Morgunblaðið - 16.03.1997, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.03.1997, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LÍFH) ERMÉR GOTT NÚNA Illvígir sjúkdómar eru eitt af því sem fólk ótt- ast mjög, ekki síst krabbamein. Sá sjúkdómur er þó ekki lengur sá óbugandi andstæðingur sem áður var, margt fólk fær krabbamein og kemst yfír það. Heiðrún Guðmundsdóttir er ein úr þeim hópi. Hún er tæplega fertug, líffr æðing- ur og garðyrkjumaður að mennt. Hún segir í samtali við Guðrúnu Guðlaugsdóttur frá bar- áttu sinni við krabbameinið, viðbrögðum við sjúkdómnum og hugmyndum um orsakir hans. Reynslu sína ræðir hún ekki síst til að hvetja konur til að fara í krabbameinsskoðun og al- menning og yfírvöld til að styrkja Landspítal- ann til að kaupa nýtt og nákvæmara tæki til greiningar á brjóstameinum Morgunblaðið/Árni Sæberg Heiðrún Guðmundsdóttir með mexíkóska heimilishundinn Nóa. ETTA byrjaði þannig að ég fékk eymsl í annað brjóstið. Eg fór vorið 1992 í venjulega krabba- meinsskoðun og nefndi þetta þá. Mér var sagt að þetta væri eðlileg afleiðing af hormónasveiflum í tíðahringnum. Ég fór heim með það og sætti mig við þetta, þó svo ég væri alltaf með óþægindi," segir Heiðrún í upphafi frásagnar sinnar. „Um sumarið ágerðust þessi óþægindi en ég hafði sannfært sjálfa mig um að ég væri aðeins með hormónatruflanir og lét því kyrrt liggja. Svo gerðist það að ég var að passa tveggja ára telpu í september umrætt ár. Við hjónin eigum'eina dóttur sem þá var sex ára gömul og hún og litla telpan voru að ærslast í rúminu hjá mér einn morguninn. Það endaði með því að sú litla sparkaði í bijóstið á mér. Ég meiddi mig afskaplega mikið og þá fann ég að það var kúla í bijóstinu. Ég beið í mánuð en kúlan minnkaði ekki svo ég fór til læknis. Þá fóru í hönd rannsókn- ir. Tekin var mynd af bijóstinu en það kom ekkert fram á henni. Einn- ig var tekið stungusýni úr eymsla- staðnum og niðurstaðan var að um frumubreytingar væri að ræða. Ég skildi lækninn þannig að ég réði hvort ég léti frjarlægja hnútinn en orðalagið var svo vægt að ég taldi að það væri ástæðulaust. Ég sagði svo vinkonu minni, sem þá vann á Kvennadeild Landspítalans, frá málinu og hún lagði fast að mér að láta fjarlægja hnútinn, sem ég þá gerði. Aðgerðin var gerð á skurð- stofu úti í bæ en þegar ég kom til að láta fjarlægja saumana sagði iæknirimnnér-að •hann- viMT tgkar meira af bijóstinu, frumubreyting- amar hefðu reynst illkynja. Þetta var í nóvember en ég var þá á þriðja ári í líffræðinámi við Háskóla íslands. Það voru að byija próf og ég var að skrifa ritgerð svo mér fannst ég ekki mega vera að því að fara í þessa aðgerð strax. Ég vildi því bíða fram yfir jól en læknirinn sagði nei og kvað nauð- synlegt að gera hana sem allra fyrst. Ég gaf mér ekki tíma til að kynna mér hvað fleygskurður væri áður en ég fór í aðgerðina, en við fleygskurð er tekinn biti úr bijóst- inu og eitlamir i holhöndinni. Þetta kom mér á óvart. Ég fór heim af spítalanum á fjórða degi, sem var fimmtudagur. Ég var varla komin inn úr dyrunum þegar hringt var í mig og læknirinn segir mér að hann hafi hlaupið á sig að leyfa mér að fara heim, komið hafí í ljós við rann- sóknir að ég hafí verið með full- myndað krabbamein í bijóstinu og það þurfí því að taka allt bijóstið. Sú aðgerð átti að fara fram strax eftir helgina. Ég vildi ekki trúa þessu en læknirinn sagði mér að öll sýnin sem tekin hefðu verið úr mér hefðu verið skoðuð aftur og það hefði tekið þetta langan tíma. Ég neitaði enn að trúa þessu.“ Brjóstið tekið Ég fór upp á spítala þar sem hálf vaktin tók á móti mér. Ég spurði fólkið hvort ekki væri hægt að fara aðra leið en mér var sagt að svo væri ekki og síðan útskýrt verulega vel fyrir mér hvernig að- gerð þetta væri. Ég spurði hvort ekki væri hægt að skilja eitthvað af bijóstinu eftir en mér var sagt ■að'jjað væri ekki hægt, það þyrfti að taka allt, líka geirvörtuna. „Verður þá ekkert eftir,“ spurði ég vantrúuð. „Nei, það verður ekkert eftir,“ var svarið. Ekki var vitað fyrirfram hvort ég þyrfti að fara í geisla- eð_a lyfjameðferð eftir að- gerðina. Ég varð ekki miður mín fyrr en ég vissi að það yrði að taka allt brjóstið, þá fylltist ég örvænt- ingu og var að hugsa um að fara ekkert í þessa aðgerð en maðurinn minn tók af skarið og ók mér á til- settum tíma aftur upp á spítala. Bijóstið var tekið og ég þoldi svæf- inguna mjög illa, varð græn i fram- an og kastaði látlaust upp. Þegar ég kom til sjálfrar mín varð mér ljóst að allt bijóstið var farið, að- eins skinnið var eftir, strengt yfir rifbeinin. Viku eftir aðgerðina voru saum- amir teknir og farið var að kenna mér æfingar. Við brottnám bijósts- ins og eitlanna í holhöndinni skemmast taugar, ég gat ekki lyft handleggnum fyrst eftir aðgerðina en æfíngamar hjálpuðu mér til þess að geta það. Það tók mig hálfan mánuð að geta rétt handlegginn upp fyrir höfuð en það tókst. Ég hef hins vegar hvergi nærri fullan mátt í handleggnum enn þann dag í dag og fæ hann víst aldrei. Kona frá Samhjálp kvenna heimsótti mig áður en ég fór í síðustu aðgerðina. Ég hefði haft meira gagn af heim- sókn hennar ef hún hefði komið áður en ég fór í fleygskurðinn, þá var ég ekki eins hrædd og hefði þegið frekari upplýsingar. En þess ber að geta að þessar konur í Sam- hjálp kvenna hafa allar fengið krabbamein í bijóst og þekkja því vandann af eigin raun og hafa unn- ið mikið og óeigingjarnt starf með- al þeirra sem gangast þurfa undir aðgerð á bijósti vegna krabba- meins. Það sem kvaldi mig mest var ekki óttinn við krabbameinið, þótt einhveijum þyki það kannski undar- legt. Ég var frá upphafi nokkuð vongóð um að krabbameinið hefði ekki breiðst út og myndi ekki gera það. Það voru útlitslýtin sem ég setti mest fyrir mig. Ég ímyndaði mér að ég yrði hræðileg útlits með eitt bijóst. Ég hafði aldrei séð konu eftir slíka aðgerð og heldur ekki neinar myndir. Það ætti að sýna konum sem þurfa að fara í svona aðgerð myndir af bijóstalausum konum, bæði mjóum konum og feit- um konum, þá gerir maður sér bet- ur grein fyrir því hvemig maður verður eftir aðgerðina. Konan frá Samhjálp kvenna sýndi mér svo gervibijóst sem ég ætla núna að sýna þér.“ Vondar minningar - góð lausn Heiðrún sækir kassa með bækl- ingum og gervibijóstum og segir um leið og hún ýtir honum til mín að þetta dót heiti: Vondar minning- ar. „Gervibijóstið sem ég fékk var úr latexi, alltaf ískalt, þungt og óþægilegt, maður svitnar undan því og skinnið soðnar. Ég notaði það þó í eitt ár. Ég var svo neikvæð í garð gervibijóstsins að læknirinn minn hvatti mig til að fara í aðgerð og láta búa til á mig nýtt bijóst. t Það var gert og ég er ánægð með þetta nýja bijóst mitt. Margar að- { ferðir eru til að búa til slík bijóst en | í mínu tiiviki var settur saltvatns- poki undir skinnið til þess að þenja það út og er bætt í 50 til 100 milli- lítrum með vissu millibili. Síðan þegar búið var að þenja skinnið nægilega er saltvatnspokinn tekinn og poki með silikonblöndu settur í staðinn. Við gerð nýja bijóstsins er hitt bijóstið haft til hliðsjónar |> en auðvitað verða þau aldrei alveg i eins. Ég er svo heppin að hafa frá L náttúrunnar hendi stórar geirvört- P ur, hægt var að skipta geirvörtunni á heilbrigða bijóstinu í tvennt og flytja annan helminginn á hið nýja bijóst. Þetta tókst svo vel að nú eru ekki lengur nein útlitslýti á mér. Það er kannski erfitt að skilja viðhorf mitt, en mér leið áður eins og ég hefði misst líkamshluta, t.d. hönd eða fót og var mjög fegin i þegar tókst að bæta mér þann missi > svo vel sem raun bar vitni. | Andlegt álag vegna aðgerðar ™ sem þessarar er mikið. Mér hefur i Ég varð ekki miður mín [ fyrr en ég vissi að það yrði að taka allt brjóstið, þá fylltist ég örvæntingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.