Morgunblaðið - 16.03.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.03.1997, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 9/3 -15/3. ►EIGENDUR íslenska járnblendifélagsins hafa náð saman um breytta eignaskiptingu félagsins og stækkun verksmiðjunnar. Hlutur Elkem sem var 30% eykst í 51%, hlutur ríkisins, sem var 55% minnkar í 38,5%, og hlutur Sumitomo minnkar úr 15% í 10,5%. ►VERKFALL hófstá mánudag hjá félagsmönn- um Dagsbrúnar i\já Mjólk- ursamsölunni í Reykjavík og Emmess. Þá hófst verk- fall hjá Dagsbrúnarmönn- um lyá skipafélögunum á miðvikudag. Mjólkurskorts fór að gæta á höfuðborgar- svæðinu þegar leið á vikuna og jukust viðskipti við mat- vörukaupmenn á Suðurlandi verulega. Viðræður hafa staðið yfir þjá ríkissátta- semjara alla vikuna en mið- að hægt. Upp úr viðræðum bankamanna og viðsemj- enda þeirra slitnaði aðfara- nótt föstudags og lagði ríkis- sáttasemjari fram miðlun- artillögu á föstudagskvöld sem bankamenn taka af- stöðu til á næstu dögum. ► JÓN Amar Magnússon fékk bronsverðlaun í sjö- þraut á heimsmeistaramót- inu í fijálsum íþróttum inn- anhúss sem haldið var um siðustu helgi. ►NORSKIR gagnrýnendur hlaða mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, „Djöflaeyj- una“, sem framsýnd var i Ósló á fimmtudagskvöld, lofi í gagnrýni sem birtist í nokkrum stærstu blöðum landsins. 20 mönnum bjargað úr sjávarháska TÍU mönnum var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar á sunnu- dagsmorgun af Dísarfelli eftir að skip- ið fórst 100 sjómílur suðsuðaustur af Homafirði. Tveir menn fórast í slys- inu. Skipveijamir á Dísarfelli vora um tvo klukkutíma í sjónum eftir að skip- inu hvolfdi í vonskuveðri suður af landinu á sunnudagsmorgun. Þá bjargaði áhöfn björgunarþyrlunnar tíu manna áhöfn netabátsins Þorsteins GK á mánudag áður en skipið strand- aði, fylltist af sjó og valt á hliðina undir Krísuvíkurbergi í slæmu veðri. Fyrstu skip komu á staðinn um það bil sem síðustu mennimir vora hífðir frá borði og horfðu áhafnir þeirra á skipið reka upp í klettana. Skipið ligg- ur þar enn og er gerónýtt. Ríkissljóm lækkar skatta TEKJUSKATTUR lækkar á næstu þremur áram um 4% samkvæmt ákvörðun ríkisstjómarinnar og dregið verður úr jaðaráhrifum bamabóta og vaxtabóta. Þessar ráðstafanir vora kynntar á mánudag eftir að Versl- unarmannafélag Reykjavíkur, Iðja og Rafiðnaðarsambandið gengu frá kjarasamningi við vinnuveitendur þá um morguninn. Skattprósenta í stað- greiðslu lækkar í áföngum úr 41,98% í 37,98% frá 1. janúar sl. til 1. janúar 1999. Landsbankinn kaupir í VÍS LANDSBANKI íslands gekk á föstu- dag til samninga við Eignarhaldsfé- lag Brunabótafélags íslands um kaup og kauprétt á eijgiarhlut þess í Vá- tryggingaféjagi fslands og Líftrygg- ingafélagi íslands. Kaupverð hluta- bréfanna er samtals 3,4 milljarðar króna. Albanir óska eftir aðstoð NATO SALI Berisha, forseti Albaníu, og allir stjórnmálaflokkar landsins óskuðu á fimmtudag eftir aðstoð Atlantshafs- bandalagsins, NATO, við að koma á lögum og reglu í landinu og „tryggja fullveldi þess“. Al- gjör upplausn hefur ríkt í suðurhluta landsins og hún hefur nú breiðst til norðurhlutans. Vopnum var stolið úr herstöð skammt frá Tirana á fímmtudag og talið er að þar hafí ver- ið að verki stuðningsmenn Berisha, sem séu að búa sig undir átök í landinu. Engu er líkara en her landsins hafi gufað upp og margir hermenn hafa flúið til heimahéraða sinna. Vopna- birgðir hersins era í höndum uppreisn- armanna, m.a. glæpamanna sem hefur verið sleppt úr fangelsi í uppreisninni. ítalir, Rússar, Bandaríkjamenn og Bretar hafa flutt landsmenn sína og aðra útlendinga frá Albaníu vegna ástandsins. Berisha fól þingmanninum Bashkim Fino, sem er sósíalisti og andstæðingur forsetans, að gegna embætti forsætisráðherra og á mið- vikudag skipaði hann nýja bráðabirgða- stjórn, sem nýtur stuðnings níu af tíu fiokkum á þinginu. Fino kvaðst vilja að gengið yrði til viðræðna við upp- reisnarmennina. Sali Berisha ERLENT ►BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, fól Viktor Tsjemomyrdín forsætisráð- herra og Anatolí Tsjúbaís, fyrsta aðstoðarforsætisráð- herra, að stokka upp í rúss- nesku stjóminni. Ljóst þykir að Tsjúbais muni ráði mestu um skipan nýrrar stjórnar og hann á að fá mikil völd í efnahagsmálum, en hann stýrði einkavæðingunni i Rússlandi á árunum 1991-96. Andstæðingar Jeltsíns brugðust illa við skipan hans en erlendir fjár- festar fögnuðu henni. ►FULLTRÚAR Öryggis- stofnunar samgöngumála í Bandarikjunum (NTSB) og bandaríska alrikislögreglan (FBI) vísuðu á fimmtudag á bug fullyrðingum um að bandariski flotinn hefði skotið niður Boeing-747 þotu flugfélagsins TWA eft- ir flugtak frá New York 17. júlí í fyrra. Pierre Salinger, blaðafulltrúi Johns F. Kennedys, fyrrverandi for- seta, og hópur rannsóknar- blaðamanna höfðu haldið því fram að þeir hefðu sann- anir fyrir því að bandaríski flotinn hefði verið við leyni- legar æflngar undan Long Island, skotið flugskeyti á þotuna fyrir slysni og valdið þannig dauða 230 manna. Israelsk börn myrt SJÖ ísraelskar stúlkur biðu bana og a.m.k. sex særðust þegar jórdanskur landamæravörður hóf fyrirvaralaust skothríð á hóp skólabarna á fimmtu- dag. Mesta mildi þótti að fleiri skyldu ekki hafa látið lífíð. Óttast er að sam- búð Jórdana og ísraela versni vegna árásarinnar og Hussein Jórdaníukon- ungur og Benjamin Netanyahu, forsæt- isráðherra ísraels, fordæmdu báðir at- vikið. ►ALLT AÐ 100.000 rúand- ískir flóttamenn streymdu til bæjarins Ubundu í Zaire um síðustu helgi vegna sókn- ar uppreisnarmanna í aust- urhluta landsins. Franski ráðherrann Xavier Emm- anuelli, sem var á svæðinu, sagði nauðsynlegt að senda þangað hersveitir til að koma hjálpargögnum til flóttamannanna. FRÉTTIR Elkem hækkaði til- boð um 200 milljónir Samningar náðust um stækkun Járnblendi- verksmiðjunnar á Grundartanga í vikunni eftir að stjórnendur Elk- em komu með nýtt til- boð um breytta eignar- aðild. Egill Ólafsson skoðaði bakgrunn samninga um stækkun verksmiðjunnar. SAMKOMULAG eignaraðila íslenska járnblendifélags- ins hf. um stækkun verk- smiðjunnar á Grundar- tanga var gert á grundvelli tilboðs stjómenda Elkem, sem fól í sér að þeir hækkuðu fyrri hugmyndir sínar um verðmæti verksmiðjunnar úr 225 milljónum norskra króna í 245 milljónir. Þetta er hækkun um rösklega 200 milljónir íslenskra króna. Þetta tilboð Elkem kom eftir að Jón Sveinsson, stjómar- formaður íslenska járnblendifé- lagsins, hafði hafnað beiðni Elkem um að hann óskaði eftir því við Landsvirkjun, að frestur eigenda verksmiðjunnar til að taka ákvörð- un um stækkun hennar yrði lengd- ur. _ Áður en samningar tókust um stækkun Járnblendiverksmiðjunn- ar og breytta eignaraðild höfðu staðið yfir mjög harðar samninga- viðræður í marga mánuði milli eig- enda verksmiðjunnar, aðallega ís- lenska ríkisins og Elkem í Noregi. Allir eignaraðilarnir þrír höfðu lýst áhuga á að stækka verksmiðjuna um einn ofn eftir að hagkvæmi- könnun hafði leitt í ljós að stækkun væri hagkvæm og gerði verksmiðj- una mun samkeppnishæfari. Elk- em setti hins vegar það skilyrði fyrir stækkun að það fengi meiri- hluta í fyrirtækinu. Samkomulag um verðmæti þess var þess vegna forsenda fyrir því að samningar tækjust. Elkem bað um lengri frest Upp úr viðræðum Elkem og ís- lenska ríkisins slitnaði 28. febrúar, fyrst og fremst vegna ágreinings um verðmæti verksmiðjunnar. Frestur til að taka ákvörðun um stækkun rann út 8. mars og þann dag var Landsvirkjun tilkynnt bréflega að íslenska jámblendifé- lagið hf. myndi ekki nýta sér ákvæði raforkusamnings um að kaupa raforku vegna þriðja ofns- ins. Sama dag hafði fulltrúi Elkem samband við Jón Sveinsson og ósk- aði eftir að hann bæði Landsvirkj- un um lengri frest. Jón hafnaði því strax. Þessi neitun undirstrikaði það sem íslensk stjómvöld höfðu áður sagt opinberlega að ekki yrði af stækkun verksmiðjunnar vegna ósamkomulags eigenda. Beiðni stjómenda Elkem um lengri frest sýndi hins vegar að enn var fyrir hendi áhugi af þeirra hálfu á að stækka. „Ég tel að Elkem hafi treyst því að íslensk stjórnvöld myndu ekki sleppa þessu tækifæri til að stækka verksmiðjuna. Þegar stjórnendur fyrirtækisins sáu að íslensk stjórnvöld voru ekki tilbúin að teygja sig lengra en þau höfðu JÁRNBLENDIVERKSMIÐJAN á Grandartanga. gert breyttu þeir um afstöðu," sagði Jón. Framkvæmdastj óri kísiljárndeildar Elkem tók frumkvæðið Um síðustu helgi óskaði Guð- mundur Einarsson, framkvæmda- stjóri kísiljáms- og kísilmálmssviðs Elkem, eftir fundi með Finni Ing- ólfssyni iðnaðarráðherra þar sem hann setti fram hugmyndir að lausn þeirra ágreiningsmála sem komu í veg fyrir stækkun. Þær fólu í sér að Elkem samþykkti að Jámblendiverksmiðjan yrði metin á 245 milljónir norskra króna, en á fyrri stigum viðræðnanna vildi Elkem miða við 225 milljónir. Hækkunin er rösklega 200 milljón- ir íslenskra króna. Á móti krafðist Elkem þess að fá 51% hlutafjár. Guðmundur tók við framkvæmdastjórastarf- inu í lok síðasta árs þeg- ar viðræður við íslenska ríkið um stækkum Grundartangaverksmiðj- unnar vom langt komnar. Marius Grönningsæter, aðstoðarforstjóri Elkem, hélt hins vegar áfram að leiða viðræðurnar fyrir hönd Elk- em. Þegar þær voru komnar í strand tók Guðmundur fmmkvæði í málinu í samráði við æðstu stjóm- endur Elkem, sem leiddi til þess að hreyfíng komst á viðræðumar að nýju. Orkuverð hærra með tveimur ofnum en þremur Raforkusamningur íslenska járnblendifélagsins og Landsvirkj- unar, sem undirritaður var 30. jan- úar sl., tekur gildi 1999 og gildir í 20 ár. Hann felur í sér talsverða hækkun á orkuverði frá eldri króna eða rösklega 2,5 milljarða íslenskra króna. Þetta þýðir að gengi á hlutabréfum fyrirtækisins er u.þ.b. 2,2. Hlutabréfin verða skráð á hlutabréfamarkaði strax á þessu ári og áformar íslenska ríkið að selja sinn hlut í áföngum að undanskildum 12% sem Elkem og Sumitomo eiga kauprétt á ef samn- ingar um frekari stækkun með fjórða bræðsluofninum verða gerð- ir fyrir 1. júlí 1999. Forkaupsréttur þeirra á hlutafénu verður á geng- inu 2,5, sem þýðir að miðað er við að verðmæti verksmiðjunnar eftir stækkun sé 3,5 milljarðar. Guðmundur Einarsson sagði á blaðamannafundi í fyrradag að hann vænti þess að innan 10 ára yrði tekin ákvörðun um byggingu fjórða ofnsins. Ákvæðið um forkaupsrétt að 12% hlut íslenska ríkisins er hins vegar fallið til þess að flýta þessari ákvörð- un. Ef Elkem og Sumi- tomo nýta sér ekki forkaupsréttinn fyrir 1. júlí 1999 fellur hann niður og íslenska ríkið mun þá væntan- lega selja þennan hlut á markaðs- virði. Ef íslenskir fjárfestar sýna áhuga á að kaupa hlut íslenska ríkisins á talsvert hærra verði en 2,5 má búast við að það ýti undir Elkem og Sumitomo að taka ákvörðun um byggingu fjórða ofnsins og að nýta sér forkaups- réttinn. Heimsmarkaðsverð á framleiðslunni og markaðsaðstæð- ur koma einnig til með að ráða miklu um hvort og þá hvenær ákvörðun um byggingu fjórða ofnsins verður tekin. Markaðssamningi breytt Samhliða samkomulagi um stækkun gerðu eignaraðilar sam- OrkuverAiA hækkar í nýj- um samningi samningi. Orkuverðið verður hins vegar nokkru lægra með þremur ofnum en það hefði verið ef einung- is tveir ofnar væru í verksmiðj- unni. Ekki fæst uppgefið hvað munurinn á verðinu er mikill eftir því hvort ofnamir eru tveir eða þrír, en um mikla fjármuni var að tefla fyrir verksmiðjuna ef horft er á allan samningstímann. Jón Sveinsson sagði að ef horft væri á innihald raforku- _______ samningsins væri ljóst að það var tæplega for- svaranlegt fyrir Elkem að láta möguleikann á stækkun verksmiðjunn- ar renna sér úr greipum. Orkuverð- ið hefði orðið óhagstæðara og verk- smiðjan hefði ekki orðið eins hag- kvæm. Forkaupsréttur ýtir undir frekari stækkun Samkomulagið felur í sér að verðmæti Járnblendiverksmiðjunn- ar er metið á 245 milljónir norskra Nýr fram- kvæmdastjóri ráAinn í apríl komulag um að breyta markaðs- samningnum við Sumitomo. Sumi- tomo, sem og önnur fyrirtæki í Japan, eiga kost á að kaupa mikið magn af kísiljárni frá Kína á lágu verði. Nýi markaðssamningurinn felur í sér að Sumitomo kaupir árlega 12.500 tonn af kísiljárni af íslenska járnblendifélaginu í stað 20.000 tonna á heldur lægra verði en áður. ________ í næsta mánuði verður haldinn stjómarfundur í íslenska járnblendifélag- inu þar sem nýr fram- kvæmdastjóri verður ráðinn. Jón Sveinsson hefur undirbúið ráðningu með því að taka saman 8-9 manna lista, sem lagður verður fyrir stjórnina. Jón sagði að eining væri milli eig- enda um að samkomulag yrði að takast milli allra eigenda um nýjan framkvæmdastjóra. Aðalfundur Járnblendifélagsins verður haldinn í vor þegar Alþingi er búið að breyta lögum um félagið-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.