í brauðstritinu. Við mat á stærð refastofnins hefur verið notuð svokölluð aldurs- aflaaðferð, sem byggð er á tölfræði- legri úrvinnslu á aldri dýra í veiði. Eftir því sem fram kemur í svari umhverfisráðherra á þingi við fyrir- spum um stærð stofnsins eru helm- ingi fleiri refír í landinu en en árið 1983 - og þrisvar sinnum fleiri en árið 1978. í svari ráðherra segir að minnst hafi verið um refi á árun- um 1900 til 1915 og 1970 tii 1980. í svari ráðherra segir að stofninn fari nú vaxandi og líklegt sé að stofnstærðinn verði enn meiri, ef refaveiðar leggjast af, en „há- marksfjöldi refa í landinu ræðst af fæðuskilyrðum á hveijum tíma“. XXX FLEIRUM vex fiskur um hrygg í landinu en refum. Frá árinu 1970 til 1995 fjölgaði íslendingum 65 ára og eldri úr 5,9% þjóðarinnar í 11,3%. í greinargerð með þings- ályktunartillögu um könnun á áhrif- um breyttra hlutfalla_ aldurshópa eftir árið 2010, sem ísólfur Gylfi Pálmason o.fl. flytja, segir m.a.: „í spá, sem gerð hefur verið um hlut- fall þessa aldurshóps til ársins 2030, kemur fram, að veruleg fjölg- un verður frá árinu 2010 og árið 2030 verður þetta hlutfall orðið 19%. Þessi fjölgun hefur miklar þjóðfélagsbreytingar í för með sér. Ætla má að kostnaður heilbrigðis- kerfísins aukizt verulega og útgjöld vegna eftirlauna og lífeyris hækki umtalsvert..." Fyrir 100 árum hefðu fæstir náð þeim aldri sem eftirlaun eru miðuð við. Nú er öldin önnur. Meðalaldur hefur lengst um 20 til 30 ár. „Reiknað hefur verið út að árið 2030,“ segir í tilvitnaðri greinar- gerð, „geti ástandið orðið þannig í iðnvæddum ríkjum að aðeins verði tveir vinnandi menn fyrir hvern eftirlaunaþega, aldurshópar komi til með að takast á um skiptingu fjármagns og öll fjármögnun fé- lagslegrar aðstoðar verði erfið. Einnig hefur verið bent á að breyttri aldursskipan fylgi pólitískar breyt- ingar. Aldraðir hafa víða styrkt mjög stöðu sína með hvers konar félagsstarfsemi sem hefur það meginmarkmið að hafa áhrif á ákvarðanir löggjafarvaldsins í mál- efnum aldraðra.“ SÍÐUSTU daga hafa íslendingar alvarlega verið minntir á þær veðurfarslegu starfsaðstæður, sem sjómenn búa við hér yzt í veraldar- útsæ. Mikilvægt er að sjómenn búi að þekkingu og þjálfun að því er varðar viðbrögð þegar vá ber að höndum. Fréttir tíunda að slík þekk- ing hafi gert gæfumuninn á örlaga- stundum. Kristján Pálsson og fleiri þing- menn fluttu fyrr í vetur tillögu til þingsályktunar um „skipun nefndar um kaup eða leigu skólabáts" sem nýttur verði til kennslu í sjó- mennsku. í greinargerð segir m.a.: „Rekstur skólabáts er engin ný- lunda hér á landi. Er skemmst að minnast þess merka starfs sem unnið var af áhöfn Mímis RE 3 og Fiskifélaginu allt þar til Mímir fórst með voveiflegum hætti árið 1991.. . Frá því að Mímir fórst hefur kennsla í sjómennsku verið mjög stopul í skólum landsins og áhugi á sjóvinnukennslu minnkað veru- lega. Þessa sést bezt á því að skól- um sem kenna sjóvinnu sem valfag hefur fækkað úr 27 árið 1992 í 18 á sl. ári.“ Víkveiji telur þessa tillögu gagnsama. Það er ekki vansalaust að þjóð, sem byggir svo að segja allt sitt á sjávarútvegi, skuli ekki eiga skólabát.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.